Morgunblaðið - 02.04.1957, Síða 2
2
MOnCUTSBL ÁT)1Ð
triSjudagur 2. apríl 1957
Verllag og kaupgjald í Sovét
Upplýsingar i ferðasögu formanns
Búnaðarfélags Islands
ÞORSTEINN Sigurðsson, formaður Búnaðarfélags fslands, flutti
sl. fimmtudagskvöld erindi í útvarp á kvöldvöku bændaviku
Ríkisútvarpsins. Ræddi hann um ferð, sem hann fór á sl. haústi
ásamt nokkrum fleiri islenzkum bændum, til Sovétrikj anna.
í ferðasögu þessari komu fram ýmsar upplýsingar, sem vakið
hafa athygli.
Um verðlag í Moskvu komst Þorsteinn Sigurðsson m.a. að orði
á þessa leið:
Ljósmynd þessi
sýnir gegnum
járngrind
nokkurn hluta
mannfjöldans,
sem safnaðist
saman á götum
Prag til þess að
hylla
brúðhjónin.
— Ástin sigraði
SMJÖRIÐ Á 148 KR. KÍLÓII)
„Við litum inn í fiskbúð og
skyggndumst um eftir íslenzkum
fiski. Jú, þarna var íslenzkur,
flakaður þorskur á 7 rúblur kíló-
ið eða 30 krónur. Karfi á 12,50
rúblur kílóið eða 50 krónur og
síld á 15—23 rúblur kílóið, eftir
stærð, sem jafngildir 61—92
krónum.
Þessa síld kaupa Rússar af
okkur á 1 rúblu kílóið flutta
til Leningrad. Þarna sáum við
smjör, vitanlega rússnesk
framleiðsla, og kostaði 36
rúblur kílóið og jafngildir það
148 krónum. Fiskur, ostur,
smjörostur líka 36 rúblur kíló-
ið og önnur tegund magrari
26 rúblur. Það eru víðar dýrar
matvörur en á íslandi".
HUNDRAÐ-FALT
HÆRRI LAUN
Um launamál sagði Þorsteinn
Sigurðsson, að hann hefði fengið
þær upplýsingar að stjórnartil-
skipun hefði verið gefin út um
það meðan hann dvaldi í Moskvu
að „enginn þegn Sovétríkjanna
skyldi hafa lægri laun en 300
rúblur á mánuði". En „allra
hæstu laun í þessu sósíalismans
landi væru um 100-falt hærri en
þetta, Þeir væru að vísu fáir, senri
eru svo hátt uppi".
EITT OG SAMA VERÐ
Síðan hélt ræðumaður áfram:
„í sambandi við þetta launa-
mál vil ég nota tækifærið og
leiðrétta missögn og misskiln-
ing, sem menn hafa haldið
fram við mig af miklum sann-
færingarkrafti, en ég hefi talið
ranghermt, að í Sovétríkjun-
um væru ýmsar algengustu
nauðsynjavörur, bæði til fæðis
og klæða, skammtaðar á lægra
Sjómennirnir í Reykjavíkurhöfn
notuðu góðviðrið í gær til að
mála skip sín.
verði handa lægst launaða
fólkinu. Ég bað Harald Árna-
son, ferðafélaga okkar, að
fara í rússneska sendiráðið
hér í bæ til þess að vita, hvað
sannast væri í þessu efni og
fékk hann það svar, að engar
vörur væru skammtaðar í
Rússlandi síðan 1947, allir
gætu keypt allt sem þeir vildu
og eftir því sem kaupgeta
hvers og eins leyfði á einu og
sama verði. Fátæklingar fá
engar ívilnanir I vörukaupum.
Þessar upplýsingar sendiráðs-
ins verða væntanlega ekki ve-
fengdar", sagði formaður Bún-
aðarfélags íslands.
Frh. af bls. 1.
ítökum Breta í þessum löndum.
Menn mættu ekki misskilja „Eis-
enhower-áætlunina" á þann veg.
Bandaríkjamenn mundu gera
allt, sem i þeirra valdi stæði
til þess að efla aðatöðu Vest-
urveldanna í löndum þessum
— og urðu þeir Eisenhower
og Macmilian ásáttir um það
að taka höndum saman til
þess að forða þessum heims-
hluta frá alþjóðakommúnism-
anum.
★ Þar eð viðræður Hammar-
skjölds og Nassers í Kairo stóðu
yfir um líkt leyti og Bermuda-
fundurinn var haldinn — og ekki
var kunnugt um hvaða árangur
yrði, voru ekki tök á því að ræða
Súez-deiluna sem skyldL
Hins vegar kvað Macmillan
Bandaríkjastjóm vera sam-
mála Bretum í þvi, að sigl-
ingaleiðin um Akabaflóa væri
alþjóðleg, enda þótt sigla yrði
um egypzka landhelgi. Féllust
báðir á það, að hersveitir S.Þ.,
sem staðsettar væru við Ak-
aba, væru bezta tryggingin
fyrir því, að skip á þessari
siglingaleið yrðu látin óáreitt.
Eisenhower sagði, að stjórn
S.Þ. á Gaza-ræmunni, þessu
forna þrætuepli Egypta og
fsraelsmanna, væri eitt hið
bezta verk S.Þ. í seinni tíð.
Á Þá leiddi Macmillan tal sitt
að kjarnorkumálunum. Hann
sagði, að Bandaríkjamenn mundu
skv. samningum þeirra Eisenbow
ers, láta fjarstýrð flugskeyti af
hendi við Breta innan skamms
tíma. Mundu Bretar því fá þessi
vopn í hendur fyrr en ella, þar
eð þeir væru nokkuð á eftir
Bandaríkjamönnum í smíði
þeirra. Sagði hann, að þessi
bandarísku skeyti mundu verða
eign Bretlands — og þeim yrði
ekki beitt nema samkv. ákvörðun
Breta sjálfra, og það yrðu brezk-
ir hermenn, sem mundu hafa um-
sjón með þeim — og skjóta þeim,
ef til þess kæmi.
Á Um væntanlegar tilraunir
Breta með vetnissprer.gju lét for-
sætisráðherrann þess getið, að
Eden hafði á sínum ,íma komið
fram með tillögur um takmörkun
slíkra tilrauna, en framgangur
þeirra hefði eklci einungis sirand-
að á öðrum ríkjum, heldur og á
Bretum sjálfum, vísind^mönnun-
um, sem við rannsóknirnar fást.
Kvað hann þeirra ráða hafa verið
leitað — og hefðu þeir lagzt gegn
tillögunum.
Bretar mundu ekki hætta
við fyrirhugaðar tilraunir. Ef
þeir ætluðu ekki að „missa af
Iestinni" og stofna landi sínu
í voða — þá mætti ekki
Framh. af bls. 1.
ið elskendur og hjón. Þrátt fyrir
þá vitneskju ákvað Olga að snúa
heim. Ástæðan var sú, að hún
átti foreldra og skyldfólk heima.
Strax þegar hún kom heim, sendi
hún umsókn til stjóm. rvaldanna,
þar sem hún beiddist leyfis að
mega flytjast til Amoríku sem
brúður Connollys.
Nokkur tími leið 'g elskend-
bregða fæti fyrir framþróun
þessara mála. Og hami bætti
við: „Tilraunir okkar verða
að halda áfram",
★ Gaitskell, formælandi stjóm-
arandstöðunnar, tók til máls við
þessar umræður og brýndi það
mjög fyrir stjórninni, að hún yrði
að taka tillit til almenningsálits
alheims, er hún ákvæði, ?.ð til-
raunum skyldi haldið áfram án
takmarkana. Kvað hann mikinn
skaða geta hlotizt af eiturefnum
þeim, er breiddust út í loftið frá
slíkum sprengingum. Bar hann
fram þá spurningu, hvort stjóm-
in gæti ekki beitt sér fyrir því,
að stórveldin gerðu með sér sam-
komulag um frestun allra til-
rauna um einhvem tiltekimi
tíma.
Macmlllan svaraði því til,
að ekki væri hægt að gera
slíkan samning eins og nú
stæðu sakir nema með því að
allir aðilar sýndu einlægan
vilja og heimiluðu gagnkvæmt
eftirlit með því, að samning-
urinn yrði ekki rofinn.
Ðregiitn úr „Þang-
hafinu44 í gær
í GÆRDAG voru leystar festar
vélskipsins Braga héðan frá
Reykjavík, sem legið hefur hér
í höfninni og farið með hann
suður í Njarðvík.
Skip þetta var fyrir allmörgum
árum keypt vestur í Bandaríkjun.
um og gerði það út héðan Hall-
grímur Oddsson útgerðarmaður.
Bátnum var lagt vestur í „Þang-
haf“ fyrir um það bil 4 árum, er
útgerðarmaðurinn gat ekki hald-
ið útgerð hans áfram. Síðan hef-
ur Bragi legið í „Þanghafinu“,
en það er bátaleguplássið fyrir
vestan Ægisgarð, þar sem Esja
hefur legið í vetur vegna véla-
bilunarinnar. Báturinn hefur á
þessum árum stöðugt verið að
grotna niður, því ekkert hefur
verið um hann hirt og lengi er
hann búinn að vera með mikla
Ijo uusumgosujcq ejen 'ngrs3e[s
undrazt að hann skuli ekki hafa
sokkið í óveðrunum í vetur.
Nú hafa orðið eigendaskipti á
bátnum og hinni nýi eigandi hans
....................... hefur
hug á því að gera Braga upp og
því var hann í gær dreginn suður
í Njarðvík þar sem hugmyndin
er að fram fari á honum gagnger
viðgerð
umir biðu í ofvæni eftir ákvörð-
un stjórnarvaldanna. Reynt var
að tala um fyrir Olgu, en hún
sat við sinn keip. Sagan breidd-
ist út urn Tékkóslóvakíu og sterkt
almenningsálit hafði sín áhrif.
Zapotocky forseti veítti á end-
anum hjúskaparleyfið.
Og Harold lagði aftur af stað
í langa ferð. Fyrsti viðkomustað-
ur hans var ísland, síðun Norður-
löndin. Hann færðist æ nær sinni
heittelskuðu og loks hittust þau,
þar sem hin lygna Moldá rennur
undir brýr Prag-borgar.
MIKILL MANNFJÖLDI
Giftingin fór fram 27. marz í
Frelsarakirkjunni í Prag. Hafði
geysilegur mannfjöldi safnazt
saman hjá kirkjunni og meðfrao*
nálægum strætum, sem brúðhjón-
in óku um í Kadillac-bíl banda-
ríska sendiráðsins. Er talið að
mannsöfnuðurinn hafi skipt. tug-
um þúsunda. Og nú spyrja tékk-
nesk stjómarvöld: — Hví safnað-
ist svo mikill mannfjöldi saman
til að hylla brúðhjónin? Jú, Olga
var vinsæl íþróttakona. En brúð-
guminn var bandarískur. Er hug-
arfar tékknesks almennings e.t.v.
svo spillt, að hann fjölmenni til
að hylla fulltrúa þessa vestræna
auðvaldsríkis?
Svaramaður brúðarinnar var
enginn annar en Emil Zatopek
hinn heimsfrægi tékkneslci hlaup
ari. Brúðhjónunum barst mikill
fjöldi heillaskeyta. Að því búnu
lögðu þau af stað í brúðkaups-
ferð. Þau munu ferðast um Aust-
urríki, Sviss og Frakkland. Lolts
stíga þau um borð í hafskip í
Marseilles í Suður-Frakklandi og
sigla heim til Bandaríkjanna.
Sandgerði, 1. apríl.
16.—30. MARZ voru gæft-
ir almennt góðar. Flestir bátar
fóru 11—12 róðra. Alls voru farn-
ir 196 róðrar á móti 180 í fyrra:
Heildarafli þennan hálfa mánuð
nam 940 lestum á móti 1273 í
fyrra.
Mestur afladagur var 25. marz.
Þá fékk m.b. Víðir frá Garði 12
lestir og Stefán Þór sama dag
8 lestir.
Mestan afla þennan hálfa
mánuð hefir m.b. Víðir, 79 lestir.
Næstur er Mummi með 77 lestir
SAUÐÁRKRÓKI, 1. apríl. — Enn
helzt góða veðrið hér á Sauðár-
króki og má segja að um sann-
kallað „sæluvikuveður“ sé að
ræða. í gær hófst skemmtanalíf
Sæluviku Skagfirðinga, með því
að kvikmyndasýning var síðari
hluta dags og um kvöldið var
frumsýning á leiknum „Gasljós“,
eftir Patrick Hamilton. Leikstjóri
er Eyþór Stefánsson. Með aðal-
hlutverk fara Kári Jónsson sem
leikur Jack Manningham, Snæ-
björg Snæbjörnsdóttir, sem leik-
ur Bellu konu hans, og Eyþór
Stefánsson sem leikur Rough
Fundur Landsbanka
nefndar
FÖSTUDAGINN 28. marz var
haldinn í Landsbankanum hinn
árlegi fundur Landsbankanefnd-
ar, og var Gunnar Thoroddsen í
forsæti á fundinum.
Lagðir voru fram reikningar
bankans fyrir árið 1956. Jón G.
Maríasson, bankastj., gerði grein
fyrir reikningum og flutti skýr-
ingar við þá. Síðan flutti Pétur
Benediktsson, bankastj., skýrslu
um þróun peninga. og gjaldeyr-
ismála. Fylgir sú skýrsla þessari
fréttatilkynningu. Reikningarnir
voru síðan samþykktir með sam-
hljóða atkvæðum.
Síðan voru kosnir aðalendur-
skoðendur bankans, og voru þeir
endurkjörnir, Guðbrandur Magn
ússon, forstjóri, og Jón Kjart-
ansson, sýslumaður.
Sigurður Kristjánsson, for-
stjóri, gerði þá fyrirspurn á fund
inum, hvort leitað hefði verið
álits og tillagna bankastjórnar
Landsbankans varðandi væntan-
legar breytingar á bankalöggjöf-
inni. Svaraði bankastjóri því
neitandi. Annað gerðist ekki á
fundinum.
Pétur Hoffmann
sýnir silfurmuni
af öskuhaugunum
PÉTUR HOFFMANN leit í gær-
kvöldi inn á ritstjórn Mbl. og
kvaðst nú hafa í undirbúningi
allmikla sýningu á ýmis konar
silfurmunum, sem hann hefði
fundið vestur á öskuhaugum í
fyrrahaust og í vetur.
Það er ótrúlegt hve mikið af
silfurmunum og gulli berst þang-
að frá blessuðu fólkinu, sagði Pét
ur og með því að halda slíka sýn-
ingu vonast ég til þess að geta
komið miklu af þessum munum
aftur í hendur réttra eigenda,
sagði Pétur. Að sjálfsögðu mun
ég selja sýningarmuni, sem vevða
milli 600—700, skeiðar, gafflar,
armbönd hringir úr silfri og gulli
og fleira.
Þá mun ég, sagði Pétur Hoff-
mann, hafa þar til sýnis málverk
af þeim merka atburði í Selsvör,
sem hlotið hefur nafnið: Orrustan
í Selsvör.
Sýningin verður opnuð á
fimmtudaginn kemur og stendur
fram að helgi.
og þriðji Pétur Jónsson með 72'é.
Mestan afla á vertíðinni hefir
Víðir, 449 lestir í 59 róðrum, en
hafði á sama tíma í fyrra 505
lestir í 46 róðrum. Næstur er
Mummi með 411 lestir í 60 róðr-
um en hafði á sama tíma í fyrra
510 lestir í 46 róðrum.
Heildaraflinn það sem liðið er
vertíðar er 5280 lc-atir í 947 róðr-
um. Á sama tíma í fyrra var afl-
inn 5.977 lestir í aðeins 677 róðr-
um.
Meðalafli í róðri nú er 5,58 lest-
ir en í fyrra 8,83. — Axel.
leynlögreglumann. Leiknum var
ágætlega tekið og heppnaðist sýn-
ingin vel, enda sýnilegt að lögð
hafði verið í hana mikil vinna.
í dag var enn kvikmyndasýn-
ing og í kvöld skemmtun fyrir
börn. Á morgun, þriðjudag, verð-
ur svo önnur sýning á „Gasljósi".
Enn eru margir gestir komnír að,
en þess er vænzt að síðari hluta
vikunnar verði hér mikill fjöldi
fólks. Hámarki nær „sælan“ í
vikulokin og þá t.d. stiginn dans
fram á nótt og á hverju lcvöldi
glaumur mikill og gleði.
— Vignir.
— Macmillan
Sæluvika á Sauöárkróki hafin