Morgunblaðið - 14.05.1957, Qupperneq 2
2
MOnCVWBL 4DI£
14. max 1957
«
t
e
— Stjórnmálaályktun formannaráðstefnunnar
Frh. af bls. 1. f
ríkisstjómarinnar hefur verið að koma sér undan framkvæmd
ályktunarinnar og firra landið afleiðingum þess álitshnekkis, sem
af samþykkt hennar leiddi. Þetta hefur orðið þeim mun örðugra
sem heildarstefna ríkisstjórnarinnar um lausn þessa meginmáls
virðist algjörlega á reiki og er falin bak við orðalag, sem segir
ekki neitt og hver getur túlkað, eins og hann helzt vill.
„Varanleg lausn efnahagsvandamálanna“.
Annað höfuðverkefni ríkisstjórnarinnar var sagt vera varanleg
lausn efnahagsvandamálanna. Sjálfstæðismenn bentu á það fyrir
kosningarnar, að í þessum efnum væri ekkert töframeðal til, en
forsenda jafnvægis í efnahagsmálunum og stöðugs verðlags væri
sú, að almenningur hefði áttað sig á þeim atriðum, sem hér skipta
meginmáli. í ályktun Landsfundar var rakið, að raunverulegar
kjarabætur fengjust ekki með kapphlaupi launa og vöruverðs,
heldur með framleiðsluaukningu, hagstæðum viðskiptakjörum og
nauðsynlegu jafnvægi í efnahagsmálum. Fundurinn benti á, að
því samstarfi, sem óhjákvæmilegt væri til frambúðarlausnar, yrði
ekki náð nema með sterkri forystu ríkisvaldsins og öflugum sam-
tökum almennings, m. a. í verkalýðshreyfingunni og öðrum stétt-
arfélagsskap.
Aðeins bráðagirgða-úrræði.
Endurskoðun stjórnarskrár.
4. Stjórnarskrá og kosningalöggjöf verði endurskoðuð með það
fyrir augum að tryggja þjóðinni lýðræðislega skipun iög-
gjafarsamkomu hennar og hindra að reglur stjómskipunar-
laga um kosningar og kjördæmaskipun séu sniðgengnar og
misnotaðar.
Húsnæðisumbætur.
5. Haldið verði áftam öflugum stuðningi við umbætur í hús-
næðismálum landsmanna og stuðlað að sparifjármyndun og
almennum sparnaði, sem geri lánastofnunum kleift að taka
virkan þátt í heilbrígðri veðlánastarfsemi til íbúðarhúsa-
• bygginga.
Vestræn samvinna.
6. íslendingar haí'i nána samvinnu við hinar vestrænu lýð-
ræðisþjóðir um tryggingu síns eigin sjálfstæðis og öryggis,
og varðveizlu friðar og öryggis í heimnum.
Formannaráðstefnan treystir Sjálfstæðismönnum um land allt
til að efla samtök sin og herða baráttuna fyrir sigri Sjálfstæðis-
flokksins, svo að hann geti enn að nýju markað stefnu þjóðarinnar
til frelsis, hagsældar, friðar og öryggis.
Bifreiðaslys
HVEKAGERÐI, 13. maí: — Síð-
astliðið laugardagskvöld eftir
dansleik, sem haldinn var að Hótel
Selfossi skeði það slys, er Ford-
fólksbifreið X-658, sem flutti fólk
frá Selfossi hingað í Hveragerði
var á heimleið austur að Selfossi
aftur, lenti hún út af veginum
skammt frá Varmárbrú. Vegur-
inn þarna var hækkaður fyrir
tveimur árum og er um 2—3 m á
hæð. Bifreiðarstjórinn var einn í
bifreiðinni og slasaðist allmikið.
Mjög miklar skemmdir hafa orðið
á bifreiðinni og sýnist nánast ðnýt.
Héraðslæknirinn í Hveragerði
var sóttur þegar um nóttina og
var gert að sárum mannsins til
bráðabirgða. Bfreiðarstjórinn virt-
ist með brákað herðablað og
skrámaður á andliti og höndum.
Var hann að lokinni aðgerð flutt-
ur að Selfossi. — Georg.
□------------------□
SIGLUFIRÐI, 13. maí: — Ms.
Ingvar Guðjónsson losaði hér fyrir
helgina 68 lestir og í dag losar
Hafliði 250 lestir hér. Þessi afli
fer allur til frystihúsanna. — G.
Framsóknarflokkurinn sleit stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðis-
flokkinn vegna þess, að hann taldi sig ekki geta leyst efnahags-
málin með Sjálfstæðisflokknum. Framsóknarmenn fordæmdu öll
bráðabirgða-úrræði en hétu varanlegri lausn efnahagsmálanna eftir
nýjum leiðum. Svo sem nógsamlega er kunnugt, hefur raunin
orðið sú, að nú hefur verið farið enn lengra en nokkru sinni fyrr
í að leysa málin með algerum bráðabirgða-úrræðum, hækkun
skatta og milligreiðslna, og almenningi á þann veg íþyngt án
þess að upp fengist bætt með vísitöluhækkun, enda munu með
þessum ráðstöfunum vera úr sögunni hinar svokölluðu kjarabæt-
ur, sem knúnar voru fram með verkfallinu mikla vorið 1955.
Hvernig á að verja álögunum?
Auðvitað verður að tryggja starfrækslu höfuðatvinnuvega þjóð-
arinnar, en þcgar til slíkra ráða er gripið, sem gert var í vetur,
verða þau að hvíla á greinargerðum um raunverulega þörf atvinnu-
veganna og hvernig verja skuli hinum gífurlegu álögum. Alls þessa
var vant, en í stað þess virðist málum hafa verið ráðið til lykta
með lauslegum samningum við stjórn Alþýðusambands íslands og
að nokkru við hluta atvinnurekenda. Síðan var Alþingi ætlað að
löggilda þessar ákvarðanir athugunarlaust.
Enn er ekki til fulls vitað hvað í þessum samningum fólst, þó
að álöguþunginn sé nú óðum að leggjast á almenning. Stjórn Al-
þýðusambands íslands hefur hins vegar tekið sér úrskurðarvald
um, hversu lengi ríkisstjórninni skuli veita „starfsfrið" og telur,
að svo sé rétt að gera enn um sinn. Sjálf hefur ríkisstjórnin þó á
síðustu mánuðum átt hlut að síhækkandi kaupgreiðslum hjá ýms-
um aðilum og stundum greitt fyrir hækkunum með sérstökum
stjórnarráðstöfunum, svo sem gjaldeyrisfriðindum.
Foringjar stærsíu ilokknnna
H.C. Hansen foringi Jafnaðar-
manna.
Erik Eriksen foringi Vinstri-
manna.
Aksel Möller foringi Hialds-
manna.
Tvísýnar kosningar I Danmorku
Engin lausn.
Því fer þess vegna fjarri, að fengizt hafi nokkur lausn efna-
hagsmálanna, ekki einu sinni til bráðabirgða, hvað þá til frambúð-
ar. Þau mál eru nú í meira öngþveiti en nokkru sinni fyrr, en efld-
ur hefur verið til úrslitaráða í þjóðfélaginu lítill hópur, sem ekki
er háður stjórnlögum ríkisins og engin trygging er fyrir að lúti
reglum lýðræðisins.
Af þessari óhcillabraut verður að hverfa. Alþingi og alþingis-
kjósendur verða að halda hinum æðstu völdum, sem stjórnarskrá
lýðveldisins og réttar lýðræðisreglur ætla þeim. Verkalýðsfélögin
og önnur stéttafélög ber að styrkja til að sinna sínum stéttamál-
efnum og öll þjóðholl öfl verða að sameinast um að útrýma þaðan
stjórnmáladeilum og hindra, að lítill hópur geti misnotað þessi sam-
tök almennings.
Þriðja fcrmannaráðstefna Sjálfstæðisflokksins telur að halda
beri uppi öflugri fræðslu um þau meginatriði efnahagslífsins, sem
hagsæld almennings er komin undir og gæta beri þess að leggja
engar kvaðir á nema ýtarleg grein sé gerð fyrir nauðsyn þeirra og
í hvaða skyni þær séu á lagðar.
Uppbygging stóriðnaðar.
Pormannaráðstefnan leggur megináherzlu á eftirfarandi:
L Haldið verði áfram uppbyggingu atvinnulífsins í öllum
landshlutum. Aflað verði erlends fjármagns til bygginga
stóriðjufyrirtækja og vatnsaflið þannig hagnýtt til þess að
auka útflutninginn og treysta afkomugrundvöll þjóðarinn-
ar. Jafnframt verði unnið að því að auka þátttöku lands-
manna í Iandbúnaði, sjávarútvegi og iðnaði og tryggja þess-
um atvinnugreinum sem fullkomnust tæki. — Lokið verði
framkvæmd rafvæðingaráætlunarinnar í þágu sveita og
kaupstaða.
?ifnahagslegt jafnvægi.
2. Heilbrigður rekstur atvinnutækjanna verði tryggður með
sköpun jafnvægis í efnahagslífinu á grundvelli viðskipta-
og athafnafrelsis og aukningu framleiðslunnar.
Friðun fiskimiðanna.
3. Haldið verði áfram stöðugri sókn fyrir aukinni vernd fiski-
miðanna
Svo getur farið að Jafnaðarmenn missi
völdin til Vinstri- og íhaldsmanna.
IDAG fara fram kosningar í Danmörku. Er þaS álit kunnugra,
að engar kosningar þar í landi eftir styrjöldina hafi verið eins
spennandi og tvísýnar. Stjórnmálaóhugi virðist talsvert meiri en
við síðustu kosningar 1953, þegar 80% neyttu kosningaréttar síns.
FRÁFARANDI ÞING
Á síðasta þingi skiptust þing-
sæti svo niður:
Jafnaðarmenn .... 74
Vinstri ............ 42
íhaldsflokkur...... 30
Radikaiir .......... 14
Kommúnistar .... 8
Retsforbundet .... 6
Auk þess átti flokkur Þjóðverja
í Slésvík einn þingmann og Fær-
eyjar og Grænland hvort um sig
tvo fulltrúa, sem ekki hafa þó
áhrif á stjórnarmyndun.
MINNIHLUTASTJÓRN
Síðasta kjörtímabil hefur ver-
ið við völd minnihlutastjórn
Jafnaðarmanna með 74 atkv.
gegn 72 samanlögðum atkvæðum
Vinstri-manna og íhaldsflokks-
ins. Auk þess veittu Radikalir
Jafnaðarmönnum stuðning í inn-
anríkismálum, en allir þrír
stærstu flokkarnir stóðu hins
vegar um utanríkisstefnuna.
Menn ræða nú mjög um, hver
úrslit kosninganna verði og þykja
þau tvísýn. Fyrir einum eða
tveimur mánuðum voru flestir
þeirrar skoðunar, að Jafnaðar-
menn myndu tapa, en álitið er
að þeir hafi unnið fremur á í
kosningabaráttunni.
STJÓRNIN GAGNRÝND
Jafnaðarmanna-stjómin er
einkum gagnrýnd fyrir ábyrgð
arlausa stjóm efnahagsmál-
anna. Þegar hún settist að
völdum tók hún við 390 millj.
d. kr. gjaldeyrisforða, sem
stjóm Vinstri-manna og fhalds
flokksins hafði safnað með
forsjálni. Nú er ekki eyrir eft-
ir af gjaldeyrisforðanum. Dan-
mörk lifir á erlendum lánum
og yfirvofandi er stöðvun á
gjaldeyrisyfirfærslu. — Þá er
einnig talið að Vinstri-menn
kunni að vinna nokkurt fylgi
af Jafnaðarmönnum í sveit-
unum, vegna þess að landbún-
aðurinn á við mikla örðug-
Ieika að stríða og hafa Jafnað-
armenn ekki haft hugrekki til
að skapa honum öruggan fjár-
hagsgrundvöll.
IIVERJIR HREMMA SÆTI
RETSFORBUNDETS ?
Þannig eru fremur taldar lík-
ur á að Jafnaðarmenn tapi fylgi.
En það sem mestu óvissunni
veldur er hrapandi fylgi Rets-
forbundet og kommúnista og
hverjir hreppa þeirra þingsæti.
í dönsku kosningalögunum er
svo fyrir mælt, að flokkur fái
ekki uppbótarþingsæti nema
hann hafi annað hvort fengið
kjördæmakosinn fulltrúa eða
hafi að minnsta kosti 60 þúsund
atkvæði.
Nú eru sterkar líkur taldar fyr-
ir því að Retsforbundet hljóti
ekki 60 þúsxind atkvæði og skipt-
ast þá 6 þingsæti þeirra milli
hinna flokkanna.
KOMMÚNISTUM SFÁÐ TAPI
Um kommúnista er það að
.segja, að enn má telja víst að
foringi þeirra, Aksel Larsen, nái
kjöri og dragi uppbótarþing-
menn á eftir sér. En álitið er
samt að kommúnistar hafi tapað
verulegu atkvæðamagni, sem
þýði tap 2ja—3ja þingsæta.
Og nú spyrja menn: — Hverjir
taka við 6 þingsætum Retsfor-
bundets og 2—3 þingsætum
kommúnista. Á því getur oltið,
hverjir skipa næstu ríkisstjórn.
Á kjörskrá í dönsku kosning-
unum eru 2,7 milljónir kjósenda,
eða um 60 þúsundum fleiri en við
síðustu kosningar.
Bankarnir — Hreyfill
15:15
FÖSTUDAGINN 10. maí sl. fór
fram skákkeppni milli Taflféiags
samvinnufélagsins Hreyfils og
starfsmanna bankanna í Reykja-
vík. Teflt var á 30 borðum cg
fór keppnin fram í Skíðaskálan-
um.
Keppnin var mjög tvísýn og
lauk henni með jafntefli, 15 vinn-
ingum gegn 15.
Flugbjörgunarsveitin
heldur fund í kvöld kl. 8,30 í
Tjarnarcafé og verður þar meðal
annars sýnd kvikmynd.