Alþýðublaðið - 30.06.1920, Qupperneq 2
s
.JLfggrei^^la
blaðsins er í Aiþýðuhúsinu við
Ingólfsstræti og Hverfisgötu.
Sími 988.
Auglýsingum sé skilað þangað
eða f Gutenberg í sfðasta lagi kl.
10, þann dag, sem þær eiga að
koma í blaðið.
cT/i&oéér cFLrnason,
fiðluleikari.
Theodór Arnason er flestum
Reykvíkingum kunnur — að minsta
kosti að nafni. Hann ætlar nú
annað kvöld að gefa Reykvfking-
um kost á að hlusta á fiðluleik
sinn, og mun margan fýsa þess.
Theodór byrjaði ungur að læra
á fiðlu, þegar innan við io ára
aldur. Síðan naut hann kenslu hjá
Svíanum Oskar Johansen, er hér
var fyrir nál. io árum, en fór
síðan utan og var f Danmörku
um tíma. Arið 1913 fór hann til
Vesturheims og var í Winnipeg í
2 ár. Þar naut hann kenslu ágæts
kennara, en kendi Iíka sjálfur og
lék oft opinberlega og fékk mjög
góða dóma í blöðum þar. Af
ýmsum orsökum, er meðal annars
leiddu af stríðinu, kom hann heim
1915, og fór þá samsumars til
Kaupm.hafnar og var tvo vetur á
sönglistaskólanum þar. Þá naut
hann tilsagnar og leiðsögu Antons
Svendsen, prófessors, einhvers ágæt-
asta manns Dana í þeirri grein.
í sumarleyfinu ferðaðist hann
nokkuð um Danmörku og lék
ALÞYÐUBLAÐIÐ
opinberlega, og fékk mjög lofsam-
leg ummæli í dönskum blöðum.
Um veturinn 1917 kom hann
heim „snöggva ferð“, sem átti að
verða. En einmitt þá skall á hafn-
bannið á Englandi og saœgöngu-
teppan, svo að honum varð eigi
aftur utankomu auðið að sinni.
Þá lék hann hér nokkrum sinnum
opinberlega um vorið, en fór sfð
an kringum land um sumarið, og
fékk alstaðar góðan orðstfr og
maklegan.
Nú er því alllangt síðan bæjar-
búar hafa fengið að heyra hann.
Og engin hætta er á því, að hon-
um hafi farið aftur á þeim títna
Þótt hann hafi orðið að grfpa til
annara starfa, til þess að lifa af,
— eins og flestir þeir menn vorr-
ar þjóðar, sem eru svo hepnir
(eða óhepnir) að eiga listamanns-
eðli, — þá hcfir hann aldrei getað
lagfc listina á hilluna. Það er ekki
eins hægt að kasta listinni og
byrja á einhverju öðru, eíns og
að hætta einu handveiki og
taka annað upp. Listin er ekki
starf Hún er líf. Það er mun-
urinn.
Sumir halda, ef til vill, að „mark-
aðurinn* sé of fullur nú Eg vildi
nú heldur segja, að nú væri
óvenjulegt góðæri fyrir hliómelska
menn, þvf að af sör.g og hljóm-
list verður aldrei of mikið. N
Efnisskráin er mjög fjölbreytt.
Þar eru lög eftir 11 höfunda, þar
á meðal Th. Á. sjálfan Og fyrir
augum leikmanns vhðist efnið vel
valið. Mun því engan iðra þess,
að koma f Baruna annað kvöld
Ingimar Jónsson.
Dm dajinn oj vejiim.
Sterling kom f gærmorgun úr
hringferð austan um land; fjöldi
farþega kom á skipinu. Hann fer
f hringferð austur um land á sunnu-
daginn kemur.
YiIIemoes kom f gær frá Ame-
ríku, œeð kol til Landsvetzlunar-
innar.
líora kom frá Noregi í gær.
Annar vatnsdreiflr bæjarins
lá í fyrrakvöld utan við þjóðveg-
inn, skamt fyrir austan bæinn.
Skyldi Knútur bóndi geyma fleiri
eignir bæjarins jafn vel?
Austnrvöllur, öðru nafni túnið
í Knútskoti, er nú orðinn það loð-
inn, að byrjað var á slætti þar í
gær. Vatn er þegar komið f „niunn-
inn“ á Morgunblaðinu, er það
hugsar til „töðu" gjaldanna. Verð-
ur ekki betur séð, en að það sé
hreykið af hagsýni „bónda", að
hleypa börnunum ekki í „túnið".
Sanasæti Stórstúknnnar verð
ur haldið annaðkvöld f Templara-
húsinu. Geta templarar búist þar
við góðri ánægjustund og fjöl-
menna vafalaust. Að öðru leyti
vísast til auglýsingar á öðrum stað
í blaðinu.
Stórstúkuþingiö var sett é
gærdag kl. 1. Hélt séra Friðrik
Friðriksson snjalla hvatningaræðu
til góðtemplara og skoraði á þá
að vakna til verka og bjarga
heiðri þjóðarinnar, sem nú væri í
voða, vegna athafna óhlutvandra
manna. — 32 fulltrúar sækja þing
þetta, sem er hið 20. f röðinni.
/
Tvær skonnortur komu í gær,
önnur með timbur til „Timbur og
Kol", en hin með ýmsar vörur til'
kaupmanna.
Templarar eru ámintir um að
kaupa í dag aðgöngumiða að
skemtiferðinni til Akraness. Verði
ekki nógu margir komnir kl. 9 f
kvöld, verður annaðhvort hætt við
ferðina, eða hverjum sem er seldir
miðar. Er hvorttveggja jafnilt.
Peter Fjeldstrap látinn.
Hinn fiægi danski leikari, Peter
Fjeldstrup, lézt í Kanpmannahöfrr.
snemma í þessum rnánuði. Hann
var gamanleikari framan af æfi
sinni, en tók síðan, er hann kynt-
ist Herman Bang, er þá var for-
stjóri Þjóðleikhússins, að leika ai-
varlegri hlutverk og vann hvern
sigurínn öðrum stærri á því sviði
leiklistarinnar. Síöast lék hann við
leikhús hinnar frægu dönsku Ieik-
konu, Betty Nansen.