Morgunblaðið - 14.05.1957, Page 15

Morgunblaðið - 14.05.1957, Page 15
Þriðjudagur 14. maí 1957 MORCVNBLAÐIÐ 15 HlustaB á útvarp Á SUNNUDAGSKVÖLD, 5. maí, talaði Gísli Halldórsson um efni er hann nefndi: „Á eldflugu til annarra hnatta“. Gísli heíur áður vakið athygli hlustenda með vet fluttum og fróðlegum erindum Bók hefur og komið út eftir hann, vel skrifuð, fjörleg og skáldleg. — Þetta erindi er hið fyrsta af erindaflokki er Gísli ætlar að flytja í útvarp. Sjálf- sagt er að gleðjast af tæknifram- förum þessara tíma, en nokkuð er óviss árangurinn, þótt svo skyldi fara, að menn kæmust, loftleiðis upp í tunglið eða einhverja plá- netu (marz?). En frásögn Gísla var fróðleg og röggsamleg í alla staði, verður þessi flokkur um geimför, eða „hamför", eins og hann nefndi það, sjálfsagt mörg- um til skemmtunar auk fróðleiks- ins. — Ævintýrin heilla! Sama kvöld las Vilhjálmur skáld, er kennir sig við Skáholt, upp úr nýrri kvæðabók, er hann nefnir Blóð og vín. Ég hef lesið þá bók mér til ánægju, er um mikla framför hjá skáldinu að ræða, frá fyrri bókum. Ekki er ég viss um að kvæði þau er skáld- ið las, séu hin beztu í bókinni, a. m. k. þykir mér önnur betri, önnur jafngóð. Vilhjálmur hefur með þessari bók sannað, að mínu áliti, að hann er gott skáld, að vísu lítur hann nokkuð svart á tilveruna, en er það ástæðulaust? Gunnþór Björnsson frá Seyðis- firði talaði um daginn og veginn á mánudaginn, 6. maí. — Fannst honum mikið til um það hversu mjög fólk flyttist frá hinum á- gæta Austfirðingafjórðungi til Reykjavíkur og annarra staða við Faxaflóa. — Það mun vera rétt, sem Guðmundur heitinn Hann- esson sagði fyrir löngu, er um þetta var rætt, að fólkið fer þang að, sem því líður bezt og afkom- an er bezt. Það er alltaf leiðinlegt að geta ekki lofað eitt án þess að lasta annað. Gunnþór þessi ber þungan hug til Reykjavíkur og Suðurlandsbænda, — gat ekki lát ið vera að reka hornin í það, að sagt var frá erfiðleikum bænda austanfjalls, í vetur, að koma mjólk og öðrum afurðum á mark- að í bæina við Faxaflóa. En út- varpsfréttir munu hafa fjallað nokkuð um þetta. Hann talaði og um röggsemi og framtak núver- andi rikisstjórnar, um útvegun 15 nýrra togara og byggingar fisk vinslustöðva víðs vegar um land Ég hef aldrei getað skilið það að nokkurt vit sé í því, að ger: togara út né byggja iðjuver - öðrum stöðum en þeim, þar seni það borgar sig bezt. Ég sé ekkert vit í því, að kosta stórfé til þess, að viðhalda byggð á útkjálkum og afviknum dalskorum, meðan nægilegt land er ónumið þar sem fólkinu líður betur og auðveld- ara er með félagslíf og afkoma betri. Ræðumaður lauk máli sínu með því, að óska þess að síldin kæmi nú loks í sumar, til þess að bjarga landinu frá hruni, og munu sjálfsagt allir taka undir þá ósk. Ekki leyndi ræðumaður stjórnmálaskoðun sinni, en út í það fer ég ekki að sinni. Það er alveg merkilegt hversu íslenzkar konur eru orðnar víð- förular og menntaðar. Dagana 7. og 8. maí voru ekki færri en þrjár konur er fluttu fræðandi erindi í útvarpinu. Hinn 7. var fyrir- lestur um ísrael er Herdís Vig- fúsdóttir flutti, en frásögnin var eftir Marian Hellerman, sem er frá ísrael. Herdís hefur ágætan málróm og les mjög vel. Erindið var fróðlegt en á málið litið frá sjónarmiði ísraelsmanna. Ekki get ég að því gert, aS ég hef samúð með Gyðingum fremur en hinum arabisku þjóðum, einkum síðan hinn illræmdi fasisti, Nass- er, tók stjórn í Egyptalandi. Flest var þó hlutlaust og fróð- legt í þessu erindi. — 8. maí hófst erindaflokkur Rannveigar Tómasdóttur um Egyptaland. Sú kona hlýtur að vera ákaflega víðförul og oftast vera á ferða- lagi. f fyrra talaði hún um ferða- lag í Mexico og víðar vestanhafs, þá í haust (1956) var hún að fræða okkur um ferð í Kína. Nú hefur hún verið í Afríku og öðr- um löndum suður frá, m.a. Grikklandi. Rannveig talar vel og er mjög athugul um það er hún sér, hún er talsvert skáld- leg og skemmtilegur fyrirlesari. Sama dag mun Málfríður Einars- dóttir hafa flutt erindi frá Spáni, en ég hlustaði ekki á það. Fyrirlestur Páls ísólfssonar um Buxtehude, hinn danska tónsnill- ing (1637—1707) var fróðlegt. Danir telja Buxtehude læriföður Bachs, víst er það, að Bach mun hafa hlustað á hann og orðið fyrir áhrifum frá honum. Ræða Guðm. f. Guðmundsson- ar ráðherra er setið hefur fund Atlantshafsríkjanna, var merki- leg að því leyti, að nú telur hann varnirnar hér sjálfsagðar og hættu mikla. Ég vil ítreka þá skoðun mína, að hér dugar ekk- ert kák. Annaðhvort ramgerar og fullkomnustu varnir lands vors, eða engar. Við viljum ekki vera aðeins njósnarstöð U.S.A. heldur varðir engu síður en þeir sjálfir, ef til átaka kemur. Öfl- ugar vamir á landi, sjó og lofti! Hlýtur það að vera krafa okkar allra, sem ekki viljum gerast ánauðugir þrælar Rússa, eins og Ungverjar og margar aðrar þjóð- ir eru nú. Náttúrufræðifyrirlestur Jóns Ey þórssonar, er fluttur var á fimmtudag, var ágætur. Talaði Jón um hafísinn „landsins forna fjanda“, skörulega og af miklum lærdómi. Er Jón ágætur útvarps- maður eins og allir vita. — Ég þekki hafísinn og hafísárin um og eftir aldamótin. Eitt sinn var ég í viku tíma úti á hafís við hákarlaveiðar. Okkur unglingunum þótti það skemmti- legt, en ekki óska ég þess að slík ævintýri endurtaki sig í bráðina. Það sem vakti langmesta at- hygli manna í föstudagsútvarp- inu var fréttin um hið fræki- lega flug Björns Pálssonar til Norður-Grænlands, er hann sótti þangað dauðvona sjúkling í hinni litlu flugvél sinni. Björn er af- reksmaður, enda dáður af alþjóð fyrir björgunarafrek. Svo var það fréttin um það, að lán væri fengið til fram- kvæmda við nýja virkjun Sogs- ins. Það var auðvitað ágætt. Hitt eru menn víst ekki sammála um, að nauðsyn sé að þenja rafkerfi landsins út á lítt byggileg annes og afdali. Sú útnesja-rómantík er heldur illa grundvölluð á raunhæfu sviði. En ef til vill getur einhver hæstvirtur þing- maður krækt í fáéin atkvæði á þær dýru beitur! — Og svo eru það þingfréttirnar, sem Helgi Hjörvar segir alltaf jafnrækilega og vel. Hve lengi á þetta blessað þing að sitja og gera ekkert? Mörgum finnst að óhætt hefði ver ið að lofa því að hvíla sig þar til núverandi stjórn hefði bruggað sín nýju lög, kalla það svo sam- an til að láta stuðningsþingmenn stjórnarinnar samþykkja allt. Gaman var að erindi Guð- mundar Einarssonar um galdra- kerlinguna, sem hann hitti í Finnmörk og raunar fróðlegt mjög. Laugardagsleikritið Magister Gillie, eftir James Bridie fór með ágætum. Leikritið er gott, bæði gamansamt og athyglisvert, það er vel þýtt af Hirti Halldórs- syni og vel flutt. Einkum var flutningur þeirra Þorsteins Ö. Stephensen og Lárusar Pálssonar ágætlega af hendi leystur. — Þ. Atvinna Höfum fengið mikið úrval af ódýrum Snnnarkjókm Verð frá kr. 206.00. BEZT Vesturveri ISfýtt glæsilegt einbýlishús 158 ferm., 6 herbergja íbúð í Silfurtúni, til sölu. Verður fullgerð til íbúðar um 20. maí nk. Nýja fasteignasalan Bankastræti 7. — Sími 1518 og kl. 7,30—8,30 e. h. 81546. Verzlttnarhúsnæði óskast Vil kaupa eða taka á leigu kjötverzlun eða gott verzl- unarhúsnæði. Lysthafendur sendi nafn sitt og heim- ilisfang eða símanúmer á afgreiðslu blaðsins fyrir fimmtu dagskvöld, merkt: „Þagmælska —2936“. Okkur vantar duglegan mann á aldrinum 18—25 ára með gagnfræðapróf eða hliðstæða menntun, við glerskurð og afgreiðslustörf nú þegar. GLERIÐJAN SF. Skólavörðustíg 46 — sími 1386. Kaldársel Á vegum Kaldæinga KFUM, Hafnarfirði, verður farið með fjóra vikuflokka í Kaldársel frá 31. maí —28. júní, fyrir drengi á aldrinum 7—11 ára. Allar upplýsingar eru gefnar í síma 9630. Stjórnin. * Utgerðamenn Formaður, vanur síidveiðum, óskar að taka hring- nótabát á sumri komanda. Tilboð sendist afgr. Morgunblaðsins merkt: „Formaður“ —2924, fyrir 22. þ. mán. IMauðungaruppboðið sem fram átti að fara í dag á Smálandsbraut 11, hér í bæ, fellur niður. Borgarfógetinn í Reykjavík. Glœsilegir bílar FIAT 1400, ’57 model, 5 manna Sandard Vanguard ’55 model, 5 manna. Sérstaklega glæsilegur bíll, lítið keyrður. Bilasalan KLAPPARSTÍG 37 Sími 82032. Soluskattur Dráttarvextir falla á söluskatt og útflutningssjóðsgjald svo og farmiða- og iðgjaldaskatt samkv. 20.—22. gr. laga nr. 86 frá 1956, fyrir 1. ársfjórðung 1957, hafi gjöld þessi ékki verið greidd í síðasta lagi 15. þ. m. Að þeim tíma liðnum verður stöðvaður án frekari aðvör- unar atvinnurekstur þeirra, sem eigi hafa þá skilað gjöldum. Reykjavík, 11. maí 1957. , Tollstjóraskrifstofan, ArnarhvolL SUBSTRAL BLÓMAÁBURÐUR Nú er tíminn til að nota SUBSTRAL Blómaáburðurinn SUBSTRAL gerir undraverk á stofu-, altan- og garðblómum yðar, runnum, trjám og grasflötum. SUBSTRAL er nú notað með undraverðum árangri um allan hei-m. Hér hjá oss, þar sem sumarið er stutt, ©r ekki síður ástæða til að flýta fyrir þroska plantnanna. SUBSTRAL fæst í öllum blómaverzlunum. Islenzka Veezlunarfélagið hf. Laugavegi 23, sími 82943.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.