Morgunblaðið - 14.05.1957, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.05.1957, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAfíl» Þriðjudagur 14. maí 1957 Otg.: H.f. Arvakur, Reykjavík Framkvæmdastj óri: Sigfús Jónssun. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Ami Óla, sími 3045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritsíjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 1600. Áskriftargjald kr. 30.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 1.50 eintakið. Dómur GultskeUs um sumvinnu við kommúnistu ALÞÝÐUBLAÐIÐ birti sl. sunnu- dag greinargóða frásögn af för Hugh Gaitskells formanns brezka Verkamannaflokksins til Róma- borgar, í þeim tilgangi að flýta fyrir sameiningu hinna tveggja arma ítalska jafnaðarmanna- flokksins. Eins og kunnugt er hefur allstór hluti jafnaðarmanna á Ítalíu haft náið samstarf við kommúnista. Hafa hægri jafn- aðarmenn lotið forystu Giuseppe Saragats, en vinstri sósíalistar hafa haft Nenni að foringja. Jafnaðarmannaflokkur Sara- gats hefur undanfarið haft sam- vinnu við Kristilega lýðræðis- flokkinn um stjórn Ítalíu. Erindi Gaitskells var eins og áður segir að vinna að sáttum milli hinna tveggja flokksbrota jafnaðarmanna á Ítalíu. Ekki er ennþá vitað hvern árangur för hans hefur borið. En talið er að hún muni hafa haft allmikla þýðingu. Alþýðublaðið kemst m. a. að orði á þessa leið um Róma- för Gaitskells: „Áður en Gaitskell hélt heimleiðis frá Róm átti hann fund með blaðamönnum og ræddi viðhorfið. Hann kvað jafnaðarmenn haga sér rökrétt og skynsamlega. Sem jafnað- armannaflokkur gæti flokkur Saragats ekki rætt nánari sam vinniu við Nennista fyrr en þeir hefðu slitið sig algeriega ur trússi við kommúnista“ Neitun Nennista Áður í þessari sömu Alþýðu- blaðsgrein hafði verið skýrt frá því að slitnað hefði upp úr sam- einingartilraunum flokksbrot- anna, meðal annars af þessum á- stæðum: 1. Nennistar reyndust ófáanlegir til að slíta samvinnu við komm únista í verkalýðsfélögum, sveita- og bæjarstjórnum og ýmsum menningarstofnunum. 2. Hægri jafnaðarmenn neituðu að rjúfa samstarf við kristilega lýðræðisflokkinn um ríkis- stjórn. 3. Nennistar kröfðust hlutleysis í utanríkismálum en jafnaðar- menn aðhyllast samstarf við vesturveldin og áframhaldandi aðild að NATO. Sú afstaða, sem kemur fram í ummælum Gaitskells og skilyrð- um hægri jafnaðarmanna fyrir sameiningu við Nenni-flokksbrot ið, er vissulega hin athyglis- verðasta. Saragat gerði það að skil- yrði fyrir sameiningu við Nennista, að þeir slitu allri samvinnu við kommúnista bæði í verkalýðsfélögum, bæj- arstjórnum og menningarstofn unum. Og Gaitskell lýsir því hiklaust yfir að „sem jafnað- armannaflokkur geti flokkur Saragats ekki rætt nánari sam vinnu við Nennista fyrr en þeir hefðu slitið sig algerlega úr trússi við kommúnista“. Afstaða íafnaðarmanna um allan heim Þannig er nú afstaða jafnaðar- manna um allan heim — nema á íslandi — til kommúnism- ans. Formaður brezka Verka- mannaflokksins lýsir því hiklaust yfir, að ekki sé hægt að ræða samvinnu hægri jafnaðarmanna á Italíu við vinstri jafnaðarmenn Nennis ,fyrr en þeir hafi „slitið sig algerlega úr trússi við komm- únista“. Lexía fyrir íslenzka iafnaðarmenn En ummæli Gaitskells og af- staða Saragats-jafnaðarmanna á Ítalíu eru þörf lexía fyrir ís- lenzka jafnaðarmenn. Hér hafa þau undur gerzt, að jafnaðar- menn hafa gengið í stjórnarsam- vinnu við kommúnista, og stuðla nú á marga vegu að eflingu kommúnistaflokksins á íslandi. Á þessa ógæfuhlið tók að hall- ast, þegar Hannibal Valdemars- son klauf Alþýðuflokkinn innan verkalýðshreyfingarinnar haustið 1954 og lét kommúnista síðar kjósa sig forseta Alþýðusamband: fslands. Lauk ferli hans innan Ai þýðuflokksins með því að hann var rekinn úr flokknum ásamt Alfreð Gíslasyni lækni eftir að þeir höfðu myndað kosninga- bandalag við kommúnista. j í það mund, sem þetta gerð-1 ist, lýsti þáverandi formaður Alþýðuflokksins því yfir, fyrir kosningarnar s. 1. sumar, að Al- þýðuflokkurinn mundi -aldrei hafa samvinnu við kommúnista um stjórnarmyndun. En kosningunum var ekki fyrr lokiö en þessi yfirlýsing var svikin. Hræðslubandalag- ið hafði ekki fengið þing- meirihluta og auk þess hríð- tapað atkvæðum í kosningun- um. Þegar svo var komið, hik- uðu forystumenn íslenzkra jafnaðarmanna ekki við að ganga til handalags við komm únista. Ákafastur í þá sam- vinnu mun Gylfi Þ. Gíslason ritari miðstjórnar flokksins hafa verið. Klofinn í afstöðunni. til kommúnista En þótt ráðamenn Alþýðu- flokksins hafi þannig svikið kosningaloforð sitt er formaður þeirra gaf frammi fyrir alþjóð sumarið 1956 er þó vitað að margir íslenzkir jafnaðarmenn eru algerlega andvígir allri sam- vinnu við kommúnista, og telja hana hið mesta glapræði. Kemur þetta ekki hvað sízt í ijós innan verkalýðsfélaganna hér í Reykja- vík. Þar eru Alþýðuflokksmenn yfirleitt í harði andstöðu við kommúnista og telja samvinnu milli lýðræðissinna einu réttu og skynsamlegu leiðina til þess að vinna bug á kommúnismanum hér á landi. Alþýðublaðið hefur birt álit Gaitskells á samvinnu jafnað- armanna og kommúnista. Verr má að það boði einhverja breytingu á afstöðu Alþýðu- flokksins í þessum málum. Og vissulega þarf engan að undra, þó íslenzkir jafnaðar- menn telji sér lítinn sóma af því að vera í dag eini jafn- aðarmannaflokkur heimsins sem situr í ríkisstjórn me? kommúnistum. UR HEIMI ) Nótt löngu hriífanna U ndanfarna viku hef- ur verið sagt frá því í fréttum, að nú fari fram í Miinchen réttar- höld yfir tveimur skósveinum Hitlers, sem voru viðriðnir ein- hverja óhugnanlegustu atburði í sögu nazismans, og er þá langt til jafnað. Þessir atburðir gerðust fyrir 23 árum — 30. júní 1934, þegar Hitler braut á bak aftur andstöðuna innan flokksins með því að láta myrða SA-foringj- ann Ernst Röhm og um 2000 aðra andstæðinga sína. Hin örlagaríka nótt, þegar morðin voru framin, hefur verið nefnd „nótt löngu hnífanna". 1 egar sagt er, að 2000 manns hafi látið lífið, er það ágizkun; talan kann að vera hærri, en hún getur líka verið lægri. Hér var ekki aðeins um að ræða SA-foringja, heldur ýmsa persónulega óvildarmenn SS-mannanna, sem framkvæmdu hreinsunina. Einnig voru ýmsir af pólitískum andstæðingum Hitl ert myrtir, sem voru á engan hátt tengdir Röhm og samherj- um hans í Nazistaflokknum. Frægastur þeirra var Schleicher hershöfðingi og fyrrverandi rík- iskanslari, sem skotinn var nið- ur ásamt konu sinni. Ernst Rolun, keppinautur Hitlers, myrtur 1934. Hitler reyndi að verja gerðir sínar með því, að Röhm og félagar hans hefðu gert sam- særi innan flokksins til að svipta sig völdum. Vitað var, að Röhm var mjög andvígur ýmsum stefnu málum Hitlers, ekki sízt gyðinga- ofsóknunum, og að ýmis önnur öfl í landinu unnu að því að losna við ríkiskanslara nazista, sem var mjög óvinsæll eftir IV2 árs stjórn. Síðari rannsóknir hafa hins veg- ar sannað, að hættan á uppreisn eða valdaráni innan eða utan flokksins var sáralítil um mán- aðamótin júní—júlí 1934. -H ið kuldalega sam- band Hitlers og Röhms varð ís- kalt eftir valdatöku nazista 30. janúar 1933, þegar Hitler gerði Röhm ekki að ríkismarskálki. Röhm vildi sameina SA-sveitirn- ar og herinn og gera úr þeim „Wehrmacht" undir sinni stjórn. Hann leit á SA-sveitirnar sem kjarna hersins. Smám saman fór hann líka að gagnrýna Hitler fyr- ir það, að framkvæma ekki „aðra byltinguna". Ásamt mörgum eldri félögum flokksins lagði Röhm mikla áherzlu á síðari hlut ann í nafni flokksins, sem hét: flokkur — „þjóðernisjafnaðar- manna“. Þeir skildu ekki, að fyrri hlutinn, hið þjóðernislega, skipti Hitler öllu máli, og að hann var þá þegar farið að dreyma um heimsyfirráð. E n til að koma fram á- formum sínum varð Hitler að hafa herinn að baki sér. Hann ákvað að nota hina vel þjálfuðu liðsforingja hersins til að gera upp sakirnar við óánægða for- ingja SA-sveitanna. Röhm grun- aði ekki neitt. Hann ákvað að gefa sveitum sínum sumarleyfi allan júlí-mánuð. Sjálfur tók hann sér frí í byrjun júní og dveldist sér til heilsubótar í Wiesse rétt hjá Munchen. Með honum voru ýmsir nákomnustu vinir hans í flokki SA-foringj- anna (það var ekkert leyndar- mál, að margir þeirra voru kyn- villtir). Hitler fór sjálfur frá Berlín til að „skoða vinnubúðir í Westfalen“ eins og tilkynningin hljóðaði. Fram á síðustu stundu var Röhm ugglaus. — Hitler símaði til hans og fékk hann til að kalla saman SA-foringjana, svo hægt væri að tala saman og gera út um deilumálin .Röhm var rólegur, en hann vissi ekki, að 29. júní hafði Sepp Dietrich, sem fór með Hitler í „eftirlitsferð“ hans, komið til Múnchen með flugvél frá Bad Godesberg. Hann átti að gera síðustu ráðstafanir áður en uppgjörið við SA færi fram. Þegar Hitler og Göbbels komu til Múnchen snemma næsta morgun, voru böðlarnir reiðubún ir og allt búið í haginn fyrir blóð- baðið. Í1 ■tlAitler fór rakleiðis til Wiesse, þar sem hann handtók sjálfur Röhm, áður en hann var kominn á fætur. Samtímis voru fjölmargir SA-foringjar hand- teknir um leið og þeir stigu út úr lestinni í Múnchen, en þangað hafði Röhm kvatt þá að boði Hitlers. Fórnarlömbin höfðu sem sé gengið í gildruna. SA-sveit- irnar voru lamaðar og gátu enga „Sjóræningjor" hertnkn ilugstöðvnrskip SYDNEY, Ástralíu 7. maí. — Hópur ástralskra stúdenta klæddra sem sjóræningja, fór snemma í morgun á báti út á höfnina í Sydney og réð- ist til uppgöngu í bandaríska flugstöðvarskipið Bennii.gton. Þegar þeir voru komnir upp í skipið hringdu þeir klukk um í því og settu af stað að- vörunarbjöllur í skipstjórnar- klefanum. Með þessu kváðust stúdentarnir vilja sýna fram á hve öllu öryggiseftirliti á her- skipum væri áfátt. Segja þeir, að auðvelt væri fyrir Rússa að ræna fjölda skipa, vegna þess að verðimir eru sofandi. —Reuter. Sepp Dietrich, SS-foringinn sem Hitler notaði til að skipuleggja morðin á SA-foringjunum. Hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir stríðsglæpi eftir stríð, en hann hafði m. a. látið skjóta 144 óvopnaða bandaríska flug- menn, eftir að þeir voru hand- teknir. Dietrich var náðaður fyr- ir skömmu, og var þá þessi mynd tekin. Búizt er við vægum dóml yfir honum núna. mótspyrnu veitt. Brátt voru drápsvélarnar í fullum gangL Miðstöð morðanna var Múnchen, en í Berlín hljómuðu skotin líka allan daginn og um gervallt Þýzkaland komu SS-blóðhund- arnir og fjarlægðu fólk, sem „foringinn“ kærði sig ekki um. s k-J epp Dietrich var hækkaður í tign eftir frammi- stöðu sína í Múnchen. Hann sá sjálfur um aftöku sex helztu SA- foringjanna, sem hann hafði skrif að á óskalista sinn. Hann safnaði fórnarlömbunum saman úti í garði Stadelheim-fangelsisins. „Heil Hitler — í nafni foringj- ans eruð þið dæmdir til dauða“, sagði hann og gaf hinum „dauða- dæmdu“ tvær mínútur til að skrifa ástvinum sínum hinztu kveðjur. Á meðan þeir sátu í steinlögðum garðinum og hrip- uðu kveðjurnar, gaf Dietrich skipun sína: „Heil Hitler — skjótið!" R. öhm var settur í einkaklefa. Honum var fengin skammbyssa snemma morguns 1. júlí og sagt, að hann skyldi sjálf- ur svipta sig lífi. Hann neitaði, og 10 mínútum síðar ruddist Michael Lippert inn í klefann ásamt fangelsisstjóranum, Eicke, og þeir skutu hvor sínu skoti á Röhm, sem hafði svipt af sér skyrtunni, þannig að hann var nakinn að ofan. Samkvæmt á- kæruskjölunum í yfirstandandi réttarhöldum gaf Lippert fórnar- lambinu „náðarskot", en Eicke, sem var drepinn í stríðinu, læsti klefadyrunum til að koma í veg fyrir að Röhm bærist læknis- hjálp. Aðeins Dietrich og Lipp ert eru enn á lífi af böðlum Hitl- ers. Hinir féllu í stríðinu eða féllu síðar í ónáð foringjans og voru drepnir. SA-sveitirnar og foringjar þeirra áttu sinn stóra þátt í valdatöku Hitlers, en þeg- ar hann hafði ekki lengur þörf fyrir þær, voru foringjar þeirra strádrepnir. Það er enginn vafi, að Stalin lærði margt af kollega sínum í Þýzkalandi. Nokkrum ár- um síðar þurfti hann líka að hreinsa til meðal samherja sinna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.