Morgunblaðið - 10.07.1957, Blaðsíða 8
8
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 10. júlí 1957
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Ásmundsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 25.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið.
Var&arferðin
VARÐARFÉLAGIÐ hefur hin
síðari ár haft þann hátt að fara
á hverju sumri eina ferð til að
skoða merka staði utan Reykja-
víkur. S.l. sunnudag var hin ár-
lega sumarferð farin. Að þessu
sinni var haldið víðs vegar um
Árnessýslu og skoðaðar þar sveit
ir, náttúrufegurð og mannvirki.
Slíkar ferðir undir leiðsögn
kunnugra manna eru mikilvægur
þáttur félagslífsins.
Af ferðinni á sunnudaginn
mátti t.d. glögglega sjá, hvílikum
auðæfum hin íslenzka gróður-
mold býr yfir. Þó eru ann ekki
ræktaðir nema smáblettir. Megin-
hluti landsins er litt notaður.
Þarna er geymdur verðmætur
varasjóður fyrir komandi kyn-
slóðir íslendinga. Því fer svo
fjarri, að nú búi of margir úti á
landsbyggðinni, að hitt er sann-
mæli, að líf allra yrði miklu létt-
ara, ef þar væri meira fjölmenni
en nú. Aðalhindrun margra fram
fara á þessum slóðum er einmitt
fámenni og hin mikla dreifð
byggðarinnar. Með auknu fjöl-
menni og þéttbýli skapast mögu-
leikar til margháttaðra lifskjara-
bóta, sem nú er erfitt að koma
við.
Þá var ekki síður ánægjulegt að
hugleiða, þegar menn voru stadd-
ir inni á auðnum Þjórsárdals, að
skammt þaðan í burtu, i enn
geigvænlegri auðn, brýzt fram
ónotaður kraftur Þjórsár, er gæti
orðið þúsundum til framfærslu.
Hér er ekki um tómt mál að tala,
heldur raunveruleika. Hvað eftir
annað hafa erlendir kunnáttu-
menn leitað fyr’’r sér um mögu-
leika til virkjunar vatnsafls á
þessum slóðum. Ekki hefur úr
framkvæmdum orðið og þarf
e.t.v. m.a. að breyta íslenzkri lög-
gjðf til þess að svo verði. Álita-
mál er einnig, hvort ís'lendingar
eigi að hafa um slíka stór-
framkvæmd samvinnu við er-
lenda menn, þannig að þeir verði
virkir aðilar eða hvort við eigum
að bíða þar til okkur vex svo
fiskur um hrygg, að við getum
einir ráðizt í framkvæmdirnar
einungis með erlendu lánsfé, og
með erlendri tæknilegri aðstoð,
ef á þarf að halda.
Allt eru þetta atriði, sem þurfa
íhugunar við og skoða verður án
fordóma með það eitt í huga,
hvað verða muni þjóðarheild-
inni fyrir beztu. Lífsmöguieikarn
ir bíða bæði í óyrktri jörðinni og
óvirkjuðum fallvötnum.
Til þess að nota hina miklu
möguleika til hlítar, þarf sam-
henta og stórhuga forystu. Einnig
að því leyti gera ferðir slíkar
sem Varðar sitt gagn. í þeim kynn
ast menn ekki einungis landinu
heldur og hver öðrum. Þátttak-
endur eru ungir og gamlir, börn
sem rétt geta gengið, og níræðir
öldungar, flestir að vísu einhvers
staðar þar á milli. Ferðafólkið er
ólíkt að stétt og stöðu, en þótt
dagleg störf þess séu mismunandi
ríkir þess á meðal andi sem
einnar fjölskyldu. 'Siáifstæðis-
menn horfa vonglaðir fram í
tímann af því að þeir vita að fram
tíðin er þeirra.
Því fer fjarri, að það sé sann-
mæli hjá stjórnarliðum, að
Sjálfstæðismenn gleðjist yfir úr-
UTAN ÚR HEIMI ]
Zhukov hefur í hendi sér aflið, sem
skipulagið byggir á
H
ræðaleysi ríkisstjórnarinnar og
vilji auka á örðugleika þjóðfélags
ins. Sjálfstæðismenn vita ofurvel,
að þjóðunum er þá bezt stjórnað,
ef til eru tveir ólíkir hópar, eða
flokkar, í landi hverju, sem skipt
ast á um að fara með völdin og
hver leysir þann vanda, sem hann
er líklegastur til að ráða við.
Sjálfstæðismenn hafa aldrei hald-
ið því fram, að þeim einum væri ig
allt gott gefið, og engar aðrar
skoðanir en þeirra ættu tilveru-
rétt í þjóðfélaginu. Þeim hefur
aldrei dulizt, að þær ríkisstjórnir,
sem flokkur þeirra átti hlut að,
höfðu ekki ráð við öllu, þó að
margt færist þeim vel.
Því meiri verða vonbrigði Sjálf
stæðismannna yfir, hversu hörmu
lega núv. stjórn hefur til tekizt.
Hún hefur nú setið nærri eitt ár
að völdum og ekki tekizt að ráða
fram úr neinum þeim vanda, er
óleystur var, þegar fyrrverandi
stjórn fór frá. Vissulega er orð að
sönnu, þegar Tíminn segir:
reinsanirnar í Kreml
í síðustu viku eru taldar hafa í för
með sér stórfelldustu breytingu
á forystuliði alþjóðakommúnism-
ans síðan Stalin leið. Augljóst er,
að mikil togstreita hefur ríkt
meðal æðstu valdamanna í Kreml
allt frá dauða Stalins og eilífur
eldur logað undir niðri. Víst má
telja, að eldur sá hafi magnazt
um allan helming eftir hina sögu
frægu ræðu Krúsjeffs á 20. flokks
þinginu í fyrra. Síðan hefur aldr-
ei soðið eins alvarlega upp úr og
einmitt nú, þegar meðlimir hinn-
ar „samvirku forystu" gerðu svo
eftirminnilega upp reikninga
hver við annan. Marga greinir á
um það, hvort valdið hafi ágrein-
ingur um stefnu kommúnista-
flokksins, eða eingöngu hafi ver-
um valdabaráttu að ræða.
Margt bendir hins vegar til þess,
að hið síðarnefnda hafi verið
þyngra á metaskálunum.
F,
„Gengur lítt að leysa vanda
og líkur til að fleiri strandi.
Því auðveldlega öllu stranda
einnig má á þurru landi'*.
Nærri má geta, að ekki sé að
tilefnislausu komizt að orði á
þennan veg i aðalmálgagni ríkis-
stjórnarinnar. Enda fer því svo
fjarri, að núverandi ríkisstjórn
hafi tekizt að leysa vandann, að
ný vandamál eru stöðugt sköpuð.
Ekki einungis innanlands heldur
og út á við. Á einu ári hefur þjóð
in verið gerð að viðundri erlend-
is. Vantraust og lítilsvirðing hafa
verið sköpuð í stað trausts og
viðurkenningar.
Inn á við er ástandið slíkt, að
Þjóðviljinn kunni það helzt rík-
isstjórninni til hróss, ekki alls
fyrir löngu, að ekki væri sólin
hætt að skína né grasið að
spretta! Ekki er nú af miklu að
státa, þegar grípa þarf til þvilíks
lofs. En stuðningsmenn stjórnar-
innar finna það auðvitað jafnt og
aðrir, að hér hefur flest, sem
stjórnarvöldunum er sjálfrátt
sigið á ógæfuhlið. Þess vegna er
því hampað, að enn hafi náttúru-
lögmálið ekki gengið úr skorð-
um!
Úr þessu úrræðaieysi og álits-
hnekki verður ekki bætt nema
með styrkri forystu, en hennar
er hvergi að leita eins og nú
horfir, nema hjá Sjálfstæðis-
mönnum. Þess vegna er mikils-
vert að Sjálfstæðismenn efii sam-
tök sín og kynningu. Þeir leggja
hvarvetna ótrauðir til baráttu.
Sjálfstæðismenn telja rétt að efnt
hefði verið til Alþingiskosninga
nú í vor af því, að úrslit hinna
síðustu fengust með rangindum
og rofnar hafa verið flestar for-
sendur, sem kjósendur stjórnar-
flokkanna þá byggðu á. Stjóm-
arliðið vill af skiljanlegum ástæð
um fresta kosningum sem lengst.
En fram hjá bæjarstjórnarkosn-
ingum í vetur kemst það ekki.
Þá munu Sjálfstæðismenn sýna,
að styrkur þeirra hefur aldrei
verið meiri.
ullljóst er, að Krúsjeff
hefur nú náð undirtökunum í
Kreml og margt þykir benda til
þess, að hann ætli sér að verða
annar Stalin.
Aðstæðurnar eru samt aðrar nú
heldur en var á dögum Stalins.
Krúsjeff hefir ekki þau tök
á hernum, sem Stalin hafði. Mað-
urinn, sem hefur tögl og hagldir
á Rauða hernum, er Zukov mar-
skálkur — og án hans hjálpar
situr Krúsjeff ekki í Kreml fram
á gamals aldur. Enda þót.t Krú-
sjeff hafi nú náð löngu settu tak-
marki beinist athyglin ekki öll
að honum. Sá, sem miklu fremur
hefur vakið athygli heimsins
þessa dagana, er Zukov, því að
Krúsjeff hefði vafalaust ekki
lagt út á þessa braut að svo
komnu máli án fulltingis Zukovs
og Rauðá hersins. Zukov hefur í
hendi sér hið volduga afl, sem
skipulagið byggir beinlínis á:
Herinn.
i mt ess vegna er vert að
gefa því gaum, að einmitt um
leið og hreinsanir fóru fram í
fyrri viku, var enn hlaðið undir
Zukov og honum opnuð leið i)in
í innsta hring valdamanna í
Kreml. Voru það einungis laun
fyrir stuðning hersins eða er
Zukov eindreginn stuðningsmað-
ur Krúsjeffs?
Fórnaði Krúsjeff einhverju
með því að veita Zukov inngöngu
í innsta hringinn, eða var það hon
um styrkur? Slíku og þvilíku
velta menn nú fyrir sér, en tim-
ínn
ljós.
einn leiðir sannleikann í
E,
hennar steig Zukov hið örlaga-
ríka skref. Hann gekk í kommún-
istaflokkinn.
Ta.ð borgarastyrjöldinni
lokinni innritaðist Zukov í her-
skóla í Moskvu og gat sér þar
góðan orðstír. Var hann sendur
til frekara framhaldsnáms í Ber-
lín. Sagt er, að þýzku herforingj-
arnir hefðu orðið hvumsa við að
sjá þennan sveitastrák, sem
Rússarnir sendu til þess að læra
styrjaldarinnar, því að þá fór
fyrst að halla á Þjóðverja. Þeir,
sem til herstjórnar þekkja, segja,
að enginn sé snjallari Zukov í
liðsflutningum. Enginn geti flutt
jafnfjölmennt lið jafnmiklar vega
lengdir á jafnskömmum tíma
og Zukov.
A.ð styrjöldinni lokinni
varð Zukov yfirmaður rússneska
hernámsliðsins í Þýzkalandi. Var
hann þá orðinn mjög frægur,
ekki síður utan heimalandsins
en innan. Eignaðist Zukov þá
■ ■ ■)>
n við skulum víkja
lítið eitt að þessum athyglisverða
manni, Zukov marskálki og land-
varnamálaráðherra Ráðstjórnar-
innar. Hann er fæddur árið 1395
í Kalugahéraðinu, kominn af
bændafólki eins og flestir aðrir
jafnaidrar hans, því að Rússar
voru bændaþjóð miklu fremur
en allt annað á þeim tíma. En
hugur Zukovs stóð ekki til jarð-
yrkju. Hann lét innritast í her
keisarans og barðist í fyrri
heimsstyrjöldinni með mönnum
hans. Vann Zukov mörg hreysti-
verk á vígvellinum og var sæmd-
ur keisaralegri orðu í styrjöld-
inni.
Fyrir byltinguna í Rússlandi
snérist Zukov á sveif með komm
únistum og gekk i Rauða herinn.
Barðist hann m.a. undir stjórn
þeirra Voroshilovs og Stalins í
borgarastyrjöldinni, en í lok
Eisenhower, Zhukov og kona hans í Berlín í lok styrjaldarinnar.
herstjórnarfræði. En sveitastrák-
urinn reyndist þegar fram í sótti
snjall á mörgum sviðum. Fimi
hans í skilmingum var t.d. við
brugðið. Er það haft eftir Zukov
sjálfum, að hann hafi lært það af
Þjóðverjum, sem síðar kom hon-
um mest að haldi, bæði í baráttu
hans gegn Þjóðverjum og öðrum.
Þ,
egar hann kom til
Rússlands frá náminu í Berlín,
var honum fyrst falið að þjálfa
nýliða í Hvíta-Rússlandi. En svo
virðist sem Sfalin hafi farið að
veita Zukov athygli upp úr 1930.
Stóðu þá fyrir dyrum hreinsan-
irnar miklu innan hersins, sem
Stalin lét öryggislögregluna fram
kvæma. Talið er, að þá hafi ver-
ið líflátnir 374 herforingjar og
um 30,000 undirforingjar í hern-
um. Sennilegt má telja. að líf
Zukovs hafi oft verið í hættu á
þessum tíma, en hins vegar á
hann hinn skjóta frama eftir
þetta að þakka því, hve Stalin
lét lífláta marga af starfsbratðr-
um hans og keppinautum. Þeir
sem umgengust Zukov á þessu
tímabili, segja, að hann hafi
aldrei sézt glaður í bragði þau
árin og meira að segja sé ekki
vitað til þess, að hann hafi sézt
brosa hvað þá heldur meira.
marga vinl meðal bandarískra og
brezkra herforingja — og kynnt-
ust þeir Eisenhower m a. þá.
Bauð Eisenhower Zukov til
Bandaríkjanna, en Zukov hefur
aldrei þegið það boð.
E:
kki hafði Zukov ver-
ið lengi í Berlín, er hann var
skyndilega kvaddur heim — og
lengi heyrðist ekkert frá honum.
Einn góðan veðurdag barst til-
kynning um það, að hann hefði
orðið að draga sig í hlé vegna
heilsubrests. Var Zukov sendur
suður til Odessa. Þar gegndi hann
herstjórnarstörfum um fimm ára
skeið.
Síðar hefur komið í ljós, að
ástæðan til þessara flutninga var
alls ekki sú, að Zukov ætti við
vanheilsu að stríða. Staiin var
orðið ljóst, að vinsældir Zukovs
í heimalandinu voru orðnar það
miklar, að Zukov var jafnvel
farinn að skyggja á hann sjálfan
Stalin varð var við það, að marg-
ir Rússar vildu þakka Zukov það
fremur en honum hver gang-
ur styrjaldarinnar varð. Þess
vegna sendi Stalin hann í hólf-
gerða útlegð og vildi láta hann
falla í gleymsku. Þegar Kóreu-
styrjöldin brauzt út var þörf á
ráðum Zukovs og einangrun hans
því rofin af illri nauðsyn.
N,
afn Zukovs vakti
fyrst athygli utan Rússiands í
vetrarstríðinu í Finnlandi. Það
var hann ásamt Timosjenko, sem
stjórnaði árásinni á Mannerheim-
línuna svonefndu. Síðar átti Zu-
kov í höggi við þýzka herinn, er
hann óð norður eftir hátfu öðru
E
ftir lát Stalins og fall
Beria hlaut Zukov síðan sæti í
miðstjórn kommúnistaflokksins
— og þegar Malenkov féll ári
síðar, erfði Zukov embætti Bulg-
anins og varð varnarmálaráð-
herra. Enn hefur vegur Zukovs
ári síðar. Zukov er sagður hafa vaxið —• og hver veit nema eitt-
átt heiðurinn af þvi að stöðva
framsókn Þjóðverja, og einnig
fól Stalin honum vörn Moskvu,
þegar Þjóðverjar voru skammt
undan. Þá stjórnuðu þeir Zukov
og Vassilefski vörninni við Stalin
grad, sem fræg er — og talin
hafa markað tímamót i gangi
hvað sé til í þeirri tilgótu dansks
stjórnmálasérfræðings á dögun-
um, að Zukov bíði nú átekta og
afli sér vina í Kreml til þess einn
góðan Veðurdag að varpa Krú-
sjeff fyrir borð og setjast sjálfur
í einvaldsstólinn með stuðningi
hersins?