Morgunblaðið - 11.08.1957, Qupperneq 7
Sunnuðagur 11. ágúst 1957
MORGVNBLAÐIÐ
1
inni í réttarsalnum í Old Bailey,
ákvað framleiðandinn, Arthur
Hornlow, að fá hinn fræga skreyt
ingarmann og eftirlíkingasnill-
ing Alexandre Trauner, til þess
að byggja nákvæma eftirlíkingu
í miðri Hollywood. í bygginguna
sem kosta mun um 75000 dollara
er notað tré, messing og leður.
Alls eru hliðarborðin 60 talsins,
gólfið er í 19 léttum plötum og
loftið er ein plata, sem fer á sinn
stað með því að þrýsta á hnapp.
Marlene í vitnastúkunni.
í þessu eðlilega umhverfi er nú
verið að kvikmynda leynilög-
reglusögu Agötu Christie
„Witness for the prosecution“. Og
í vitnastúkunni finnum við góð-
kunningja okkar, leikkonuna
gamalkunnu, Marlene Dietrich.
Hún virðist vera gædd ótæmandi
þolinmæði þarna sem hún situr
og segir sömu setninguna í tutt-
ugasta sinn. — En það þarf víst
að hafa þolinmæði til þess að geta
verið kvikmyndaleikari. — En
okkur virðist að svipur hennar
verði ailur léttari og glaðari, þeg-
ar leikstjórinn kallar hátt og
snjallt „Allt í lagi. —Kaffihlé
í 15 minútur".
Þegar Marlene kemur inn í
búningsklefann sinn, er hún
kiædd eins og flestir muna oftast
eftir henni, í aðskorinni dragt, —
vöxturinn, sem er alltaf jafnung
legur nýtur sín vel og fagurlega
lagaðir fótleggirnir eru alltaf
jafnfallegir.
Er hún er spurð að því, hvernig
henni íinnist að standa fyrir
framan kvikmyndavélina aftur,
svarar hún að það sé í rauninni
alveg indælt. Hún segir enn-
fremur að að eðlisfari sé hún löt
og nenni ekki að gefa sig að
einhverju starfi nema hún hafi
sérstakan áhuga á því. — Og
ég hef sérstakan áhuga á kvik-
myndunum, a.m.k. af og til.
— Þér hafið samt ekki leikið
1 mjög mörgum?
— Nei, það er alveg rétt. Og
það er ekki eingöngu leti minni
að kenna. Ég hef nefnilega alit
af verið hrædd við að leika í of
mörgum myndum, því ef fólkið
sér mann of oft, þá verður það
auðveldlega leitt á manni. Síðasta
myndin sem ég lék í, var „The
Monte Carlo Storya“ með de Sica
og ég hafði eiginlega hugsað mér
að láta líða langt hlé þar til ég
byrja aftur, en svo þegar mér
bauðst hlutverk í þessari mynd
sem við erum nú að kvikmynda,
stóðst ég ekki freistinguna. í
fyrsta lagi finnst mér hlutverkið
prýðilegt og í öðru lagi er leik-
stjórinn Billy Wilder, samlandi
minn og mér þykir gott að vinna
með honum.
— Hvernig kunnið þér við yður
í Hollywood?
— Ágætlega, núna þegar ég hef
átt heima hér í svo mörg ár. —
Ameríka er nú orðin annað heim-
ili mitt og ég kann sérstaklega
vel við mig, en ég hef heldur
aldrei haft ástæðu eða löngun til
þess að vera óánægð með Holly-
wood.
(Þýtt).
Krisfján Guðlaugssor
hsesti.réttaríogmaS'ur.
Skrifstofutími kl. 10—12. og 1—5.
Austurstræti 1. — Sími 13400.
Framköllun
Kopierinfr
Hafnarstræti 21.
Fljót og góð
vinna. — Afgr. i
Orlof sbúðinni.
24 - 200
PÁLL S. PÁLSSON,
hæstaréttariögmaður.
Bankastræti 7.
JEinar Asmundsson
hæstaréttarlögmaðui.
Hafsteinn Sigurðsson
héraðsdómsiögmaSur.
Skrifstofa HafnarBtrseú fi.
Sínai 15407.
Verzlunin Varðan
D Ö M U K : Höfum fengið mjög fallegt
úrval af kjólaefnum.
Tískulitir.
Einnig fallegir kjólar í stórum númerum.
Grðsending
til skólnbnrnn í Beykjavik
Börn úr barnaskólum Reykjavíkur eru góðfúslega
beðin að koma á eftirgreinda staði, klukkan 1,30,
þriðjudaginn 13. ágúst, til þess að fagna finnsku
forselahjónunum.
Börn úr Miðbæjarskóla — á leiksvæði skólans
— — Austurbæjarskóla — á leiksvæði skólans
— — Laugarnesskóla, við gömlu Mjólkurstöðina
— — Melaskóla, í Hljómskálagarði við Sóleyjarg.
— Langholtsskóla — við Grænuborg.
—- — Eskihlíðarskóla — á leiksvæði skólans.
— — Háagerðisskóla — á leiksvæði Austur-
bæjarskóla.
Æskilegt er, að böriiin beri íslenzkan fána, ef til
eru, en þau börn sem ekki eiga fána, fá þá afhenta
á ofannefndum stöðum.
Kennarar skólanna eru vinsamlegast beðnir að
koma á þessa sömu staði á áður nefndum tíma.
F. h. undirbúningsnefndar.
Fræðsiustjórinn í Reykjavík.
BERGSTAÐASTRJETI 12 SÍMI 113é7
ÞÓRARINN SIGURÐSSON
Maður um tvítugt með bílpröf og þekkingu á með- j
ferð bifreiða getur fengið •
atviœnn
við benzínafgreiðslu nú þegar. — Upplýsingar á
skrifstofu vorri, Hafnarstræti 5.
OliuvcrzBun íslands hf. ' !
i
Vélritunarstúlkur
Oskum eftir að ráða nú á næstunni nokkrar dug-
legar stúlkur til vélritunar og annarra skrifstofu-
starfa. Málakunnátta nauðsynleg og hraðritunar-
kunnátta æskileg. Umsóknir með upplýsingum um
skólagöngu og fyrri störf ásamt mynd (umsóknar-
eyðublöð fást í herbergi 305, Sambandshúsinu)
sendist
Sambandi Isl. Samvinnufélaga
STARFSMANNAHALD
SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK
Auglýsing
um stöðumæla í Reykjavík
Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Reykjavík-
ur og reglum um stöðumæla frá 1. ágúst 1957, verða
settir upp stöðumælar á eftirtöldum stöðum í
Reykjavík:
Austurstræti, Vallarstræti meðfram Austurvelli,
Thorvaldsensstræti, vestanmegin, Hafnarstræti,
Lækjargötu, vestanmegin götunnar, svo og austan-
megin að Bókhlöðustíg, Lóðinni Austurstræti 2
Kirkjutorgi, Tryggvagötu frá Pósthússtræti að Kalk
ofnsvegi, Bankastræti, Hverfisgötu, Laugavegi,
Skólavörðustíg og lóðinni á horni Tjarnargötu og
Kirkjustrætis.
Samkvæmt 8. gr. reglna um stöðumæla, er skylt
að greiða fyrir afnot stöðumælareits á virkum dög-
um frá kl. 9—19. Á laugardögum er gjaldskyldan
þó aðeins frá kl. 9—-13.
Á götum hefir stöðugjald verið ákveðið kr. 1,00
fyrir 15 mínútur og kr. 2.00 fyrir 30 mínútur og er
það hámarkstími.
Á Kirkjutorgi og lóðunum nr. 2 við Austurstræti
og á horni Kirkjustrætis og Tjarnargötu er gjaldið
kr. 1.00 fyrir hverjar 30 mínútur.
Skylt er að greiða fyrir afnot af stöðumælareit
fyrir hverskonar vélknúin ökutæki. Heimilt er þó
án gjaldskyldu að ferma eða afferma ökutæki, taka
farþega og hleypa þeim út, enda sé það gert án tafar
og þvi hraðað eftir föngum.
Nokkrir af framangreindum mælum verða teknir
í notkun 12. ágúst n.k.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
9. ágúst 1957.
Sigurjón Sigurðsson