Morgunblaðið - 14.05.1957, Side 3

Morgunblaðið - 14.05.1957, Side 3
Þriðjudagur 14. maí 1957 MORGUNBLAÐ1Ð 3 Meiri hluti Efri deildar andvigur því að dómnefnd Hóskólans rúði mestu um embættaveitingur í GÆR var framhald 2. umræðu um Háskóla íslands í Efri deild. Alfreð Gíslason svaraði í stuttu máli gagnrýni Gylfa Þ. Gíslason- ar á breytingatill. þær, sem Al- freð flytur við frumvarpið. Gunnar Thoroddsen talaði fyr- ir 3 breytingatillögum við frv., sem hann flytur ásamt Sigurði Ó Ólafss. Kvað hann þær fluttar í samræmi við óskir háskólaráðs. Hin fyrsta fjallar um að ritari við Háskólann skuli vera skip- aður „samkvæmt tillögum“ há- skólaráðs, en í frv. stendur „að fengnum tillögum háskólaráðs". Önnur breytingatillagan er sama eðlis, en þar fjallar um skipun dósenta við Háskólann. Þriðja breytingatillaga þeirra Gunnars og Sigurðar hljóðar svo og er við 4. málsgr. 11. gr.: „Dómnefnd skal láta uppi rök stutt álit um það, hvort 'af vís indagildi rita umsækjanda og rannsókna svo og námsferl; hans og störfum megi ráða, að hann sé hæfur til að gegna embættinu. Ennfremur skal dómnefnd skipa umsækjendum í röð eftir hæfni. Álitsgerð dómnefndar skal skila í hendur forseta hlutaðeigandi háskóladeildar, og lætur deildin uppi rökstutt álit sitt á því, hvern umsækjanda hún telur hæfastan. Engan má skipa pró- fessor, nema meirihluti dóm- nefndar hafi talið hann hæfan til að gegna embættinu. Nú er meirihluti atkvæðisbærra deild- armanna sammála um að leggja til, að tiltekinn umsækjandi, sem dómnefnd hefur einróma talið hæfastan, verði skipaður í embætti, og er þá skylt að skipa hann“. Gunnar Thoroddsen kvað það viðurkennda reglu í lýðræðis- löndum að embættaveitingar við háskólana væru að langmestu leyti í höndum skólanna sjálfra. Kvað hann það mjög mikils virði fyrir skólana að hinir lærðu sér- fræðingar þeirra og aðrir þeir, sem forráðamenn kölluðu sér til ráðuneytis um veitingu embsetta, fengju að ráða því hverjir hlytu þau. Gylfi Þ. Gíslason rakti í nokkru undirbúning þessa frum- varps og kvað hafa orðið sam- komulag um afgreiðslu þess við háskólaráð. Hann kvað það sína skoðun að endanlegt úrskurðarvald í þessu máli yrði pólitískur ráðherra að hafa, því að hann bæri á því ábyrgð hvernig veitingin tækist og lægi undir gagnrýni fyrir hana, en það gerði háskólaráð hins vegar ekki. Aftur á móti kvað hann tillögur háskólaráðs myndu mestu um þetta ráða hér eftir sem hingað til frá því lög- unum var breytt 1942. Gunnar Thoroddsen andmælti ummælum Gylfa um að sam- komulag hefði verið við há- skólaráð um þá skipun mála, er fram kæmi í frumvarpinu. Óskir ráðsins fælust í breytingatillög- um hans og Sigurðar. Ráðherra hefði ekki treyst sér til þess að leggja þessar tillögur Háskólans fyrir Alþingi. Nokkur frekari orðaskipti urðu milli Gunnars Thoroddsens og Gylfa Þ. Gíslasonar um það hvort ákvæðin um embættisskip- anir væru í samræmi við lög annarra lýðræðislanda og sýndist sitt hvorum. Atkvæðagreiðsla fór þannig að allar breytingatillögur Alfreðs Gíslasonar voru íelldar nema ein, sem samþykkt var með 7 atkvæðum gegn 6. Hún hljóðar svo: „Nú er til umræðu á fundi Há- skólans mál, er varðar sérstak- lega stúdenta Háskólans, og skal rektor þá kveðja á fundinn einn fulltrúa stúdenta, sem stúdenta- ráð nefnir til. Hefur fulltrúinn þar málfrelsi og atkvæðisrétt". Breytingartill. frá Sigurvin Einarssyni og Friðjóni Skarp- héðinssyni að 3. málsgr. 2. gr. orðist svo: „Háskólaráð hefur úr- skurðarvald í málexnum Háskól- ans og háskólastofnana svo sem lög mæla og nánar segir í reglu- gerðum“, var samþykkt með 9 atkv. gegn 3. Tillögur þeirra Gunnars Thor- oddsens og Sigurðar Ó. Ólaís- sonar voru felldar, en breytinga- till. menntamálanefndar deild- arinnar, sem voru í 8 liðum, sam þykktar. Svo breyttu var frum- varpinu vísað til 3. umræðu. Ný óperetta í Þjóðleikhúsinu Sænsk söngkona syngur aðalhlufverkið. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefir átt fund með fréttamönnum og skýrt þeim frá næsta verki Þjóðleikhússins, sem er óperettan „Sumar í Tyrol“ eftir Ralph Benatzky, austurrískt tónskáld. Til að setja verk- ið á svið er kominn hingað Svend Aage Larsen frá Danmörku, en hann sá um sviðsetningu „Kátu ekkjunnar“ í fyrravor. Hefur hann dvalizt hér síðan 14. april og unnið af kappi. Þá er og kominn hingað sænsk söngkona, Evy Tibell, sem syngur aðalhlutverk óperettunn- ar, Jósefínu. Hefur hún áður sungið víða á Norðurlöndum, m. a. við Stora Teatern í Gautaborg, Stadsteatern í Málmey og Det Nye Teater í Osló. Hún hefur alls sungið hlutverk Jósefínu 350 sinnum. Þjóðleikhússtjóri kvað „Sum- ar í Tyrol“ vera létta óperettu, fulla af lífsgleði og áhyggjuleysi áranna fyrir fyrri heimsstyrjöld- ina. Væri þess full þörf fyrir Þjóðleikhúsið að taka nú létt verk til sýningar ,þar sem verk- in í vetur hefðu yfirleitt verið þung(!) ÁV ARP IjHNS OG kunnugt er, eiga nokkrir menn hér í Reykjavik, karlar 4 og konur, hvergi höfði sínu að að halla og liggja stundum úti um nætur. Hefur sú eymd jafnvel átt sér stað, að leitað hefur verið næturskjóls í umbúðakassa eða bátum niðri við sjó kvöld eftir kvöld. Og með líkum hætti hafa margar næturnar orðið langar og erfiðar ofdrykkjumönnum. Misjafnlega hefur gengið, þegar þeir hafa leitað á náðir heimila og einstaklinga til gistingar, Og þeim verið úthýst ósjaldan. Á þessu verður að gerast breyting. Við megum ekki láta tóm- lætið ráða í þessum efnum og spyrja aðeins: „A ég að gæta bróður míns?“ Því að það eigum við einmitt að gjöra af fremsta megni og minnast orða Krists: „Gestur var eg, og þér hýstuð mig; nakinn, og þér klædduð mig.... Sannlegi segi eg yður, svo framarlega sem þér hafið gjört þetta einum þessara minna minnstu bræðra, þá hafið þér gjört mér það“. Eigum við ekki 811, sem getum, að leggja fram einhverja gjöf ♦41 þess, að hér verði ráðin bót á? Það á að vera auðvelt, ef við erum samtaka og enginn bregzt skyldu sinni. Undirtektir okkar ráða úrslitum. Ef þessi fyrirhugaða fjársöfnun gengur vel, þá er það tryggt, að eigi síðar en 1. ágúst næstkomandi verður opnað skýli hér í bænum til næturgistingar hinu bágstadda fólki, og hefur stjórn Bláa bandsins þá lofazt til að taka að sér starfræksluna, en reynsla þess gefur góða von um, að vel muni takast. Er ætlunin sú, að gistiheimilið verði opið hverja nótt frá kl. 11 e. h. til kl. 10 f.h. og að aðhlynning öll sé sem bezt og ókeypis. Þessi stofnun og starfræksla hlýtur að sjálfsögðu að kosta mikið fé. en við treystum því, að það verði lagt fram. Margir eru örlátir og jafnan fúsir til hjálpar. Mun svo enn reynast 1 þessu máli. Tökum öll höndum saman um það. Við undirritaðir munum veita gjöfum viðtöku, svo og öll dag- blöð bæjarins. 13. maí 1957. Asmundur Guðmundsson, Biskupsskrifstofan, Arnarhvoli. Árelíus Níelsson, Njörvasundi 1. Garðar Svavarsson, Kirkjuteigi 9. Kristinn Stefánsson, Hringbraut 39. Jón Thorarensen, Ægissíðu 94. óskar J. Þorláksson, Aragötu 15. Sveinn Víkingur, Biskupsskrifstofan, Arnarhvoli. Jón Auðuns, Garðastræti 42. Emil Björnsson, Sogavegi 224. Gunnar Árnason, Kópavogi. Jakob Jónsson, Engihlíð 9. Jón Þorvarðarson, Drápuhlíð 4. Sigurjón Árnason, Auðarstræti 19. Þorsteinn Björnsson, Garðastræti 36. LOFTUR GUÐMUNDSSON ÍSLENZKAÐI Óperettan var fyrst sýnd í Vínarborg árið 1931, og fór þá Max Hansen með hlutverk Leopolds, aðal-karlhlutverk- ið. Ungfrú Tibell kvaðst hafa verið 18. í röðinni, sem lék Jósefínu á móti Max Hansen. Texti óperettunnar er saminn af Blomenthal og Kadelburg, en Loftur Guð- mundsson blaðamaður hefur endursamið íslenzka textann eftir þremur mismunandi textum sem til eru á þýzku. HELZTU IILUTVERK Óperettan verður frumsýnd seint í þessum mánuði. Evy Ti- bell syngur á sænsku, en aðrir sýningarkraftar verða íslenzkir. Helztu hlutverk verða sem hér segir: Leopold: Bessi Bjarna- son; Giesecke: Ævar Kvaran; Ottilie: Hanna Bjarnadóttir; Siedler: Ólafur Jónsson; Sigis- mund: Helgi Skúlason; Clara: Rósa Sigurðardóttir; Franz Jósef keisari: Gestur Pálsson; Hinzel- man: Baldvin Halldórsson. Auk þess eru smærri hlutverk, en alls eru hlutverkin um 20. Þá syngur 20 manna kór og 12 manna ball- ett-flokkur sýnir dans. Sólódans sýnir Bryndís Schram og ungt danspar: Anna Brandsdóttir og Helgi Tómasson. Lárus Ingólfs- son gerði leiktjöld og teiknaði búninga, sem Nanna Magnússon gerði. Dr. Victor Urbancic stjórn ar hljómsveitinni. HLAKKAR MJÖG TIL Evy Tibell hefur fengið mjög góða dóma þar sem hún hefur sungið. Kvaðst hún hlakka til að syngja hér og vera sérlega hrifin af sjálfu leikhúsinu og öllum útbúnaði. Hún sagðist vera dálítið taugaóstyrk eins og aeviniega fyrir frumsýningar. Svend Aage Larsen kvaðst þakk- látur fyrir að hafa fengið að koma hingað aftur og einnig fyr- ir að geta nú aftur starfað með Evy Tibell, en þau hafa haft sam- starf í Svíþjóð. Larsen bar mikið lof á leiksviðsmeistara Þjóðleik- hússins, Guðna Bjarnason, sem hefði unnið mikið og erfitt starf við sviðsetningu óperettunnar. Tívoli opnað á laug- ardag þólt eldi rigni Á SÍÐUSTU stundu, var hætt við að opna Tívolí, um helgina, eina og búið var að auglýsa í blöðum og útvarpi. Urðu börnum og ungl- ingum mikil vonbrigði að þessu sem vonlegt var. Þegar Mbl. snéri sér í gær til forstjóra Tívolís, Einars Jónssonar, og spurðist fyr- ir ura hvað hefði valdið að opnun- inni var frestað, svaraði hann því, að tveir rafmótorar hefðu brunnið S'fir seint á laugardagskvöldið, og hefði reynzt ógjörningur að fá gert við þá í snarhasti. Þessir mót orar eru ákaflega þýðingarmiklir þar sem þeir stýra báðum hring- ekjunum og flugvélunum, sem eru aðalleiktæki barnanna í Tívoli. Kvað Einar, forráðamönnum Tívolís þykja þetta mjög leiðinlegt, og nú myndi garðurinn opnaður kl. 2 á laugardaginn, jafnvel þótt Á afmæli forsetans í gærdag blöktu fánar við hún á öllum opin- berum byggingum, erlendum sendiráðum og mörgum byggingum öðrum. í Rvíkurhöfn lágu Fossarnir og fleiri skip fánum skreytt stafna á milli. Eftirtekt vakti að sendiráð Sovétríkjanna við Tún- götu dró ekki fána að hún. Efri myndin er frá höfninni og neðri myndin er frá tveim sendiráöum. Auða fánastöngin við sendiráðið rússneska og í baksýn blaktir vestur-þýzki fáninn við þýzka sendi- ráðið. — Ljósm.: Mbl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.