Morgunblaðið - 21.03.1957, Blaðsíða 10
10
MORCVNBLAÐIB
flmmtudagur 21. marz 1957
Hef kaupendur
»ð ibúðum í byggingu aí ýmsum stærðum og full-
gerðum íbúðum, 5—7 herbergja.
Hef kaupendur að byggingarlóðum í Garðahreppi
og víðar.
Hef kaupendur að litlum og stórum bátum.
Hef kaupendur að löndum undir sumarbústaði.
Hef kaupendur að jörðum hvar sem er á landinu.
Nú er vorsalan að hefjast. Þeir, sem ætla að sélja
eða kaupa fasteignir ættu að tala við mig sem fyrst.
Sala og samníngar
Laugavegi 29 — Sími 6916.
Byggíngasamvinnufélag
bamakennara
Fyrir dyrum standa eigendaskipti að 3ja herbergja
kjallaraibúð við Hamrahlíð.
Félagsmenn, sem kynnu að óska þess að neyta for-
kaupsréjtar, snúi sér til undirritaðs fyrir 27. þ. m.
Steinþór Guðmundsson,
Nesveg 10 — sími 2785.
Nauðungaruppboð
verður haldið í Listamannaskálanum hér i bænum, föstu-
daginn 22. marz nk. kl. 1,30 e. h. Seldar verða allskonar
vefnaðarvörur o. fl. úr þrotabúi Karls O. Bang og ýmiss
konar vélavarahlutir tilheyrandi Gísla Halldórssyni hf.
Ennfremur verða seld húsgögn, rafmagnsvörur, úti-
standandi skuldir o. fl. úr ýmsum þrota- og dánarbúum.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Búnaðarþing af-
greiddi að fullu 44 múl
Fyrir þinginu iágu alls 47 mál
BÚNAÐARÞINGI var slitið á
mánudagsm. kl. 9,30. Fors. þings_
ins, Þorsteinn Sigurðsson bóndi
að Vatnsleysu í Biskupstungum
sleit þinginu með ræðu og minnt-
ist m. a. hinna ýmsu rnála, sem
fyrir þinginu lágu. Voru sum
þeirra allþýðingarmikil. Forseti
þakkaði fulltrúum og starfsliði
búnaðarþingsins ágæt störf á
þinginu og ámaði fundarmönn-
um allra heilla og góðrar heim-
komu.
Guðmundur Erlendsson, hóndi
að Núpi í Fljótshlíð sem var ald-
ursforseti á þinginu þakkaði for-
seta góða fundarstjóm, fyrir
hönd annarra þingmanna.
Fyrir þingið voru lögð 47 mál
og fengu 44 þeirra fulla af-
greiðslu.
Hér á eftir fara nokkrar á-
lyktanir þingsins:
ÁLYKTANIR:
1.
Búnaðarþing lítur svo á, að
ekki sé unnt að taka neinar á-
kvarðanir um innflutning bú-
fjár eða sæðis úr erlendum'bú-
fjártegundum, meðan ekki er
fullnægt ákvæðum laga nr. 15
frá 8. marz 1948 um byggingu
sóttvarnarstöðvar.
Hins vegar bcinir Búnaðar-
þing því til landbúnaðarráðherra
að leita eftir fræðilegri umsögn
yfirdýralæknis og Dýralæknafé-
lags íslands varðandi smithættu
af innflutningi búfjár og búfjár-
sæðis, og óskar jafnframt, að
landbúnaðarráðuneytið afli upp-
lýsinga um ráðstafanir annarra
þjóða þegar um innflutning bú-
fjár er að ræða. Álitsgerðir þess-
ar leggist fyrir næsta Búnaðar-
þing.
2.
Búnaðarþing ályktar að fela
stjórn Búnaðarfélags íslands að
hlutast til um, að hafin verði
nú þegar skipuleg ræktun á sunn
lenzka holdanautastofninum,
samkvæmt ákvæðum Búfjárrækt
arlaganna og telur eðlilegt ,að fé
það, sem veitt er á fjárlögum
1957, (16. gr., 37. liður) til hrein-
ræktar holdanauta, sé varið til
þessarar starfsemi.
Jafnframt felur Búnaðarþing
stjórn Búnaðarfélagsins að vinna
að því, að Tilraunaráð búfjár-
ræktar hefji samanburðartil-
raunir á íslenzkum nautgripum
og blendingum af Gallowaykyni,
til kjötframleiðslu og bendir á
Laugardæli, sem hentugan stað
til þess.
3.
Búnaðarþing ályktar að mæla
með samþykkt frumvarps þess,
er stjórnskipuð nefnd hefir sam-
ið um eyðingu refa og mmka,
að því tilskyldu, að frumvarpinu
verði breytt á þann hátt, að em-
bætti veiðistjóra og þau verkefni,
er því fylgja, tilheyri starfrækslu
Búnaðarfélags íslands, undir yf-
irstjórn landbúnaðarráðuneytis-
ins. Ennfremur felur Búnaðar-
þing stjórn B.í. að hlutast til
um, að á hverjum tíma séu til í
landinu fáanleg hentug skotvopn
Af hverju tryggið þér husgögnin
en ekki konuna og börnin ?
Vér höfum nú um alllangt skeið haft til athugunar að
útbúa tryggingu, sem tryggði hið almenna heimili gegn
sem flestum óhöppum, fyrir lágt iðgjald. Og nú höfum
vér ánægjuna af að kynna yður árangurinn,
vora
%
Með henni bjóðum vér í einu og sama tryggingarskírteini
fjölda margar tryggingar fyrir lágmarksiðgjald. Sumar
þessara trygginga hefur verið hægt að fá hér á landi
stakar, en aðrar ekki. Vér viljum sérstaklega vekja at-
hygli yðar á, hve iðgjaldið er lágt miðað við hversu víð-
tæk tryggingin er. Ennfremur, að það er nýmæli, sem
flestum mun þykja þarft, að tryggingarfjárhæð lausa-
fjármuna breytist ár frá ári eftir visitölu framfærslu-
kostnaðar.
Ýmis konai
1
Ábyrgðartr.,
angurstr.
Elding
Snióllóð
hcn
Farangurstx
c)
Abyrgðartr
SAMANBURÐUR MIÐAÐUR VIÐ AÐ LAUSAFJÁRMUNIR TRYGGIST FYRIR 100.00 KRÓNUR.
180—225 kr.
kostar brunatrygging
í steinhúsi en . . .
í sams konar húsi kosta
allar þessar tryggingar aðeins
325 kr.
HeimilistryggSng er heimilisnauðsyn !
Komið eða hringið strax í dag.
SAMBANDSHÚSINU — SÍMI 7080.
og önnur veiðitæki, er nauðsyn-
leg teljast, að dómi þeirra manna,
er þekkingu hafa á refa- og
minkaveiðum.
4.
Búnaðarþing ályktar vegna fyr
irsjáanlegs mikils og vaxandi
kostnaðar við húsbyggingu Bún-
aðarfélags íslands, að fela stjóm
þess að taka til athugunar og
rannsóknar hvort henta þætti, að
félagið stofnaði og ræki happ-
drætti eða færi aðrar leiðir, er
líklegar þættu til fjáröflunar íyr
ir félagið, og hrinda þeirri tekju
öflun af stað eins fljótt og ástæð-
ur leyfa.
5.
Búnaðarþing telur mikla nauð
syn á, að allt sé gert, sem unnt
er til varnar því, að bændur
verði fyrir tjóni af völdum smit-
andi blóðkreppusóttar í naut-
peningi.
Fyrir því beinir Búnaðarþing
þeim ákveðnu óskum til yfir-
dýralæknis, að hann beiti sér
fyrir því, að Tilraunastöðin á
Keldum taki til athugunar, hvort
ekki er tiltækilegt að beita ó-
næmisaðgerðum gegn sjúkdómi
þessum.
6.
Búnaðarþing felur stjóm Bún-
aðaríélags ísiands að stofna til
samtaka milli nautgriparæktar-
og búnaðarsambanda, í því skyni
að skapa aðstöðu til djúpfrysting
ar nauta- og hrútasæðis og Ureif-
ingar á því.
Framkvæmd þessa máls skal
gerð í samvinnu við Tilraunaráð
Búfjárræktar og S samráði við
Sauðfjárveikivarnirnar og yfir-
dýralækni.
7.
Búnaðarþing felur stjórn Bún-
aðarfélags íslands að beita sér
fyrir . þvi, að unnið verði að
rannsóknum á fóðrunarsjúkdóm-
um I búfé, við búnaðardeild Há-
skólans eða á Keldum ef hent-
ara þykir, svo unnt verði að
veita bændum þær leiðbeiningar
í þessum efnum, sem fáanlegar
eru.
8.
Þar sem það er undirstaða und
ir búrekstri bænda og framtíð
landbúnaðarins að bændur fái
verðlagsgrundvallar verð fyrir
framleiðsluvörur sínar, þakkar
Búnaðarþing fyrrverandi og nú-
verandi ríkisstjórn, að þær hafa
lögfest að greiða skuli útflutn-
ingsuppbætur á útfluttar land-
búnaðarvörur. Jafnframt beinir
Búnaðarþing þeirri ósk til ríkis-
stjórnarinnar að hún gjöri, í sam-
ráði við Framleiðsluráð landbún-
aðarins, þær ráðstafanir sem
nauðsynlegar kunna að reynast
til að tryggja bændum áðurgreint
verð fyrir afurðir sínar.
9.
Búnaðarþing vottar Stein-
grimi Steinþórssyni þakkir fyrir
störf hans sem landbúnaðarráð-
herra og væntir góðs af starfi
hans í búnaðarmálastjóraem-
bættinu, sem hann hefur nú aft_
ur tekið að sér.
FJÁRIIAGSÁÆTLUN
Búnaðarþing samþykkti eftir-
farandi fjárhagsáætlun fyrir ár-
ið 1957.
Tekjur samtals em
3.328.790. Helztu tekjuliðir eru
samkvæmt fjárlögum frá ríkis-
sjóði, 2.375.000 kr., seldar forlags
bækur 180.000 kr., tekjur af Frey
336,000 og ýmsar tekjur 209,470
krónur.
Gjöld alls eru áætluð 3.328.790
kr. Helztu gjaldaliðir eru: Stjórn
ar- og skrifstofukostnaður
499.940 kr., Búnaðarþing, jarð-
rækt og verkfæraráðunautur
719,670 kr. jarðrækt og búfjár-
rækt 931.037 kr., til Búnaðarsam-
bandanna 300.000 kr. útgáfukostn
aður við Frey 363.000 kr. lagt 1
húsbyggingasjóð 150.000 kr. og
ýmis útgjöld 281.000 kr.