Morgunblaðið - 18.08.1957, Page 2

Morgunblaðið - 18.08.1957, Page 2
s MOHfíVNBt. 4Ð1Ð Sunnudagur 18. ágúst 1957 Höfuðborgarádstefnan: Jóhann Hafstein flutti framsögu erindi um húsnæhismál í gær Landhelgisgæzlan tók við Albert 5. björgunar- og varðskipinu í gær fieð/ð var í röska ’/j klst. Fullfrúarnir skoða Reykjavík og umhverfi í dag í GÆR var annar dagur sjöundu höfuðborgaráðstefnu Norður- landa, hinnar fyrstu sem haldin er hér á landi. Hófust fundir kl. 10 í gærmorgun, og var þá rætt um húsnæðisvandamálin. — Jó- hann Hafstein flutti stutta fram- söguræðu um málið og lagði fram greinargerð fyrir viðhorf- unum 1 Reykjavík. Jafnframt lágu fyrir greinargerðir frá hin- um höfuðborgunum um húsnæðis vandamálin. Jóhann Hafstein kvað fyrir- liggjandi greinargerðir að mörgu leyti merkilegar, þar sem við at- hugun þeirra kæmi fram, að höfuðborgir Norðurlandanna hefðu mörg sameiginleg eða skyld vandamál, en hins vegar væru aðstæður og starfshættir mjög ólíkir á mörgum sviðum. Rétt fyrir síðari heimsstyrjöld virðist hvergi hafa verið neinn teljandi húsnæðisskortur, og víða var framboðið meira en eftir- spurnin. f fyrirliggjandi greinar- gerðum er sleginn sá varnagli, að janfvægið milli framboðs og eftirspurnar eftir húsnæði verði að skoðast í ljósi þess, að kaup- máttur aimennings er nú miklu meiri en áður. Áður var byggt þéttar og íbúðir voru minni en þær eru nú. Húsnæðisskorturinn á síðari ár um er afleiðing hinna marg- háttuðu áhrifa striðsins, sagði Jóhann, og þau hafa ekki verið eins í öllum höfuðborgunum. I>ar sem áhrif stríðsins voru alvarlegust, var húsnæðið lagt í rúst. Annars staðar stöðvuðust byggingar í lengri eða skemmri tíma vegna efnisskorts eða ann- arra orsaka. í Reykjavík hafði stríðið þau áhrif, að fólksstraum- urinn til borgarinnar fór sívax- andi, eins og rakið er í greinar- gerðinni. Þegar byggingar hefj- ast á ný af meira framtaki en nokkru sinni fyrr, koma hinar breyttu efnahagsaðstæður til skjalanna og valda því, að úr- bætur húsnæðisvandræðanna koma seinna en búast hefði mátt við, þar eð fólk gerir í æ ríkara mæli kröfur um stærri og betri íbúðir, en um þetta efni liggja fyrir hinar merkilegustu upplýs- ingar. Jóhann Hafstein kvaðst ekki vilja fara nánar út í samanburð á skýrslum frá höfuðborgunum að svo komnu máli, enda þótt slíkt kynni að vera fræðandi. —■ Það væri ljóst af fyrirliggjandi greinargerðum, að ráðstafanir höfuðborganna i húsnæðismálum væru í mörgu tilliti svipaðar, enda þótt þær hafi stundum verið mjög ólíkar. Benti hann sérstaklega á þær athyglisverðu stökkbreytingar, sem orðið hefðu á byggingamál- um í Kaupmannahöfn að því er snerti þátttöku einstaklinga í byggingum annars vegar en þátt töku borgarinnar og byggingafé- laga hins vegar. Þáttur bygginga félaganna er næstum hinn sami, eða kringum 50%, á árunum 1917—1926 og 1940—1056. Þáttur borgaryfirvaldanna er líka nokk- urn veginn hinn sami á þessum tveimur skeiðum, eða tæp 23%. Aftur á móti sjá sjálfstæðir bygg ingameistarar um 80% bygging- anna á árunum 1926—40. Þetta gæti orðið merkilegt rannsóknar- efni, sagði Jóhann. Samanburður við Reykjavík leiðir í ljós, að þáttur borgar- innar í byggingum er nokkuð jafn, 5,2% á árunum 1931—37 og 5,7 % á árunum 1948—1957. Þáttur byggingameistara og bygg ingafélaga 1 byggingafram- Jóhann Hafstein kvæmdum var 88,3% á fyrra skeiðinu og 91,4% á siðara skeið- inu. Möguleikarnir á öflun bygg- ingalána hafa verið mjög ólíkir, og er Reykjavík í því efni í al- gerri sérstöðu meðal höfuðborga Norðurlanda. Þar sem hinar höf- uðborgirnar virðast hafa haft auð veldan aðgang að ríkislánum, stundum sem nemur 90% eða jafnvel 100% af byggingakostn- aðinum, þá hefur Reykjavík ár- um saman alls ekki átt kost á slíkum lánum, og möguleikarn- ir á lántökum hafa yfirleitt ver- ið mjög takmarkaðir. Að lokum þakkaði Jóhann Haf- stein fulltrúum ráðstefnunnar fyr ir hinar stórfróðlegu og mikils- verðu greinargerðir um þetta mál.Hann kvað fulltrúana mundu fá tækifæri til að kynnast þróun þessara mála hér í borginni nánar með eigin augum, og þannig gætu þeir fengið fyllri mynd af ástand inu í Reykjavík en greinargerð hans og hi» stutta framsöguræða gæfu. Að ræðu Jóhanns Hafsteins lokinni var gert fundarhlé, en klukkan 11.45 fóru fulltrúarnir og skoðuðu fiskiðjuverið. Kl. 12,30 var hádegisverður í Tjarnar café, en kl. 14 komu fulltrúarn- ir aftur saman til fundar í Al- þingishúsinu og hófust umræður um húsnæðisvandamálin. Kl. 19 í gærkvöldi heimsóttu fulltrúar ráðstefnunnar Þjóð- minjasafnið, og hélt dr. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður stutta kynningarræðu. Eftir að safnið hafði verið skoðað, var boðið upp á „kalt borð“, íslenzka rétti. í dag verður Reykjavík og nánasta umhverfi hennar skoðað, en kl. 19,30 í kvöld heldur bæj- arstjóm Reykjavikur fulltrúun- um veizlu í Sjálfstæðishúsinu. Á morgun verður farið í ferðalag til Hveragerðis, Sogsvirkjunar- innar og Þingvalia. Verður snæddur hádegisverður í Skíða- skálanum, en kvöldverður í Val- höll. Ráðstefnunni lýkur á þriðju dag. Hnúðorma hefir ekk- erl orðið varl SELFOSSI, 17. ágúst: — Góð kartöfluuppskera hefur verið á Eyrarbakka í sumar og var snemma byrjað að taka upp. Það sem af er hefur sala á kartöfl- um þó verið lítil til Reykjavík- ur. Aðrir garðávextir eru einnig ágætlega sprottnir eins og gul- rófur. Hnúðorma hefur ekki orðið vart á Eyrarbakka í sumar, enda hefur ekki verið sett niður í þá garða sem þeirra hefur orðið vart í undanfarin ár. Eru Eyrbekking- ar nú að vona að þeir séu algjör- lega lausir við þá plágu. — G.Ó. ,Pressuleikur‘ þriðjud. Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ klukkan 8 fer fram á grasvellinum í Laugardal „pressuleikur" í knattspyrnu. Eru liðin þegar valin. . Landsliðsnefnd KSÍ hefur valið sitt landslið og blaðamenn hafa valið sitt lið. Lið landsliðsnefndar er þannig. Helgi Danielsson Árni Njálsson Guðmundur Guðmundsson Halldór Halldórsson Reynir Karlsson Guðjón Finnbogason Ríkharður Jónsson Sveinn Teitsson Gunnar Gunnarsson Þórður Þórðarson Þórður Jópsson Sem sagt þeð er úrvalsliðið, sem vánn Rússana að því undan skildu að Guðjón Finnbogason kemur í stað Páls Aronssonar sem vinstri framvörður. Blaðamenn kusu í þetta sinn, að láta hina yngri menn fá tæki færið. Það hefur nokkuð borið á því í undanförnum pressuleikum, að því hafi verið lítill gaumur gefinn, þó menn sýndu þar mjög góða leiki og ættu skilið sæti í landsliðinu. Af þessum sökum einna helzt er pressuliðið nú ekki eins sterkt og það hefði getað verið. En hinir ungu menn eru óráðin gáta og falli þeir saman geta þeir leikið vel. — Liðið er þannig: Skúli Nielsen Jakob Jakobsson Fram Akureyri Guðmundur Óskarsson Fram Einar Sigurðsson Hafnarfirði Halldór Sigurbjörnsson Akranesi Ragnar Sigtryggsson Akureyri Páll Aronsson Val Kristinn Gunnlaugsson Akranesi Jón Leóssoa Halldór Lúðvíksson Akranesi Fram Björgvin Hermannsson Val e/f/r 4 ráðherrum en enginn þeirra kom KLUKKAN 10 mínútur yfir 11 í gærmorgun var íslenzki ríkisfán- inn dreginn að hún á varð- og björgunarskipinu Albert. Jón Jóns- son er skipherra á hinu nýja skipi, sem er fyrsta stálskipið, sem íslendingar smiða, en það var fyrir frumkvæði Norðlendinga, með stofnun Björgunarskútusjóðs Norðurlands, sem skipið var byggt. —- Mun það sigla til helztu hafna á Norðurlandi á næstu dögum, og sagði talsmaður Norðlendinga, að þar myndi skipinu verða vel fagnað. — Enginn af þeim fjórum ráðherrum ríkisstjórnarinnar, sem boðið var að vera viðstaddir er þessi athöfn fór fram í gær, kom. — Beðið *■ Varð- og björgunarskipið Al- bert lét úr höfn klukkan rúmlega 10,30, eftir að hafa beðið rúman hálftíma eftir einhverjum hinna fjögurra ráðherra, sem Stál- smiðjan hafði boðið. En þeir létu ekki sjá sig og sendu ekki boð um forföll, né heldur sendu þeir sérstaka fulltrúa sína. Vakti jetta eðlilega athygli og höfðu menn mjög orð á þessu, er Albert sigldi með 12 mílna hraða út af ytri höfninni og stefndi inn á Kleppsvík. Siglt Gestir voru milli 25 og 30 og notuðu þeir tækifærið til þess að skoða skipið stafna á miili. Það var mál manna að skipið væri gleðilegur vottur um trausta smíð, unna af góðum iðnaðar- mönnum á tré, járn og stél. Það var norðan kæla. Loft var skýjað og svalt í veðri. Akkerum var varpað á utan- verðri Kleppsvíkinni og á þil- fari, sem tjaldað var yfir, söfn- uðust gestir saman. Þar kvaddi sér hljóðs fyrstur Jóhannes Zoega, framkvæmdastjóri Lands- smiðjunnar, en það var hún sem boðið hafði gestunum. Erfiffur hlutur íslenzkra skipasmiða Eftir að hafa gert grein fyrir smíði skipsins sagði hann, sem og var samdóma álit annarra ræðumanna: Engum sem skoðað hefur skipið getur blandazt hug- ur um, að hér hefur verið unnið vandað verk og frá öllu gengið eins og bezt gerist meðal ann- arra þjóða. Smíði skipsins hefur veitt okkur dýrmæta reynslu, sagði hann og hann kom nánar inn á þetta atriði, er hann gerði grein fyrir ýmsum erfiðleikum varðandi smíði stálskipa hér á landi, að ófært væri með öllu, að útveganir efnis og tækja erlendis frá, séu tafðar með gjaldeyris- hömlum og tollum og kvað þetta óafsakanlegt á sama tíma og séð er viðstöðulítið um yfirfærslur á greiðslum til smíði skipa erlendis. Hann gat þess i sambandi við smíði þeirra fiski- skipa, sem ríkisstjórnin hefur samið um erlendis, að hún hefði algerlega sniðgengið íslenzk fyr- irtæki, sem auðveldlega hefðu getað tekið að sér smíði skip- anna. Um þetta áttu aðilar tal við ríkisstjórnina, svo og nefnd manna frá járniðnaðarmönnum, en árangurinn af öllum þessum viðtölum hefur enginn orðið enn. En forstjórinn kvað ekki með öllu vonlaust, að þetta mál yrði tekið fyrir á ný, svo að vísir að skipasmíði, sem skaþazt hefur hér á landi, kali ekki og deyi. Jóhannes Zoega lauk máli'sínu með því að biðja varðskipsmenn um að draga ríkisfánann að hún til merkis um að landhelgisgæzl- unni hefði verið afhent skipið. Brauzt nú sólin fram úr skýja- þykkninu stundarkorn, ea Jón Jónsson skipherra dró fánann að hún. Skipinu lýst. Þessu næst tók til máls Pétur Sigurðsson forstjóri landhelgis- gæzlunnar, er lýsti skipinu öllu. Gat hann þess m. a. að í skipinit væru ýmsar nýjungar áður ó- þekktar hér. Kvaðst hann fagna því að geta tekið á móti svo ágætu skipi og færði hann 511- um þeim, sem hlut áttu að máli þakkir. (Lýsing á skipinu birtist síðar ásamt mynd). Þá tók til máls skipaskoðun- arstjóri ríkisins, sem undirstrik- aði nauðsyn þess, að áfram yrði haldið og eigi látið staðar numið í Ssl. skipasmíði, heldur raynt að vinna að lausn málanna þannig, að ísl. skipaiðnaður þróaðist. Þakkir. Guðbjartur Ólafsson forseti S VFÍ tók til máls. Gat hann þess að 24 ár væru liðin fró því að Norðlendingar hefðu bent á nauð syn þess að hafa björgunarskip fyrir norðan. f nafni Norðlend- inga þökkuðu þeir Júlíus Hav- steen, fyrrum sýslumaður og Steindór Hjaltalín en þeir eru báðir framámenn um slysavam- armál á Norðurlandi. Mun Júlíus Havsteen sigla með skipinu til helztu hafna á Norðurlandi á næstunni. Það var komið aftur til Reykja víkur laust fyrir kl. 1 og er gest- ir kvöddu skipherra og skipshöfn báðu þeir skipinu og skipshöfn velfarnaðar í því veigamikla starfi sem framundan er. Athugasemd við athugasemd ÚTAF athugasemd, sem herra Þorbjörn Sigurgeirsson frkv.stj. Rannsóknarráðs Ríkisins hefir gert í blaði yðar í dag, vegna blaðaummæla í sambandi við um sögn þýzkra vísindamanna um Hveragerði o. fl., þá er rétt að gefa eftirfarandi upplýsingar: í bráðabirgða umsögn þeirri, er þýzku vísindamennirnir af- hentu blaðamönnum og rituð er á þýzku — um athugun þeirra á notkun hverahita til lækninga — sérstaklega þó í Hveragerði, er hvergi minnzt á Rannsóknar- ráð — enda áttu þeir aðeins tal við herra Þorbjörn Sigurgeirs- son, sem gaf þeim að sjálfsögðu margar upplýsingar. Annað eða meira var ekki það samstarí — enda ekki eftir því óskað. Hitt er rétt að eg minntist á Rannsóknarráð í samtali mínu við blaðamenn og útvarp — og átti þá við fyrrnefnt samtal. Ýtarlega greinargerð munu þýzku vísindamennirnir gera á næstunni og mun hún send hlut- aðeigandi aðiljum. — 17. ágúst 1957, Gisli Sigurbjörnsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.