Morgunblaðið - 11.08.1957, Qupperneq 15
Sunnuðagur 11. ðgúst 1957
MOF.GVISBI 4ÐIÐ
15
Guðmuisdur Björns-
son níræður
GUÐMUNDUR BJÖRNSSON,
fyrrum bóndi er 90 ára á morgun
Hann fæddist 12. ágúst 1867 að
Gili í Svartardal í Húnavatns-
sýslu, en búskap hóf hann í
Skagafirði árið 1894 og bjó þar
óslitið í hálfa öld, eða til 1944.
Þá fluttist hann til barna sinna
að Reykjakoti í Ölfusi og hefir
dvalizt þar síðan.
Guðmundur kvæntist 1898
Önnu Jóhannesdóttur og varð
þeim tíu barna auðið.. Náðu sjö
þeirra fullorðinsaldri.
Guðmundur fór snemma að
vinna fyrir sér eins og títt var
um unglinga á þeim tíma. —
Fimmtán ára gamail fór hann
fyrst til sjós og næstu tíu árin
reri hann vor og haust við Skaga-
fjörð, en fór til Suðurnesja á
vetrarvertíð.
Guðmundur vann sér virðingu
og traust þeirra, er honum
kynntust. Lífsbaráttan þá var
erfiðari en nú, en aldrei lét Guð-
numdur æðrast. Hann er góður
fulltrúi þeirrar kynslóðar, er
landið byggði um og eftir alda-
mótin.
í dag sendum við, sem Guð-
mund þekkjum, honum hlýjar
kveðjur vináttu og arnaðar.
Vinur,
Stor iniikaupataska
tapaðist í bíl í gær, sunnan
úr Skerjafirði. Skilist á
Þjórsárgötu 1. Sími 15453.
Smurstöðin Sætúni 4
Er flutt í nýtt og belra húsnæði með góðri heim-
keyrslu. —
Þar fáið þið allar tegundir af smurolíu. —
Fljót og góð afgreiðsla. — Sími 16-2-27.
Okkur vantar
V aktmann
Bifreiðasföð Steindors
Sími 11588.
Glœsilegt herbergi
á bezta stað í bænum er til leigu strax. Tilboð send-
ist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir fimmtudags-
kvöld merkt: Hitaveita — 7878.
Lipur
affg reiðsl ustú I ka
TIL SÖLU
Heilt steinhús
við Skipasund. í húsinu er 3ja herbergja íbúð á 100
fermetra fleti ásamt 2 herbergjum og geymslu í risi.
í kjallara hússins er 2ja herbergja íbúð með sér-
inngangi. Íbúðirnar eru í fyrsta flokks standi. Lóð
girt, skipulögð og fullræktuð.
Málflutningsstofa
Sigurður Reynir Pétursson hrl.
Agnar Gústafsson hdl.
Gísli G. ísleifsson hdl.
Austurstræti 14, 11. hæð, símar 19478, 22870.
Silfurtunglið
Gömlu dœgurlogin
leikin í kvöld.
Stjórnandi Árni Norðfjörð
Hljómsveit Karls Jónatanssonar
leikur.
Þar sem fjörið er mest, skemmtir fólkið sér bezt
Op/ð i siðdegiskaffitimanum
Drekkið síðdegiskaffið í Silfurtunglinu.
Silfurtunglið.
Útvegum skemmtikrafta. — Sími 19611 og 18457.
Mér auðsýndan vinsemdar- og virðingarvott á fimm-
tugsafmælinu 7. ágúst, þakka ég af heilum hug.
Þórður Ág. Þórðarson,
Melaskóla.
Vantar
DEKK
Stærð: 975x20. — Sími:
18957, í dag og á morgun.
Óska eítir að kaupa 3ja
herbergja
H ÆÐ
í Norðurmýri eða nágrenni.
Mikil útborgun. Tilboð
merkt: „Norðurmýri 6072“
sendist Mbl. fyrir þriðju-
dagskvöld.
EGGERT CLAESSEN og
GÚSTAV A. SVEINSSON
hæbtaréltarlögmenn.
Þórshamrj við Templarasund.
Félagslíi
Úrslitaleikur Islandsmóts 4. fl.
mánudaginn 12. ágúst á Mela-
vellinum kl. 19.15. — Fram —
Akranes. — Mótanefndin.
Miðsumarsmót 3. fl. B. ——
Sunnudaginn 11. ágúst kl. 10.00
á Háskólavellinum. — Valur —
Fram. Mótanefndin.
Samkomnr
Fíladelfta. — Brotning hrauðs-
ins kl. 4. — Almenn samkoma kl.
8.30. — Allir velkomnir!
Bræðraborgarstíg 34. — Al-
menn samkoma í kvöld kl. 8.30.
.— Allir velkomnir.
Almennar samkomur
Boðun fagnaðarerindisins
Austurgötu 6, Hafnarfirði, á
eunnudögum kl. 2 og 8.
Hjálpræðisherinn
Sunnudag kl. 11: Helgunarsam-
koma. Kl. 16,00: Útisamkoma. Kl.
20,30: Hjálpræðissamkoma. Flokks
foringjarnir stjóma. Hermenn
taka þátt.
óskast strax i blómabúð.
Tilboð er greini aldur og fyrri störf, leggist inn á
afgr. Mbl. fyrir miðvikudag merkt: 7836.
Glæsileg húseign
við Landakot til sölu. Þeir, sem óska uppl. leggi
nöfn sín inn til Mbl. fyrir 15. ágúst merkt: Glæsi-
legur staður — 6069.
Ég þakka af alhug öllum þeim, sem minntust mín á 80
ára afmæli mínu .4. ágúst.
Jigríður Guðmundsdóttir,
Sjólyst, Grindavík.
Öllum mínum ættingjum og öðrum góðum vinum, sem
heimsóttu mig á 90 ára afmælisdegi mínum 7. ágúst sl. og
öðrum fjær og nær sem sendu mér heillaóskir, blóm og
góðar gjafir, færi ég mínar beztu hjartans þakkir.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurjón Guðnason.
Eiríksgötu 2, Reykjavík.
Birtu fer senn að bregða
Ljósnperai af
ölfnm stærðum
frá 15w til 500w
Einnig kertanerur
og kúluperur
raft æ kjadeild
Skólavörðustíg 6. Sími 1-64-41
Útför systur minnar
RAGNHILDAR MAGNÚSDÓTTUR
er lézt á Hafnarfjarðarspítala 5. ágúst fer fram frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði, þriðjud. 13. ágúst kl. 2 e.h.
Fyrir hönd aðstandenda.
Guðjón Magnússon.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarð
arför
JÓHÖNNU STEINSDÓTTUR
Framnesveg 23
Aðstandendur.
Við þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför konunnar minnar
RÓSU GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Patreksfirði sérstaklega skulu færðar þakkir til
lækna og hjúkrunarfólks Bæjarspítala Reykjavíkur, fyr-
ir góða aðhlynningu, sem henni var þar veitt.
Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna og barnabarna.
Jóhann Bjarnason.
Utför föður okkar
KRISTÓFERS KRISTÓFERSSONAR
Skipholti 12, fer fram þriðjudaginn 13. þ. m., kl. 1,30 e.
h. frá Fossvogskirkju.
Björgvin Kristófersson
Björn Kristófersson.