Morgunblaðið - 11.08.1957, Síða 9

Morgunblaðið - 11.08.1957, Síða 9
Sunnudagur 11. ágúst 1957 MORCVNBLAÐIÐ 9 Frá Helsingfors, höfuðborg Finnlands. Myndin sýnir hátíðahöld á Senatstorginu, sem er hjarta höfuðborgarinnar. Vinstra megin er náskóli borgarinnar, þá bókasafn háskólans og haegra megin Stórkirkjan, sem er frægasta kennileiti borgarinnar. Á miðju torginu er stytta af Alexander II. Rússakeisara, sem veitti Finnum stjórnarskrá árið 1856. REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 10. ág. Heimsókn F innlanclsf orseta HÆTT er við að sumum þyki nokkuð skammt á milli þjóð- höfðingjaheimsóknanna. Hingað til lands kom í fyrra konungur Danmerkur, í sumar konungur Svíþjóðar og nú í þessari viku er von á forseta Finnlands. Þetta fylgir sjálfstæði þjóðarinnar og ber að fagna því, að nágrann- arnir vilja sýna okkur ekki minni virðingu en öðrum. öruggt er, að Finnlandsfor- seti á von á góðum móttökum á Islandi. í fáum löndum er íslend- ingum betur tekið en í Finnlandi. Alveg að því slepptu bera ís- lendingar mjög hlýjan hug til finnsku þjóðarinnar. Hetjubar- átta hennar við grimm Örlög hef- ur vakið aðdáun í brjóstum ís- lendinga um langan aldur. Sög- ur herlæknisins og kvæði Rune- bergs í þýðingu Matthíasar Jochumssonar voru lengi lesin af öllum ungum mönnum. Svo er vonandi enn ,ef ekki, er það tjón þeirra, sem láta það undan fall- ast. —■ Hetjudáðir Finna eru ekki ein- ungis frá fyrri öldum, heldur einnig frá síðustu áratugum. íslendingum er það sannarlega sæmd, að æðsti maður svo ágætr- ar þjóðar ~skuli heimsækja land okkar. Handritamálið Handritamálið er nú mjög um- talað í íslenzkum blöðum og ekki síður dönskum. Ástæðan er sú, að ríkisstjörnin nefur hafizt handa um framkvæmd þingsá- lyktunartillögu þeirrar, sem Pét- ur Ottesen beitti sér fyrir, að samþykkt var á síðasta Alþingi um málið. Of mikið er þó að segja, að málið hafi nú verið endurvakið. Því hefui ætíð ver- ið haldið vakandi. Sigurður Nor- dal sendiherra hefur með stöð- ugri vinnu og samtölum á marg- víslegan hátt greitt götuna fyrfr góðri lausn. Bjarni M. Gíslason rithöfundur hefur unnið ötult starf á öðrum vetvangi og hvatt fjölmarga til umhugsunar um málið og fylgis við sanngjarna úrlausn okkur Islendingum til handa. Eins hafa ýmsir víðsýnir Danir alltaf öðru hverju hreyft málinu bæði opinberlega og manna á milli. Ekki samnmgar um „kompromis44 Málið þurfti að gerjast í hug- um ráðandi manna Dana. Tillaga dönsku stjórnarinnar um lausn málsins 1954 sýndi, að þeir, er að henni stóðu, skildu ekki meg- inkjarna málefnisins. Tillögu sína gerðu þeir heyrum kunna þvert ofan í ráðleggingar ábyrgra ís- lenzkra stjórnmálamanna. E. t. v. hefur þetta þó ekki skaðað, því að undirtektirnar hafa vonandi sannfært alla aðila um, að sú lausn eða önnur hliðstæð kemur ekki til greina. Bollaleggingar í dönskum blöð- um um, að Islendingar muni nú verða fáanlegir til „kompro- mis“, sem þeir vildu ekki áður, eru vonandi gripnar úr lausu lofti. Handritin koma heim áður en yfir lýkur. Á málinu þarf að halda svo að Dönum verði sem sársaukaminnst. Þeir verða að skilja, að hér er fyrst og fremst um að ræða þeirra eigin sam- vizkumál, sem ekki verður leyst með neinum samningum um „kompromis", heldur ber að gera það, sem samvizka góðs drengs segir honum að gera. Beztu listamenn landsins Um þessar mundir er óðum ver ið að halda hin árlegu héraðsmót Sjálfstæðismanna .víðs vegar um byggðir landsins. Mót þessi vekja mikla athygli bæði meðal al- mennings og í stjórnarherbúðun- um. Stjórnarblöðin hafa látið sér riðrætt um mótin að undan- förnu. Alþýðublaðið hefur m.a. haft orð á því, sem rétt er, að Sjálfstæðismenn hafi nú fengið beztu listamenn landsins til þess að koma fram á héraðsmótunum. Þetta er hverju orði sannara. — Söngleikurinn Ást og andstreymi vekur t. d. hvarvetna mikla at- hygli og ánægju, þar sem hann er sýndur. Fyrirfram hefur þess sums staðar orðið vart, að menn hafa óttazt, að hann yrði of þung ur fyrir smekk almennings. — Raunin hefur orðið öll önnur. Jafnvel þar sem skilyrði til sýn- inga hafa verið einna erfiðust, hafa áhorfendur haft oblandna á- nægju af leiknum. Listamennirn- ir vinna menningarstarf með því að leggja á sig þessi ferðalög og Sjálfstæðisflokkurinn á þakkir skilið fyrir að gefa mönnum kost á að njóta svo ágætrai skemmt- unar. Af hverju ekki ræða um stjórnmál? Andstæðingunum er mjög illa við, að Sjálfstæðismenn skuli nota tækifærið til þess að ræða um aðkallandi úrlausnarefni í stjórnmálum dagsins á þessum samkomum sínum. Tíminn segir t. d. fimmtudaginn 8. ágúst sl. svo: „Á héraðsmótum svonefndum, sem foringjar Sjálfstæðisflokks- ins efna til, virðist aldrei vera talað um hin stóru framtíðarmál íslands, um byggingu nýrra at- vinnugreina, stóriðju, ræktun landsins, skógræktina, né önnur þau málefni, sem kveikja eld í brjósti ungu kynslóðarinnar.“ Undarlegt er að heyra þessa umkvörtun úr munni manna, sem nýlega hafa ritað hverja grein- ina eftir aðra til að barma sér yfir, að æskulýðurinn láti sér fátt finnast um þau félagassamtök, svo sem Samvinnuhreyfinguna, er Framsókn hefur helzt reynt að misnota sér til framdráttar. Sjálfstæðismenn þurfa ekki að kvarta undan því, að æskan dauf- heyrist við málflutningi þeirra né skorti eldmóð til að berjast fyrir hinum góða málstað flokks- ins. Hið sívaxandi fylgi æsku- manna um land allt er einmitt eitt ánægjulegasta vitnið um ör- ugga framtíð þessa meginflokks þjóðarinnar. — Sjálfstæðismenn minnast auðvitað oft á þau mál, er Tíminn telur upp og mörg önn ur í ræðum sínum en þeir hafa enga löngun til að leiða huga áheyrenda sinna frá vandamál- um líðandi dags, heldur ræða þau mál. einnig hispurslaust í raunsærri leit að hinu rétta. En á þessi mál má ekki minnast að dómi Tímans. Hann veit, að hver, sem hugleiðir þau af sanngirni og án öfga, hlýtur að undrast þá niðurlægingu, sem nú verandi stjónarflokkar hafa leitt yfir þjóð ina. Tilvitnaiiafölsiin ekki hefur staðið á Sjómanna- félaginu. Farmenn hafa sjálfir mótað kröfur sínar og stjórn Sjó mannafélagsins komið þeim á- leiðis. Hefur í engu verið þar farið að ráðum kommúnista enda ólíklegt að nokkru sinni hefði komið til samningsuppsagnar ef þeir hefðu einhverju um ráðið“. Tíminn notar Kadars-aðferðina Allir þeir, sem grein Morg- unblaðsins lesa, sjá, að um til- vitnun i Alþýðublaðið er að ræða, og því fer svo fjarri að Morgunblaðið hvetji til farmanna verkfalls að í sama dálki blaðs- ins segir: • „Vonandi er-----að ekkert verði úr verkfalli farmanna vegna þess að samningar náist áður“. Ritstjóri .málgagns forsætis- ráðherrans snýr sem sé alveg við skoðunum ritstjóra Morgunblaðs ins. Tileinkar honum ummæli, sem höfð eru orðrétt eftir Alþýðu blaðinu, stuðningsblaði sjálfs forsætisráðherrans. Um þvílikan málflutning er óþarft að fara mörgum orðum. En á meðan stjórnarvöldin hugsa á þennan veg og haga gerðum sínum í samræmi við það, er ekki von að þeim takist að leysa neinn vanda. Þeirra eina úrræði er að loka alveg augunum fyrir raunveru- leikanum og þykjast sleppa úr þeim ógöngum, sem þeir hafa leitt þjóðina í, með því að kenna öðrum um eigin óvirðingar. flatkökur og er verðið á þeim kr. 1,20—1,50 stykkið eða kílóið h.u.b. kr. 14,40—16,40. Ef þetta verð væri talið í vísitölunni í stað þess brauðaverðs, sem reiknað er með, myndi hún verða 202—203 stig í stað þess, að hún hinn 1. júlí sl. var talin 191 stig. Þetta er ekki eini leikur stjórn- arinnar með vísitöluna, því að um þessar mundir er raunveru- legt verð á kartöflum kr. 7,10 kg. í vísitölunni er reiknað með verði á erlendum kartöflum, sem nánast eru ófáanlegar, þó að ör- litlu sé mylgrað til að réttlæta fölsunina, og er verð þeirra kr. 1,40 kg. Svar stjórnarblaðanna við hinu síðasttalda er, að svip- að hafi verið farið að áður. Hvaða afsökun er það? Ætlaði V-stjórnin sér ekki að koma á umbótum einmitt til hags fyrir hinar fátækari stéttir? Einu úr- ræði hennar eru aftur á móti þau að halda við og magna þær til- tektir fyrrverandi stjórna, er hæpnastar voru og helzt mátti gagnrýna með rökum. Tímans Hvernig á öðru vísi en illa að fara, þegar slíkum aðferðum er beitt, sem Tíminn tíðkar. Rétt eitt dæmi þeirra er það, að Tím- inn hefur hvað eftir annað að undanförnu vitnað til þess, að Bjarni Benediktsson hafi í janú- ar haldið því fram, að aldrei mundi hafa komið til uppsagna hjá farmönnum, ef stjórnarliðar hefðu haft meiri ráð í félögum þeirra. Með þessu þóttist Tím- inn sanna, að leiðtogum Sjálf- stæðisflokksins hefði verið mjög hugað um að ltoma farmanna- verkfallinu af stað. Hver er sannleikurinn í þessu? Hann er sá, að í Mbl. 10. jan. 1957 segir blaðið frá grein, sem birtist í Alþýðublaðinu 8. sama mán. Um þessa grein segir Mbl.: „í þessari grein er því harð- lega mótmælt að stjórn Sjó- mannafélagsins hafi verið of lin í kröfugerð fyrir hönd far- manna.“ Síðan tekur Morgun- blaðið orðrétt þessa tilvísun upp úr Alþýðublaðinu. „Af framan sögðu ér ljóst að Bakaraverkfallið Ekki hefur enn tekizt að leysa hið skaðsamlega og hvimleiða bakaraverkfall. Óljóst er, hvað veldur, en sennilega hefur ríkis- stjórnin ekki mikla löngun til að láta húsmæðrunum á ný brauð í té, samanber kjörorð Hermanns Jónassonar. „Betra er að vanta brauð“. Skrif stjórnarblaðanna framan af verkfallinu sýndu og glöggt, að stjórnin var því beinlínis and víg að verkfallinu yrði aflétt. Þá var hamrað á því, hversu hollt væri fyrir húsmæðurnar að fást við heimabakstur. Sýnilega var þá miðað við þær, sem úr nógu hafa að moða, bæði um tíma og peninga. Minna hugsað um hinar, sem nóg erfiðið hafa fyrir. Þær telur Hannibal vera fylgifé sitt, sem eigi að láta sér allt lynda úr því, að hann sjálfur sé ráð- herra. Aukin niður- greiðsla mjólkui Út af fyrir sig er gott, ef stjórn in vildi standa á móti hækkun á brauðverðinu. En þegar 214 eyrir bættust ofan á mjólkur- lítrann vegna kostnaðar við kauphækkun til mjólkurfræð- inga og annarra skjólstæðinga kommúnista, þá gerði stjórnin sér lítið fyrir og tók féð til þess úr ríkissjóði. Niðurgreiðslurnar það an voru einfaldlega auknar svo að almenningur yrði þessarar verðhækkunar ekki var. Auðvit- að segir hún til sín síðar í hækk- uðum sköttum, en þá verður bara Sjálfstæðismönnum kennt um! Bakararnir njóta auðsjáan- lega ekki sömu umhyggju stjórn arinnar og sumir aðrir. Hér er þó ekki fyrst og fremst um að ræða hagsmuni bakaranna sjálfra heldur alls almennings. Brauð- gerðarhúsin starfa ekki einungis til gróða og gagns fyrir bakar- ana, heldur af ríkri nauðsyn al- mennings í nútímaþjóðfélagi. Flatkökurnar og vísitalan Vegna bakaraverkfallsins verða nú margir að notast við Verður Hannibal rekinn? í vetur voru uppi ráðagerðir um það, innan stjórnarflokkanna að hrekja Hannibal Valdimars- son úr ráðherrastóli. Mun flest- um í því liði hafa litizt vel á það ráð, nema sjálfum honum. Vegna forsætis hans í Alþýðusambandi íslands þótti þá ekki ráðlegt að ganga í berhögg við hann. Nú eru raddirnar um það að losna við Hannibal orðnar mjög háværar á ný. Sem fyrr á hann sér for- mælendur fáa meðal stjórnar- herranna. Er honum þó enginn andstæðari en samflokksmaður- inn, Lúðvik Jósefsson. Það er notað sem agn fyrir Hannibal, til að reyna að fá hann úr stólnum, að segja, að vonlaust sé að hann haldi sessi sem forseti Alþýðu- sambands Íslands, ef hann verði áfram í ríkisstjórn, sem fer að sem þessi. Eina ráðið fyr- ir Hannibal sé að losna úr rík- isstjórninni í tæka tíð og reyna að auka veg sinn sém forseti Al- þýðusambandsins með því, að koma fram sem sjálfstæður aðili gegn stjórninni. Enn er þetta í deiglunni og úrslit óviss. Helzt mun í róði, ef úr verður, að Finn bogi Rútur, bróðir Hannibals verði eftirmaður hans. Enda mundu völd ættarinnar ekki bíða verulegan hnekki, ef sá háttur verður á hafður, því að ekki þarf að efa, að góð jata finnist fyrir „socialministeren“. Lítill vegur Lúðvíks Andúð kommúnista sprettur al ýmsum orsökum, ekki sízt þeirri, að Hannibal lýsti við erlenda blaðamenn yfir fylgi sínu við Atlantshafsbandalagið, þvert of- an í yfirlýsingu, ekki aðeins kommúnistaflokksins, heldur sjálfs Alþýðubandalagsins. Eins er Lúðvík Jósefsson honum mjög gramur út af úthlutun atvinnu- bótafjár, sem hann telur nær allt hafa gengið til Eýsteins og kaup- félaganna. Sjálfur segist Lúðvík þar engu hafa um róðið. Óvild Lúðvíks skiptir þó ekki miklu máli í þessu sambandi, því að sjálfur á hann nú mjög í vök að verjast Framkoma hans í far- mannadeilunni gekk fram af öll- um, er til þekktu. Og ekki bætir „humarveiðileyfa“ hneykslið úr, þó að þar eigi Karl Guðjónsson einnig sxnn hlut, að ógleymdum Hermanni Jónassyni. Kommún- istar treysta sér þó ekki til að af- neita báðum ráðherrum sínum samtímis. í stjórninni vilja þeir umfram allt vera, til að njóta þar skjóls á meðan óvirðingin á þeim meðal almennings er jafnrik og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.