Morgunblaðið - 23.03.1957, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.03.1957, Blaðsíða 2
MORCTJNTSL A&1Ð Laiiffnrrlnffiir 23. mnrz 1057 Sjóvá síóreykur fryggingasvið sitt Heimilis- og einkatryggingar munu mjög ryðja sér til rúms á næstunni Forstfóri félagsins gerir grein fyrir hinum nýju tryggingum VÍÐTÆK tryggingarvernd fyrir almenning er mjög æskileg frá þjóðhagslegu sjónarmiði, sagði Brynjólfur Stefánsson forstjóri Sjóvátryggingarfélags íslands, er hann í gær gerði grein fyrir nýj- um þætti tryggingastarsemi Sjóvá, sem um nokkurt skeið hefur verið í undirbúningi en það eru hinar svonefndu heimilis og einkatryggingar, sem án efa munu mjög ryðja sér til rúms hér sem í öðrum löndum, þar eð hér er um að ræða mjög víðtæk- ar tryggingar. Brynjólfur Stefánsson hóf mál sitt með því að bregða upp mynd af tryggingastarfseminni hér á landi, sem nú er milli 40 og 50 ára. Eru t. d. liðin hartnær 40 ár frá stofnun Sjóvátryggingarfélags fs- lands. Brynjólfur gerði fyrst al- menna grein fyrir trygginga- starfseminni hér á landi frá því tryggingar hófust hér og kom- ust í hendur innlendra aðila. Síð- an vék hann máli sínu að hinni stór-auknu tryggingastarfsemi sem Sjóvá nú er að taka upp. Sjóvátryggingarfélagið, sagði Brynjólfur, mun nú taka upp þá nýbreytni að bjóða viðskipta- vinum sínum að gera fyrir þá tryggingaráætlun, án skuldbind- Heimilistrygging hefur verið þekkt erlendis um langt skeið, en er ný hérlendis. Heimilistrygging innifelur t. d., auk bruna, tjón sem orsakast af sprengingum í katli, vatnsflóði úr rörleiðslum og geymum, innbrotsþjófnaði, stormtjón o. fl. Ennfremur bætir hún í vissum tilfellum leigutap og kostnað tryggða, verði hann fyrir því óhappi að húsnæði hans verði ekki íbúðarhæft um stund- arsakir vegna bruna o. fl. Reynt hefur verið að haga tryggingunni þannig, að hún geti fullnægt þörfum sem flestra um vátryggingar, og á sem breiðust- um grundvelli. En það eru ein- mitt þessi atriði, að sameina marg ar áhættur í eina heild, sem gef- ur tækifæri til þess að bjóða víð- tæka tryggingu fyrir lágt iðgjald. Hins vegar er það augljóst að margir einstaklingar þurfa á frekari tryggingum að halda, sagði Brynjólfur, svo sem ábyrgð artryggingu húseiganda, sem nú má sameina heimilistrygging- unni. Sjóvátryggingarfélagið hef- ingar af þeirra hálfu, þar sem ur í undirbúningi ýmsa viðauka miðað er við fjölskylduaðstæður og efnahag hvers og eins, og höfð er fyrir augum héildarþörf við- komandi fyrir tryggingar, og hver trygging aðeins einn liður í áætluninni. Reynsla okkar, sagði Brynjólf- ur, hefur verið sú, að menn taka eina og eina tryggingu, oft án tillits til eldri trygginga, og venjulega ekki fyrr en umboðs- maður tryggingarfélags hefur bent viðkomandi á öryggi það, sem tryggingin veitir honum. Fyrir flesta er starfsgetan mikilvægasta skilyrðið fyrir af- komuöryggi þeirra og fjölskyldu þeirra, því er hún eitt hið fyrsta sem tryggja þarf. Þær áhættur sem steðja að starfsgetu eru sjúk- dómar, örorka vegna slysa, elli og dauði. Sjóvátryggingarfélagið hefur nýlega tekið upp lífeyris- tryggingar fyrir einstaklinga og hjón, sem miða að því að tryggja afkomu manna eftir að starfs- aldri eða getu er lokið. Vitað er að lífeyris- og eftirlaunasjóðir eru ekki til nema hjá takmörk- uðum hópum opinberra starfs- manna og einkafyrirtækja, og flestir sem aldrei hafa átt þess kost að verða þeirra aðnjótandi, fyrr en Sjóvá hefur tekið upp lífeyristryggingar. Verði menn fyrir slysi utan vinnustaðar, er oftsinnis hætta á að engar bætur komi fyrir örorku eða dauða. Sjóvátrygging- arfélagið vill því innifela einka- slysatryggingu allrar fjölskyld- unnar í heimilistryggingunni. og stormtjónum o. fl., og býður öllum þeim sem áhuga hafa á slíku, að gera áætlun um þörf þeirra á sviði trygginga. /‘ &&&,* Jón Norðfjörð Blómasýning Flóru sem stendnr i vikn TILEFNI þess að á þessu ári eru liðin 25 ár frá stofnun Blóma- verzlunarinnar „Flóru“, verður efnt til sérstakrar plöntuviku. Plöntuvikan hefst með sýningu alls konar skrautjurta n. k. sunnu- dag 24. þ. m. og verður hún opin frá kl. 10 að morgni til 10 að kvöldi. Sýndar verða alls um 50 mismunandi tegundir plantna og skrautjurta, sem allar eru vel fallnar til skreytinga í heimahúsum. i VEL TIL VANDA® Unnið hefur verið að undirbún ingi sýningarinnar í margar vik ur og mjög til alls vandað. Enda hefir Blómaverzlunin ,,Flóra“ í þjónustu sinni ungan 'istamann í þessu fagi, þýzkan, Gerhard Hahner að nafni. Hefir hann nú unnið hérlendis um nokkurra við heimilistrygginguna, svo sem ______ _________ ____ __________ tryggingu húseiganda fyrir vatns- | mánaða skeið og hlotið mjög góða Tvísýn keppni HAFNARFIRÐI. — Meistara- 'flokkskeppni Bridgefélagsins hefir staðið yfir að undanförnu og taka 7 sveitir þátt í henni. Spiluð er tvöföld umferð. — Nú er 10 umferðum lokið af 12 og er sveit Péturs Auðunssonar efst með 15 stig, en hann á eftir tvær umferðir. Sveit Jóns Guðmunds- sonar hefir 14 stig og á eftir 3 umferðir. Reynir Eyjólfsson hef- ir 13 og 2 umferðir eftir. Albert Þorsteinsson 12 og tvær eftir. Eins og sjá má, er þetta mjög Vestmannaeyíng oi fá flagleiðis skyr og rjóma frá Akureyri í GÆR var mikið að gera hjá Flugfélagi fslands við flutninga, þar sem vöruflutningar eru ekki enn komnir í eðlilegt horf eftir sjómannaverkfallið. M. a. fór flug jöfn og tvísýn keppni og því ekki vél hlaðin af varningi héðan hægt að spá neinu um úrslit. Hin árlega keppni við Selfyssinga verður væntanlega háð seint i april. — G.E. Heyjaþungur vetur SELFOSSI, 15. marz: — Algert jarðbann er nú víða hér í nær- sveitum. f Grímsnesi er allur fén aður á fullri gjöf, bæði sauðfé og hestar, því hvergi örlar þar á dökkan díl. Er þessi vetur bændum því mjög heyjaþungur. Man eldra fólk vart eftir því- líkum harðindum og snjóum og nú er hér. f Flóanum, við sjávarsíðuna er jörð aðeins byrjuð að koma upp en aðeins hrossabeit ennþá. f Hreppunum og Biskupstungum eru mjög litlir hagar en Þing- vallasveitin mun hafa komizt léttast af, hvað fannkyngi snert- ir en þar er ágæt beit fyrir bæði fé og hross. — Guðmundur. Eggert Guðmundss. opnar málverka- sýningu í dag EGGERT GUÐMUNDSSON list- málari opnar síðdegis í dag all- stóra málverkasýningu í bogasal Þjóðminjasafnsins. Er hér um af- mælissýningu að ræða hjá lista- manninum, sem varð fimmtugur ekki alls fyrir löngu og hefur fengizt við listmálun um 30 ára skeið. Eggert sýnir alls um 100 myndir. Eru það ýmist olíumál- verk eða teikningar. Um 20 þeirra eru nýjar, t. d. mynd frá Þingvöllum „Síðasti bóndinn í þjóðgarðinum“ (Sveinn í Vatns koti). Fleiri nýjar myndir eru frá Þingvöllum. Þá sýnir hann nokkrar myndir sem hann mál- aði suður í Ástralíu, er hann var þar um 2 ára skeið. Málverkin eru til sölu. Síðast hélt Eggert sýningu hér í Reykjavík fyrir nær 3 árum. Eggert er kunnur málari, en hann nam listmálun suður í Þýzkalandi. — Venjulega hefur Eggert sýnt myndir sínar í vinnu- stofu sinni að Hátúni 11. Þessi sýning verður opin í hálfan mán- uð daglega frá kl. 2—10 síðd. til Akureyrar. En þar tók vélin rösklega 2% tonn af skyri og rjóma, pylsum og sperðlum o.fL matföngum og fhitti beinustu leið til Vestmannaeyja. Ekki hef- ur áður verið flogið á vegum félagsins viðkomulaust milli Akureyrar og Vestmannaeyja. Flugið gekk að óskum svo að nú hafa Vestmannaeyingar hlotið nokkurt magn af kjarngóðri norð lenzkri fæðu. dóma fyrir frumlegar skreyting ar, og sérstaka þekkingu á plönt- um. Hefir verið safnað á sýning- una öllu því bezta sem völ er á hérlendis. Næstu viku verða svo plönturn ar til sölu fyrir almenning. Bændur og búvéla- fræðingar á nám- skeið í Bretlandi Á SUNNUDAG fóru til Englands 25 ungir bændur og búvélafræð- ingar úr sveitum landsins til þess að sækja námskeið í viðhaldi og meðferð Ferguson dráttarvéla og landbúnaðarvéla. Ferguson verk smiðjurnar halda sérstakt nám- skeið fyrir þessa íslendinga og verður það miðað við íslenzkar aðstæður og byggt á þeirri miklu reynslu, sem fengin er af þeim 1600 Ferguson dráttarvélum, sem þegar eru í notkun á íslenzkum býlum. Námskeiðið fyrir Islend- ingana er haldið fyrir tilhlutan Dráttarvéla hf., sem annast sölu Ferguson véla á íslandi. (Frétt frá SÍS). FRÆÐSLUERINDI. Á sýningunni verðá flutt stutt erindi af segulbandi með upplýs- ingum og ráðleggingum til al- mennings um meðferð potta- planta. Annast það eingöngu þekktir blómasérfræðingar og garðyrkjumenn. Svo sem frú Ól- afía Einarsdóttir í Hofi, sem talar um blómaband, pottarósir, Mar- anda o.fl. Ingimar Sigurðsson Fagrahvammi um Dalaliljur, Þrá inn Sigurðsson um Rósir. Karl Magnússon um Prímúla. Aðal- steinn Steindórsson talar um Prinsessuvín og Pálma alls konar, þá talar Haukur Baldvinsson um Aphalandra, Kaktusa, Bellaper- ona og laukablóm svo sem Túli- pana og Amarylles, en Jóhann Jónsson um Rússneskan vinvið, Kóngavín, Azalea, Cytisus o. fl. Þar næst talar svo Ólafur Þórð- arson um Pelargóníur. Þessi erindi verða öll flutt af segulbandi á sýningunni en kom- ið hefur verið fyrir hátölurum víðs vegar í hinum björtu húsa- kynnum „Flóru“ og „Orlofs hf“ svo sýningargestir njóti fróð- leiksins sem bezt. Auk þess eru allar plönturnar merktar með ís- lenzkum heitum auk hinna latn- esku nafna sinna. Vænta forstöðumenn „Flóru" þess að sýningin og plöntuvikan verði almenningi hvatning til frekari kynna við hinar ýmsu tegundir pottajurta og auki þann ig heimilisánægju sína. Er það einkar skemmtilegt sem fram kemur í einu fræðslusamtalinu sem fram fer á sýningunni að tek izt hefir að rækta hérlendis harð gerða Pálmategund sem líkindi eru til að hafa mætti í görðum úti að minnsta kosti að sumar- lagi.. Jón Morðfjörð leikorí látinn í gær andaðist í Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri Jón. Norðfjörð, leikari og bæjargjald- keri á Akureyri. Jón hafði að undanförnu kennt sér meins fyrir hjarta og mun blóðtappi hafa orðið honum að aldurtila. Jón var rúmlega fimmtugur að aldri. Var hann þekktur víða um land sem leikari og leikstjóri. — Hafði hann leikið allt frá 1917 og þar til nú á yfirstandandi ári. Þegar hann lézt hafði hann hálf- lokið við að æfa „Gullna hliðið“ fyrir Leikfélag Akureyrar, en það átti að vera afmælisleikrit félags- ins á 40 ára afmæli þess. Var þetta 55 leikritið, sem Jón hafði á hendi leikstjórn á. Alls hafði Jón leikið 81 hlutverk um ævina. Bæjargjaldkeri Akureyrar var Jón nú síðustu árin, en hann hafði starfað í skrifstofum bæj- arins um 30 ára skeið. Jón var góður starfsmaður bæjarins og kunnur og vinsæll leikari. Ritað um ísland í MARZ-HEFTI bandaríska flug- málablaðsins „Flying“ birtist löng grein um flugmál á íslandi. Er blað þetta eitt hið útbreiddasta sinnar tegundar í Bandaríkjun- um. Frank Sheer, einn af starfs- mönnum þess, mun hafa komið hingað til lands á fyrra ári og ferðazt innanlands á vegum Flug- félagsins. Skrifar hann langa grein um félagið, sögu þess og starfsemi, og prýða margar myndir frásöguna. Kallar hann okkur „20. aldar víkinga" — og er ekki laust við, að margt hafi ltomið honum spánskt fyrir sjón- ir á ferð hans hér. Er frásagan skemmtileg og ýkjulaus. Hlaut British Counsil styrk BRITISH COUNSIL-styrknum fyrir árið 1957—1958 hefur verið úthlutað. Styrkinn hlaut Árni Arinbjarnarson fiðluleikari, ung- ur Reykvíkingur, sem hefur getið sér ágætan orðstír í listinni. Árni hefur stundað nám við Tónlistar- skólann í Reykjavík og fengið ágæt meðmæli. Til gamans má geta þess, að hljómsveitarstjórinn Warwick Braithwaite við Covent Garden hlustaði á fiðluleik Áma, þegar hann var staddur hér í fyrra og fór lofsamlegum orðum um leik hans. Gert er ráð fyrir, að Ámi fari utan í september n.k. og leggi stund á fiðluleik hjá Max Rostal, frægum fiðluleikara í Lundúnum. Bohlen fer lil Manilu WASHINGTON, 22. marz — Til- kynnt hefir verið, að Eisenhower Bandaríkjaforseti hafi skipað Charles E. Bohlen sendiráðherra Bandaríkjanna á Filippseyjum. — Bohlen hefir undanfarið verið sendiráðherra Bandaríkjanna í Moskvu. Fikotova og Gonnolly ganga í hjónobond Fregnir hafa borizt þess efnis, að tékkneska íþróttakonan Olga Fikotova og bandaríski íþrótta- maðurinn Harold Connally, verði gefin saman í hjónaband í Prag í næstu viku. Ástarævintýri þeirra er orðið heimsfrægt, en þau hittust á Olympíuleikunum í Melbourne í haust — og felldu hugi saman. Connolly kom við í Tékkosló- vakíu fyrir skömmu, en hann hefur að undanförnu ferðast til ýmissa Evrópulanda. Ákváðu þau Fikotova þá að ganga í hjóna band — og sótti stúlkan um leyfi til Zapotocky forseta. Leyfið var veitt, — svo og leyfi fyrir stúlk- una til þess að hverfa vestur til Bandaríkjanna með eiginmanni sínum. Munu þau setjast þar að, en Fikotova stundar nám í lækn isfræði og Conally er kennari að atvinnu. Má því segja, að útlit sé fyrir, að ástarævintýri þetta hafi fengið góðan endi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.