Morgunblaðið - 13.06.1957, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 13.06.1957, Qupperneq 10
MORGVHBLJMP Fimmtudagur 13. júní 1957 0?]0llEÍrItói Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónssun. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjamason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Ami Óla, sími 3045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 1600. Áskriftargjald kr. 30.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 1.50 'eintakið. Kosningaúrslitin í Kanada ÞAU tíðindi hafa gerzt að við kosningar til þings Kanada hefur Frjálslyndi flokkurinn, sem setið hafði þar að völdum í meira en tvo áratugi, missti þingmeirihluta sinn. Enginn annar flokkur hefur fengið hreinan meirihluta þing- manna, en sá flokkur, sem mest hefur unnið á, er íhaldsflokkur- inn, undir stjórn manns sem Diefenbaker nefnist. I fréttum gremir að flestum hafi komið þessi úrslit mjög á óvart. Frjáls- lyndi flokkurinn hefur verið tal- inn fastur í sessi, enda á hann að baki sér langan frægðarferil í stjórnmálum Kanada. Ýmsir afburðamenn hafa verið í þeim flokki og er þar að nefna þá St. Laurent og Lester Pearson, en mikið hefur borið á þeim síð- arnefnda á sviði alþjóðamála að undanförnu. Staðbundnar ástæður og almenn stjórnmál Margar ástæður liggja til ósig- urs frjálslynda flokksins, en þar ber raunar mest á tveimur atrið- um, sem komið hafa mjög skýrt fram í kosningabaráttunni, en það er á annan bóginn ýmis kon- ar staðbundin atriði, sem ein- göngu hafa haft þýðingu í ein- stökum kjördæmum og í öðru lagi almenn stjórnmálaleg atriði. í kosníngabaráitunni var í upp- hafi mikið deilt um meðferð ríkisstjórnarinnar á hinu svo- nefnda Norman-máli, en það spratt út af því að kanadiskur sendimaður, Norman að nafni, hafði framið sjálfsmorð eftir að bandarísk nefnd hafði borið hann þeim sökum, að hann væri dul- búinn kommúnisti. Andstæðingar Lester Pearsons töldu, að hann hefði haldið linlega á þessu máli gagnvart Bandaríkjamönnum. — Bandaríkin hafa líka á annan hátt komið við sögu í kosninga- baráttunni. Á undanförnum ára- tugum hefur bandarískt fjármagn streymt til Kanada og er talið að það nemi 1 milljarð dollara á hverjú ári. Andstæðingar frjáls- lynda flokksins töldu í kosninga- baráttunni að Bandaríkin hefðu með þessu fengið alltof mikið áhrifavald í fjármálum lar.dsins og hefði stjórninni borið að stemma stigu við því. Velmegun en verð' bólguhætta í Kanada er mikil velmegun og atvinna stöðug ög örugg. Þó hefur ríkisstjórninni ekki tekizt að vinna bug á verðbólguhætt- unni að fullu og öllu. Innan iðn- aðaf landsins veldur það áhyggj- um að laun hafa hækkað veru- lega og voru laun í ársbyrjun 11% hærri en á sama tíma á sl. ári. Er kanadiski iðnaðurinn ótta- sleginn við að lenda í örðugri samkeppnisaðstöðu við banda- rískan iðnað vegna hinna miklu hækkana á tilkostnaði. Allmikið hefur þegar borið á söluörðug- leikum á kanadiskum vörum, sem leitt hefur af sér halla á viðskiptajöfnuðinum. Er búist við áframhaldandi og auknum erfiðleikum á sviði utanríkis- verzlunarinnar. Það er þannig ljóst að þó að frjálslynda flokknum hafi tekizt að halda atvinnuvegum landsins í miklum blóma og stöðugri at- vinnu og miklum framförum í landinu, þá hefur þó kjósendun- um þótt sem nokkur hættumerki væru fram undan og að rétt væri að fela öðrum mönnum að taka nú um stjórnartaumana með því að ríkisstjórnin hefði ekki hald- ið svo á málunum sem vera bæri. Það er sérstaklega verð- bólguhættan, sem vakað hefur fyrir kjósendum og vafalaust hefur átt einn mestan þátt í úr- slitum kosninganna. Brosleg viðbrögð Það er hálf broslegt að sjá, hvernig Þjóðviljinn og Tíminn, brugðust við úrslitunum í Kan- ada. Þjóðviljinn segir, að það sem við taki sé einhver „Framsókn- ar-íhaldsstjórn.“ Með þessu á víst að telja mönnum trú um, að það sem við taki í Kanada sé einhvers konar kanadiskur Framsóknar- flokkur!! Tíminn getur hins veg- ar ekki um það í forustugrein í gær um kosningarnar í Kanada, hvaða flokkur það hafi verið, sem þar hafi sigrað, þannig að svo virðist sem Tíminn vilji ekki eigna sér þennan flokk og er því gýnu hæverskari en „Þjóðvilj- inn.“ Annars dregur Tíminn þann lærdóm af úrslitunum í Kanada, að Reykvíkingum beri líka að skipta um meirihluta í bæjar- stjórn við í höndfarandi kosning- um. í því sambandi bendir blað- ið á að útsvörin fari hækkandi. Það sé leiðin til lækkunar útsvar- anna að fá Framsóknarmönnum, kommúnistum, jafnaðarmönnum og Þjóðvarnarmönnum meiri- hlutann í bæjarstjórn Reykja- víkur. Slík kenning er raunar svo brosleg að hún er ekki svara verð og henni trúir líka enginn. En á það má minna að meiri- hluti allra útgjalda Reykjavíkur- bæjar er ákveðinn með lögum. Sú skattastefna, sem fylgt er í fjármálum landsins undir for- ystu Eysteins Jónssonar hlýtur vitaskuld að bitna á Reykjavík- urbæ. Tíminn bendir á að alls konar skrifstofukostnaður bæj- arins aukist hröðum skrefum. Það er ekkert annað en ein af- leiðingin af þeirri fjármálastefnu, sem Eysteinn Jónsson ber öðrum fremur ábyrgð á, að allur til- kostnaður við hvers konar rekst- ur eykst, en á það má benda í þessu sambandi að rekst- urskostnaður Reykjavíkurbæjar hefur á undanförnum tíma vaxið hlutfallslega miklu minna en reksturskostnaður ríkisins undir stjórn Eysteins Jónssonar. „Skrif- stofubákn“ ríkisins hefur þanizt út yfir öll takmörk í höndum Ey- steins. Það er vitaskuld meira en lítið ófimlegt að tengja saman kosn- ingaúrslitin í Kanada og næatu bæjarstjórnarkosningar í Reykja- vík. Það er enginn „Framsóknar- flokkur", sem nú hefur sigrað í Kanada, þó „Þjóðviljinn" búi til þá grínsögu. Og í Reykjavík vinnur „Framsókn" ekki heldur sigur, heldur er trúlegra að hún bíði þar meiri ósigur við næstu kosningar en nokkurn tímann áður. UTAN UR HEIMI Tvenns konar hættuleg reiðiköst Annar herpresturinn talar við Henderson, áður en hann gafst upp og afhenti byssuna. S á atburður gerðist nú um mánaðamótin um 'borð í bandarísku herskipi, sem lá í höfninni í San Francisco, að ung- ur maður greip til byssu sinnar, skaut einn af skipshöfninni til bana, særði annan og hélt fimm skipverjum í gislingu í sex klukkustundir á stjórnpalli skips ins. Hann gafst ekki upp fyrr en móðir hans kom á vettvang og sárbændi hann um a<5 sleppa gíslunum. Hinn 21 árs gamli sjó- liði, Jimmie L. Henderson, hafði gripið til þessara „örþrifaráða" í reiði sinni yfir „óréttlátum" dómi herréttar, sem svipti hann undir- foringjastöðu og gerði hann að óbreyttum sjóliða. Frú Henderson, móðir piltsins, kom út í skipið með skipstjóranum og tveimur her- prestum, og áttu þau tal við Jimmie af þilfarinu fyrir neðan stjórnpallinn, en hann hélt á byssu sinni og neitaði að gefast upp. A tökin hófust klukkan 6 að morgni. Henderson var í reiðikasti eftir að hann hafði verið dæmdur í 4 mónaða fang- elsi fyrir að stela úri og rauk á vélamann, lamdi hann niður og tók byssu hans. Henderson hafði fengið úrið að láni, en ekki stol- ið því. Hann hefur verið í sjó- liðinu í þrjú ár og átti að losna úr herþjónustu eftir þrjá mán- uði. * egar Henderson hafði náð byssunni, fór hann til bæki- stöðva yfirmanna sinna og skaut tvo þeirra, Morris, sem var yfir- maður hans, og Harrison, sem hafði verið vitni við réttarhöld- in. Morris lét lífið. Síðan fór Henderson rakleitt til ratsjárklef ans, þar sem sjóliði að nafni Lak- ey var á vakt. Samkvæmt frá- sögn Lakeys, sagði Henderson þegar hann kom inn í klefann: „Ég hef framið heimskulegan verknað. Ég held ég hafi drepið F ranska kvöldblaðið „France-Soir“ hefur komið fram með nýja útgáfu á dauða Stalíns. Samkvæmt henni lézt einræðis- herrann úr hjartaslagi í reiði- kasti, sem hann fékk þegar fé- lagar hans lýstu sig andvíga á- ætlun hans um stórfellda nauð- ungarflutninga á Gyðingum til Síberíu. Blaðið bendir á rúss- neska sendiherrann í Varsjá, Panteleimon Ponomarenko, sem heimildarmann sinn. Hafði hann sagt pólskum blaðamönnum sög- una, en þeir ekki þorað að birta hana af ótta við að skaða sam- skipti Pólverja og Rússa. ■T etta gerðist síðustu dagana í febrúar 1953. Var hald- inn fundur í stjórn æðsta ráðs- ins í sambandi við meint sam- særi lækna með það fyrir aug- um að drepa Stalín. Voru marg- ir Gyðingar sakaðir um þátttöku í samsærinu. MT egar Vorosjilov mar- skálkur (núverandi forseti Sovét ríkjanna) heyrði Stalín nefna á- ætlun sína um flutningana á Gyð- ingum til þrælabúða nálægt kín- versku landamærunum, kastaði hann reiður meðlimaskírteini sínu í kommúnistaflokknum á borðið. Molotov, sem á eiginkonu af Gyðingaættum, sagði skjálf- andi röddu, að víðtækir nauðung- arflutningar á Gyðingum mundu mælast illa fyrir erlendis. Tið þegsi orð fékk Stalín svo magnað reiðikast, að hann varð fyrir hjartaslagi og steypt- Morris. Mér þykir það leitt, en ég verð að taka þig í gislingu". mt eir fóru upp á stjórn- pallinn yfir ofan. Á meðan hafði einn af skipverjum, sem vaknaði við skothríðina, komið Harrison í rúmið. Sá hinn sami greip eigin byssu og gerði öðrum skipverj- um aðvart. Hann fór upp í brúna til að hjálpa Lakey í viðleitni sinni til að fá Henderson til að láta sig lausan. Á meðan þeir töl- uðust við, hafði Henderson fimm menn í gíslingu: þ. e. a. s. hann hafði þá fyrir framan byssu- hlaupið, en sjálfur var hann einn- ig skotmark manna, sem miðuðu á hann víðs vegar á skipinu. H enderson var þegar fluttur af skipinu, eftir að hann gafst upp. Móðir hans fylgdi hon- um, en síðar var hann fangels- aður. Dómurinn, sem hann var svo angraður yfir, var ekki end- anlegur og átti að takast til endurskoðunar. Eftir réttarhöld- in hafði honum verið haldið um borð í skipinuu, en var ekki fangelsaður. ist til jarðar. Hann varð eldrauð- ur í framan, augun ranghvolfd- ust og útlimir hans stirðnuðu. Þegar Beria, hinn alræmdi for- ingi öryggislögreglunnar, sá þetta, stökk hann upp og dans- aði af gleði: Nú erum við loks- ins frjálsir, sagði hann fagnandi. Beria dansaði af kæti. Harðstjórinn er dauður. Hvílík gleði! D óttir Stalíns, Svetl- ana, kom á vettvang og grúfði sig grátandi yfir föður sinn og kyssti hann. Stalín lauk upp öðru auganu. Þegar Bería sá, að Stalín var ekki dauður, varð hann örvita af hræðslu, kastaði sér á kné, kyssti hendur einræð- isherrans og baðst fyrirgefning- ar. En hjartaslagið dró Stalín um síðir til dauða, segir „France- Soir“. Rússnesku broddarnir standa heiffursvörð viff líkbörur harffstjórans. Taliff frá vinstri: Krúsjeff, Beria, Malenkov, Búlganin, Vorosjilov og Kaganovitsj.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.