Morgunblaðið - 14.05.1957, Qupperneq 11
Þriðjudagur 14. maí 1957
MOrtCTHVfíT/ÁÐIÐ
11
Námsflokkarnir;
Þar situr aldraður
yngismeyjar hlið
Kvöldskólinn, þar sem faúsundir
njóta fræðslu
HÉR í bænum hefur skóli starfað í næstum 20 ár, þar sem
gamlir bændur og húsmæður sitja við hliðina á 13—14
ára gömlum unglingum og auka þekkingu sína og kunnáttu
í fjölmörgum námsgreinum. Þar læra hafnarverkamenn
ensku, verzlunarmenn tungumál og bókfærslu, ungar stúlk-
ur vélritun og húsmæður föndur og útsaum. Þegar kvölda
tekur safnast um 1000 nemendur í þennan sérstæða skóla,
þar sem enginn er skyldugur til námsins, en allir sækja,
ungir sem gamlir, af einskærri fróðleiksfýsn og menntunar-
þrá.
Þetta eru Námsflokkar Reykjavíkur. Námsgreinarnar eru
nú alls 14, og þar geta allir komið að aflokinni vinnu á
kvöldin og lagt stund á það sem hugur þeirra stendur til. —
Kennslugjaldið er furðulega lágt, 40 krónur á vetri fyrir
hverja námsgrein. Aldrei hef ég þekkt áhugasamari nem-
endur, segir stofnandinn og skólastjórinn, Ágúst Sigurðsson
magister.
TILGANGUR Námsflokkanna
er einfaldur og ljós, og er frá
honum skýrt í fræðsluriti um þá,
sem gefið var út skömmu eftir
stofnun þeirra. Þar er tilgangur
orarnir Steingrímur J. Þorsteins-
son og Ólafur Björnsson og
Magnús Finnbogason mennta-
skólakennari. í upphafi rituðust
89 nemendur í skólann.
Agúst Sigurösson afhendir bónda um sextugt, Birni Andréssyni,
Leynimýri, skírteinl sitt.
bóndi við
en alls hafa verið kenndar 22
námsgreinar. Er miðað við lág-
markstölu 8 nemenda í hverri
námsgrein. Ef talan fellur neðar
að meðaltali yfir kennslutímann,
þá er kennslunni að jafnaði hætt.
VIÐ höfum rekið okkur á það,
segir Ágúst Sigurðsson að
áhuginn fyrir sumum námsgrein-
um varir ekki nema í nokkur ár
Þá hefir sá hópur, sem áhuga
hefir á tilteknu efni hlotið kenn-
slu og fleiri gefa sig ekki fram.
Þannig hafa íslenzkar bókmennt-
ir ekkir verið kenndar í Náms-
flokkunum í þrjú ár vegna þátt-
tökuleysis, og sama er að segja
um ítölsku og félagsfræði svo
dæmi séu tekin. En þær náms-
greinar sem nú eru kenndar eru
íslenzka, danska, enska, franska
spánska, þýzka, sænska, norska,
bókfærzla, föndur, vélsaumur, út-
saumur, uppl., reikn., vélr. Nám í
flokkunum er ekki í beinum
Ágúst Sigurðsson skólastjóri
arstig, allt frá byrjendum til
þeirra sem lengst eru komnir.
Þannig eru t.d. fimm stig í ensku,
þ.e. nemandinn getur lært ensku
í fimm vetur í námsflokkunum.
Eftir fimmta veturinn svarar
kunnátta hans til kunnáttu nem-
anda í 2. bekk menntaskólanna,
ef um duglega nem. er aðræða.
í íslenzku, þýzku og frönsku eru
tvö kennslustig, en 3—4 í dönsku.
ÞÓ að skólagangan sé löng hjá flestum Islendiiigum, er
þó sú fræðsla ekki alltaf fullnægjandi, sem fæst í skólum.
Eftir að menn eru brautskráðir úr skóla, getur skapazt
nauðsyn vegna nýrra starfa að bæta kunnáttu sína í ein-
hverri grein eða nýr þekkingarþorsti gert vart við sig.
Einkakennsla er mörgum ofviða vegna kostnaðar. En hér
koma Námsflokkar Reykjavíkur til hjálpar. Þeir hafa starf-
að í tæpa tvo áratugi á vegum Reykjavíkurbæjar undir
farsælli forystu Ágústs Sigurðssonar. Þeir hafa bætt úr
brýnni þörf, getið sér gott orð og notið sívaxandi vinsælda.
Það er von mín, að Námsflokkarnir haldi áfram að blómgast
og dafna og verði Reykvíkingum enn sem áður til menning-
arauka og svölunar þekkingarþorsta.
Gunnar Thoroddsen.
tengslum við skólakerfið, veitir
engin réttindi til inngöngu í aðra
skóla. Þátttökuskírteinið er fyrst
og fremst sönnun þess, að nem-
andinn hafi aflað sér nokkurrar
menntunar í þeirri grein sem það
hljóðar um auk þess sem það er
vottorð um ástundun hans og
dugnað. Tvær einkunnir eru
gefnar, fyrir ástundun og kunn-
áttueinkunn. Enginn nem. getur
fejjgið Námsflokkaskírteinið,
nema að hann hafi mætt í 24—
26 tímum yfir veturinn í náms-
grein sinni, en alls eru tímarnir
44—46 talsins. Kennslan fer
fram tvisvar í viku á tímabilinu
frá kl. 7,45—10,20, þar sem flestir
EKKERT aldurstakmark er upp
á við á námsflokkunum.
Raunin hefir líka verið sú, að
þar hafa nokkrir nemendur ver-
ið á sjötugsaldri, því að í raun-
inni er maður aldrei of gamall
til þess að læra. Kona ein 65 ára
gömul hóf að læra ensku í Náms-
flokkunum og lauk prófi með
ágætiseinkunn, bæði fyrir
ástundun og árangur. Verzlunar-
maður rúmlega fimmtugur kom
í Námsflokkana og hóf að læra
bókfærzlu. Var hann um vetur-
inn í báðum flokkum samtímis.
Um vorið tók hann við ágætu
starfi sem útibússtjóri i stóru
þeirra sagður vera sá að veita
því fólki, sem af einhverjum
ástæðum óskar eftir að bæta ein-
stökum greinum við skóla-
menntun sína, fengið tækifæri
til þess. Er hér sérstaklega haft
í huga fólk, sem af einhverjum
ástæðum hefir orðið afskipt um
skólamenntun, en einnig þr-ð að
oft er það svo er fólk eldist að
það fær áhuga á nýjum náms-
greinum og vill gjarnan auka
við menntun sína.Námsflokkar
Reykj avíkur eru til húsa í Mið-
bæjarbnrnaskólanum. Námið í
námsflokkunum er miðað við
það að menn vlnni fullan starfs-
dag með náminu. Frá byrjun
hefir einnig verið frjálst val á
námsgreinum, þeim sem nægi-
lega margir þátttakendur feng-
ust í. Þar er ekki um neitt skyldu-
nám að ræða.
Það var í febr. 1939, að Náms-
flokkarnir tóku til starfa. Fluttu
þeir Gunnar Thoroddser. og
Helgi Hermann Eiríksson þá til-
lögu í bæj arstj órninni að Ágúst
Sigurðssyni magister yrði falið
að undirbúa og koma af stað
námsflokkum.
Hafði Ágúst dvalizt allengi í
JSvíþjóð, þar sem hann hafði
verið á fyrirlesrtaferðum og
kynnt sér svipaða starfsemi þar í
landi. Síðan hófu Námsflokkar-
nir starfið í febrúar þennan vet-
ur, og voru fyrstu námsgreinar-
nar: íslenzk "bókmenntasaga,
málfræði, hagfræði, félagsfræði,
enska og danska. Kennarar auk
skólastjórans voru þeir prófess-
Síðan þennan fyrsta vetur
hefir starf Námsflokkanna stöð-
ugt farið vaxandi og nemenda-
talan meir en tífaldazt. Nú eru
alls kenndar þar 15 námsgreinar,
nemendurnir eru vinnandi eða í
öðrum skólum, og geta því ekki
komið til kennslunnar fyrr en
á þeim tímum.
Innan hverrar námsgreinar
eru nokkur mismunandi þekking-
fyrirtæki úti á landi. Fimmtug-
ur hafnarverkamaður hóf ensku-
nám til þess að geta talað við
Englendinga og aðra útlendinga
Framh. á bis. 12
.olastjórinn aíhendir námsskirceinin ungum sem gömlum.
8TAKSTEINAR
Þurft lengri dvöl
til kynna af íslenzkri
al]býðu“
Peter Freuchen hefur ritað I
danska blaðið „Politiken“ grein
um dvöl sína hér nú fyrir
skemmstm. Þjóðviljinn birti grein
ina í íslenzkri þýðingu sl. laug-
ardag undir fyrirsögninni „Sögu-
eyjan þróttuga“. Svohljóðandi
inngangur fylgir þýðingunni af
Þjóðviljans hálfu.
„Peter IYeuchen ritar þessa
grein í Politiken 6. maí og ræðir
þar m. a. handritamáiið og ýmis-
legt, sem hann kynntist í tslands
förinni. Dvöi hans var því mið-
ur svo stutt, að tími vannst vart
til annars en fyrirlestrahalds og
veizluhalda með háttsettw fólki,
og ber greinin þess nokkur
merki. Freuchen hefði þurft að
eiga hér lengri dvöl til kynna
af íslenzkri alþýðu“.
Hvað þeir háttsettu“
sepia
Meðal þess „háttsetta fólks**,
sem Freuchen hitti var Hermann
Jónasson forsætisráðherra. Um
hann segir í greininni:
„Hermann Jónasson er forsæt-
isráðherra, og mér er sagt, að
hann hafi einu sinni orðið glímu-
kóngur (eins og Jóhannes á
Borg). Þessi íslenzka íþrótt er í
miklum metum og hún gerir eng
an að sportidíót. Hermann Jón-
asson er hinn karlmannlegasti
meðal forsætisráðherra, og hann
er að því leyti betiur settur en
nokkur þeirra, að hann þekkir
nærri því hvern mann í ríki sínu.
Þegar maður kemur að finna
hann veit hann fyrirfram, hvaða
erindi hann á, hann er skilnings-
góður á vandamál manna og á-
kaflega vinsæli. Við mig talaði
hann fumlaust og skynsamlega
um vini sína danska, hann minnt-
ist Hedofts og Staunings með
mikilli virðingu".
Úr samtali við hvern skyldi
þessi lýsing á Hermanni Jónas-
syni komin?
4uður stóll.
Tíminn segir svo sl. sunnudag:
„Glöggir menn hafa hafið máls
á því, að ekki sé rétt að skipa
sendiherra í Kaupmannahöfn að
nýju fyrr en Danir hafa skilað
handritunum. . . Auður sendi-
herrastóll íslands í Kaupmanna-
höfn muni minna Dani á, að þeir
cigi eftir að skila handritunum
. . . Sömu menn telja það stafa
af linkind íslendinga að handrit-
in eru enn ófengin------nú hef
ir sendiherra þar miklu minna að
gera en aðrir sendiherrar íslands
og raiunar er stöðinni haldið við
til virðingar við Dani“.
Þessi tillaga málgagns forsæt-
isráðherrans mun vissulega
vekja athygli. Ef svo róttækra
ráðstafana er að vænta, mun þvi
síður standa á, að tillaga Péturs
Ottesens og Sveinbjarnar Högna-
sonar í handritamálinu verði
samþykkt.
Ríkisstjórninni ekki
um að kenna“
Tíminn er nú farjnn að reyna
að koma sökinni af hinu langa
þinghaldi af ríkisstjórninni. Seg-
ir hann s.l. sunhudag:
„Vonir standa til þess, að Al-
þingi Ijúki störfum fyrir mánað-
arnvót, en annars hafa störf þess
gcngið Iteldur seint eftir páska-
fríið. . . Kíkisstjórninni er ekki
um að kenna, þar sem hún hafði
lagt fram fyrir páskana öll mál
sin, nenia bankafrumvarpið, sem
er væntanlegt í þessari viku“.
En ef ekki er rikisstjórninni um
að kenna, hverjum þá?