Morgunblaðið - 14.05.1957, Qupperneq 4
4
MÓRCUTUiLAÐIb
Þriðjudagur 14. maf 1957
I dag er 234. dagur ársins.
14. maí.
Vinnuhjúaskildagi.
Þriðjudagur.
Árdegisflæði kl. 6.25.
Síðdegisflæði kl. 18.50.
Slysavarðstofa Reykjavikur í
Heilsuvemdarstöðinni er opin all-
an sólarhringinn. Læknavörður L.
R. (fyrir vitjanir) er á uma stað
frá kl. 18—8. Sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki, sími 1760. — Ennfremur
eru Holts-apótek, Apótek Austur-
bæjar og Vesturbæjar-apótek op-
in daglega til kl. 8, nema á laug-
ardögum til kl. 4. Þrjó síðasttal-
in apótek eru öll opin á sunnudög-
um milli kl. 1 og 4.
Garðs-apótek, Hólmgarði 34, er
opið daglega kl. 9—20 nema á
laugardögum 9—16 og á sunnudög
um 13—16. Simi 82006.
Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi
9, er opið daglega kl. 9—19 nema
á laugard. kl. 9—16 og á sunnu-
dögum 13—16. Sími 4759.
Hafnarfjarðar-apótek er opi<
alla virka daga kl. 9—21. Laug
ardaga kl. 9—16 og 19—21. Helg
daga kl. 13—16 og 19—21.
Keflavíkur-apótek er opið alla
virka daga frá kl. 9—19, Iaugar-
daga frá kl. 9—16 og helga daga
frá kl. 13—16.
Hafnarfjörður: — Næturlæknir
er Ólafur Ólafsson, sími 9536.
Akureyri: — Næturvörður er í
Akureyrarapóteki, sími 3210. Næt-
urlæknir er Stefán Guðnason.
I. O.O.F. Rb. 1 = 1065148% —
9.0.
RMR — Föstud. 17.5.20. — VS
— Frl. — Hvb.
E^Brúðkaup
Fyrir nokkru voru gefiii sam-
an í hjónband í Neskirkju af séra
Jóní Thorarensen ungfrú Jóhanna
Kristín Jómundsdóttir, Reynimel
58 og Hans Ploder, Bárugötu 40.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband, ungfrú Þóra Guð-
mundsdóttir, Drápuhlíð 8 og Sig-
urður Ámason. Heimili þeirra
verður í Barmahlíð 12.
1 gær voru gefin saman í hjóna-
band af séra Jóni Thorarensen,
ungfrú Sigríður Einarsdóttir, hús-
mæðrakennari og Ásmundur Guð-
mundsson, stýrimaður ' m.s. Helga
felli. Heimili þeirra er á Víðimel
31.
|Hjónaefni
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Emilía Sigurðardótt-
ir, Vatsenda, Ólafsfirði og Berg-
ur Torfason, Felli, Dýrafirði.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Þóra Jónsdóttir og
Margeir Þórarinsson, bæði frá
Fáskrúðsfirði.
II. þ. m. opinberuðu trúlofun
sína frk. Unnur Hjaltadóttir,
Snorrabraut 67 og Karl Schiöth,
flugstjóri hjá Flugfélagi Islands,
Bogahlíð 24.
Afmæli
Fimmtug er í dag frú Krist-
björg Jónsdóttir, Ægissíðu 96.
60 ára er í dag frú Guðrún
Benediktsdóttir, Túngötu 10,
Keflavík. Hún er gift Jóni Eyjólfs-
syni útgerðarmanni. Frú Guðrún
er mikil sómakona og vinsæl.
FERDINAND
Þessi mynd sýnir okkur hvað getur skeð, þegar vörubifreiðum er
lagt skáhallt út í götuna. — Bifreiðastjórar! Leggið bifreiðum ykk-
ar ávallt þannig, að þær séu ekki hættulegar umferðinni og munið
að hafa alltaf orðin PRÚÐMENNSKA og LIÐLEGHEIT í huga,
þegar þér eruð í akstrí.
Slysavarnafélagið.
Skipin
Eimskipafélag íslands h.f.
Brúarfoss fór væntanlega frá
Hamborg í gær til Reykjavíkur.
— Dettifoss kom til Leningrad 11.
þ. m. fer þaðan til Hamborgar og
Reykjavíkur. — Fjallfoss fór frá
Keflavík í gærkvöldi til Reykja-
víkur. — Goðafoss fór frá Reykja
vík í gærkvöldi vestur og norður
um land til Reykjavíkur. — Gull-
foss fór frá Hamborg í gær til
Kaupmannahafnar. — Lagarfoss
fer væntanlega frá Akureyri í
kvöld til Súgandafjarðar, Þingeyr
ar, Stykkishólms og Faxaflóa-
hafna. — Reykjarfoss kom til
Reykjavíkur 10. þ. m. frá Akra-
nesi. — Tröllafoss kom til Reykja-
víkur 10. þ. m. frá New York. —
Tungufoss fór frá Keflavík 8. þ.
m. til Antwerpen, Hull og Reykja
víkur.
Skipadeild S.f.S.
Hvassafell fór 10. þ. m. frá
Kópaskeri áleiðis til Mantyluoto.
— Arnarfell er í Kotka. — Jökul-
fell losar sement á Austfjarða-
höfnum. — Dísarfell átti að fara
í gær frá Kotka áleiðis til Aust-
fjarðahafna. — Litlafell lestar í
Faxaflóa til Austfjarðahafna. —
Helgafell er á Isafirði, fer þaðan
til Þorlákshafnar. — Hamrafell
fór frá Batum áleiðis til Reykja-
víkur. — Sine Boye losar á Húna-
flóahöfnum. — Aida lestar I Riga.
g^Flugvélar
Flugfélag fslands h.f.
Millilandaflug: — Hrimfaxi er
væntanlegur til Reykjavíkur kl.
22:20 í kvöld frá London og Glas-
gow. Flugvélin fer til Osló, Kaup-
mannahafnar og Hamborgar kl.
08:00 í fyrramálið. — Innanlands-
flug: — 1 dag er áætlað að fljúga
til Akureyrar (2 ferðir), Blöndu-
óss, Egilsstaða, Flateyrar, fsa-
fjarðar, Sauðárkróks, Vestmanna-
eyja (2 ferðir) og Þingeyrar. —
Á morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar (2 ferðir), fsafjarðar,
Siglufjarðar, Vestmannaeyja (2
ferðir) og Hellu.
Pan American
flugvél kom til Keflavíkur í
morgun frá New York og hélt
áleiðis til Osló, Stokkhólms og
Helsinki. Til baka er flugvélin
væntanleg annað kvöld og fer á-
fram til New York.
%
Ymislegt
Norræna fclagið: — Skemmti-
fundur í Tjarnarkaffi í kvöld kl.
20.30. Sigurður Magnússon full-
trúi flytur ávarp og Bo Almqust
ser.dikennari sýnir litkvikmynd frá
Svíþjóð, Gluntasöngur og dans.
Kvöldið er helgað Svíþjóð.
Kvenfélag Neskirkju: — Minn-
ingarspjöld kvenfélags Neskirkju
fást í Búðinni minni, Víðimel 35,
Verzlun Hjartar Nílsen, Pósthús-
stræti og Mýrarhúsaskóla.
Bazar Hvítabandsins er í Góð-
templarahúsinu í dag.
Ferðafélagið fer sína fyrstu
gróðursetningarför í Heiðmörk á
þessu sumri, kl. 8 í kvöld. Þess er
vænzt að félagsmenn og aðrir á-
hugamenn um gróðursetningu taki
þátt í þessari för. Farið verður
frá Austurvelli.
Skógræktarför Þingeyinga í
Heiðmörk vfirður farin í kvöld kl.
7 og verður lagt af stað frá Bún-
aðarfélagshúsinu.
Mænusóttarbólusetning í R.vík:
— Fólk sem bólusett var í fyrsta
sinn í aprílmánuði er minnt á að
koma til annarar bólusetningar
sem næst 4 vikum eftir fyrstu
bólusetningu. Bólusetning fer
fram í Heilsuverndarstöðinni kl.
9—11 f.h. og 4—7 e.h., nema laug-
ardaga kl. 9—11.
Margir óska þess af einlægni að
losna úr áfengisviðjunum. — Um-
dæmisstúkan.
Orð lífsins: — Eg vil lofa Drott
inn af öllu hjarta, segja frá öll-
um þínum dásemdarverkum. Eg
vil gleðjast og kætast yfir þér, lof
syngja nafni þínu, þú hinn Hxsti.
(Sálmur 9, 1—2).
Farfuglinn. — Nýlega kom út
nýtt blað hér í Reykjavík, er nefn
ist Farfuglinn. Er fyrsta tölublað
þess dagsett 25. apríl 1957. Út-
gefandi þessa blaðs er Bandalag
íslenzkra Farfugla, en ritstjóri
þess og ábyrgðarmaður Ragnar
Guðmundsson. Blaðinu er ætlað að
koma út fjórum sinnum á ári og
mun verða átta síður í hvert sinn.
Blaðið kostar þrjár krónur eintak-
ið, en verður sent félagsmönnum
ókeypis. Því er ætlað að flytja
fréttir úr félagslífinu, en starf-
semi Farfugla hefur aukizt mikið
síðari árin. Félagið var stofnað
1939. Efni þessa fyrsta „Far-
fugls“ er ávarp Ara Jóhannesson-
ar til félagsmanna. Fylgt úr hlaði,
eftir ritstjórann. Skógræktarþátt-
ur, rabbað við Friðrik Daníelsson.
Á innlendum vettvangi. Á erlend-
um vettvangi. Ferðaáætlun Far-
fugladeildar Reykjavíkur 1957. —
Blaðið er í litlu, snyrtilegu broti
og hið vandaðasta að frágangi.
Barnablaðið Æskan, 4. tbl., þessa
árgangs, er komið út. Á kápunni
er mjög skemmtileg mynd. Efni
er fjölbreytt að vanda og flytur
blaðið m. a. að þessu sinni: Svona
ferðast ég. Konungur dýranna. —
Andrés og Ijónið. Óli eignaðist
litla systur. Ráðvendni endurgold
in. Sumarið er að koma. Þegar
sumarleyfið hefst. Sjálfum sér
næstur. Handavinnuhornið. Þætt-
ir úr sögu skipanna. Frímerkja-
þáttur. Knattspyrna. Lesendur
skrifa. Alltaf eitthvað nýtt og sitt
hvað fleira skemmtilegt og gagn-
legt.
HeimilisblaðiS Haukur er kom-
ið út, maí-blaðið. Efni er að þessu
sinni: William Penn. Blygðunar-
laus (saga). Sálfræði í daglegu
lífi. Segðu okkur frá Fichten-
horst, frásögn eftir Hans Hardt.
Davíð Copperfield, myndasaga.
Hjálp í lífsháska. Gaman og al-
vara. Söngur Suðurhafsins (smá-
saga). Krossgáta. Þau hittust eft-
ir 25 ár (smásaga). Hið sjáandi
auga (smásaga), og ýmislegt fl.
SímablaSiS, 1. tbl. þessa árg.,
er nýlega komið út. Efni blaðsins
er: Hagsmunafélög og vinnusið-
gæði. Hvað er framundan. Um
næturvaktir og fleira. Hví hafa
ekki allar talsímakonur sama rétt.
Kvennasíðan. Aðalfundur F.l.S.
1957. Getraunaráðningar. Láns-
fjárskortur. Að gefnu tilefni. Til-
kynning til símastúlkna á 1. fl. B-
stöðvum. Rekstrarreikningur. —
Efnahagsreikningur. Skyldusparn
aður, stökur og ýmislegt fleira.
Aheit&samskot
SlasaSi maSurinn, afh. Mbl.:
L. J. krónur 200,00.
FólkiS á Hvalnesi, Skaga., afh.
Mbl.: L. J. krónur 200,00.
Sólheimadrengurinn, afh. Mbl.:
S S kr. 50,00; Jón Jónsson 100,00;
C krónur 100,00.
Til Hallgrímskirkju í Rvík.: —•
Ónefndur kr. 1000,00; K K 300;
N N 50; S G 25; Ásg. Þork., 1000
G J og Þ E Hafnarf., 50; Hedda
100; Eyjólfur Eyjólfsson 20; for-
eldrar 50; A G og J Þ, til minn-
inrar um tvö börn þeirra, 500;
gömul kona, til minningar um Sig.
Þ. Jónsson 50; V B 100; G S G
150; G E 50; Kristjana Gísladótt-
ir 150; ónefndur 500,00; V J 10;
þakklát stúlka 80; Steinunn Helga
dóttir 100,00. — Samtals krónur
4280,00. — Móttekið með kærri
þökk. Jakob Jónsson, prestur.
nuwgffhÆaffinu,
¥3/
Þegar sjónvarpið bila5i.
★
Peter Munch, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Dana, var þekktur
Sjónvarp á hjólum
sem gætinn og rólyndur stjórn-
málamaður. Hann notaði sjaldan
sterk orð eða fuliyrðingar og
sagði sjaldan meira en hann gat
staðið við.
Á kosningaferðalagi eitt sinn,
ók hann fram hjá fjárhóp er var
á beit skammt frá. Einn af fylgd-
armönnum Munch lét þau orð
falla, að auðsjáanlega væri nýbú-
ið að rýja þetta fé. Munch horfði
nokkra stund út um bílrúðuna, á
féð og sagði síðan:
— Það lítur að minnsta kosti
út fyrir að þær hafi verið rúnar
á annari hliðinni.
★
Á síðustu árum sínum fðr
Philip Chesterfield, enskur stjórn-
málamaður, á hverjum degi í dá-
litla ökuferð. Gerði gamli maður-
inn þetta til þess að hressa sig og
styrkja. Einhvem tíma mætti
hann kunningja sínum á slíku
ferðalagi og hafði kunninginn orð
á því hve Chesterfield liti vel út
og væri hressilegur.
— ó, blessaður, minnstu ekki á
það, sagði gamli maðurinn, en
þessi ökuferð er nú bara „general
pruva“ að jarðarförinni minni.
★
Cicero (106—43 f. Kr.), þurfti
einu sinni að hafa tal af Róm-
verja nokkrum, en hann lét þjón
sinn segja að hann væri ekki
heima, enda þótt Cicero sæi hann
í glugganum. Nokkrum dögum
seinna þurfti sami Rómverji að
hafa tal af Cicero. Cicero kom
brosandi til dyra og kvaðst því
miður ekki vera heima. Rómverj-
anum brá all-mikið við þetta, en
Cicero flýtti sér þá að bæta við:
— Það er sýnilegt að þér trúið
mér ekki, enda þðtt ég tryði þræln
um yðar um daginn.