Morgunblaðið - 23.03.1957, Blaðsíða 4
4
MOKCrnnr 4T>IF
Laugardagur 23. marz 1957
í dag er 82. dagur ársiiu.
Laugardagur 23. marz.
22. vika vetrar.
ArdegieflæSi kl. 10,57.
Síðdegisf’æði kl. 23,38.
Slj'savarðstofa Reykjavíkur í
Heilsuvemdarstöðinni er opin all-
an sólarhringinn. Læknavörður L.
R. (fyrir vitjanir) er á :.ama stað
frá kl. 18—8. Sími 5030.
Næturviirður er í Lyfjabúðinni
Iðunni, sími 7911. — Ennfremur
eru Holts-apótek, Apótek Austur-
bæjar og Vesturbæjar-apótek oji-
in daglega til kl. 8, nema á laug-
ardögum 1 kl. 4. Þrjú síðast tal-
in apótek eru öll.opin á sunnudög-
um milli kl. 1 og 4.
Garðs-apólek, HÓImgarði 34, er
opið daglega kl. 9—20 nema á
iaugardögum 9—16 og á sunnudög
um 13—16. Sími 82006.
Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi
9, er opið daglega 9—19, nema á
laugardögum kl. 9—16 og á sunnu
dögum 13—16, Sími 4759.
Hafnarfjarðar- og Keflavíkur-
apótek eru opin alia virka daga
frá kl. 9—19, laugardaga frá kl.
9—16 og helga daga frá kl. 13—
16.
Hafnarfjörður: — Næturlæknir
er Eiríkur Bjömsson, sxmi 9235.
Akureyri: — Næturvörðyr er í
Stjörnu-apóteki, sími 1718. Nætur
læknir er Bjami Rafnar.
«
□ MlMIR 59573257 — 2.
• Messur •
A MORGUN:
Laugarneskirkja: — Messa kl.
2 e.h. — Barnaguðsþjónusta kl.
10,15 f.h. — Séra Garðar Svavars-
son. —
Bessastaðir: — Messað kl. 2. —
Hafnarfjarðarkirkja: Altarisganga
kl. 5,30. Séra Garðar Þorsteinsson.
Filadelfía, Hverfisgötu 44: —
Guðsþjónusta kl. 8,30 á morgun,
sunnudag. Ásmundur Eiríksson.
Iamgholtsprestakall: — Messa
Laugarneskirkju kl. 5. — Séra
Árelíus Níelsson.
Dómkirkjan: — Messa kl. 11
árdegis, séra Óskar J. Þorláksson.
Messa kl. 5, séra Jón Auðuns.
Bústaðaprestakall: — Messa í
Kópavogsskóla kl. 2. Bamasam-
koma kl. 10,30 árdegis, sama stað.
Séra Gunnar Ámason.
Fríkirkjan í Hafnarfirði: —
Messa kl. 2. — Eftir messu verð-
ur aðalfundur safnaðarins. Séra
Kristinn Stefánsson.
Frikirkjan: — Messað kl. 2 e.h.
Þorsteinn Bjömsson.
Reynivallaprestakall: — Messa
á Reynivöllum kl. 2 e.h., sunnud.
Sóknarprestur.
Kaþóiska kirkjan: — Lágmessa
kl. 8,30 árdegis. Hámessa og pré-
dikun kl. 10 árdegis.
IHesprestakall: — Messað í Mýr
arhúsaskðla kl. 2,30. Séra Jón
Thorarensen.
Hallgrinukirkja: — Messa kl.
11 f.h. Séra Jakob Jónsson. Kl.
1.30 barnaguðsþjónusta. — Séra
Jakob Jónsson. — Messa kl. 5 e.h.,
séra Sigurjón Þ. Ámason.
Háteigssókn: — Barnasamkoma
í hátíðasal Sjómannaskólans kl.
10.30 árdegis. — Messa fellur nið
ur vegna skákkeppni í skólanum.
Séra Jón Þorvarðsson.
lERDINAND
D
ag
bók
5 mínútna krossgáta
Listamannaskálinn í Kirkjustræti hefur undanfarnar vikur verið
sem paradís bókavina og bókasafnara. Hefur hver bókaútsalan rekið
aðra, fyrst útsala ýmissa forlaga, siðan útsala Helgafells og nú út-
sala á bókum, sem Guðmundur Gamalíelsson átti. Oft er margt um
manninn í skálanum og eru gestirnir niðursoknir mjög í athuganir
sínar, eins og þessi mynd sýnir, en hana tók G. Sverrisson.
Grindavíkurkirkja: — Guðs-
þjónusta kl. 2. Séra Guðmundur
Guðmundsson prédikar. — Sókn-
arprestur. —
Bruðkaup
Gefin verða saman í hjónaband
í dag af séra Jóni Auðuns ungfrú
Helga Sigfúsdóttir og Gunnar
Kjartansson, verzlunarstjóri, —
Lækjargötu 6. Heimili þeirra verð
ur að Víðimel 43.
Ennfremur ungfrú Ingibjörg
Ásthildur Mikkelsen og Lúðvík
Thorberg Helgason, verzlunarmað
ur. Heimili þeirra verður að
Rauðalæk 13.
í dag verða gefin saman, í Lond
on, ungfrú Gyða Sveinsdóttir
(Seins Árnasonar fyrrv. fiskmats
stjóra), og Leslie Kenneth, verð-
bréfamiðlari við kauphöllina í
London. Heimili þeirra verður
Brow Top 45 the Drive Richmans-
worth Hearts.
• Hjónaefni •
S.l. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Kristín Björg
Jónsdóttir, Kirkjuvegi 64, Vest-
mannaeyjum og Bjarni Sigurðs-
son, íþróttakennari, Hraunteig,
Hveragerði.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína Gunnlaug Kristjánsdóttir
símamær, Holtagötu 8, Akureyri
og Óskar Gunnarsson, M.s. Helga-
felli, Framnesvegi 14.
• Afmæli •
60 ára er í dag Hans Jónsson
frá Bjarnareyjum á Breiðafirði,
nú til heimilis að Nökkvavogi 11.
Frú Þórunn Sigurðardóttir,
símstöðvarstjóri á Patreksfirði,
ekkja Jens V. Jenssonar, vélstjóra
verður fimmtug á morgun, sunnu-
daginn 24. marz. Þórunn er fædd
á Þingeyri við Dýrafjörð. — Frú
Þórunn er kunn að gestrisni og
hjálpfýsi og greind vel. Hefur hún
staðið njög framarlega í öllu fé-
lagslífi staðarins um margra ára
skeið. Hún er formaður kvenna-
deildar Slysavamafélagsins Unn-
ur á Patreksfirði, hefur starfað í
kirkjukór Patreksfjarðarkirkju
og tekið virkan þátt í leiklistar-
starfi staðarins. — Vinir hennar
og vandamenn minnast hennar
með hlýjum hug á þessum degi og
árna henni allra heilla og bless-
unar. — Karl.
• Skipafréttir •
Eimskipafélag íslands h.f.:
Brúarfoss er á Akranesi. Detti-
foss fór frá Keflavík síðdegis í
gærdag til Lettlands. Fjallfoss er
í Reykjavík. Goðafoss fór frá Isa
firði í fyrradag, til Akureyri og
Sigluf jarðar. Gullfoss fer frá
Reykjavík í dag til Leith, Ham-
borgar og Kaupmannahafnar. —
Lagarfoss væntanlegur til Rvíkur
í dag. Reykjafoss fór frá Isafirði
síðdegis í gærdag til Siglufjarðar,
Akureyrar og Húsavíkur. Trölla-
foss fór frá New York 20. þ.m. til
Reykjavíkur. Tungufoss fór frá
Vestmannaeyjum 21. þ.m. til
Rotterdam og Antwerpen.
SkipaútgerS ríkisins:
Hekla er á Austf jörðum á norð-
urleið. Herðubreið er á Austfjörð
um á leið til Bakkafjarðar. Skjald
breið er á Húnaflóa. Þyrill er á
leið frá Reykjavík til Rotterdam.
Skaftfellingur fór frá Reykjavík
í gærkveldi til Vestmannaeyja.
Baldur fer væntanlega frá Rvík
í dag til Gilsfjarðar- og Hvamms-
f jarðarhafna.
Skipadeild S. í. S.:
Hvassafell er í Rotterdam. —
Amarfell væntanlegt til Rostock
í dag. Jökulfeli væntanlegt til
Riga f dag. Dísarfell væntanlegt
til Rotterdam á morgun. Litlafell
er á leið til Faxaflóa frá Vest-
mannaeyjum. Helgafell fór frá
Reykjavík 20. þ.m. áleiðis til
Riga. Hamrafell fór frá Reykja-
vík 17. þ.m. áleiðis til Batum.
• Flugferðir •
Flugfclag íslands h.f.:
Millilandaflug: Gulifaxi fer til
Glasgow, Kaupmannahafnar og
Hamborgar kl. 08,30 í dag. Flug-
vélin er væntanleg aftur til Rvík-
ur kl. 16,45 á morgun. — Innan-
landsflug: 1 dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir),
Blönduóss, Egilsstaða, Isafjarðar,
Vestmannaeyja og Þórshafnar. —
Á morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar og Vestmannaeyja.
Loflleiðir h.f.:
Saga er væntanleg milli kl. 06
og 08 árdegis frá New York. —
P’lugvélin heldur áfram kl. 09 á-
leiðis til Gautaborgar, Kaup-
mannahafnar og Hamborgar. —
Edda er væntanleg í kvöld milli
kl. 19,00 og 20,00 frá Osló, Staf-
angri og Glasgow. Flugvélin held-
ur áfram eftir skamma viðdvöl á-
leiðis til New York. — Hekla er
væntanleg í fyrramálið milli kl.
06 og 08 frá New York. Flugvélin
heldur áfram kl. 09,00 áleiðis til
Glasgow, Stafangurs og Osló. —
Saga er væntanleg annað kvöld
frá Hamborg, Kaupmannahöfn og
Bergen. Flugvélin heldur áfram
eftir skamma viðdvöl, áleiðis til
New York.
Merkjasala Hvíta bandsins
er á sunnudaginn. Börn geta
vitjað merkjanna í anddyri bama
slcólanna í Reykjavík, Holts-apó-
tek og KFUM-húsið á Kirkju-
teigi 23. —
Mæðrafélagið
heldur árshátíð sína í Tjarnar-
kaffi, sunnudaginn 24. marz kl.
8,30. —
Orð lífsins:
Eftír það hóf konungur Daniel
tíl mikilla mannvirðinga og gaf
honum miklar og margar gjafir,
setti hann höfðvngja yfir allt
SKÝRINGAR:
Lárétt: — 1 óþæginda — 6
fargi — 8 ílát — 10 á litinn — 12
eldstæðinu — 14 tónn — 15 tónn
— 16 sunda — 18 dýraætt.
Lóðrétt: — 2 illkvendi •— 3 jök-
ull — 4 veldi — 5 púka — 7 æfur
— 9 rengi — 11 stóran mann —■
13 vonda — 16 forsetning — 17
keyr.
Lausn siðustu krossgátu:
Lárétt: — 1 ásaka — 6 ari —
8 lóu — 10 soð — 12 ofrausn —
14 ku — 15 SA — 16 dal — 18
andliti.
Lóðrétt: — 2 saur — 3 ar — 4
kisu — 5 flokka — 7 iðnari — 9
ófu — 11 oss — 13 aðal — 16 dd
—- 17 li.
Itiikilvægasta ljó$ið gleymdist
Babelhérað og gjörði hann að
æðsta forstjóra yfir öllum vitring-
um í Babel. (Dan. 2, 8)).
Charles Darwin:
„Ekkert stríð, hefur orsakað
eins mikla eymd, kvöl og dauða,
sem áfengisnautnin1“
— U mdæmiss túkan.
Slasaði maðurinn
Afh. Mbl.: Áheit, Þórunn kr.
50,00; gömul kona 100,00.
Fjölskyldan að Hraunsnefi
Afh. Mbl.: N N kr. 50,00; S G
B 1.000,00; Hrútfirðingur 200,00;
G S 100,00.
Æskulýðsvikan, Hafnarfirði
í kvöld talar Ástráður Sigur-
steindórsson, skólastjóri. — Auk
þess verður mikill söngur og hljóð
færaleikur.
Skíðamót Hafnarfjarðar
Sveinn Kristinsson varð fyrstur
í göngu. Nafn hans misritaðist I
blaðinu £ gær.
Ungmennastúkan
Framtíðin nr. 5
heldur fund að Fríkirkjuvegi,
11. n.k. mánudagskvöld kl. 8,15.
• Gengið •
Gullverð ísL krónu:
100 gullkr. — 738,95 pappírskr.
Sölugengi
1 Sterlingspund .. kr. 45.70
1 Bandaríkjadollar . — 16.32
1 Kanadadollar .. — 16.90
100 danskar kr. .... — 236.ð0
100 norskar kr.......— 228.50
100 sænskar kr......— 315.50
100 finnsk mörk .... — 7.09
1000 franskir frankar . — 46.63
100 beJgiskir frankar . — 32.90
100 svissneskir fr. .. — 376.00
100 Gyllini .........— 431.10
100 tékkneskar kr. .. — 226.67
100 vestur-þýzk mörk — 391.30
1000 Lírur ............— 26.02
• Söfnin •
Náttúrgripasafnið: Opið á
sunnudögum kl. 13,30—15, þriðju
dögum og fimmtudögum kl. 14—
15.
Listasafn ríkisins er til húsa í
Þjóðminjasafninu. Þjóðminjasafn
ið: Opið á sunnudögum kl. 13—16
og á þriðjudögum, fimratndögum
og laugardögum kl. 13—15.