Morgunblaðið - 11.08.1957, Síða 6

Morgunblaðið - 11.08.1957, Síða 6
6 MORGVTSBL ÁÐ1Ð Sunnudagur 11. ágúst 1957 Efling samtaka skr ifstofu og verzlunarfólks nauðsyn Útvarpsávarp Sverris Hermannssonar formanns Sambands ísl. verzlunarmanna VERZLUN ARM ANN AFÉL AG Reykjavikur er nú næststærsta launþegafélag landsins. Félags- menn þess eru rúm 2 þúsund. í landinu eru nú starfandi 11 félög skrifstofu- og verzlunarmanna á eftirtöldum stöðum: Reykjavik, Akranesi, Borgarnesi, ísafirði, Siglufirði, Akureyri, Neskaup- stað, Rangáryallasýslu, 4rnes- sýslu, Suðurnesjum og Hafnar- firði. Sverrir Hermannsson Eins og kunnugt er var Lands- samband íslenzkra verzlunar- manna stofnað í júníbyrjun sl., fyrir forgöngu Verzlunarmanna- ’ félags Reykjavíkur. Átta féiög stóðu að stofnun sambandsins. Eitt starfandi félag gat ekki mætt til stofnþingsins af óvið- ráðanlegum orsökum. — Siðan Landssambandið var stofnað, hafa tvö ný félög verzlunar- manna verið stofnuð og hafa bæði sótt um inngöngu í sambandið. Félagafjöldi peirra félaga, sem að Landssambandinu standa er á fjórða þúsund manns og má af því marka að hér eru á ferðinni samtök, sem á hafa að sjdpa öflugum liðskosti þegar í byrjun. fslenzkir verzlunarmenn hafa nú loks tekið höndum saman og stofnað heildarsamtök um hags- muni sína. Tilgangur Landssam- bandsins er sá, að efla samtök skrifstofu- og verzlunarmanna, vera málsvari þeirra og hafa á hendi forystu í hagsmunamálum þeirra. Á hvern hátt sambandið hyggst ná tilgangi sínum segir svo í lögum þess: 1. 3. Gangast fyrir stofnun verzl- unarmann^élaga hvar sem er á landinu og gangast fyrir upptöku slíkra félaga í sam- bandið. Hafa sem nánasta samvinnu við þau félög, sem i sam- bandinu eru og styðja þau eftir mætti í hagsmunarnál- um þeirra. Vinna að því að fá fullkomna löggjöf um verzlunaratvinnu og reyna að tryggja að réttur verzlunarmanna sé ekki fyrir borð borinn. Fylgjast með framkvæmdum laga er snerta verzlunarmenn á einhvern hátt. Vinna að því að halda uppi fræðslustarfsemi fyrir verzl- unarmenn, t.d. með því að sjá um að gefnir séu út ritlingar um verzlunarstarfsemi og ennfremur að halda uppi annarri fræðslustarfsemi, t. d. með fyrirlestrum kunnáttu- manna og öðru sem að gagni má koma. Landsambandið hefur þegar haít forgöngu um stofnun tveggja félaga verzlunarmanna, á Akranesi og ísafirði. í undir- búningi er stofnun nýrra félaga á nokkrum stöðum öðrum og er hugmyndin að sjálfsögðu sú, að stofna félög hvarvetna á land- inu. Þar sem dreifbýlla er og verzlunarstaðir fáir, er eðlileg- ast að stofnuð verði félög fyrir heilar sýslur. Fræðslustarfsemi á vegum sambandsins mun þegar verða hafi* á hausti komanda, og mun í byrjun verða lögð áherzla á fræðslu fyrir afgreiðslufólk. Væntir Landssambandið góðrar samvinnu við vinnuveitendur í þeim efnum sem öðrum. Verkefnin sem býða úrlausnar eru fjölmörg. Landssambandið telur það vera eitt helzta verk- efni sitt *ú, að sjá svo um, að allt starfandi skrifstofu- og verzlunarfólk í landinu njóti þeirra miklu hlunninda sem líf- eyrissjóður veitir. Með samning- um V. R. við vinnuveitendur 1955 náðist fram sú krafa, að settur skyldi á stofn lífeyrissjóð- ur vérzlunarmanna í Reykjavík. Nú hefur sjóður þessi starfað á annað ár og er þegar orðinn öfl- ugur. Má meðal annars geta þess, að hafin hafa verið lán úr hon- um til húsabygginga. Eftir að V. R. fékk þessa miklu kjarabót, hafa önnur félög verzlunar- manna fylgt í kjölfarið. Verzlun- armenn gera sér ljóst, að hér er um að ræða eitt mikilvægasta hagsmunamál þeirra. Af þessum sökum og fjölmörgum öðrum ber brýna nauðsyn til að fyrir hendi séu starfandi félög verzlurar- manna um land allt og enginn verzlunarmaður má utan félags- samtakanna standa. Saga hagsmunasamtaka verzl- unarmanna er með nokkuð öðr- um og ólíkum hætti en saga flestra annarra hagsmunasam- taka í landinu. Félög verka- manna, verkakvenna, sjómanna og flestra launþega þessa lands eiga að baki sér áratugagamla sögu harðvítugrar verkalýðsbar- áttu, þar sem hinum sjálfsagða rétti launþegans, verkfallsréttin- um, hefur tíðum verið beitt. Enga slíka sögu eiga félög verzl- unarmanna að baki sér. Fram á þennan dag hafa launþegar og vinnuveitendur í verzlunarstétt borið gæfu til að starfa saman í einlægni og af fullkominnx á- byrgðartilfinningu að lausn vandamálanna. Verzlunarmenn eru stoltir yfir því, að hafa aldr- ei beitt hinu tvíeggjaða verk- fallsvopni og bera þeir þó síður en svo skarðari hlut frá borði í kjaramálum en aðrar stéttir launþega í landinu. Verzlunar- menn gera sér Ijóst, að hagsmun- ir vinnuveitenda og vinnuþiggj- enda fara saman og haga sér sam kvæmt því. Þetta gera og fleiri stéttir sér Ijóst. En það sem hef- ur þó líklega úrslitaþýðingu í þessu sambandi er, að þeir menn, sem beitt hafa hinu skæða verkfallsvopni í pólitískum til- gangi, hafa átt formælendur fáa í röðum verzlunarmanna. Verzl- unarmenn hafa ekki haft af þeim mönnum að segja, sem ekki hafa vílað fyrir sér að efna til stórfelldra verkfalla i þeim til- gangi einum saman að grafa undan stjórnmálalegu og fjár- hagslegu sjálfstæði landsins. — Það er hörmulegt til þess að vita, en þó um leið kaldhæðni örlag- anna, að þegar þessir sömu menn eru seztir að völdum í landinu, þá skuli verkfallsdraug- urinn, sem þeir sjálfir hafa magnað áratugum saman, sækja svo fast að þeim, sem raun ber vitni um nú. Og stórmannlegt er það ekki að vilja kenna öðrum um þá sendingu. Landsamband íslenzkra verzl- unarmanna væntir þess, að sér- hver starfandi verzlunai’maður ir merki þess og skapi því þar og kona í landinu fylki sér und- með möguleika til að hi-inda í framkvæmd hagsmunamálum þeirra og standa vörð um hag þeirra og kjör. — Sambandið treystir þvi, að íslenzkt skrif- stofu- og verzlunarfólk láti ekki stundarhagsmuni ráða orðum sínum og gerðum, heldur byggi kröfur sínar á sanngirni og fylgi þeim fram með fullkomnu tilliti til þjóðarhags. — Landssamband ið væntir samstarfs við aðrar vinnandi stéttir í landinu svo og vinnuveitendur, því að með ein- lægu samstarfi vinnuveitenda og vinnuþiggj enda hlýtur mestu og beztu að verða áorkað til hags landi og þjóð. Landssamband íslenzkra verzl- unarmanna flytur verzlunarfólki heillaóskir á frídegi verzlunar- manna. — Megi starf þess verða til blessunar landi og lýð. KVIK MY N DIR HAFIÐ þið heyrt, að Jeanne Crain og Paul Brinkmann eru búin að taka saman aftur og virð ast aldrei hafa verið hamingju- samari. Jeanne hefur gefið þá yf- irlýsingu að það hafi kostað þau hjónin 100 þúsund dollara að komast að raun um að þau elski hvort annað . . . Rosemary Clooney á von á þriðja barni sínu í október næst- komandi. Hún ku hafa sagt, er hún giftist José Ferrer, að þau hefðu í huga að eignast fjöldann allan af börnum. — Þau virðast ætla að standa við það. Anita Ekberg og Tony Steel eiga við mikla erfiðleika að etja, — hann vinnur að kvikmyndum í Englandi, en hún í Hollywood. — Við viljum vera saman, segir Tony, — en ég vil einnig stunda mína vinnu. — Sagt er að Linda Christian, fyrrverandi frú Tyrone Kainer, prinsinn hennar Grace Keliy, er mjög „pappalegur“ á þessari mynd, þar sem hann heldur á hinni langþráðu dóttur sinni, Karólínu prinsessu. Power, —'lskreyti sig með fleiri og dýrmætari skartgripum nú en nokkru sinni fyrr, enda er nýjasti aðdáandi hennar, Portago mark- greifi, mjög efnaður. — En Tyr- one Power verður samt að greiða þessari fyrrverandi konu sinni svo háan lífeyri, að vafasamt er að hann .hafi nokkru sinni ráð á áð kvænast aftur!!! Marlene Dietrich hefur nýlega fengið sér mjög íburðarmikinn kvöldkjöl, sem saumaður er úr 300 svanabringum. Kjóllinn kost- aði 50 þúsund dollara. Var sex mánuði verið að sauma kjólinn og þurfti að stinga milljón spor til þess að festa niður 227 þúsund perlur, sem einnig skreyta kjól- inn. Sagt er, að Audrey Hepburn ráði öllu í hjónabandi sínu og Mel Ferrers. En hann virðist mjög ánægður með lífið, því út á við lítur svo út, að hann ráði þar öllu. Audrey virðist kunna tökin á karlmönnunum!! Eftirlætissaga Ingrid Bergman um börnin sín, er sagan af þvi, er Robertino, sem nú er 7 ára gamall og gengur í skóla í París, var eitt sinn á gangi og varð á vegi fréttamanns, sem vildi fá við tal við drenginn. Fréttamaðurinn var með hljóðnema, sem hann bar upp að munni Robertino, en hann hristi höfuðið, ýtti frá sér hljóðnemanum og sagði: „Ég neita að tala við fólk, sem ég get ekki séð“! í FYRSTA skipti í sögu kvik- myndabæjarins Hollywood er nú í ár verið að búa til nákvæma eftirlíkingu af hinum fræga rétt- arsal Old Bailey í London, þar sem svo margir hafa verið yfir heyrðir og sekir fundnir. Er það í kvikmyndaveri Samuel Gold- wyn á Formósu-stræti. Þar sem bannað er af skiljan- legum ástæðum að kvikmynda shriFap úr daqlega lifinu R Frá ferffamanni EYKJAVÍK er fjölmennur bær á íslenzkan mælikvaiða. Það er því ekki undarlegt þó að margir ferðist þaðan vítt um ís- land og önnur lönd einnig, því að margir hafa langt sumarfrí. En þá kemur þessi vandaspurn- ing: „Hvert skal halda?“ Mikill fjöldi fólks streymir til útlanda, en ekki ætla ég að ræða hér um þær ferðir. Hins vil ég geta, eins og margir aðrir hafa gert, að ýmsir staðir hér á landi eiga svo sérstaka náttúrufegurð, að slíka er óvíða að finna. Þó nú sé nokkuð liðið á sumar vildi ég með línum þessum benda ferða- fólki á skemmtiferð og dvalar- stað að Búðum á Snæfellsnesi, og er það samkvæmt eigin reyns'u. Þar er ró og næði, gulur sEpidur, mjúkur og sléttur, og hreinn sjór. Hraun, Búðahraun, með berja- lyngi og notalegum grasiautum. Fögur fjöll með konung sinn, Snæfellsjökul, efstan. Tilvalið að fara frá Búðum til ýmissa sér- kennilegra staða í nágrenninu, t.d. Arnarstapa, Hellna og Lón- dranga, og svo gönguför á Snæ- fellsjökul. Þá er nú síðast, en ekki sízt, að það er ágætt að búa á hótelinu að Búðum nú. Hús- ráðendurnir, Lóa Kristjánsdóttir og Friðsteinn Jónsson, sjá um það. Annars sér nú frúin að mestu um reksturinn, því að Friðsteinn þarf í fleiri horn að líta. Matur er framúrskarandi góður og mikill, og viðmót allt aðlaðandi og ljúfmannlegt og góð þjónusta. Þeir, sem lesa þessar línur, verða að trúa því, að þarna er gott og hollt að dveljast, hvort sem er í hótelinu eða hafa með sér tjald og elda eða kaupa veit- ingar, þær sanngjarnt. eru góðar og verð Meira léttmeti VELVAKANDI góður! Ég vildi gjarna biðja yður um að koma á framfæri fyrir mig ósk um smábreytingu á_ kvöld- dagskrá útvarpsins. Ég vinn úti allan daginn og fer snemma í rúmið. Svo þreytist ég á því að lesa alltaf, en ef maður opnar fyrir útvarpið eru alltaf einhverj ir karlar að lesa leiðinleg erindi eða kvæði. Þetta er ekki við hæfi mitt og margra annarra unglinga, sem ég hef talað við um þetta. Væri ekki hægt fyrir útvarpsráð, að láta einhvern vel máli farinn lesa skemmtilega gamansögu einu sinni eða tvisvar í viku, svona um hálftíuleytið? Ég vona að útvarpsráð taki þetta til at- hugunar. Með þökk fyrir birt- inguna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.