Morgunblaðið - 14.05.1957, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 14.05.1957, Qupperneq 16
16 MORGVNBL4Ð1Ð Þriðjudagur 14. mai 1957 SA ustan Edens eítir John Steinbeck 33 j Hr. Edwards var raunverulega mjög grunnhygginn maður, en jafnvel grunnhygginn maður get- ur haft mjög torskilið og marg- þætt tilfinningalíf. Catherine var hugkvæm, en jafiivel hugkvæmasta kona þekkir ekki alla hliðarkróka og afkima í hugskoti mannsins. Hún gerði bara eitt slæmt glappaskot og það hafði hún reynt að hindra. Eins og vænta mátti, hafði hr. Edwards flutt í húsið all miklar birgðir kampavíns, en Cat- unherine hafði strax frá byrjun, harðneitað að bragða einn dropa af því: „Það gerir mig veika“, út- skýrði hún. „Ég hef reynt það, en mér er ómögulegt að drekka það“. „Vitleysa“, sagði hann. — „Drekktu bara eitt glas. Það getur ekki gert þér neitt!“ „Nei, þakka þér fyrir! Nei, ég get ekki drukkið það!“ Hr. Edwards skildi neitunina sem óvefengjanlega sönnun fyrir sakleysi hennar og reynsluleysi. Hann hafði heldur aldrei haldið víni að henni, fyrr en eitt kvöld, □- —□ Þýðing Sverrir Haraldsson □--------------------□ þegar honum datt það allt í einu í hug, að raunverulega vissi hann alls ekkert um hana og hennar fortíð. Kannske myndi vínið losa eitthvað um málbein hennar? Því lengur sem hann velti hessu fyrir sér, þeim mun betur leizt honum á hugmyndina: „Það er ekki vingjarnlegt af þér, að vilja ekki drekka með mér eitt glas“. „Ég er búinn að segja þér, að ég þoli það ekki“. „Barnaskapur!“ „Nei, ég get það ekki!“ „Láttu nú ekki svona kjána- lega“, sagði hann. „Þig langar lík- lega ekki til þess að gera mig reið an“. „Nei!“ „Jæja, fáðu þér þá eitt glas!“ hkar ****** ■ aJeinf 41 / HYJA GILLETTE 1957 RAKVÉLIN • Gillette vélin er hraðvirk • Málmhylki með 4 bláum blöðum og hólfi fyrir Gillette Heildsölubirgðir: Globus hf., Hverfisgötu 50, sími 714& Baksturiim endist allan daginn „Ég kæri mig ekki um það!“ „Svona, drekktu þetta nú!“ Hann rétti glasið að henni, en hún hörfaði undan. „Þú veizt ekki hvað þú ert að biðja um. Ég hef ekki gott af því“. „Drekktu það!“ Hún greip glasið þegjandi og tæmdi það í einum teyg. Svo fór léttur titringur um likama hennar og hún stóð hreyfingarlaus, eins og hlustandi. Blóðið þaut fram í kinnarnar og augun urðu köld og starandi. Svo hellti hún aftur í glasið og enn aftur. Hr. Edwards varð hálf-hræddur. Eitthvað það var að gerast, sem hvorugt þeirra fékk ráðið við. „Ég vildi þetta ekki! Mundu það!“ sagði hún rólega. „Kannske ættirðu ekki að drekka meira“. Hún hló og hellti enn í glasið. „Nú skiptir það engu máli“, sagði hún. „Það er bara gaman að fá sér eitt eða tvö glös einstöku sinnum", sagði hann hikandi. Rödd hennar var lág og hvísl- andi. „Hvað veizt þú um mig, feiti silakeppurinn þinn?“ sagði hún. „Heldurðu að ég geti ekki lesið all ar þínar skítugu hugsanir? Þig langar til að vita, hvar snotur stelpa eins og ég hefur lært öll þessi brögð. Ég skal segja þér það! Ég lærði þau úti í skipunum, og í vöruhúsunum og á drykkjukrán- um, heyrurðu það? Ég hef unnið á stöðum, sem þú hefur ekki svo mikið sem heyrt nefnda — í fjög ur ár! Sjómehn kenndu mér smá brögð og brellur frá Port Said. Ég þekki hverja taug í þínum lúsuga skrokk og ég kann að not- færa mér það“. „Catherine!" andmælti hann. „Þú veizt ekki hvað þú ert að segja!“ „Ég skildi vel tilgang þinn. Þú hélzt að myndi leysa frá skjóð- unni. Gott og vel, nú er ég líka búin að því. Hún þokaði sér hægt nær hon- um og hr. Edwards langaði mest til þess að leggja á flótta. Hann var hræddur, en neyddi sig þó til að sitja kyrr og láta sem ekkert væri. Hún tæmdi síðustu löggina úr glasinu, sló því svo við borðbrún- ina, svo að það brotnaði og rak skörðóttan barm þess í kinnina á hr. Edwards. Og þá beið hann ekki lengur boðanna, en flýði sem fætur tog- uðu út úr húsinu og að baki sér heyrði hann hlátur hennar, sker- andi og æðislegan. 3. Fyrir mann eins og hr. Ed- wards, er ástin lamandi tilfinning. Hún eyðilagði dómgreind hans, út- rýmdi skynseminni, rændi hann öryggi og þrótti. Hann reyndi að telja sér trú um að hún væri móð- ursjúk og Catherine sjálf gerði allt hugsanlegt, til að bæta fyrir brot sitt. Reiðikastið hafði skelft hana og hún reyndi með öllum ráð- um að endurvekja og styrkja að nýju traust hans og tiltrú. Maður, sem ber svo ákafa og ástríðufulla ást í brjósti, er lík- legur til leggja á sig hinar ótrú- legustu sjálfspyndingar. Hr. Ed- wards vildi af öllu hjarta trúa á góðsemi hennar, en gat það ekki. Næstum ósjálfrátt hélt hann á- fram að afla sér upplýsinga um hana, en efaðist jafnframt um að þær gætu verið sannar. Hann vissi t. d. að hún var ekki vön að geyma peninga sína í banka. Og eftir nokkrar athuganir fann loks einn af aðstoðarmönn- um hans geymslustaðinn, niðri í kj allaranum. Dag nokkurn barst hr. Ed- SILICOTE Husgagnagljáinn (með undraefninu Silicone) hreinsar og gljáfægir án erfiðis. Heildsölubirgðir: Ólafur Gíslason & Co hf Sími 81370 Til sölu snurpinót og snurpibátar Snurpinót 178% faðmur á lengd og 38 faðmar á dýpt, á- samt snurpilínu. Ennfremur 2 nótabátar, stórir og góð- ir með vélum, spilum og davidum. — Allt í bezta standi. Er til sölu nú þegar. Hagkvæmt verð og skilmálar. KEILIR H.F. — SÍMI 6550 — M ARKÚ S Eftir Ed Dodd 1) Ég verð að finna Anda Ég 2) Komdu Andi. Vetu hægur. 3) Andi kemur aftur til 4) Og hjá honum vill hann verð að finna Anda. Markúsar. vera wards í hendur úrklippa úr litlu vikublaði í smáþorpi einu, þar sem sagt var frá mjög dularfull- um húsbruna. Hr. Edwards las frásögnina með mestu athygli og illkvitnislegur ánægjuglampi kom í augu hans. Ást hans var blönduð raunverulegum ótta og botnfall slíkrar blöndu er venju- legast grimmd. Svo stauxaðist hann algerlega ruglaður yfir að skrifstofubekknum sínum og lagðist á grúfu, með ennið hvíl- andi á köldu svörtu leðrinu. Hann lá um stund í hálfgerðu móki og dró naumast andann, en smám saman skýrðist hugsun hans og hann fann til vaxandi reiði innra með sér. En hann var rólegur og laus við allt hik, þegar hann tók endanlega ákvörðun og hóf und- irbúninginn. Hann lét niður f ferðatösku sína og gætti þess að gleyma engu af því, sem hann var vanur að hafa með sér, þegar hann fór í eftirlitsferðir sínar hreinar skyrtur og nærföt, nátt- treyju, inniskó og þungu svip- una, með ólina vafða utar. um skaftið. Hann gekk þungum skrefum í gegnum garðinn, framan við tígulsteinahúsið og hringdi bjöll unni. Catherine kom þegar til dyra, kápuklædd með hatt á höfðinu. — „Ó!“, sagði hún, er hún sá hver kominn var. — „Þetta var leiðinlegt! En ég má til að skreppa út sem snöggvast“ Hr. Edwards lét töskuna á gólfið: — „Nei“, sagði hann. Hún virti hann fyrir sér. Eitt- hvað var öðru vísi en venjulega. Hann gekk fram hjá henni og beint niður í kjallarann. „Hvert ætlarðu?“. Rödd henn- ar var há og skerandi. Hann svaraði ekki. Brátt kom hann aftur upp og hélt á litlum eikarkistli undir hendinni. Hann opnaði töskuna og lét kistilirm niður í hana. „Ég á hann“, sagði hún lágt og hikandi. „Ég veit það“ „Hvað er það eiginlega, sem þú vilt?“ „Mér datt í hug að við skyld- um bregða okkur í smá ferða- lag.“ „Hvert? Ég get ekki farið“ „Til lítils bæjar í Connecticut. Ég hef dálítil viðskipti þar. Þú sagðir einu sinni, að þig langaði til að vinna. Nú skaltu fá þá ósk þína uppfyllta!" „Já, en nú langar mig ekki lengur til þess. Þú getur ekki neytt mig til þess. Ég kalla á Snlltvarpiö Þriðjudagur 14. maí: Fastir liðir eins og venjulega. 18.30 Hús í smíðum; IX: Broddi Jóhannesson talar um reynslu hús- byggjandans. 19,00 Þingfréttir. 19.30 Þjóðlög frá ýmsum löndum (plötur). 20,30 Erindi: Hugleið- ingar um efnahags- og gjaldeyris- mál (Jón Árnason fyrrum banka- stjóri). 20,50 Tónleikar (plötur). 21,15 Upplestur: Kafli úr „End- urminningum Jóns Sveinssonar“ (Gunnar G. Schram lögfræðing- ur). 21,40 Tónleikar (plötur). — 22,10 „Þriðjudagsþátturinn". — Jónas Jónasson og Haukur Mort- hens sjá um þáttinn. 23,10 Dag- skrárlok. Miðvikudagur 15. niaí: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50—14,00 Við vinnuna: Tón- leikar af plötum. 19,00 Þingfrétt- ir. 19,30 Óperulög (plötur). 20,30 Erindi: Egyptaland; II: Þeba (Rannveig Tómasdóttir). — 21,05 Tónleikar (Hljóðritað í Austur- bæjarbíó 5. f.m.). 21,30 Upplestur: (Svava Fells les kvæði úr bók- inni „Heiðin há“ eftir Grétar Fells. 21,45 Tónleikar (plötur). —. 22,10 Þýtt og endursagt: „Á fremstu nöf“ eftir Marie Hackett, I. (Ævar Kvaran leikari). 22,30 Létt lög (plötur). 23,10 Dagskrár- lok. —

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.