Morgunblaðið - 11.08.1957, Page 1
44. árgangur.
178. tbl. — Sunnudagur 11. ágúst 1957,
Prentsmiðja Morgunblaðsina-
$®Lor$imbhiJí&m9
kemur ekki með blaðinu í dag,
heldur næsta sunnudag. Vegna
sumarleyfa kemur Lesbókin út
hálfsmánaðarlega næstu vikur.
Fjallgöngumanna
leitað
GENF, 10. ágúst. — Fjögurra,
fjallgöngum&nna hefir verið
saknað í svissnesku ölpunum. —
Leitarflokkar hafa nú lagt af stað
©g þegar síðast fréttist, var gert
ráð fyrir, að einn hópur þeirra
mundi komast til fjórmenning-
anna, áður en langt um líður. —
Áður var haldið, að einn þeirra
væri látinn, en síðustu fregnir
herma, að þeir séu líklega allir
á lífi.
LARSEN I MOSKVU
LUNDÚNUM, 10. ágúst. —
Moskvuútvarpið tilkynnti í gær,
að sendinefnd frá danska komm
únistaflokknum væri komin til
Moskvu til skrafs og ráðagerða
við Sovétleiðtoganna. Margir
forystumenn danskra kommún-
ista eru í nefndinni, þ.á.m. Axel
Larsen formaður danska komm-
únistaflokksins.
Frá því var sagt í blaðinu í gær, að brotizt hefði út „rokk-æði“
í Kaupmannahöfn. Á myndinni sjáum við lögregluþjón á Ráð-
hústorginu í Höfn, sem er að veita hinum ungu villingum
eftirminnilega lexíu. Unglingurinn á myndinni er sagður hafa
verig nógu kotroskinn, þegar hann þóttist öruggur, en þegar
lögregluþjónninn nálgaðist hann, saknaði hann einskis fremur
en mömmu, ef dæma má af myndinni.
SkœSur lömunarveiki-
faraldur í Bretlandi
600 jbús börn b'iða eftir bólusetningu
LÖMUNARVEIKIN færist nú
mjög í aukana í Bretlandi og
bendir margt til, 'að 1957 verði
versta lömunarveikiár í sögu
landsins. Ennþá hefir aðeins
fjórðungur barna milli 3ja og
10 ára verið bólusettur við
veikinni, og er ástæðan su, að
framleiðsla brezka bóluefnis-
ins hefir nokkrum sinnum
dregizt saman vegna óhappa,
Heilbrigðisyfirvöldin hafa
ekki leyft innflutning á er-
lendu bóluefni. — Um 600
þús. börn í Bretlandi bíða nú,
eftir að þau verði bólusett.
Lömunarveikin hefur verið
einna skæðust í bílabænum Cov-
entry (263 þús. íbúar), og er nú
vitað um 84 tilfelli, þar af 54
lamanir og eitt dauðsfall. Þing-
maður kjördæmisins hefur beð-
ið heilbrigðisyfirvöldm um auka-
skammta af bóluefni, en fengíð
synjun. Er bent á, að önnur hér-
uð og borgir hafi orðið næstum
því jafnilla úti af völdum veik-
innar og segja heilbrigðisyfir-
völdin, að ef Coventry fái meira
bóluefni en gert er ráð fyrir, þá
muni það koma niður á öðrum
sveitafélögum. Coventry hefur
orðið að sætta sig við þetta og
nú bíða um 5000 börn þar eftir
bólusetningu. Aðems hefur verið
hægt að bólusetja 600 börn á
viku, svo að það líða meira en
tveir mánuðir, áður en öll þessi
börn hafa verið bólusett. Fjögur
ný lömunarveikitilfelli hafa ver-
ið að jafnaði á dag í bænum og
hefur borið á nokkurri ókyrrð
meðal foreldra. Komið hefur tii
mála, að Danir sendu ölium
börnunum i Coventry bóluefni,
en það hefur strandað á brezku
heilbrigðisyfirvöldunum. And-
staða þeirra kemur af því, að
þau eru þeirrar skoðunar, að
brezka bóluefnið, sem franileitt
er eftir fyrirsögnum Salks, sé hið
áhrifaríkasta, sem komið hefur
á markað. Vilja heilbrigðisyfir-
völdin, að brezk börn séu cin-
göngu bólusett með því, það veiti
meira ónæmi fyrir veikinni en
önnur bóluefni.
Á tímabilinu frá 1. janúar til
1. júlí 1957 fengu 2105 Bretar
lömunarveikina, en 1112 á sama
tíma 1955.
Eins og skýrt var frá hér f blaðinu gekk hinn heimsfrægi
celió-leikari, Fablo Casals, sem lifað hefur landflótta síðan
Franco kom á einræði á Spáni, nýlega í hjónaband. — Casals
er áttræður, en brúður hans, Marta Montanez, aðeins 21 árs.
Hún var nemandi hans í celló-leik. Þau giftu sig í San Juan
á eyjunni Puerto Rico, sem er verndarsvæði Bandaríkjanna í
Karíba-hafi. Á myndinni eru brúðhjónin við eftirlætisiðju sína.
Fyrrverandi njósnari
Rússa kom upp um yfir-
mann sinn
NEW YORK — Borizt hafa nánari fregnir af njósnamálunum í
Bandaríkjunum, en eins og kunnugt er, hefir háttsettur njósnari
Rússa, Rudolf Ivanovitsj Abel að nafni, verið handtekinn þar og
Ieiddur fyrir rétt.
Það var annar njósnari Rússa,
Reino Hayhanen, sem kom upp
um Abel, en Reino þessi hefur
dvalizt í 6 ár í Bandaríkjunum
og gaf sig fram við bandarísku
lögregluna fyrir nokkrum mán-
uðum, kvaðst vera rússneskur
njósnari. Bíðan hefur hann hjálp
að bandarísku lögreglunni við
að afhjúpa Abel og njósnahring
hans. f ákæruskjalinu á hendur
Abel eru nefndir þrír samstarfs-
menn hans, G. Pavlov, sem var
áður annar sendiráðsritari í rúss
neska sendiráðinu í Ottawa og
rekinn var úr landi eftir að upp
komst um njósnir Rússa í Kan-
ada 1946, Alexander Mikhailo-
vitsj Korotkov og Mikhail Svirin.
Abel, sem er 55 ára að aldri,
kom til Bandaríkjanna 1948 frá
Kanada og hefur verið njósnari
Rússa síðan.
Kazantzakis lagður
á sjúkrahús í Höfn
Krít fylgir manni
j O
alltaf, segir hann
EITT helzta skáld, sem nú er
uppi, Grikkinn Niko Kazant-
zakis, kom til Kaupmanna-
hafnar á föstudagsmorgun og
var lagður inn á sjúkrahús
samdægurs. — Skáldið hugg-
aði sig þó við það, að hann
fyndi á sér, að Kaupmanna-
höfn væri skemmtilegur bær.
„Hún hlýtur að vera Aþena
Norðursins“, sagði hann, „og
hún gerir mig brátt frískan
aftur og hamingjusaman."
Skáldið var í fylgd með konu
sinni, þegar hann kom til Kast-
rupflugvallar frá Anchorage í
Alaska. Hann hugðist vera í
Kaupmannahöfn til sunnudags
og halda þá áfram til Vínar, en
atvikin hafa hagað því svo, að
hann verður lengur í Höfn en
ráðgert var. Þegar til Kaup-
mannahafnar kom, hafði annar
handleggurinn bólgnað upp
vegna margra bólusetninga, sem
hann hafði orðið að gangast und-
ir, áður en hann fór til Ausíur-
landa. En læknarnir í sjúkrahús-
inu vildu ekki sleppa honum
strax vegna þess að þeir óttuð-
ust, að blóðeitrun mundi hlaupa
í handlegginn.
Fréttamaður danska blaðsins
Dagens Nyheder átti stutt sam-
tal við skáldið:
— Þér komuð yfir Norðurpól-
inn?
— Já, úr mánaðarferð í Aust-
urlöndum, var m.a. í Kína og
Japan.
— Það sprettur kannski bók
upp úr þessari ferð yðar?
— Engin sérstök bók. Ég skrifa
um svo margt. En auðvitað hef-
ur slík ferð sem þessi áhrif á rit-
höfund.
— Þér búið á Krít?
— Nei, ég er fæddur þar — en
eyjan fylgir manni alltaf, svo oð
maður getur farið hvert á land
sem er. Ég bý í Frakklandí, á
strönd Miðjarðarhafs milli Nice
og Cannes. Þar þekkir mig eng-
inn og ég engan — en ég er mjög
hamingjusamur. Úr einveru
sprettur eitthvað — og svo hef
ég líka konu mína hjá mér.
V ★
Eins og íslenzkum bókaunn-
endum er kunnugt, kom Frelsiö
eða dauðann eftir Kazautzakis
nýlega út hjá Almenna bókafé-
laginu.
Kazantzakis í sjúkrahúsi í Höfn.