Morgunblaðið - 05.07.1957, Blaðsíða 20
VEÐRIÐ
Austan gola og suðaustan gola
þykknar upp síðdegis.
omwttMaliitiíi
S.U.S.-síða
S já bls. 14.
147. tbl. — Föstudagur 5. júlí 1957
Tómas Jónsson skip-
aður horgarlögma&ur
Gunnlaugur Péfursson borgarritarí
og Páll Líndal skritstofustjóri
og varaborgarritari
AFTJNDI bæjarstjórnar Reykjavíkur í gær lágu fyrir tillögur
bæjarráðs um að Tómas Jónsson yrði samkv. eigin ósk leystur
frá borgarritarastörfum. Lagði bæjarráð tU að hann yrði skipaður
borgarlögmaður, en það er nýtt starf. Bæjarráð lagði einnig til að
Gunnlaugur Pétursson yrði skipaður borgarritari og Páll Líndal
varaborgarritari og skrifstofustjóri borgarstjóra. Voru þessar til-
lögur bæjarráðs allar samþykktar á bæjarstjónarfundinum.
STARF
BORGARLÖGMANNS
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri gerði grein fyrir tillögun-
um. Gat hann þess að Tómas
Jónsson hefði hafið starf sitt sem
borgarritari fyrir rúml. 23 árum,
árið 1934. Hann hefði gegnt um-
Tómas Jónsson
fangsmiklu og erilsömu starfi af
sérstakri samvizkusemi og dugn-
aði, enda öllum bæjarfulltrúum
kunnugt að hér væri um óvenju-
legan hæfileikamann að ræða.
Síðari ár hefði orðið ljóst, að
starf borgarritara væri orðið svo
umfangsmikið, að ekki væri á
eins manns færi. Málin hefðu nú
svo ráðizt að Tómas Jónsson
hefði óskað eftir að fá lausn frá
starfinU. I mörgum borgum ná-
grannalandanna störfuðu sér-
stakir lögfræðilegir ráðunautar
með bæjarstjórn og borgarstjór-
um, og eftir athugun á þeim
störfum, sem undir borogarritara
embættið falla, var talið rétt að
stofna hér einnig embætti borg-
arlögmanns. Annaðist hann mál-
flutnmg fyrir bæjarfélagið, semdi
Gunnlaugur Pétursson
lögfræðilegar álitsgerðir, annað-
ist samningagerðir fyrir bæinn,
en hefði auk þess forstöðu trygg-
ingarmála bæjarins á sinni hendi,
en Tómas hefði að undanförnu
haft sérstakt eftirlit á hendi með
þeim málum.
Væri því vel ráðið að Tómas
Jónsson tæki við þessu nýja
starfi. Vottaði borgarstjóri síðan
Tómasi þakkir fyrir ágætt starf,
um leið og hann tæki við hinu
nýja starfi sínu. Óskar Hallgríms
son færði Tómasi einnig beztu
þakkir fyrir gott samstarf á liðn-
um árum, af hálfu Alþýðuflokks-
manna í bæjarstjórn.
BORGARRITARI
OG SKRIFSTOFUSTJÓRI
Þá gat borgarstjóri þess að við
störfum borgarritara tæki Gunn-
laugur Pétursson, sem fyrir tæpu
ári hefði verið falið að gegna
starfi borgarritara í veikindafor-
föllum Tómasar. — Ætti Gunn-
laugur langan feril að baki sér
í utanríkisþjónustunni, og það
ár sem hann hefði starfað hjá
bænum hefði hann reynzt með
starfhæfustu mönnum, sem
bærinn hefði fengið í þjónustu
sína.
Páll Líndal fulltrúi á skrif-
stofu Reykjavíkurbæjar var sett-
ur skrifstofustjóri borgarstjóra
Páll Líndal.
í fyrra er Tómas Jónsson fékk
leyfi frá störfum. Nú var hann
skipaður í þá stöðu og einnig
gert það nýmæli að skipa vara-
borgarritara, og gegnir Páll einn-
ig þeirri stöðu. Páll hefur starfað
hjá bænum í nokkur ár, sagði
borgarstjóri og reynzt með ágæt-
um vel.
Útsýn frá Hjálparfossi. í baksýn er Búrfell
Mikil þátttuku í snmarferð Varðar
MIKILL áhnigi er á skemmti-
ferð Varöar, sem farin verður
næstkomandi sunnudag utn Ár-
nesþing. Er það líka mjög að von-
um.
Farið verður um hin fegurstu
héröð og merkustu sögustaði.
Fólk fýsir mjög að koma í Þjórs-
árdalinn og sjá þar hina sérstæðu
náttúrufegurð. Svo og verður
fróðlegt að sjá rústirnar í Stóng.
Þessar fornleifar verða útskýrðar
fyrir ferðafólkinu.
Gert er ráð fyrir að komið
verið í Álfaskeið, hinn fagra og
rómaða skemmtistað Árnesinga.
Margir eru svo þeir, sem hafa
gaman af að koma í Skálholt og
sjá þar hina nýju dómkirkju stað
arins, sem nú er verið að reisa
Frekari aðgerða
beðið
FUNDUR dciluaðila í far-
mannadeilunni stóð til kl. nær
því 5 í gærborgun. Enginn
árangur náðist á fundinum.
Allákveðnar fregnir eru á lofti
um það að miðlunartillaga sé i
uppsiglingu, en samningaum-
leitanir í fyrrakvöld og fyrri-
nótt, hafi sýnt að þær tillög-
ur sem samninganefndin hafði
hugsað sér væru ekki vænleg-
ar til árangurs.
Sú skýrsla af hálfu ríkis-
stjórnarinnar sem menn bjugg
ust við eftir ummæli Tímans
fyrir skemmslu, hefur ekki
enn þá birzt og bíða menn nú
frekari aðgerða ríkisstjórnar-
og önnur mannvirki. Þá verður
farin fegursta leiðin frá Skál-
holti til Reykjavíkur um Gríms-
nes, upp með Sogi og umhverfis
Þingvallavatn.
Mikil viðbúnaður er hjá Varð-
arfélögum við undirbúning
fararinnar. Er allt gert til að
að ferðin megi verða hin ánægju
legasta. Með í förinni verður
Nýr
forstöðumaður
Ahaldalmssins
Á FUNDI bæjarráðs í gær
var samþykkt að fela Birni Árna
syni vélaverkfræðingi að hafa
með höndum fyrst um sinn for-
stöðu Áhaldahúss bæjarins.
Hann hefir starfað þar í tvö
ár. Tekur hann við störfum af
Sigmundi Halldórssyni arkitekt,
sem tók við starfi byggingafull-
trúa af Sigurði Péturssyni, er
baðst lausnar frá starfi vegna
heilsubrests.
kunnugur leiðsögumaður. Þá verð
ur og með kvikmyndatökumaður
og læknir.
Þegar eru seldir um 300 far-
miðar, en sala heldur áfram í dag
í skrifstofu félagsins í Sjálfstæð-
ishúsinu til kl. 7 e.h. — Fráteknir
farmiðar óskast sóttir í dag.
Hlé á fundum
bæjarstjórnar
Á FUNDI bæjarstjórnar Reykja-
víkur í gær bar Gunnar Thor-
oddsen borgarstjóri fram tillögu
um það að síðari fundur bæjar-
stjórnar í júlí og fyrri fundur í
ágúst yrðu felldir niður svo sem
jafnan hefur verið venja.
Var þessi tillaga borgarstjóra
samþykkt samhljóða, og er sum-
arleyfi bæjarstjórnar því hafið.
BÍLDUDAL, 2. júií. — Nokkrir
trillubátar stunda nú færaveiðar
héðan. Hefur afli verið f.emur
tregur. Undanfarna daga hefur
ekki gefið á sjó vegna storms.
Rækjuveiðar liggja nú niðri um
tíma. — Friðrik.
Gangbrautir gerðar
ineð ellefu götum
Dregið úr slysahœftu gangandi fólks
í GÆR samþykkti bæjarráð á
fundi sinum tillögur umferðar-
nefndar um að gerðar verði hið
skjótasta gangbrautir við 11 göt-
Síld á mjög stóm svæði í gærkvöldi
SÍLDIN lét ekki á sér standa,
því um leið og komið var
veiðiveður á vestursvæðinu, í
gærkvöldi, bárust fyrstu síldar-
fregnirnar til Siglufjarðar. Það
var um klukkan 7. — Það var um
líkt leyti sem vélbáturinn Jón
Finnsson fékk góðan afla í tveim
köstum, og síldarleitarflugvélin
tilkynnti, að síldin væri uppi. Á
þeim slóðum sem flugvélin sá
síldina og þar sem Jón Finnsson
var, voru þá fá skip. Flotinn var
dreifður yfir mikið svæði.
1 allt gærkvöld voru stöðugt að
berast fregnir af meiri og meiri
síld á stærra og stærra svæði og
á miðnætti hermdu fregnir, að
síldin væri á svæði, allt frá Kol-
beinsey og vestur á Stranda-
grunn. Á Austursvæðinu var
stinningskaldi í gærkvöldi og
síldarflugvélin hafði ekki séð
neina síld þar. — Síldin á vest-
ursvæðinu var sögð vera á belti
60—80 mílur út frá landi.
Um miðnætti í nótt er fregn
þessi er skrifuð, var talið full-
víst, að nokkur veiði hefði ver-
ið í gærkvöldi og voru taldar
góðar veiðihorfur í nótt. Einn
bátur, Grundfirðingur, var á leið
til lands og var með síld til sölt-
unar 600 tunnur. Jón Finnsson
var einnig á leið til lands með
450 tunnur. Munu skipin bæði
reyna að fá þessa síld saltaða
þar eð sjómönnunum virtist hún
vera söltunarhæf.
Já, það má búast við góðum
fréttum af síldarflotanum með
morgninum, sagði síldarleitin á
Siglufirði í gærkvöldi.
ur í úthverfum bæjarins. Verða
þessar gangbrautir gerðar til ör-
yggis fyrir gangandi fólk í um-
ferðinni, þar sem götur eru ekki
fullgerðar. Er með gerð gang-
brautanna dregið úr slysahættu
á þessum götum.
Bæjarráð fól bæjarverkfræð-
ingi framkvæmdir málsins.
Byrjað verður á gerð gang-
brauta með þessum götum:
1. Miklabraut
2. Reykjanesbraut
3. Langahlíð
4. Suðurlandsbraut
5. Nesvegur
6. Borgartún
7. Sundlaugavegur
8. Langholtsvegur
9. Stórholt
10. Eskihlíð
11. Njarðargata
Jafnframt verður aðstaða gang
andi fólks á Miklubraut frá
Stakkahlíð að Eskihlíð og á Hofs-
vallagötu bætt með lögn umferð-
arsteina.