Morgunblaðið - 14.05.1957, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.05.1957, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 14. maí 1957 MORGUNBLAÐIÐ 13 Fiskimúlastjóri leggor orð í belg Þegar ég hafði lokið við að skrifa grein mína um Fiskirann- sóknir við ísafjarðardjúp árið 1908 o. fl. barst mér í hendur grein um rækjuveiðar eftir Davíð Ólafsson ritstjóra, sem birt er í 5. tölubl. Ægis þ.á. Tilefni þessara „hugleiðinga", sem hann svo kallar, segir hann blaðaskrif þau, sem átt hafa sér stað í vetur um rækjuveiðar o.fl. í sambandi við þær. f>að gleður mig,. að sjálfur fiskimálastjórinn hefur nú lagt orð í belg um það mál, sem við Norður-ísfirðingar um árabil höfum talið nauðsynlegt að Fiski félag íslands og Fiskiþing gæfu meiri gaum en raun ber vitni um. Það út af fyrir sig, skiptir ekki máli þótt fiskimálastjórinn í grein sinni telji að kæra sú, er send var sýslumanninum í ísa- fjarðarsýslu í vetur „sé á mis skilningi byggð“. Kæra þessi hefur nú orðið til þess að vekja athygli fiskimála stjórans og máske annarra á því máli, sem um er deilt og sem Fiskifélag íslands hefur þýðing- armikinn tillögurétt um, hvort leyst verði á viðunandi hátt fyr- ir allt héraðið umhverfis ísafjarð Brdjúp. Það er auðskilið mál, að fólkið hér í héraðinu hefur nokkra sér- stöðu í máli þessu, þar sem ísa- fjarðardjúp er annar fjörðurinn af tveimur hér á landi, sem ekki nýtur þeirrar verndar fyrir skaðlegum veiðiáðferðum er sett var með lögum árið 1952 þegar landhelgin var útvíkkuð. Ég hefi áður í blaðagrein um rækjuveiðar látið í Ijós undrun mína yfir því hvað Fiskifélag ís- lands og áhrifamenn sjávarút- vegsmálanna hafa látið sig mál þetta litlu varða. Ég hefi bent á, að þetta mundi stafa af ókunnugleika flestra full trúa þeirra, er á Fiskiþingi sitja og lítið þekkja til rækjuveiða og áhrifa þeirra á fiskigengd hér í Djúpið og tortímingu ails ung- fisks, sem gefur að skilja, að er stórkostleg vegna möskva- smæðar botnvörpu þeirrar er notuð er við rækjuveiðarnar. Hefi ég þó hugmynd um að nú- verandi fulltrúar okkar Vest- firðinga á Fiskiþingi muni þar hafa túlkað mál þetta á þann veg að einhverra aðgera þyrfti í þessum efnum, sem vissulega er nú tímabært. Ég skil að nokkrum íbúum ísa- fjarðarkaupstaðar sé sárt um að missa þær tekjur, sem af rækju- veiðunum leiðir og að þeir hafi þar eiginhagsmuna að gæta. En ég skil ekkl, að það sé minni ástæða til að banna rækjuveiðar en veiðar með dragnót, sem þó gaf mörgum sinnum meiri tekj' ur í þjóðarbúið og margfalt fleiri höfðu atvinnu af en rækjuveið- um. Báðir þessir atvinrmhættir eru viðurkenndir skaðlegir eins og reynslan hefur sýnt, enda stundaðir með sams konar veið arfærum, nema hvað möskva- stærð nótanna snertir. í báðum tilfellum er hér um að ræða botn vörpur í litlu eða engu frábrugðn ar bötnvörpum togaranna nema hvað stærðina snertir. Davíð Ólafsson upplýsir í grein sinni að: „Lagt hafi verið til af Fiskifélaginu að rannsókn vís- indamanna verði látin fram fara hafi útflutningsverðmæti hans á þessu ef slík rannsókn mætti leiða eitthvað í ljós um áhrif rækjuveiðanna á aðrar fiskveið- ar eða á háttu annarra fiska á þeim slóðum þar sem þær eru stundaðar. Fyrr en niðurstaða af slikri rannsókn liggur fyrir er alls ekki tímabært að ræða það mál, hvort nauðsyn sé einhverra sérstakra ráðstafana vegna rækjuveiðanna.“ Af þessum upplýsingum rit- stjórans verður ekki annað séð en að hann og Fiskifélagið álíti að ekki sé tímabært að ræða þetta mál fyrr en ráðgerðar rann sóknir hafa farið fram. Hins veg- ar verður ekki séð af ályktunum 23. Fiskiþings, um humar og rækjuveiðar, sem birtar eru í Ægi, að nokkurt bann við um- ræðum eða skrifum um málið hafi þar verið samþykkt, enda næsta undarlegt ef svo hefði ver- ið. Það er fjarri því, að ég hafi móti því að málið verði rann- sakað, enda þótt mikið hafi ver- ið gert að því af forsvarsmönnum rækjuveiðimanna, að stimpla mig andvígan öllum rannsóknum sem ókunnugir mér verða kannske til að trúa að satt sé. Nýjustu ályktanir Fiskiþings um humar- og rækjuveiðar eru eftir því, sem ég bezt veit frá ár- inu 1955, samþykktar í október eða nóv. það ár. Mér verður því á að spyrja: Hvað dvelur nú Orminn langa? Hví er ekki þegar byrjað á þessum rannsóknum, sem tví- mælalaúst ættu að fara fram ein mitt hér á ísafjarðardjúpi, þar sem rækjuveiðarnar eru stun3- aðar? Með fullri vinsemd og virðingu vænti ég að mér leyfist og að spyrja fiskimálastjóra, Davíð Ólafsson og fulltrúa á Fiskiþingi, hvort honum og þeim finnist sanngjarnt að smáútvegsmenn hér við Djúp, sem er og hefir verið einn fiskisælasti fjörðurinn við landið, þurfi að bíða, kannske svo árum skiptir, eftir fyrirhug aðri rannsókn er fiskimálastjór inn virðist telja nauðsynlega. Enn vildi ég mega spyrja: Fóru nokkrar rannsóknir fram á skaðsemi veiða með dragnót á fjörðum inni áður en veiðar með þessu veiðarfæri voru bannaðar? Var það ekki reynslan í þess- um efnum, sem var aðalorsökin til dragnótaveiðabannsins? Ég held að svo verði að telja. Enginn held ég efist um að afli alls dragnótabátaflotans, í bili að minnsta kosti, hafi haft allmiklu meiri áhrif til hagsbóta á efna hagslega afkomu þjóðarinnar, en rækjuveiðarnar, sem stundaðar eru á fáum bátum aðeins á tveim ur fjörðum hér við landið. Það ætti ekki að þurfa að taka langan tíma að rannsaka, hve mikil verðmæti hafa skapazt hér vegna rækjuveiðanna í svo smáum stíl sem þær hafa verið reknar. Tölur munu liggja fyrir frá byrjun þessara veiða um hagnað af þeim. Samanber 'grein í Ægi árið 1940, með fyrirsögn: „Hinir sex nýju atvinnuhættir", en þar er upplýst að 4 fyrstu ár þessa nýja atvinnuþáttar (rækjuveiðanna) numið, segi og skrifa, 473 þús. kr, Talsvert hefur þetta aukizt síðan. Benda mætti á að fljótt mundi mega ganga úr skugga um, fyrir þá vísindamenn, sem falin verð- ur rannsókn í þessum efnum, hver áhrif rækjuveiðar hafa á fiskigengd og fiskistöðu hér í ísaf j arðard j úpi. Mundi það mega teljast ráðlegt þegar næsta fiskihlaup, eða fiski ganga kemur í Djúpið, sem ég vona að verði áður en langt líður, að senda þá alla rækjuveiðibát- ana hér á fiskimiðin til veiða með vísindamanninn eða menn- ina innan borðs og sjá þá hvað skeður. Ég hefi gilda ástæðu til að halda að þeim' verði betur trúað en sjómönnunum og öðrum hér við Djúp, sem reynslu hafa í þessum efnum, en auðvitað eru engir vísindamenn. Þó hefi ég þá trú að þeir mundu betur standast prófið en formælendur rækjuveiðanna hér, sem hafa leyft sér að fara með skrök og blekkingar í skrifum sínum um þessi mál. Það er ekkert nýtt í sögunni að hinir og aðrir nýir og gamlir atvinnuþættir séu lagðir niður. Bann við dragnótaveiðum hef- ur verið lögleitt. Bann við minkaeldi og minkarækt hefur og verið lögfest í landi voru. Báðir þessir atvinnuhættir höfðu í för með sér miklar tekjur fyrir þjóðarbúið, en voru þó bannaðir af gildum ástæðum, sem öllum er kunnugt um. Það er stutt síðan ég las í ein- hverju blaði er hingað barst,, að Danir hefðu í tekjur árlega, að mig minnir, eitthvað milli 10—20 millj. króna af minkaeldi. Það er ekki ótrúlegt að íslendingar hefðu getað haft eitthvað svipað upp úr þessum atvinnuvegi, ef hann hefði ekki verið bannaður með lögum. En fulltrúar okkar á Alþingi vildu nú heldur vera án gróðans en fórna öllu fugla- lífi og fiskveiði í ám og vötnum og var það vel ráðið. Nú er þetta spurningin, sem Reglusamur iðnnemi óskar eftir VINNU eftir kl. 7 á kvöldin. Getur unnið allan laugardaginn. Nokkur æfing í bílakstri fyrir hendi. Tilboð merkt: „Rafvirki — 2926“ sendist afgr. Mbl. fyrir 18. þ. m. Amerískur Ford 1955 Curier Tilboð óskast í bifreiðina R 1346, sem er amerísk Ford sendiferðabifreið smíðaár 1955. Bifreiðinni hefur verið ekið 31 þús. km. Hún hefur verið í einkaeign frá upphafi. Ennfremur óskast tilboð í R 956, sex manna Crysler eldra model. Báðar þessar bifreiðar verða sýndar við Sóleyjargötu 17, þriðjudag 14. maí milli kl. 18 og 22. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 16. þ. m. merkt: Ford —’55 og Crysler —6. Ráðskonustaða — Húsnœði Óska eftir ráðskonustöðu eða annarri atvinnu, með meðfylgjandi herbergi og eldunarplássi eða 1—2ja herb. íbúð. Tilboð sendist Mbl. fyrir föstud. merkt: „Reglusöm — 2938“ eða í síma 81032. KEFLAVIK Tvær reglusamar og siðprúð ar stúlkur, sem vilja veita húshjálp, eftir samkomu- lagi, geta fengið tvö herb. og eldhús strax. Tilb. send- ist afgr. Mbl., í Keflavík fyrir 20. maí. merkt: „Tæki færi — 1123“. TIL LEIGU Höfum ámokstursskóflu, — vélkrana og skurðgröfu, til leigu. Tökum í ákvæðis- vinnu gröft á húsgrunnum og skurðum o. fl. Uppl. í síma 80338, frá kl. 10—7 daglega. — Geymið auglýsingunn. — Mynd þessi er af þeim hjónunum frú Hervöru Guðjónsdóttur og Guðmundi Egilssyni. Hervör hefir verið heyrnarlaus frá fæðingu, en hefir náð óvenjulega langt við nám í Málleysingjaskólanum, við að tala og lesa talmál af vörum manna. Þegar Helcn Keller heim- sótti Málleysingjaskólann voru ræður hennar þýddar á íslenzku jafnóðum en Hervör las af vörum túlksins og endurtók þær á fingra- máli fyrir þá eldri heyrnarleysingjana sem ekki gátu lesið af vör- um túlksins. Guðmundur maður hennar endurtók þær einnig á fingramáli fyrir þá sem ekki sáu til Hervarar. ráðamenn sjávarútvegsins verða að svara og það sem fyrst: Er það vel ráðið að fórna fisk- veiðimöguleikum hér á innmið- um ísafjarðardjúps, sem íbúar þessa héraðs hafa frá ómunatíð haft af lífsbjörg sína í ríkum mæli og hafa enn í dag, til þess að fullnægja í bili þörf nýrrar atvinnugreinar, sem reynslan hef ur sýnt að hefur í för með sér stórkostlega rányrkju, sem á síð- ustu tímum er fordæmd af öllum hugsandi mönnum er til þekkja? Vigur í apríl 1957. Bjarni Sigurðsson. Vandað steinhús um 90 ferm. kjallari, hæð og rishæð á hitaveitusvæði í Vesturbænum til sölu. í húsinu eru tvær 3 herb. íbúðir og 1 stofa og eldhús og góðar geymslur o. fl. í kjallara. Eignarlóð. Til greina kemur að taka góða 2ja—3ja herbergja íbúðarhæð á hitaveitusvæðinu í vesturbænum, upp í. Nýja fasieignasalan Bankastr. 7. Sími 1518 og kl. 7,30—8,30 e.h. 81546. Tilkynning Þar sem enn hefir ekki fengist leiðrétting vegna hráefnishækkunar og útflutningssjóðsgjalds á brauðverði hjá verðlagsyfirvöldunum, neyðumst við til að hætta allri brauðaframleiðslu frá og með miðvikudegi 15. þ.m. Brauðgerðórhúsin í Reykjavík, Hafnarfirði og nágrenni. Kvenskórl Tékkneskir kvenstrigaskór í mörgum litum og gerðum — nýkomnir. Sendum í póstkröfu út á land. Skóverzl. HECTOR HF. Laugavegi 11 — Laugavegi 81.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.