Morgunblaðið - 04.07.1957, Síða 11
Kmmtudagur 4. júlí 1957
MORGUTSBIAÐIÐ
n
Rósa Kristiánsdóitir
Mimdng
RÓSA KRISTJÁNSDÓTTIR var
fædd að Ánanaustum í Reykja-
vík 30. sept. 1870. Hún ólst að
mestu upp í Þingvallasveit,
lengst af að Skógarkoti, því að
hún missti föður sinn kornung og
komst þá til vandalausra. Rósa
kynntist fljótt erfiðleikum lífs-
ins og hefði nóg getað af þeim
sagt eftir langa ævi. Skaplyndi
hennar var þó svo háttað, að hún
hélt ætíð hinu betra á lofti og
létti það mjög ævistig hennar.
En fram á efri ár átti hún löngum
við þröngan kost að búa. Á því
varð sem betur fer breyting hin
síðari ár. Þau lifði hún í skjóli
Kristínar dóttur sinnar og manns
hennar og naut þá umhyggju
fjölmenns og vaxandi afkomenda
hóps. Hún andaðist 27. júní sl.
og fór útför hennar fram í gær.
Rósa giftist Kristjáni Guð-
mundssyni 1898 og missti hann
1931. Þau áttu 6 börn. Þrjú þeirra
eru á lífi, Sigríður, Kristín og
Kirstján.Eitt barnið dó ungt en 2
uppkomin: Guðrún og Guðmund
ur. Guðmundur vann lengi við i
Morgunblaðið en var heilsuveill
cg lét móðir hans sér mjög annt
urn hann.
Þau Rósa og Kristján voru fá-
tæk alla sína búskapartíð. I
fyrstu áttu þau heima austur í
Árnessýslu enda var Kristján
upprunninn úr Biskupstungum.
Ekki gátu þau þá ætíð búið sam-
an og fluttu til Reykjavíkur 1906,
þar sem þau dvöldu síðan. Áttu
þau þá lengst af heima á Skóla-
vörðustíg 11 í húsi, sem nú er
búið að rífa fyrir löngu. Krist-
ján var mun eldri en Rósa og lét
hún ekki sitt eftir liggja að
vinna fyrir heimilinu. Hún gerði
hreint hjá einstaklingum, í búð-
um og á skrifstofum. Hún var
því seint og snemma á ferli með
fötu og kúst, létt á fæti, sjálfsagt
öðru hvoru þreytt en ætíð skraf-
hreyfin og oftast hress í tali.
Prjónaskap stundaði Rósa af
kappi, einkum hin síðari Sr, eft-
ir að hún hætti að vinna úti.
Verk vildi hún helzt ekki láta
sér úr hendi sleppa.
Rósa hafði ánægju af góðum
félagsskap. Kaffisopa þótti henni
RACNAR JÓNSSON
gott að þiggja og lengi var hún
tryggur meðlimur Verkakvenna-
félagsins Framsóknar, Kvenfé-
lags Fríkirkjusafnaðarins, síðar
Óháða safnaðarins og hin síðari
ár Félags Biskupstungnamanna.
Samvizkusemi Rósu var mikiL
Stundum sögðu foreldrar mínir,
að hún teldi rófurnar í garð-
inum heima til þess að fylgjast
betur með því, að ekki væri
hnuplað úr honum. Fyrir kom, að
hún ætti í ýfingum við óþekka
stráka, en allt færði hún það til
betri vegar og minntist eftir á
þess eins, sem til góðs horfði.
Okkur, sem munum hana frá
bernsku þykir nú sjónarsviptir
að því að hitta hana eigi framar
og skrafa við hana um löngu
liðna daga, en fögnum því, að
hún hafði þegar í þessu lífi haf-
ið uppskeru þeirra ávaxta, sem
heitnir eru þeim, sem trúlega
gæta síns hlutskiptis.
Bjarni Benediktsson.
Bútasala
Gluggatjaldaeíni
margar gerðir á hagstæðu verði.
Laugavegi 116
Tækifærisverð:
Kvenskór
með háum hæl og treikvart hæl
Verð 98 kr.
Áður kr. 237,00
Garðastræti 6
Málning
HÖRPUSILKI úti oe inni
hvítt — svart — mislitt
HARPO útimálning og þakmálning
JÖKULL oe SÍGLJÁI Janan lökk
Ódýrir penslar
Málningasprautur
HELGI MAGNÚSSÖN & CO.
TIL SÖLU
Mercedes-Benz 220 A
sem nýr, rauður að lit með útvarpi, miðstöð og hall-
anlegum stólum, klæddur að innan með ekta skinni,
er til sýnis allan daginn í dag á Sérleyfisstöð
Steindórs, Hafnarstræti 7.
Lélegur amerískur
BÍLL
óskast keyptur. — Tilb. sendist Mbl. f. nk. miðvlku-
dag merkt; Lélegur — 5706.
Rösk
afgreiðslustúlka
óskast strax
K1DDABÚÐ
hæstaréttarlögmaður.
Laugavegi 8. — Sími 7752.
Lögfræðistörf. — Eignaumsýsla.
Hafnarstræti 19 — Sími 3184
Njálsgötu 64
Síðasta stórmót sumarsins í frjálsíþróttum
Finnar — ísBendingar — Danir
Kl. 8 í kvöld fer fram stórmót í frjálsum íþróttum á íþróttavellinum. Á mótinu keppa tveir af fræknustu
íþróttamönnum Finna, ásamt flestum landsliðsmönnum Dana og íslendinga. Keppnisgreinar: 100 m, 1000 m,
3000 m, 110 m grind, 400 m grind, 4x100 m, kúluvarp, kringlukast, sleggjukast, stangarstökk og langstökk. —
Hver sigrar? Piironen, Valbjöm eða Larsen? — Nú er kringlukastið spennandi. — Tekst
Pétri að sigra Mildh í 110 m grind? — Setur Hilmar met í 100 m? —
Sjáið síðasta stórmót sumarsins. Mótsnefndin.