Morgunblaðið - 03.09.1957, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.09.1957, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 3. september 1957 MORGUNBL AÐIÐ 11 1 Fyrsta mark Frakkanna. Bakverðirnir Árni og Krisíinn liggja við markstöngina og Cisowski miðherji fær óvaldaður að skora. Á NÍUNDA þúsund manns sáu Frakkland sigra Island í landsleik á sunnudaginn, en það var síðari leikur landanna í undanúrslitum heimsmeistarakeppninnar 1958. Frakkar skoruðu 5 mörk gegn 1 í leik sem var að öðrum þræði leikur hinna glötuðu tækifæra af hálfu íslenzka liðsins og að hinum þræði leikur sem sýndi yfir- burði franska liðsins í tækni, í uppbyggingu og samleik. Eftir tæki- færum hefði leikurinn getað endað 6:3 fyrir Frakka, en eftir sam- leiknum og kunnáttunni í knattmeðferð og fleiru með stærri sig'ri Frakka en raun varð á. Það sem ísl. áhorfendur eru hrifnastir af er frammistaða íslenzka liðsins fyrstu 30 mín- útur leiksins og það sem ísl. áhorfendur eru sárastir yfir, er hversu illa tókst að nýta þau upplögðu tækifæri til marka sem sköpuð höfðu ver- ið, einkanlega þó með mis- heppnaða vítaspyrnu sem ís- landi var dæmd á Frakka. Vonbrigði Eftir mjög stutta og látlausa setningarathöfn sem var fólgin í leik lúðrasveitar á þjóðsöngvun landanna var leikur hafinn í veð- urstillu, 12 gráðu hita og skúrum en sól á milli. Það sem fyrst vakti furðu manna var að ekkert það sást til franska liðsins sem bent gæti á réttlæti ummæla um Ríkharður og Jonquet (fyrir- liðar) skiptast á oddfánum í viðurvist hins ágæta dómara Davidson. það að það væri eitt af beztu knattspyrnuliðum álfunnar. Enda mun keppnistímabil þeirra vera rétt hafið en Ieikmenn hafa verið í tveggja mánaða sumarfríi. Mun því líkt hafa staðið á fyrir þeim nú og fslendingum í Nantes í vor, hvorugir voru í æfingu er þeir sóttu hina heim. En svo aftur sé vikið að leikn- um fyrstu 30 mínúturnar, þá kom á daginn að íslendingar áttu á köflum langar sóknarlotur og ákveðnari leik en Frakkarnir. Sókn þeirra var oft hrundið áður en hættulegt tækifæri kom. En það er sjaldan sem við höfum séð ísl. lið eiga slíkar sóknarlotur að knötturinn hafi mínútum sam- an ekki komið á þess vallarhelm- ing. En hitt er jafnalvarlegt að þegar ísl. lið nær slíkri sókn þa ætti það að skapa einhver tæki- færi. En það kom ekki skot á mark eða að marki svo að kvæði nema 2 fyrsta hálftímann. Rík- harður átti gott skot utan við stöng snemma í leiknum og hann „kiksaði“ illilega síðar er Þórður gaf vel fyrir. Þar fór gott tæki- færi eftir langa en árangurslitla sókn. Er einhverju ábótavant við val framlínu landsliðsnefndarinn ar? ★ Tvö mörk á 3 mín En Frakkarnir tóku leikinn í sínar hendur. Fyrir mikinn klaufa skap í vörn ísl. liðsins fékk Frakk land skorað á 31. mín. Kristinn var kominn úr stöðu sinni yíir til hægri þegar Cisowski mið- herji var óvaldaður (af hverju) fyrir miðju marki og skoraði er bakverðir íslands lágu í valnum. Tveim mín síðar ætlar Kristinn að hreinsa frá en tekst það svo illa að knötturinnlendirtilCisow skis og hann skorar þar sem hann stóð aftur óvaldaður. 2:0 á þrem- — Ljósm. Mbl. Ól. K. M. ur mínútum og þó átti fsland eins mikið í leiknum. Vítaspyrna 3 mín. síðar er íslandi dæmd vítaspyrna vegna hindrunar er Þórður Þórðar var beittur. Fyrir eftir tvö óhappamörk og mis- heppnaða vítaspyrnu, þá fór með iþessum 2 mörkum á 2 mínútum sá vilji og kraftur sem þarf til að ná leik á móti sterkara liði. En Þórð.ur Jónsson, sem vart hafði sézt allan fyrri hálfleikinn varð til þess að kveikja vonar- neista í döprum hjörtum. Á 20. mín. óð hann upp vinstri kant, gaf fyrir og markv. ætlaði að hlaupa og taka sendinguna, en náði ekki og Þórður Þórðar gaf aftur til vinstri þar sem Þórður Jóns kom aðvífandi og skoraði áður en Colonna markvörður hafði aftur komizt örugglega í stöðu sína. 4:1 — vonin óx. Franska liðið hóf leik og áður en það upphlaup var mínútu gam alt sendi Ujalki innherji knöttmn með lausu skoti í stöng og þaðan í netið. Hvað var að Helga að taka ekki 20—25 m skot? 5:1. Mörkin voru upptalin. Þó ísl. liðið héldi uppi sókn síðustu 10 mínúturnar og skapaði sér tækifæri til þess að skora mörk, voru þau öll herfilega misnotuð og það varð ekki leiðrétt að Frakkar fóru með slíkan stórsig- ur úr leik sem var mun jafnari hvað tækifæri snertir en mörkin gefa til kynna. Og það þurfum við að athuga, af hverju ísl. lið fær ekki skorað úr eins mörgum eða fleiri tækifærum og flest er- lend lið skora úr. ★ Liðin Leikur ísl. liðsins fyrstu 30 mín. og síðustu 10 mín. heíði vissulega átt að gefa meira en 1 mark. Þetta getuleysi til að skora Fjórða mark Frakkanna. Útherjinn Wisnieski (7) skaut fast að markinu og Helgi hafði hendur á knettinum — en missti hann í netið. Þarna eru 5 til varnar gegn 2 Frökkum, en samt tókst ekki að stöðva. iiðinn Ríkharður Jónsson spyrnir — en svo Iaust og svo illá að markvörður sem kominn var úr jafnvægi fékk varið. Á örfáum mínútum hafði ísl. liðið fengið á sig 2 mörk og misheppnaðist vítaspyrna. Það var ekki furða þótt úr liðinu drægi máttinn. En þó urðu mörk hálfleiksins sem ísland hafði átt eins mikið eða meira í ekki fleiri. Það er um liugsunarefni hvað olli því. ★ Síðari hálfleikur Upphaf síðari hálfleiks varð svo til að „mænudeyfa“ ísl, liðið. Á 5. mín fékk það á sig tvö mcrk. Hið fyrra skoraði Ujalki með skalla eftir fallegt upphlaup og miðjun Piantonis v. innherja. og hið síðara skoraði Wisnieski með föstu skoti, sem Hélgi hafði hend- ur á en hélt ekki. Þó liðið hefði fengið 10 mín hlé til að jafna sig Ljósm. Mbl. Ól. K. M. Þannig liggjandi fékk Colonna varið misheppnaða vítaspyrnu Ríkharðs. olli vonbrigðum um leið og leik- ur liðsins á sama tíma vakti gleði. Þó líki ég þessum leik ís- lendinga ekki saman við samleik úrvalsins við Dynamo fyrir skömmu, en nú voru í ísl. liðinu það sem kalla má „göt“ í fjórum stöðum. Þar á ég við útherjana, stoðu vinstri innherja og stöðu vinstri bakvarðar. Þessar stöður voru ekki fylltar eins og gera verður kröfu til, þó hver ein- stakur þessara leikmanna er þarna var, hafi áður gert mikiu betur í sömu stöðum. Að minnsta kosti í þessum stöðum verður að skipta um menn fyrir Belgíuleik- inn, því þegar einhverjir hinna „11 beztu“ sem landsliðsnefnd hefur valið til leiks, bregðast. verður að reyna aðra menn. Ann- ars þýðir ekki ungum mönnum að vera að keppa um að komast í landslið. Festist menn í lands- liði sem með hverjum leik vinna sér ekki rétt til áframhaldandi veru þar, hætta aðrir að keppa um að komast í stöðurnar. Óg þá eru engir fyrir hendi þegar landsliðsnefnd loks þóknast að brjóta odd af oflæti sínu og skipta um. Halldór Halldórsson var liðs- ins bezti maður og án hans hefði illa farið. Þar næstan má Reym telja, sem mjög vel byggði upp, einkum í fyrri hálfleik Árni Njálsson átti og góðan leik og einu menn framlínunnar sem eitthvað dugðu í baráttunni voru Ríkharður og Þórður Þórðar, en til hvers að vera svona undar- lega vondur í leik, Þórður Þórð- ar, gerandi ljóta hluti, sem allra reiði vekja? Franska liðið olli vonbrigðum Framh. á bls. 16 Utherjinn Wisnieski ætlaði að gefa fyrir, en Guðjón (6) fékk hindrað. Wisnieski fékk í staðinn svolitla „salíbunu" á magan- um á votu grasinu. — Ljósm. Gunnar Rúnar. Island misnotaði franskt lið vann tœkifœri stórsigur sm 5:1 og óœft

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.