Morgunblaðið - 18.07.1957, Blaðsíða 2
2
MORCUNDLAÐIÐ
Fimmtudagur 18. jálí 1957
Sýning á Anstnr-þýzknn vörum
opnnð í Listamannoskálanum
OPNUÐ hefur verið í Listamannaskálanum vörusýning, eins
konar viðbótarsýning við vörusýningu Kaupstefnunnar. Standa
að þessari sýningu fjögur fyrirtæki hér í bænum, sem flytja inn
vörur frá Austur-ÞýzkalandL
FYRIRTÆKIN
Fyrirtækin eru: Ólafur Gísla-
son h.f., sem sýnir vogir og
smíðavélar, Heildverzlun Hauks
Bjömssonar, sem sýnir trésmíða-
vélar, Borgarfell h.f., sem sýnir
skrifstofuvélar og Samband ís-
lenzkra samvinnufélaga, sem sýn
ir saumavélar.
OPIN 4—10
Sýningin sem opnuð var í fyrra
dag, er opin frá kl. 4—10 síð-
degis dag hvern og mun hún
standa yfir fram eftir næstu
viku. Hvert fyrirtæki hefur séð
um uppsetningu sýningarmuna
sinna.
SÝNING
AÐ KLAPPARSTÍG 26
• Auk þess sem Borgarfell h.f.
hefur sýningu á skrifstofuvélum
í Listamannaskálanum, hefur
fyrirtækið einnig opnað litla sýn-
ingu að Klapparstíg 26 á smærri
áhöldum fyrir prentsmiðjur og
bókband. Fréttamönnum var boð
iS að skoða sýninguna í Lista-
uannaskálanum í gærdag.
Ága Khan
Jarðsettur
*>-------------------------
Hvallátrar
í vegasamband
PATREKSFIRÐI, 17. júlí: —
Hvallátrar eru nú komnir í vega-
samband og 15. júlí kom fyrsta
stóra langferðabifreiðin hingað.
Var það R-3723. Bifreiðarstjóri
var Hafsteinn Sölvason. Flutti
hann 29 farþega, félaga úr KFUM
og KFUK. Fararstjóri var Bjarni
Eyjólfsson.
i)t A látrabjarg
Ekki komst ferðafólkið á bif-
reiðinni út á Látrabjarg en lagði
land undir fót og gekk fyrst út á
strandstaðinn þar sem enska skip
ið Dhoon strandaði og síðan eftir
brún Látrabjargs allt niður að
Bjargtangavita. Þaðan var hald-
ið heim að Látrum. Hafði fólkið
farið yfir 20 km leið.
ÁNÆGT MEÐ FERÐINA
Veður var gott svo ferðafólkið
taldi Bjargferðina ógleymanlega.
Fararstjórinn, kvaðst vera þreytt
ur eftir ferðina en mjög ánægður.|
— Þórður.
Cóð aðsókn að mynd-
listarmarkaðinum
MÁNUDAGINN, 8. júlí sl. var
opnaður myndlistarmarkaður í
Sýningarsalnum við Hverfisgötu.
Er þetta smámyndasýning með
myndum eftir 12 málara og einn-
ig sýna 2 myndhöggvarar lista-
verk. — Þá er einnig sölusýning
í listiðnaðardeildinni, með mjög
nýtízkulegum skartgripum, eftir
Sigríði Björnsdóttur og Svisslend
inginn diter rot.
GÓ» AÐSÓKN
Aðsókn að þessum myndlist-
armarkaði hefur verið mjög góð
og mörg af listaverkunum hafa
helzt. Er sá háttur hafður á að
jafnóðum og myndirnar seljast
eru þær teknar niður og aðrar
settar upp.
f viðtali við blaðamenn í gær
sagði frú Sigríður K. Davíðsdótt-
ir, sem veitir Sýnin’garsalnum
forstöðu að leitast hefði verið
við að hafa listaverkin af hæfi-
legri stærð og viðráðanlegu verði.
Eftirtaldir listamenn eiga
myndir á sýningunni:
Kristín Jónsdóttir, Valtýr Pét-
ursson, Kjartan Guðjónsson, Jó-
hannes Jóhannesson, Karl Kvar-
an, Veturliði Gunnarsson, Bene-
dikt Gunnarsson, Eiríkur Smith,
Bragi Ásgeirsson, Sigurbjörn
Kristinsson, Hafsteinn Austmann
og Bjarni Jónsson. Þá sýna og
bræðurnir Jón og Guðmundur
Benediktssynir höggmyndir úr
steini, tré og járni.
SVISS, 17. júlí: — Karim prins,
sonarsonur og arftaki hins ný-
látna Aga Khan, tók í dag á móti
gestum í höll hins látna við
Genfarvatnið. Margir komu til
þess að votta prinsinum samúð
sína. Líkami hins látna lá á legu-
bekk, sem allur var þakinn blóm-
um. í kvöld átti að flytja jarð-
neskar leyfar Aga Khan flugleið
is itl Egyptalands, en þær verða
jarðsettar við Aswan á föstudag-
inn.
Karim prins mun fara með flug
vélinni, en hann mun hverfa til
Evrópu strax að útförinni lokinni
til þess að halda áfram námi.
Aly Khan lét þess getið við blaða
menn í dag, að veðreiðahestar
Handhœgur leiðarvísir
land og Jb/óð
um
BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs
hefur sent á bókamarkað sjöttu
útgáfu hins vinsæla upplýsinga-
rits Ólafs Hansonar menntaskóla-
kennara, „Facts about Iceland“.
Hefur ritið þá alls verið prentað
í 38 þús. eintökum og er sala þess
sízt í rénun, enda er bæklingur
þessi hið ágætasta kynningarrit.
Jafnframt hefur rit þetta nú
verið þýtt á dönsku og þýzku.
Er danska útgáfan þegar komin
I bókaverzlanir, en hin þýzka
föður hans mundu áfram hlaupa, mun koma út í byrjun ágústmán-
með sama einkennislit og áður. aðar. Dönsku þýðinguna hefur
Sjounda Sovétríkin: Tal 1 Spassky bið Gurgenidze 1 Gipslis bið umferð Danmörk: B. Larsen P. Ravn B. Andersen Spalk 0 bið 0 bið
Tékkóslóvakía: Dr. Filip 1 Mongolía: Tumubaator 0
Kosma bið Munhu bið
Blatný 1 Miagmarsuren 0
Wisslovizl bið Zuhber bið
Ungverjaland: Benkö bið Búlgaria: Kolarov bið
Portisch bið Minev bið
Forintos bið Tringov bið
Haag y2 Bodanov %
ísland: Friðrik í Finnland: Lahti 0
Guðmundur % P. Kajaste
Ingvar í Aaltio 0
Þórir í Samalisto 0
Equador Munoz 0 AusOur-Þýzkaland: S. Dittmann 1
Yépes 0 Bertholdt 1
Benites 0 H. Liebert 1
O. Yépes % H. Júttler Vi
Svíþjóð: Bandaríkin:
B. Sönderborg bið Lombardy bið
Hággquist % Mednis %
B. Sehlstedt 0 Saidy 1
S. Palmkwist 0 Sobel 1
Rúmenía: England:
Mititelu 1 Persitz 0
Drimer 1 Martin 0
Gitezcu bið Davis bið
Szabo bið Gray bið
Einna mesta athygli vakti skák Larsens og Tal. Larsen hafði
svart og hafði jafnað stöðuna. Reyndi vinningsleið sem var hættu-
leg — og tapaði. Biðskák Guðm. Pálmasonar við Sviann Haggquist
varð jafntefli. í dag eiga skákmennirnir frí.
annazt frú Grethe Benediktsson,
en hona þýku Herman Höner,
sendikennari.
Upplýsingarit þessi eru 72 bls.
að stærð, sett með mjög drjúgu
letri og prýdd fjölda mynda,
ásamt íslandsuppdrætti. Margar
myndanna eru nýjar, og hefur
Hjálmar R. Bárðarson tekið flest-
ar þeirra.
í bæklingunum eru upplýsing-
ar um flest það er máli skiftir
fyrir tlendinga, eða líklegt þykir
að þeir hafi áhuga fyrir.
Bæklingar þessir eru einkum
við það miðaðir, að erlendir
menn geti fengið í hendur hóf-
lega langan og ódýran en efnis-
mikinn leiðarvísi um íslenzk mál-
málefni og íslenzka menn. Sú
hefur og orðið reynslan af enska
bæklingnum, að jafnt innlendir
menn sem erlendir hafa haft hans
mikil not, því að bæklingar þess-
ir eru ekki aðeins hentugir fyrir
gesti, er ber að garði, heldur
einnig fyrir íslendinga, er reka
erlend viðskipti eða fara utan.
Hörður Ágústsson, listmálari,
hefur séð um bókakápu og skipað
efninu í síður.
KVIKMYNDIR:
Lyfseðill Safens
LYFSEÐILL SATANS, sem
Austurbæjarbíó sýnir fjallar af
miklu raunsæi og á áhrifaríkan
hátt um eiturlyfjanotkun og sölu
eiturlyfja, sem er eitt af mestu
vandamálum Bandaríkjanna í
dag. — Segir svo í texta mynd-
arinnar að ekki minna en 75%
nýrra neytenda marihuana-
vindlinga þar í landi séu ungling-
ar innan við tvítugt. — Efni þess-
arar myndar er ekki tekið nein-
um listrænum tökum, en af því
meira raunsæi, svo að manni
hrýs hugur við. Er myndin gerð
í samráði við eiturlyfjasérfræð-
inga bandarísku lögreglunnar,
sem einn þáttur af ótal mörgum
í baráttunni gegn þessu hræðilega
böli þar í landi. Er ekki vafi á
því að slíkar myndir sem þessi,
hafa mikið áróðursgildi í barátt-
unni gegn eiturlyfjanautninni,
sem breiðist nú út víða um iönd.
Ættu því sem flestir, ekki sízt
unga fólkið, að sjá mynd þessa.
Ego.
Þegar ljósmyndari Mbl. náði þessari mynd utan við taflmóts-
staðinn í gær þá hafði Guðmunda afhent Namsarail farar-
stjóra dollarana 400. Hann var of fljótur að stinga þeim í
vasann (og ætlar aldrei að fara svo gáleysislega með mikla
peninga aftur) til þess að seðlarnir kæmu fram á myndinni.
En þakklætishandtak hans var langt og bros hans blítt til
hinnar heiðarlegu íslenzku stúlku. Það varði enn er ljós-
myndari Morgunblaðsins ól. K. M., smellti af.
Ung stúlka færði Mon-
golanum 400 dalina
í FYRRADAG týndi farar-
stjóri Mongolíumanna á stúd-
entaskákmótinu 400 dollurum
er hann geymdi lausa í vasa
sínum. Bar hann sig að von-
um illa og frétt var sett um
þetta tjón í Mbl. í gær. Blaðið
hafði varla verið borið til
allra lesenda í gær, er ung
stúlka, Guðmunda Guð-
mundsdóttir, Tjarnargötu 5
B, starfsstúlka á Hótel Skjald
breið, kom með seðlana fjóra
og spurði símastúlku Mbl.:
„Hvar á að skila þessum pen-
ingum?“
* ÓLÍKIR STAÐIR
Hafi einhver efast um að til
væri heiðarlegur Islendingur
enn í dag, þá er sagan um fjár-
fund Guðmundu og heiðarleika
góð lexía.
Mongolíumaðurinn Namsarail
fullyrti, að hann hefði týnt pen-
ingunum í Hafnarstræti nálægt
Optik. Guðmunda, sem eins og
fyrr segir er starfsstúlka á
Hótel Skjaldbreið, fann þá I
Kirkjustræti, utan hótelsins.
Hún kvaðst ekki hafa vitað
hvað hún átti við fjármunina að
gera, en um leið og hún sá frétt-
ina í Mbl. fór hún þangað og
spurði: „Hvar á að skila þessum
peningum?“
★ ÞÖGULT ÞAKKLÆTI
Einn af blaðamönnum Mbl.
fór með Guðmundu á fund
Namsarail. Hann var í þungum
þönkum, en er hann vissi að
peningarnir voru fundir varð and
lit hans eitt bros — Mongolíu-
sól. Hann gat ekki tjáð Guð-
mundu þakklæti sitt með orðum
því ekki mun hann mæla nema
slavneska tungu auk móður-
málsins. — En þó hann hafi
aðeins þrýst hönd hennar í
gær, þá mun hann hafa fullan
hug á að launa henni fundinn
með einhverri gjöf.
Hylki með geislavirkum
etnum tapaðisf
Á reki undan BandaríkjastrÖnd
NEW YORK, 17. júlí. — Á sunnu^
dagskvöidið var birt aðvörun til
skipa undan austurströnd Banda-
ríkjanna þess efnis, að um 300
km. suð-austur af New York væri
á reki stálhylki, sem hefði inni
að halda geislavirkt efni. Sigling
um þetta svæði væri því var-
hugaverð.
Ástæðan var sú, að General
Electric-verksmiðjurnar höfðu
sent skip út á Atlantshaf með 25
stálhylki, sem öll höfðu inni að
halda geislavirk úrgangsefni. —
Átti að sökkva hylkjunum til
botns undan ströndinni. Verk-
smiðjumar hafa nú í smíðum
kjarnorkuknúinn kafbát, og átti
úrgangurinn rætur sínar að rekja
til þeirrar smíði.
Var hylkjunum sökkt að kvöld-
lagi. Sáu skipverjar, að eitt
þeirra sökk ekki — og flaut það
frá skipinu og hvarf út í myrkr-
ið. — Bandaríska strandgæzlan
gerði strax ráðstafanir til þess að
finna hylkið og allri skipaumferð
var beint frá þessum slóðum.
Hættan liggur í því að skip
sigli á hylkið og setji á það gat.
Flæða hin geislavirku efni þá út
í sjóinn og geta á þann hátt skað-
að sjávarlífið.
Hins vegar er engin hætta
fólgin í því að sökkva slíku efni
í þéttum umbúðum til sjávar-
botns.
Fréftabréf úr Holfum
MYKJUNESI 14. júlí. Hér hefur
verið öndvegistíð síðustu vik-
urnar. Miklir hitar flesta daga ea
þoka og dögg um nætur. Hey-
skapur hefur gengið mjög vel,
og eru einstakir bændur langt
komnir með fyrrri slátt. Mikið
er búið að hirða, en einnig er
mjög mikið í sæti og göltum. —
Spretta á túnum er yfirleitt mjög
góð og lýtur vel út með heyskap-
inn í ár ef ekki breytir til hins
verra með tíðarfarið. Annars, er
jörð mjög vel sprottin bæði mýr.
ar og móar og er langt síðan út-
hagar hafa verið jafnvel útlítandi
eins og nú.
1 dag er suðaustan gola og út-
lit fyrir rigningu væri til bóta að
fá skúr a.m.k. á hána en hér
hefur ekki komið dropi úr lofti
s.l. hálfan mánuð. Menn hafa ver-
ið að grípa í að ríja féð með hey-
skapnum og er því að mestu lok-
ið. Fyrir nokkru eru hafnar
framkvæmdir við barnaskóla-
bygginguna að Langalandi.
Um síðustu helgi fór Ungmenna
félagið Eyjólfur hér í sveit í
tveggja daga skemmtiferð um
Skaftafellssýslu. — M. G.