Morgunblaðið - 02.04.1957, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 2. aprí! 1957
MORCVNBLAÐ1Ð
15
Yiirlýsing
AÐ GEFNU tilefni vegna blaða-
skrifa undanfarna daga um til-
gang kaupgjaldsbaráttunnar 1955,
viljum við undirritaðir, sem þá
skipuðum samninganefnd verka-
lýðsfélaganna, taka fram eftir-
farandi:
Af hálfu verkalýðsfélaganna
var lagt út í kaupgjaldsbaráttuna
veturinn 1955 vegna þess að kjör
verkafólks höfðu rýrnað á undan-
förnum árum, kaupmáttur tíma-
kaupsins hafði minnkað. Þessu
til sönnunar lögðu verkalýðsfé-
lögin m.a. fram álitsgerð þeirra
hagfræðinganna Torfa Ásgeirs-
sonar og Haralds Jóhannssonar,
en samkvæmt niðurstöðum þeirra
þurfti tímakaupið í febrúar 1955
að hækka um 20% til þess að
kaupmáttur þess væri hinn sami
og á miðju ári 1947. Þessar nið-
urstöður hagfræðinganna voru
aldrei vefengdar af neinum. 14
verkalýðsfélög stóðu í upphafi
sameiginlega að samningsupp-
sögninni, kröfugerðum og verk-
fallsákvörðun. Fulltrúar þessara
verkalýðsfélaga kusu samninga-
nefndina. Þrátt fyrir mismun-
andi stjórnmálaskoðanir forustu-
manna þeirra verkalýðsfélaga,
sem hér áttu hlut að máli koxn
aldrei til ágreinings þeirra á
milli um nauðsyn kaupgjaldsbar-
áttunnar, kröfugerðina, rekstur
verkfallsins eða endanlega samn-
ingagerð.
Annað er það sem hér er sagt
um tilgang verkalýðsfélaganna
með kaupgjaldsbaráttunni og
verkfallinu mikla 1955 er ekki
sannleikanum samkvæmt.
Reykjavík, 30. marz 1957.
Eðvarð Sigurðsson (sign)
Eggert G. Þorsteinsson (sign)
Snorri Jónsson (sign)
Björn Bjarnason (sign)
Ilermann Guðmundsson (sign)
Benedikt Davíðsson (sign)
Fiskafli Svía
60 ára starfsafmæLi
Jónas Magnússon, bókbindari
á bókbandsstofu ísafoldarprent-
smiðju h.f. átti 60 ára starfsaf-
mæli í gær. — Menn geta bezt
áttað sig á því, hve langt er síð-
an Þórður réðist til ísafoldar-
prenstmiðju (1. apríl 1897), á því
að þá kostuðu 200 bls. bækur,
óbundnar, kr. 1,50 og í bandi kr.
1,75.
Sextíu ára starfsafmæli hjá
einu og sama fyrirtæki er sjald-
gæft og ber vitni hinni heil-
steyptu lund Þórðar.
Er ástæða til að óska Þórði
og einnig ísafoldarpnentsmiðju
til hamingju með afmælið.
Laugaveg 33
Ný sending af hvítum
nælon-sloppum
með stuttum ermum
SILICOTE
(með undraefninu Silicone)
Husgagnaglj dinn
hreinsar og gljáfægir án erfiðis.
Heildsölubirgðir:
Ólafur Císlason & Co hf
Sími 81370
Stokkhólmi 27. marz.
SAMKVÆMT sænskum hag-
skýrslum veiddu Svíar á síðasta
ári samtals 174 milljón kíló af
fiski. Þessi veiði er hin rýrasta
síðan 1947, og 18% minni en árið
1955. Verð þessa fiskafla var
samtals 128 milljón sænskar kr.,
eða 4% minna en 1955. XJm 57%
af aflanum var síld og silungur.
Af þorski, laxi og rækjum veidd-
ist meira en árið áður.
Frá Reuter—NTB
Fyrir fermíngarstúlkur:
Kápur frá kr. 985,00
Kjólar frá kr. 475,00.
Undirfatnaður, blúnduvasaklútar
Hentugar fermingargjafir:
hanzkar, slæður, ilmvötn,
handsnyrtingarsett o. m.fl.
Póstsendum.
B E ZT, Vesturveri
aö BMonitj’ti Spagctti
er búið til úr beztu semolina. — Þess
vegna sýðst það svo vd og helst mjúkt
og ljúffengt.' Honig’s Spagetti
Heildsölubirgðir:
ert ^JJnsti
rjansson
Söngvari eins og ég
verður að hafa fall-
egt bros. Hið freyð-
andi Colgate tann-
krem heldur tönn-
unum mjallhvítum.
Ég er oft önnum hlaðin, en
hefi aldrei frávik vegna
tannpínu. — COLGATE
verndar tennur mínar
skemmdum. —
Ég hitti marga mikil-
væga menn á hverjum
degi. En ég get verið
örugg því Colgate gefur \
ferskt bragð í munninn. T
Burstið '"A
tennurnar með
Colgate tannkremi
Það freyðir!
„Eg þakka
COLGATE
velgengm
mma
SPILAKVÖLD
heldur málfundafélagið Óðinn fimmtudaginn 4. apríl kl. 8,30 í ValhöII. Verðlaunaaf-
hending og kvikmyndasýning á eftir. Sætamiðar afhentir í Sjálfstæðishúsinu miðviku-
daginn 3. apríl. — Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti.