Morgunblaðið - 05.07.1957, Blaðsíða 1
20 síðut
147. tbl. — Föstudagur 5. júlí 1957 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Er Krúsjeff orð/nn eínvaldur Rússlands ?
Eyjólfur J. Eyfells
AÐ ÞESSU sinni eru sýnd í sýn-
ingargiugga Morgunblaðsins verk
eftir Eyjólf J. Eyfells. Eyj-
ólfur er nú 71 árs að aldri
®g er þvi einn af elztu
málurum okkar. Hann er ættaður
undan EyjafjöSlum, en fluttist
ungur að Súluholti í Flóa. Átti
hann þar heima öll ungiingsárin
og fram yfir tvítugt, en árið 1908
fluttist hann til Reykjavíkur. Eyj
ólfur er ekki einn listmálara úr
Flóanum, því að Ásgrímur Jóns-
son ólst upp á næsta bæ við
hann og voru þeir beztu kunn-
ingjar. Er til Reykjavíkur kom
hóf Eyjólfur nám í teikniskóla
Stefáns Eiríkssonar, sem nefndur
var hinn oddhagi, og stundaði
námið í þrjú ár. Skömmu síðar,
eða 1914, fór Eyjólfur fyrst að
mála. Efndi hann brátt til sýn-
inga, en hélt árið 1921 til Þýzka-
lands og stundaði nám í Dresden.
Öðru sinni fór hann til Dresden
tveim árum síðar, enn til náms.
Eftir að Eyjólfur kom heim hélt
hann áfram að mála og efndi til
f jölmargra sýninga bæði í
Reykjavík og nágrennl. Til Lon-
don fór hann árið 1936 til þess að
kynna sér verk enskra málara
og dvaldist þar í nokkra mánuði.
Efndi hann til sýningar í London
og sýndi hér heima skömmu eft-
ir heimkomuna. Síðan hefur Eyj-
ólfur Eyfells ekki efnt til sýn-
ingar á verkum sínum, en málað
hefur hann engu að síður alla tíð
síðan. Kveðst hann sjálfur vera
impressioniskur naturalisti og æ-
tíð hafa farið sínar eigin götur.
Engin þeirra mynda, er Eyj-
ólfur sýnir, er til sölu.
Ævilan«t farigelsí
PARÍS, 4. júlí: — Hæstiréttur
Ungverjalands hefir kveðið upp
dóm yfir rithöfundunum Obers-
ovski og Cali, sem ákærðir voru
fyrir „byltingarstarfsemi“. Þeir
höfðu áður verið dæmdir til
dauða, en fjölmargir heimsfræg-
ir rithöfundar sendu Kadar-
stjórninni mótmæli og hefir
hæstiréttur Ungverjalands nú
breytt dauðadóminum í ævilangt
fangelsi.
Margt þykir benda til
Jbess, að hann hafi
stuðning hersins
Lundunum, 4. júlí:
OÍÐDEGIS í dag tilkynnti Moskvuútvarpið, að Molotov,
^ Malenkov og Kaganovitsj hafi verið reknir úr ráð-
herraembættum sínum, en áður hafði verið skýrt frá því,
að þeir hefðu verið reknir úr ábyrgðastöðum kommúnista-
flokksins. — Molotov var sviptur embætti aðstoðarforsætis-
ráðherra og ráðherra skipulagsmála ríkisins, Malenkov var
sviptur embætti aðstoðarforsætisráðherra og raforkumála-
ráðherra og Kaganovitsj embætti aðstoðarforsætisráðherra.
Shepilov og Sahorov, sem einnig hafa verið reknir úr
ábyrgðastöðum innan kommúnistaflokksins, áttu ekki sæti
í ríkisstjórninni.
Moskvuútvarpið segir, að hvarvetna hafi alþýða Rússlands
haldið fjöldafundi í dag og látið í ljós reiði sína yfir flokks-
fjandsamlegri starfsemi þessara manna. Alþýða Ráðstjórn-
arríkjanna hafi lengi treyst þeim. — öllum þessum mönnum
var bæði vísað úr stjórnarnefnd miðstjórnar kommúnista-
flokksins og úr miðstjórninni sjálfri. Áður hefir verið getið
um ákærurnar á hendur þeim.
HVAÐ VERÐUR UM
GROMYKO?
Ekki er enn vitað um afdrif
Gromykos, utanríkisráðherra,
eftir stjórnarbreytingarnar. Hann
var talinn skjólstæðingur Molo-
tovs, þegar hann tók við utan-
ríkisráðherraembættinu af Shepi
lov og því haldið fram, að Krús-
jeff hafi á sínum tíma skipað
hann í embætti til að ná sam-
komulagi við Molotov.
Þá má geta þess, að Moskvuút-
varpið tilkynnti í gærkvöldi, að
Alexij Pavlenko hafi verið skip-
aður eftirmaður Malenkovs sem
raforkumálaráðherra. Hafði hann
þetta embætti með höndum á ár-
unum 1945—1955, eða þangað til
Malenkov tók við því.
„UNGUR OG ÓRE¥NDUR“
Mikoyan, sem enn einu sinni
hefir sloppiff í gegnum hreins-
unareldinn, sagffi í bandaríska
sendiráffinu í dag, þar sem
hann var gestur á þjóffhátíff-
Allir í sömu gröf
BREZKA stórblaffiff The Tim-
es ræffir ýtarlega um atburff-
ina i Moskvu síðustu daga og
segir, að máliff sé hiff flókn-
asta. Blaðiff segist ekki skilja,
hvernig þaff hangi saman, aff
fjórmenningarnir séu í sömu
klíkunni, þar sem ekki sé
hægt aff sjá annað af ferli
þeirra undanfarin ár en þeir
hafi veriff á öndverffum meiff
um framkvæmd stefnunnar.
Kaganovitj og Molotov hafi
t. d. viljaff leggja höfuffáherzl-
una á þungaiffnaðinn — stefna
þeirra hafi alltaf veriff í fullu
samræmi viff stefnu Stalíns.
Malenkov og Shepilov hafi
hins vegar veriff nefndir
„frjálslyndir umbótamenn“ og
hafi þeir einna helzt barizt
fyrir því, aff framleiðsla
neyzluvarnings yrffi aukin.
Blaffið hallast loks einna helzt
aff þeirri skoffun, aff þessir
menn hafi allir átt samstöðu
í því aff fella Krúsjeff. — En
þeir hafi fallið á sjálfs sín
bragffi, allir í sömu gröf.
ardegi Bandaríkjanna, að
sennilega yrffu engar breyt-
ingar í Rússlandi þrátt fyrir
hreinsanirnar. Þaff, sem breytt
ist, yrffi þá til batnaðar, sagði
hann. — Þetta er hiff fyrsta,
sem heyrist frá rússneskum
ráðamanni eftir breytingarn-
ar. — Þegar Mikoyan var aff
því spurffur, hver væri ástæff-
an til, aff Pervukin hefffi
einnig verið lækkaður í tign,
svaraði hann ósköp rólega:
„Hann er of ungur og óreynd-
ur“.
KRÚSJEFF EINVALDUR?
Krúsjeff var væntanlegur til
Prag í gær, en á síðustu stundu
sendi hann skeyti þess efnis, að
hann yrði að fresta förinni
„vegna óvenjumikilla anna“.
Skeytið kom ekki fyrr en allt var
tilbúið undir móttökurnar, meira
að segja herma fregnir, að rauð-
ur dregill hafi beðið foringjans
á flugvellinum. — í dag skýrði
Tassfréttastofan frá því, að þeir
Krúsjeff og Búlganin væru vænt-
anlegir í opinbera heimsókn til
Tékkóslóvakíu hinn 8. júlí n.k.
— í framhaldi af þessari frétt er
leitt getum aff því, hvort Krúsjeff
sé ekki orffinn einvaldur í Rúss-
landi. Segja stjórnmálafréttarit-
arar, aff margt bendi til þess, aff
herinn og leynilögreglan styffji
hann a. m. k. í bili.
Svíakontmgur
ánægður
STOKKHÓLMI — Þegar konung-
ur og drottning Svíþjóðar komu
úr íslandsför sinni, var hið feg-
ursta veður í Stokkhólmi. Kon-
ungsvélin fékk beitivind alla
leiðina, og var konungur mjög
ánægður með ferðina. Vélin kom
til Svíþjóðar nokkrum mínútum
fyrr en ráðgert var. Þegar flug-
vélin var sezt, lét konungur þau
orð falla, að heimsóknin til ís-
lands hefði verið ógleymanleg.
íslendingar hefðu verið ákaflega
vinsamlegir og veðrið hefði ver-
ið hið fegursta og hitinn næstum
því 15 gráður í skugga.
Krúsjeff sagffi í vetur: „Viff erum
allir Stalínistar, ef nauffsyn kref-
ur“.
RÁÐHERRUM SPARKAÐ
Þá herma fregnir, að í kjölfar
breytinganna í Moskvu hafi tveir
kommúnistaleiðtogar í Rúmeníu
verið reknir úr embættum. —
Fregnir frá Peking herma einnig
að tveimur ráðherrum hafi
verið vikið úr embættum. Þeir
ku báðir hafa játað undirróðurs-
starfsemi gegn flokknum og
kommúnistastjórn landsins.
★ ★
T J ÓRNMÁLAFRÉTT ARIT-
ARI brezka útvarpsins sagði
í gær, að brottrekstur fjórmenn-
inganna Molotovs, Kaganovitsj,
Malenkovs og Shepilovs, úr em-
bættum og miðstjórninni, svo og
hinar alvarlegu ákærur á hendur
þeim, hafi verið aðalumræðuefni
blaða um allan heim. Síðan gaf
hann Rússlandsmálasérfræðingi
Manchester Guardians orðið. Sér
fræðingurinn sagði, að þessir at-
burðir sýndu, að Krúsjeff óttað-
ist, að eining kommúnista-
flokksins sé í hættu. Þess vegna
hafi hann gripið til þess ráðs að
lýsa því yfir, að fjórmenning-
arnir hefðu unnið skemmdar-
starfsemi í flokknum og skaðað
hann á margan hátt utanlands
og innan. Þetta væru sömu
ákærur og á hendur Berí'a á
sínum tíma, en til slíkra ásakana
hefði Stalín einnig gripið, þeg-
ar hann ruddi mönnum úr vegi.
Þá benti hann á, að það hafi
ekki verið nægileg ákæra á hend
ur fjórmenningunum, að þeir
hefðu verið á öndverðum meið
við stefnu Krúsjeffs sjálfs. Ekk-
ert minna dugði en ásökun um
skemmdarstarfsemi og föður-
landssvik. Svikarar eru yfirleitt
skotnir í Sovétríkjunum, enda er
lagaheimild fyrir því. Krúsjeff
á því betri leik á borði, ef hann
getur sannfært einhvern hluta
þjóðarinnar um það, að fjór-
menningarnir hafi verið svikar-
ar, og þá á hann auðveldara með
að láta til skarar skríða gegn
þeim.
Nehrú ræddi mál þetta á blaða
mannafundi í Lundúnum í dag
og benti m. a. á þá staðreynd,
að unga kyiislóðin hugsi allt
öðru vísi en hin eldri og því
sé líklegt, að ýmislegt breytist
í Ráðstjórnarríkjunum, þegar
hún fer að láta að sér kveða. —
í Júgóslavíu hefur brottrekstur
fjórmenninganna vakið mikla at
hygli. Júgóslavnesku blöðin
fagna tíðindunum og segja, að
þessir atburðir eigi eftir að stuðla
Frh. á bis. 2.
Asíuinflúeiisaii
HAAG, 4. júlí: — Heilbrigffis-
málaráffuneytið hollenzka hef
ur látiff þá skoffun sína í ljós,
aff Asiuinflúenzan svonefnda
muni breiffast út um alla Ev-
rópu, og sennilega um allan
heim. Allt er gert til aff fram-
leiffa bóluefni viff veikinni,
enda þótt ástæða sé til aff ætla
aff hún sé væg.
Þá herma fregnir, aff engin
ástæffa sé til aff bera þennan
faraldur saman viff spönsku
veikina svokölluðu, sem geis-
affi í Evrópu 1918. Þessi inflú-
ensufaraldur sé miklu vægari,
a. m. k. enn sem komiff er.
Kjör Petersens
dæmf ógilt
KAUPMANNAHÖFN, 3. júlí —
Kjörbréfanefnd danska þingsins
gaf í dag einróma úrskurff þess
efnis, aff kjör Thorsteins Peter-
sens til þings skuli ógilt talið
vegna hæstaréttardóms, sem fall-
inn er á hann. Mun Iiakon Djur-
hus hljóta þingsætiff.
2-24-80
XO
>-i
0
>
a
o
0
B
§
M
co
RITSTJORN
AFCREIÐSLA
AUCLÝSINCAR
BÓKHALD
PRENTSMIÐJA
JÍluröimililaííiiJ