Morgunblaðið - 02.04.1957, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 2. apríl 1957
M ú E r, v JV B T 4Ð1Ð
Guðmundur Kolka
mmnmg
„DÁINN, horfinn“ — í blóma
lífsins, aðeins 39 ára g*:nall. —
Hann var fæddur í Reykjavík 21.
okt. árið 1917, sonur Páls Kolka
héraðslseknis á Blönduósi og
konu hans, Guðbjargar Guð-
xnundsdóttur Kolka. Ungur að
aldri lauk hann burtfararprófi
frá Verzlunarskólanum í Reykja-
vík. Guðmundur Kolka var vel
greindur, mikill hæfileikamaður
og I bezta lagi fjölhæfur, einn
af þessum mönnum, sem geta
flest og eru aldrei of stórir til að
vinna hin almennu störf. Vegna
þess hvað hann var fjölhæfur og
hugmyndaríkur urðu störf hans
margþætt. Útgerð stundaði hann
um langt skeið.
Ég sem þessi minningarorð rita
kynntist Guðmundi fyrst er hann
kvæntist vinkonu minni, Ingi-
björgu Jónsdóttur.
Þau voru gefin saman 3. nóv. árið
1939. Þau eignuðust tvær dæt-
ur: Guðbjörgu, sem nú er 16 ára
og Ranghildi 14 ára. Guðmundur
Kolka lézt af slysförum í Glas-
gow í Skotlandi 23. marz síðastl.
Þegar þau hjónin, Guðmundur
og Ingibjörg, bjuggu á Blönduósi,
dvaldi ég hjá þeim ár eftir ár í
sumarleyfi minu — og fékk á
þeim árum góð tækifæri til að
kynnast Guðmundi Kollia. Voru
þau kynni á þann veg að ég fékk
miklar mætur á manninum.
Hann var svo skemmtilega hisp-
urslaus, hreinn og beinn, laus
við alla smámunasemi, baknag
og það hátterni, er minnkar
menn mest í daglegri umgengni.
Hann var dulur í skapi, tryggur
í lund, góður heim að sækja og
vinur vina sinna; fríður sýnum,
glaður og reifur, fróður vel og
skemmtilegur í samræðum. —
Hann kunni skil á flestu er
mannlífið varðar. Hin síðari árin
bjuggu þau Guðmundur og Ingi-
björg á Sindra við Nesveg. Það
var gott að vera gestur þeirra
hjóna. Heimilið var hlýlegt og
gestrisni mikil. Og nú þegar
heimilisfaðirinn hefir svo svip-
lega og skyndilega verið á brott
kvaddur er skarð fyrir skildi.
Eg minnist eiginkonunnar, dætr-
anna og svo foreldranna, sem
eiga á bak að sjá einkasyninum.
Það tekur oftast langan tíma að
fylla það skarð er verður við
fráfall húsmóður eða húsbónda
hvers heimilis. En guð er misk-
unnsamur. „Hendur hans græða.“
Það er hin mikla von lífsins. A
þessari reynslunnar stundu sendi
eg Ingibjörgu, dætrum hennar,
foreldrum Guðmundar og öðrum
aðstandendum innilegustu sam-
úðarkveðjur. Guðmundi þakka
ég vináttu og tryggð.
Guðrún SigurSardóítir.
AKRANES
AKRANES
Húseign til siílu
Tvær íbúðarhæðir í húsinu nr. 78 við Suðurgötu, eru til
sölu nú þegar. Lausar til íbúðar 14. maí. íbúðirnar fást
keyptar í einu lagi eða hvor um sig. Greiðsluskilmálar
aðgengilegir. Allar upplýsingar gefur:
Þórhallur Sæmundsson, bæjarfógeti, Akranesi.
Skagfirðingafélagið í Reykjavík heldur
Aðalskemmfun
sína í Tjarnarcafé laugard. 6. apríl kl. 8,30
Skemmtiatriði:
Gamanvísur: Hjálmar Gíslason
Söngur: Sigurður Ólafsson
Píanóleikur: Skúli Halldórsson
Leikþáttur: Höskuldur Skagfjörð
D a n s.
Aðgöngumiðar verða seldir í Tjarnarcafé eftir kl. 2 á laugardag.
NEFNDIN
RIÍÐUGLER
3ja, 4ra, 5 og 6 min þykktir fyrirliggjandi
r >
EGGERT KRISTJANSSON & CO. HF.
Okkur vantar
vandaða stúlku 14—16 ára til starfa 2 tíma á dag.
KAUPHÖLLIN
Senditerðabifreið
% tonn, smiðaár ’54—’56 (helzt Chevrolet) óskast til
kaups. — Tilboð ásamt upplýsingum óskast send. í
pósthólf 361 fyrir 5. apríl.
Vanur bókhaldari
óskast til þess að annast í aukavinnu bókhald og upp-
gjör fyrir heildverzlun. — Tilboð merkt: „Aukastarf nr.
2509“ sendist afgr. blaðsins fyrir miðvikudagskvöld.
Höfum kaupanda
að góðu einbýlishúsi í Austurbæ. — Mikil útborgun,
Fasteigna- og lögfræbiskrifsfofan
Hafnarstræti 8 — Sími 81115 eða 5054.
Til sölu
Útvarpsgrammófónn, 14 lampa, „His Masters Voice" og
vandað skrifborð er til sölu og sýnis af sérstökum ástæð-
um að Skipasundi 13.
Islenzk jólamerkjabók
Bokin „íslenzk jólamerki“ er komin ut. Hefur reiti fyrir
jólamerki, sem gefin hafa verið út í Rekjavík, Önundar-
firði og á Akureyri. Verð bókarinnar er kr. 35.00. Send
eftir pöntun hvert á land sem er.
Haraldur Gunnlaugsson, Grettisgötu 92, Reykjavík.
Látið okkur pussa golfin
um leið og þau eru steypt
GÓLFSLÍPUNIN
Barmahlíð 33, sími 3657.
PÍANÓ
Nokkur góð píanó nýkomin. — Upplýsingar
í síma 7505 í dag og næstu daga.
Landsmálafélagið VÖRÐUR
heldur fund í Sjálfstæðishúsinu miðvikudaginn 3. apríl klukkan 8.30 e.h.
Umræðuefni:
KfúsnæðismáSin
F rummælendur:
Jóhann Hafstein, alþingismaður.
Þorv. Garðar Kristjánsson, lögfræðingur
Alh ^iáifetaoðisfólk velkomið meðan húsrúm leyfir.