Morgunblaðið - 03.09.1957, Qupperneq 15
Þriðjudagur 3. september 1957
MORCVISBL 4ÐIÐ
15
Framh. áf bls. 11
Islendinga. Það sýndi aldrei
neinn glansandi leik, eins og
menn bjuggust við af einu bezta
liði Evrópu, enda munu nú leik-
menn þess vera að enda sumar-
frí sitt. Aldrei voru menn þó í
vafa um hvort liðið hafði meiri
tækni, meiri hæfileika til árang-
ursríks leiks, meiri uppbyggingu
og betri knattmeðferð. Enda
hefði það atvinnumönnum illa
sæmt að eiga eigi slíkt í ríkara
mæli en mátulega æfðir íslenzk-
ir áhugamenn.
-jr Hófið
Eftir leikinn hélt KSÍ hóf fyrir
knattspyrnuliðin og fleiri gesti.
Þar lýsti Björgvin Schram form.
KSl þessum leik „sem stórkost-
legum sigri íslands". Hann sagði,
„að sigra mætti á annan hátt ’
knattspyrnuleik en með því að
skora mörk. Slíkan sigur hefði
ísl. liðið unnið.“
Við spyrjum: Er það rétt af
forystumönnum knattspyrnu-
hreyfingarinnar að verða svona
ofsaglaðir yfir leik götótts ísl.
landsliðs, sem mistekst að nota
sér ákjósanleg tækifæri til
marka? Væri ekki réttara að láta
mátulega óánægju koma í ljós,
ef ske kynni að mistökin í þess-
um leik yrðu komandi landslið-
um að lærdómi?
Björgvin gerði og gagnrýni
blaðanna á vali liðsins að um-
talsefni og sagði m. a. („án þess
að vilja gagnrýna einn eða
neinn“), „að gagnrýni yrði að
byggjast á heiðarleika, dreng-
skap og kunnáttu".
Ásakaði hann blaðamenn um
að hafa rangfært skoðanir er
fram komu á blaðamannafundi
KSÍ á dögunum og sagði að bezt
yrði að halda slíka fundi á
frönsku, því blaðamenn skyldu
ekki móðurmálið hvort sem væri
.... Jafnframt bað hann blöðin
um vinsamlegt samstarf.
Er þetta réttasta leiðin til sam-
starfsins vinsamlega? Hvað er
eftir í gagnrýni blaðanna (jafn-
vel þó þau séu á einu máli), ef
í hana vantar „heiðarleika, dreng
lyndi og kunnáttu"? Vér spyrj-
um: Er þá nokkuð eftir nema
óheiðarleiki, ódrenglyndi og van-
kunnátta? Var það kannski það
sem meint var um leið og beðið
var um gott samstarf?
Síðar tóku til máls í hófinu
formaður franska knattspyrnu-
sambandsins sem þakkaði fyrir
Frakka og ambassador Frakka,
Voillery, sem talaði um tengsl
Frakka og íslendinga á sviði
íþrótta á undanförnum árum.
A. St.
Dómarinn o<r línu-
verðir vöktu mesta
athygli
HVAÐ mesta athygli á vellinum
á sunnudaginn vöktu dómarinn
R. H. Davidson og línuverðirnir
RAGNAR JÓNSSON
hæstaréllarlogmaður.
Laugavegi 8. — Sími 17752.
Loprfræðistörf. — EignaumsýslH.
Gísli Einarsson
hcraðsdómslögmaöur.
Málfiutningsskrifstofa.
Laugavegi 20B. — Sími 19631.
Kristján Guðlaugssor
hæsturéttarlögmaður.
Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—5.
Austurstræti 1. — Sími 13400.
Hilmar Garðars
hc.'aðsdómslögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Gamja-Bíó. Ingólfsstræti.
samlandar hans skozkir. Ekkert
fór fram hjá þeim það er varðaði
knattspyrnulögin og árvekni
þeirra í starfi, staðsetningar til
að sjá alltaf sem bezt og einstök
aíhygli þeirra, vakti eftirtekt
al'.ra. Þarna eru menn sem kunna
til síns verks. Af þessum mönn-
um mættu ísl. dómarar mikið
læra.
Það gefst og tækifæri til þess,
því að í Þjóðleikhússkjallaran-
um í kvöld kl. 8,30 spjallar
skozki milliríkjadómarinn David
son við dómara um ýmis þeirra
málefni og svarar fyrirspurnum
Allir dómarar eru eindregið
hvattir til að mæta.
Londslíðið ekhi
vnlið enn
SEINT í gærkvöldi var enn óval-
ið í landslið fslands sem leika á
gegn Belgíu annað kvöld. Höfðu
staðið yfir langir fundir innan
stjórnar knattspyrnumálanna, en
liðið hafði þó ekki verið tilkynnt.
Ekkert spurðist um það hvort
uppi væru deilur um val í liðið.
En einsdæmi mun það vera að
yfirstjórn knattspyrnumála til-
kynni ekki með eins dags fyrir-
vara opinberlega landslið er
leika á í heimsmeistarakeppni.
Sínii 1-85-80.
Bílamálun — ryðbætingar.
réttingar — viðgerðir.
BÍLVIRKINN, Síðumúla 19.
SKIPAUTGCB* RÍKISINS
SKJALDBREIÐ
vestur um land til fsafjarðar,
hinn 6. þ. m. Tekið á móti flutn-
ingi til Snæfellsnesshafna, Flat-
eyjar og Vestfjarðahafna, í dag.
Farseðlar seldir á fimmtudag.
HERÐUBREIÐ
austur um 1 ?.nd til Bakkafjarð-
ar hinn 7. þ.m. Tekið á móti flutn
ingi til Hornafjarðar, Djúpavogs,
Breiðdalsvíkur, Stöðvarf j arðar,
Borgarfjarðar, Vopnafjarðar og
Bakkafjarðar á morgun. Farseðl-
ar seldir á föstudag.
SKAFTFELLINGUP
Tekið á móti flutningi tii Vest-
mannaeyja daglega.
Kennsla
Byrja aftur aS kenna.
Ottó Arnaldur Mag.iússon (áður
Weg), Grettisgötu 44A. Sími
15082. —
Samkonur
Fíladclfía
Almennur biblíulestur kl. 8,30.
Allir velkomnir!
BEZT AÐ AUGLfSA
I MORGUNBLAÐINXJ
Simanúmer okkar er
33507
Bílaskálinn hf. við Kleppsveg
Sf. Jósefskóii, Hafnarfirði
verður settur mánudaginn 9. september.
Börn 8, 9, 10, 11 og 12 ára, mæti kl. 10 f. h.
en 7 ára börn þriðjudaginn 10. september kl. 1 e. h.
Skólastjórinn.
Konur! IWunið sér sund fíma
ykkar í sundhöllinni, mánudaga, þriðjudaga, mið-
vikudaga og fimmtudaga klukkan 9 e. h. og í sund-
laugunum kl. 9 f. h. sömu daga.
Konur, lærið og æfið sund og syndið 200 metrana.
Okeypis kennsla.
Sundfélag kvenna.
Höfum fyrirliggjandi
Rennilásar 4—6 mm breiðir, 12—55 cm. langir, opnir
og lokaðir. Ennfremur damask, léreft, lakaléreft og fið-
urhelt léreft. Perlon-sokkar dömu, bómullar og krep-
perlon sokkar herra.
Sloppatölur, léreftstölur, skyrutölur, handklæði, af-
þurrkunarklútar, gólfklútar o. m. fl.
Væntanlegt: Rifflað flauel, mollskinn, mislitt og rönd-
ótt, silki léreft, mislitt þoplin o. fl.
Söluumboð fyrir Verksm. Magni hf.
Jóh. Karlsson & Co.
Reykjavík Hveragerði
Sími 3 47 37. Sími 2 20 90.
Beztu þakkir til allra sem með heimsóknum, gjöfum
og skeytum sýndu mér vinsemd á fimmtugsafmæli mínu
28. ágúst.
Bjarni Kolbeinsson,
Njálsgötu 80.
Öllum þeim mikla f jölda vina og vandamanna f jær og
nær, er heiðruðu mig á hundrað ára afmæli mínu 29.
ágúst sl. með hlýju 'handtaki, heimsóknum, skeytum,
blómum og öðrum gjöfum, minntust mín af hlýhug í blöð-
um og útvarpi, þakka ég af hræðru hjarta og bið algóðan
Guð að launa ogb lessa á ókomnum tímum.
Pétur Hafliðason.
Hjartans þakkir til allra, sem auðsýndu mér vinarhug
með heimsóknum, gjöfum og skeytum á 70 ára afmæli
minu þann 22. ágúst.
Guð blessi ykkur öll.
Stefán Stefánsson,
Árnagerði, Fáskrúðsfirði.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Hlíð,
andaðist 2. september að heimili sínu, Hlíðarbrautlö,
Hafnarfirði. Börn hinnar látnu.
Maðurinn minn og faðir okkar
JÓNAS JÓHANN KRISTMUNDSSON,
andaðist að heimili sínu, Bræðraborgarstíg 55, laugaj,-
daginn 31. þ. m.
María Magnúsdóttir og börn.
Hjartkær sonur okkar og bróðir
RÚNAR G. GUÐJÓNSSON,
Kársnesbraut 23, lézt 31. ágúst sl.
Guðrí-ður Árnadóttir,
Guðjón Jónatansson
og sysíkini.
JÓN SIGFÚSSON
deildarstjóri hjá Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki
verður jaðsunginn miðvikudag 4. september.
Athöfnin hefst á heimili hans, Aðalgötu 13, kl. 2 e.h.
Jórunn Hannesdóttir,
börn og tengdabörn.
Jarðarför eiginmanns míns
GEORGS PÁLSSONAR
sem lézt 25. ágúst, fer fram frá Siglufjarðarkirkju mið-
vikudaginn 4. september klukkan 2.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna
Hólmfríður Guðjónsdóttir.
Eiginmaður minn og fósturfaðir
LÚÐVÍK M. LÚÐVÍKSSON
Kirkjuveg 72, Vestmannaeyjum, sem lézt 25. fyrra mán-
aðar, verður jarðsunginn fimmtud. 5. september. Athöfn-
in hefst með bæn að heimili hans kl. 2 e.h.
Helga Sigurðardóttir,
Dagný Ingimundardóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
GUÐBRÖNDU GUÐBRANDSDÓTTUR
Hjarðarfelli.
Börn, tengdabörn, barnabörn,
og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færi ég öllum þeim, sem auðsýndu
mér samúð og vináttu við fráfall og jarðarför "Inannsins
míns JÓNS EYJÓLFSSONAR,
Fyrir hönd aðstandenda
Þórunn Pálsdóttir,
Fálkagötu 36.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall
INGIBJARGAR BACHMANN JÓNSDÓTTUR,
Aðstandendur.