Morgunblaðið - 13.06.1957, Qupperneq 3
Fimmtudagur 13. júní 1957
M O R G ZJ N B L A Ð 1Ð
3
Sveitarstjórnir ráði út-
hlutun atvinnubótafjár
STYKKISHÓLMI, 12. júní — Á
sýslufundi Snæfellsness og
Hnappadalssýslu, sem haldinn
var í síðasta mánuði var eftirfar-
andi tillaga samþykkt einróma:
Alþingi hefur á undanförn-
um árum varið töluverðu fé til
atvinnubóta út um land, þar
sem skortur hefur verið á at-
vinniitækjum og almenningur
hefur búið við minnkandi at-
vinnu ár frá ári.
Á yfirstandandi ári hefur
Alþingi þrefaldað þá upphæð
í fjárlögum, eða í 15 millj. kr.,
sem veita á í þessu skyni, bor-
ið saman við f járveitingar und
anfarinna ára.
Ber að þakka Alþingi fyrir
þá viðleitni að reyna á þenn-
Grétar með yrðlingana þrjá.
(Ljósm.: Árni Matthíasson)
Ánægjulegir hljóm-
leikar á Keflavíkur-
llugvelli
KEFLAVÍK 5. júní 1957 Sin-
fóníuhljómsveitin hélt tónleika á
Keflavíkurflugvelli í gærkveldi
og var hið stóra samkomuhús
nær því fullskipað, en það rúinar
um 1200 manns. Keflvíkingar og
aðrir Suðurnesjabúar voru þar
fjölmennari en varnarliðsmenn.
■f FYRRI VIKU voru nokkrir menn frá ísafirði á ferð á Sléttu í > Hljómsveitinni var ákaft fagn-
Sléttuhreppi, en þar voru þeir að rífa hús, sem enn stendur
á þessari eyðijörð. Urðu þeir varir við tófur þarna nyrðra. Einn
þeirra, 17 ára unglingur, Grétar Skarphéðinsson frá Kirkjubóli í
Skultulsfirði, lagði því kvöld eitt af stað á tófuveiðar með byssu
í hendi. Eftir um það bil hálftíma kom hann aftur til ferða-
félaganna, tómhentur að sjá.
an hátt að stöðva flótta fólks-
ins úr strjálbýlinu til Reykja-
víkur eða annarra verstöðva
við Faxaflóa.
Þar sem hér er um verulega
fjárhæð að ræða, sem getur
komið að miklu gagni, ef vel
er á haldið, beinir sýslufund-
ur Snæfellsness og Hnappa-
dalssýslu þeirri ósk sinni til
hæstvirtrar ríkisstjórnar, að
endanleg framlög til hinna
ýmsu staða verði ekki ákveðin
nema í samráði eða samkvæmt
meðmælum sveitarstjórna
þeirra staða, sem framlögin
eiga að ganga til.
—Fréttaritari.
Bagnfræðaskóla
leflavíkur slifið
Kom heim með þrjá
tófuyrðlinga í vösunum
— o —
En svo var þó ekki, því að
Grétar dró hróðugur upp úr vös-
um sínum þrjá lifandi tófuyrðl-
inga — á að gizka hálfs mánaðar
gamla. Hafði hann náð þeim út
úr greni við túnfótinn.
Hafði hann þá sögu að segja,
að hann hefði gengið fram á
grenisopið og heyrt í yrðlingun-
um. Velti hann fyrst nokkrum
steinum, sem hann réði við, úr
grenisopinu — og, er hann var
að bisa við þetta kom einn yrðl-
ingur vappandi fram í opið. Þreif
Grétar hann þegar og stakk í
vasann.
— O —
Ætlaði hann nú að teygja
höndina inn i grenið til þess að,
reyna að ná þeim, sem eftir voru.
Til þess að fullvissa sig um, að
læðan væri ekki inni — og biti
í hönd hans, ef hann teygði sig
inn, stakk hann byssuskeftinu
inn í grenið. Fann hann, að bitið
var í það af afli og vissi þá
hvers kyns var. í sömu mund og
hann dró byssuna út og ætlaði að
skjóta inn í grenið þaut læðan
út og hvarf bak við næsta hól
óðar en Grétar áttaði sig.
Harður eltingar-
leikur v/ð stórhveli
AKRANESI, 7. júní: — í dag
bárust á land í hvalstöðinni 6
hvalir meðalstórir og eru þó alls
47 hvalir veiddir á vertíðinni.
Ingólfur Þórðarson skipstjóri á
Hvali III. sagði frá því í gær-
morgun að hann hefði séð mikinn
hvalavað á hraðri ferð. Voru í
röðinni á að gizka 70—80 hvalir
og virtust mjög styggir. Óðu þeir
áfram með blæstri og bægsla-
gangi. Setti Hvalur III. á fulla
ferð og skyttunum var skipað
að vera tilbúnum við byssurn-
ar. Hófst nú eltingarleikur sem
stóð í 5 klst. áður en þeim tókst
að skutla tvo hvali úr vaðnum.
Leikurinn hafði borizt langt á
haf út, svo að Hvalur III. var
14 klst. með veiðina heim í Hval-
stöðina. — Oddur.
Að lokum var hljómsveitin
Síðan tókst honum að ná tveim
yrðlingum út úr greninu, en þann
fjórða varð hann að skjóta þar
inni þar eð hann náði honum
ekki.
Grétar flutti yrðlingana heim
með sér og elur þá nú á mjólk og
fiski. Geymir hann þá í kassa
úti á túni við Kirkjuból — og
þar una þeir hag sínum hið bezta,
eru háværir og ólmast mikið, en
lyktin af þeim er óbærileg.
Mikið hefur orðið vart við tóf-
ur við Skutulsfjörð að undan-
förnu. Gargið í yrðlingunum á
Kirkjubóli dregur tófur að að
næturlagi — og hefur Grétar
þegar skotið tvær.
að og töldu þeir sem vit hafa á,
leik hennar frábæran, og hinir
sem minna vit hafa á tónlist hrif-
ust með.
Röngnvaldur Sigurjónsson lék
einleik og Thor Johnson var
stjórnandi. Leikin voru verk eftir
Brahms, Rachmaninoff og Tschai
kowsky.
Withe hershöfðingi ávarpaði
hljómsveitina og gesti með stuttri
tæðu og þakkaði komuna. Ragnar
Stefánsson liðsforingi, snéri ræðu
hans á íslenzku. Jón Þórarinsson
þakkaði fyrir hönd hljómsveitar-
innar bæði á ensku og íslenzku
og lýsti tilgangi hennar og hlut-
verki. Stjórnandinn mælti að lok
um nokkur orð og lýsti aödáun
sinni á störfum og árangri Sin-
f óníuhlj ómsveitar innar.
Hljómleikarnir voru hinir
ánægjulegustu og hefur hljóm-
sveitin vafalaust unnið sér
marga nýja aðdáendur.
Helgi S.
Sauðburður gebb vel d Fjöllum
GRUNDARHÓLI, Hólsfjöllum,
12. júní. — Sauðburði er nú að
mestu lokið hér á Hólsfjöllum og
má segja að hann hafi gengið
vel. Að vísu þurfa bændur að
eiga heilt apótek af meðulum til
að halda lífinu í lömbunum og
dugir oft ekki til þegar sjúk-
dómsgreiningin er röng. Ekki
hafa þó verið mikil brögð að
sjúkdómum í lömbum en alltaf
nokkur lömb á bæ. Mest hefur
borið á aflleysi og hefur gengið
einna verst að lækna það. Notað
hefur verið D og E vítamín með
litlum árangri og ennfremur hafa
menn prófað kalksprautur með
kalíum calii glucomat og hefur
það frekar borið árangur. Ekki
hafa menn misst svo teljandi sé
af lömbum, enda mikið notað
sermi gegn blóðsótt, sem er skæð
asti lambasjúkdómurinn.
Tíð hefur verið fremur köld
á sauðburðinum en ekki svo að
lambfé hafi sakað og hafa ær
borið úti eða verið sleppt jafn-
óðum og þær báru.
Fénaður allur gekk vel fram
i vor, enda var veturinn í vetur
einn sá bezti er komið hefur hér
um langt árabil. Að vísu voru
innistöður um 5 vikna tíma
vegna snjóa en allan annan tíma
vetrarins var að kalla snjólaust,
svo að fé gat valið það bezta
hvar sem var. Ær voru þó víða
með minna móti tvílembdar og
mun það stafa af því hve litlum
bata þær tóku við það að taka
þær á gjöf af svo góðum högum.
Vegir opnuðust með fyrsta
móti í vor og eru nú allir færir.
Spretta er léleg bæði á túni og
úthaga og stafar það af hinum
miklu kuldum nú í júní. Frost
hefur farið allt niður í 5 stig um
nætur nú undanfarið.
Innflulningstoilur
í V-Þýzhalandi
AÐ GEFNU tilefni tilkynnist, að
eftirfarandi innflutningstollar
eru nú í gildi á ísfiski í Vestur
Þýzkalandi:
Á ýsu, karfa, lúðu og þorski
er 10% tollur frá 1. janúar til
31. júlí, en þessar fisktegundir
eru tollfrjálsar frá 1. ágúst til
'31. desember.
Á ufsa er 10% tollur frá 1. marz
til 31. júlí, en hann er tollfrjáls
frá 1 .ágúst til febrúarloka.
(Frá utanríkisráðuneytinu)
KEFLAVIK 4. júní — Gagnfræða
skólanum í Keflavík var slitið í
kirkju staðarins 31. maí.
Athöfnin hófst með því, að
séra Guðmundur Guðmundsson á
Útskálum las ritningargrein og
mælti nokkur orð, þá flutti
Röngv. J. Sæm. skólastjóri ræðu
og afhenti nemendum einkunna-
bækur og prófskírteini.
196 nemendur voru skráðir í
skólann í vetur. 193 komu til
prófs. Hæstu einkunn í 1. bekk
hlaut Unnur Berglind Péturs-
dóttir 1A., ágætiseinkunn, 9,42.
Næst varð Sigríður Jóna Árna-
dóttir, einnig með ágætiseinkunn
9,21 66 nemendur gengu undir
unglingapróf. Hæstu einkunn á
unglingaurófi hlaut Eiríkur Ragn
arsson, 2A., ágætiseinkunn 9,15.
Næstur varð Stefán Bergm., 2A
ágætiseinkunn 9,12. í 3ja bekk
vordu 35 nemendur þar af tóku
13 landspróf, en 22 árspróf 3ja
bekkjar. Á ársprófi þriðja
bekkjar varð Lydia Egilsd. hæst
með 8,35. Magnús Sigtryggsson
varð næstur með 7,92. 12 nem-
endur luku gagnfræðaprófi.
Sjómannadags-
hálíðahöld
í Sfykkishólmi
STYKKISHÓLMI, 4. júní —
Sjómannadagsins var minnzt í
Stykkishólmi sem að venju. Hátíða
höldin byriuðu með að sjómenn
gengu skrúðgöngu til kirkju fyrir
hádegi og hlýddu messu hjá
prófastinum sr. Sigurði Ó. Lárus-
syni. Fánar blöktu hvarvetna við
hún og hafskipabryggjan var fán-
um prýdd.
Kl. 2 e. h. lék Lúðrasveit
Stykkishólms og síðan hófst
keppni í ýmsum greinum. Skip-
stjórar og vélstjórar kepptu í
stakkaboðhlaupi og unnu vélstjór-
ar. Kappbeitingu vann Sigurður
Guðnason og stakkasund Rafn Jó-
hannsson. Áhafnir bátanna kepptu
í kappróðri og sigraði áhöfnin á
Gissur hvíta II. Einnig kepptu
starfslið frystihúsanna í kapp-
róðri og sigraði starfslið frysti-
húss Kaupfélags Stykkishólms. —
Umkvöldið var fjölbreytt skemmt-
un haldin. Aðalræðumaður var
Karl Jónsson, en ávarp flutti
Ágúst Pálsson, skipstjóri verð-
Iaun voru veitt og dans stiginn
til kl. 2. —Á. H.
STAKSTEINAR
Valdahroki
Mörgum hefur fundizt það
mjög áberandi, hve mjög athafnir
ýmissa leiðtoga vinstri stjórnar-
innar hafa mótazt af valdahroka
og sjálfglöðu yi'irlæti. Þetta kom
m.a. fram í útvarpsræðu eins ráð-
herrans í eldhúsdagsumræðun-
um. Snérist ræða hans aðallega
um það, hve illa leiðtogum Sjálf-
stæðisflokksins liði eftir .að þeir
misstu af ráðherrastólum sínum.
Útmálaði þessi ráðherra síðan hví
líkar þjáningar og sálarkvalir
Sjálfstæðismenn liðu nú vegna
þess að þeir væru í stjórnarand-
stöðu.
Þessi orð hins nýbakaða ráð-
herra sýna ákaflega vel hans •
innri mann. Hann er sjálfur svo
himinlifandi yfir upphefð sinni
að hann heldur að andstæðingar
hans rífi hár sitt og klæði og
ausi yfir sig ösku af harmi yfir
valdamissinum.
En þetta er hinn mesti mis-
skilningur hjá manninum Sjálf-
stæðismenn una sér ágætlega í
stjórnarandstöðunni. Þeir vita að
vísu, að vinstri stjórnin mun
leiða mikil vandkvæði yfir þjóð-
ina og hún hefur þegar gert það.
En engu að siður er það gagnlegt,
að fólkið fái tækifæri til þess að
kynnast úrræðum samstjórnar
kommúnista, Framsóknar og
krata. Þá fær það samanþurð á
orðum og athöfnum þessara
flokka. Þá getur það einnig borið
saman stjórnarstefnu vinstri
stjórnarinnar og Sjálfstæðis-
flokksins.
□-
-□
AKRANESI, 11. júní — Það er
ákveðið að bátar héðan haldi
norður til síldveiða um 20. þ. m.
Héðan fara alls 17 bátar frá
helztu útgerðarfyrirtækjum í
bænum. Er nú verið að ljúka nauð
synlegum undirbúningi um borð
í bátunum. —O.
□-
-□
9400 kr skattur á hvert
heimili.
Helztu afrek vinstri stjórnar-
innar eru í því fólgin að leggja
hrikalegri skatta og tolia á al-
menning en nokkur rikisstjórn
i þessu landi hefur áður gert.
Fyrir jólin lagði stjórnin á þjóð-
ina um 300 millj. kr. i nýjum
sköttum og tollum. Sú skattlagn-
ing þýðir 9400 kr. nýja útgjalda-
byrði á sérhverja fimm manna
fjölskyldu í landinu. — Á
það hefur verið bent, að fyrir þá
upphæð gæti fjölskyldan keypt
allt kjöt og kjötvörur og alla
mjólk og mjólkurvörur til heim-
ilis sins á heilu ári.
Og svo koma vinstri stjóruar-
menn og ætlast til þess að þjóðin
trúi því, að dýrtiðin hafi ekki
aukizt og kjör almennings hafi
ekki verið skert.
Það þarf vissulega mikil brjóst
heilindi til þes að bera slíkt á
borð fyrir vitiborið fólk.
MiIIiónirnar við verinn
Undanfarin ár hafa kommún-
istar haldið því fram, að óhemju-
legt auðmagn hafi safnazt á hend-
ur örfárra manna á íslandi. —
Milljónir króna lægju bókstaf-
lega við veginn, og löggjafarvald
og ríkisstjórn þyrftu ekki nema
að rétta út höndina eftir þessu
gífurlega fjármagni. Með því
mætti svo leysa allan vanda, út-
rýma dýrtíð og tryggja rek«tur
framleiðslutækjanna.
En svo undarlega bregður við,
að fyrsta verk vinstri stjórnar-
innar er að binda kaupgjald og
leggja drápsklyfjar tolla og
skatta á almenning. f þinglok er
svo lagt fram frv. um stóreigna-
skatt. Eri þessi skattur á ekki að
gefa af sér nema 8 millj. kr. í 10
ár, samtals um 80 millj. kr.
Eru kommúnistar þá guggnaðir
á fyrri staðhæfingum sinum um
óhóflegt auðmagn, sem safnazt
hefur á hendur einstaklingum í
landinu? Það er engu líkara.
Sjálfir vita þeir, að jafnvel
stóreignaskatturinn bitnar harka-
lega á atvinnuvegum þjóðarinnar
og er fyrst og fremst á lagður til
þess að sýna einhvern lit á að
standa við stóru orðin.