Morgunblaðið - 11.08.1957, Síða 8

Morgunblaðið - 11.08.1957, Síða 8
MORCUIVBLAÐIÐ Sunnudagur 11. ágúst 1957 mtfrlðMfe Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Öla, sími 33045 Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480 Askriftargjald kr. 30.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 1.50 eintakið. BYGGINGARMALIN OG ÆSKUFÖLKIÐ TÍMINN heldur öðru hverju áfram að rangfæra til- lögur Sjálfstæðismanna í húsbyggingarmálunum og telur þær lýsa umhyggjuleysi í garð æskulýðs í sveitum. Ekkert er fjær sanni. Sjálfstæðismenn lögðu til, að samningsbundin spariinnlán yrðu undanþegin tekjuskatti og út- svari allt að 5000,00 kr. á ári. Þetta var markviss leið til fjár- öflunar til íbúðarlána, þar sem slíkt skattfrelsi hlaut að vega þungt hjá meginþorra fólks eða því fólki, er hefur miðlungstekj- ur og lægri. Þá var í tillögum Sjálfstæðis- manna lagt til, að hin samnings- bundnu spariinnlán bæru hærri vexti en venjulega innlánsvexti. Ennfremur var í tillögum Sjálf- stæðismanna gert ráð fyrir for- gangsrétti tií íbúðarlána handa þeim, er þátt tækju í hinum samningsbundna sparnaði. Með slíkum tillögum um skatt- frelsi, hærri vexti og lántökurétt var bent á einu raunhæfu leið- ina til að koma á frjálsum sparn- aði í landinu með almennri þátt- töku þjóðarinnar til fjáröflunar til íbúðarlána. Tillögur ríkisstjórnarinnar um frjálsan sparnað, sem nú eru lög- festar með hinum nýju húsnæðis- lögum, eru þýðingarlausar til fjáröflunar til íbúðarlána, þar sem þar er ekki gert ráð fyrir skattfrelsi, hærri vöxtum né for- takslausum forgangsrétti til íbúð- arlána, svo sem fólst í tillögum Sj álf stæðismanna. Þetta er raunverulega viður- kennt af ríkisstjórninni sjálfri með tillögunum um skyldusþarn- að unglinga, sem lögfestar hafa verið. Allar vonir ríkisstjórnar- innar eru sýnilega bundnar við hinn lögbundna sparnað, en eng- ar við hinn frjálsa. Það er mál útaf l'yrir sig, hvert réttmæti er í því að skylda ungl- inga til sparnaðar, svo sem gert hefur verið og hver árangur verð- ur sýnilegur í auknu fjármagni til íbúðarlána. En allt tal um, að unga fólkið sé betur sett nú ep verið hefði eftir tillögum Sjálfstæðismanna, er markleysa. Eftir tillögum Sjálístæðismanna var unga fólkið frjálst. Ef það kaus að spara, átti það bæði að fá skattfrelsið og hærri vexti, svo og forgangsrétt til lána. Æskufólk í sveitum væri betur sett eftir tillögum Sjálfstæðis- manna en núgildandi lögum á sama hátt og annað ungt fólk í landinu. Hitt er í étt, að það hefði getað spillt fyrir sveita- æskulýðnum ef ríkisstjórnin not- aði sér ekki heimild laga til að lána byggingasjóði Búnaðarbank- ans af því fé, sem inn hefði kom- ið með sölu A-bankavaxtabréfa hins almenna veðlánakerfis. Um það væri ríkisstjórnina að saka en ekki tillögur Sjálfstæðis- manna. SKOLI I SKALHOLTI UTAN UR HEIMI [ ÆT Ur ýmsum átfum UPPBYGGING Skálholts- staðar miðar óðum áfram. Nú þegar er orðinn mikill munur að koma til staðarins mið- að við það, sem áður var. Embættisbústaðurinn er snotur bygging og vonandi hagkvæm, þótt vitanlega hafi verið nokkrir örðugleikar á að reisa slíkt hús á meðan enginn vissi, hvert það embætti er, sem sá á að gegna, sem verið var að byggja yfir. Kirkjan er enn hálfköruð. Hún virðist munu verða hin veg- legasta bygging og ef marka má líkan og uppdrætti, mun hún hæfa staðnum vel. Henni hafa þegar borizt gjafir víðs vegar að. Nú síðast mikilsverð gjöf frá tveimur dönskum heiðursmönn- um, þeim Edvard Storr og Louis F. Foght. ★ Hér er því vel af stað farið. Enn er þó eftir það, sem mestu máli skiptir, að kveða á um til hvers eigi að nota staðinn í fram- tíðinni. Ýmsir vilja gera hann að bisk- upssetri. Sú hugmynd mun áreiðanlega valda ágreiningi. Ef fjölgað væri biskupum, mundi seta annars eða eins þeirra í Skál holti mjög koma til greina. En eins og biskupsembættinu nú er háttað, er ærið hæpið, að biskup geti gegnt því svo vel fari, ef hann er búsettur austur í Skál- holti. Þá yrði að gera gerbreyt- ingu á störfum hans. Víst kemur það til mála og er sjálfsagt að athuga allt það mál nánar. Jafnframt er eðlilegt að íhug- uð verði önnur hugmynd, sú, að flytja menntaskólann, sem nú hefur verið settur niður að Laug- arvatni til Skálholts. Sá flutn- ingur þarf engan veginn að brjóta í bág við biskupssetur í Skálholti, ef menn svo vilja. ★ Raun er þegar á það komin, að ekki er allsendis heppilegt að hafa svo marga skóla staðsetta hvern ofan í öðrum eins og eru á Laugarvatni. Menntaskólinn er þar í húsi, sem upphaflega var ætlað til annarra nota. Hús- ið þarf mikilla umbóta og við- bygginga til þess, að það verði nothæft fyrir menntaskóla. Ágreiningur er, hvernig breyt- ingum skuli háttað og þær verða ekki gerðar svo vel fari, nema að kosta offjár til þeirra. Söguleg hefð og minningar segja ótvírætt til um, að mennta- skóli eigi að vera í Skálholti. Með því væri hnýttur þráðurinn við fortíðina og unglingum gefinn kostur á að dveljast viðkvæm- ustu þroskaárin á einum fegursta og sögufrægasta stað íslands. Enginn efi er á, að það umhverfi mundi hvetja marga til dáða, og hafa í heild hin hollustu áhrif. í Skáholti er aðstaðan að engu leyti síðri en að Laugarvatni. Þar er hægt að byggja upp frá grunni með þarfir menntaskólans í huga. Ekki þarf að klastra við gamalt fat til að bæta úr fyrri yfirsjón- um. Hér er um að ræða mál, sem er utan við stjórnmálaerjur, og vonandi sjá allir aðilar, áður en of seint verður, sóma sinn í að gera hið eina rétta. tAÐ er orðið hljótt um Sovét- leiðtogana þrjá, sem hröpuðu úr valdastólunum á dögunum. Fregnir frá Moskvu herma, að Malenkov sé lagður af stað til hinnar afskekktu raforkustöðv- ar í Síberíu, sem hann á að stjórna. Molotov er enn í hinu íburðarmikla skrauthýsi sínu rétt fyrir utan höfuðborgina og hefur sézt í borginni nokkrum sinnum síðan hann „féll“. Sagt Malcnkov er konulaus er, að Krúsjeff hafi að lokum fallizt á að leyfa Molotov að halda skrauthýsi sínu, eftir að margir af nánustu samstarfs- mönnum hans hiöfðu beðið um það fyrir hönd Molotovs. * í náinni framtíð mun Malenkov skilja við konu sína, Elenu, sem er 47 ára gömul. Áður en hún giftist og fyrstu ár hjónabands- ins var hún óperusöngkona við Bolsjoi-leikhúsið í Moskvu. Hjónaskilnaðurinn er byggður á gagnkvæmu samkomulagi, þannig að hún getur verið áfram í Moskvu með tvö börn þeirra hjóna. Hún hefur einnig fengið leyfi til að halda skrauthýsi (dascha) þeirra fyrir utan borg- ina — a.m.k. í bili. Hertoginn selur Hertoginn og hertogafrúin af Windsor fóru í síðustu viku í langa ferð frá París til Cap d’Antibes í Suður-Frakklandi í þeim tilgangi einum að heim- sækja grafreit hunda sinng. Áð- ur en þau lögðu upp, lét hertog- inn selja heilmikið af heimilis- munum sínum og gjöfunum, er hann fékk þegar hann var kon- ungur Bretlands. Meðal þessara gjafa var lítill japanskur skáp- ur, sem hann fékk á sínum tíma frá japanska krónprinsinum, sem nú er Hirohito keisari. Tékknesk smásaga í Prag er þessi saga sögð: Rússneskur ferðamaður kem- ur í kvikmyndahús og biður um miða. Þar sem kvikmyndin er rússnesk, fer hann fram á að fá að borga aðgöngumiðann í rúbl- um. Miðasölustúlkan leyfir hon- um það og réttir honum skamm- byssu með miðanum. — Hvað á ég að gera við hana? spyr Rússinn undrandi. — Salurinn er mjög stór, svar ar miðasölustúlkan. Og það gæti vel verið ,að þér yrðuð hræddur að sitja þar aleinn. Að koma til dyranna eins og maður er klæddur Klæðskerar og verzlanir, sem lána samkvæmisföt í Bonn, höf- uðborg Vestur-Þýzkalands, hafa reiknað það út, að áttundu hver kjólföt eða önnur samkvæmis- föt, sem menn klæðast við opin- berar móttökur í höfuðborginni eru fengin að láni. Misskilningur í náinni framtíð verður hald- ið upp á 200 ára afmæli franska hershöfðingjans Lafayettes. Til að minnast þátttöku hershöfð- ingjans í ameríska frelsisstríð- inu gegn Bretum, ákvað borgar- stjórinn í París að bjóða þangað borgara frá bandaríska bænum Lafayette í Colorado. Gesturinn átti að fá ókeypis ferð fram og til baka, og hann átti að vera sérstakur heiðursgestur við há- tíðahöldin. En borgarstjórinn í Lafayete, C. W. Dinsmore, hef- ur samt kurfeeislega afþakkað þetta veglega boð með tilvísun til þeirrar staðreyndar, að borg Elízabet drottning — hvar á hún að búa? parið dansaði fram hjá henni litlu síðar, brosti hún góðlátlega og sagði aðeins eitt lítið orð: „Snob. . “ Hvar á hún að sofa? Bandarísk blöð eru þegar far- in að skrifa um væntanlega heimsókn Elízabetar Bretadrottn- ingar og hertogans af Edinborg í október í haust. Það er eink- um tvennt ,sem blöðin ræða af miklum hita. Annað þeirra er: eiga bandarískar konur að hneigja sig fyrir drottningunni. Hitt er: eiga drottningin og her- toginn að búa í Hvíta húsinu eða í sérstöku gestahúsi forsetans, Blair House, sem stendur gegnt Hvíta húsinu? Áður fyrr bjuggu tignir gestir försetans alltaf í Hvíta húsinu, en fyrir tveimur árum breytti frú Eisenhower þeirri venju. Þurrkarnir orðnir of miklir DESJAMÝRI, 10. ágúst: — Hey- skapur hefur gengið vel hér und- anfarið. Þurrkar hafa verið góðir og «egja má of góðir, því þeir standa gróðri nokkuð fyrir þrif- um. Þó er túnaspretta nokkuð góð, en útengi eru illa sprottin vegna þurrka. Einnig hefur garða gróðri farið lítið fram og lítur illa út með garðávexti. Segja má að ekki hafi rignt neitt hér síðan snemma í vor, nema smáskúrleiðingar undan- farið o gsums staðar er neyzlu- vatn þrotið. — Ingvar. Myndin er tekin þegar Elízabet drottningarmóðir heimsóttl kon- unglega leikskólann í London fyrir nokkru. Einn nemenda tók á móti lienni með djúpri lotningu, og hvorki hún né skólastjórinn, sir Kenneth Parnes, gátu stillt sig um að brosa. hans er ekki nefnd eftir hinum fræga franska hershöfðingja, heldur eftir nautaræktarmanni frá þessum slóðum, Lafayette Miller. „Snobberí“ Brezka drottningarmóðirin, Elízabet, var fyrir skömmu á hirðdansleik og dansaði þá við ungan liðsforingja. í miðjum dansi varð hún að bregða sér frá til að taka á móti nýjum gestum. Þegar hún kom til baka upp- götvaði hún, að dansherra henn- ar var aftur kominn út á gólfið — í þetta sinn með dóttur henn- ar, Elízabetu drottningu. Þegar Mörg blaðanna eru hins veg- ar þeirrar skoðunar, að gera beri undantekningu á reglunni þegar Elísabet kemur í heimsókn. For eldrar drottningarinnar bjuggu á sínum tíma í Hvíta húsinu, og þegar Truman forseti sýndi Elizabetu, sem þá var krónprin- sessa, húsið, sagði hann, að þar mundi hún einhvern tíma búa sem drottning. Forseti repúblik- ana getur ekki ónýtt þetta loforð segja menn ,ekki sízt þar sem í hlut á Elísabet, sem í augum allra Bandaríkjamanna er „Drottningin". í Hvíta húsinu er nóg rúm: á fyrstu hæð eru tvær auðar gesta-íbúðir og á þriðju hæð eru 15 auð gestaherbergi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.