Morgunblaðið - 03.09.1957, Síða 16

Morgunblaðið - 03.09.1957, Síða 16
197. tbl. — Þriðjudagur 3. september 1957, 2-24-80 2-24-80 Héraðsmót í Eyjafirði Fullkomnasta farþegaþota Rússa kemur til Keflavíkur í fyrsta skipti sem rússneska farþega flugvélin TU-104 flýgur yfir Atlantshafið ÁKVEÐIÐ er, að' fullkomn- asta farþegaflugvél Rússa, TU-104, komi við hér á lanoi á leið sinni yfir Atlantshai. Flugvélin er með tvo þrýsti loftshreyfla, sem eru óvenju lega sterkir og má geta þess, að sérfræðingar á Vesturlönd um gizka á, að hvor hreyfill hafi um 20 þús. punda þrýst- ing. Er það um það bil helm- ingi meiri orka en í venju- legum hreyflum, sem nú eru í notkun. Flugvél af gerðinni TU-104 kom í fyrsta skipti til Vestur- landa með þá Krúsjeff og Bulg- anin, þegar þeir fóru í hina frægu opinberu heimsókn sína til Bretlands. Vélin vakti þá fó- dæma athygli og reyndu sérfróð- ir menn um flug að athuga hana sem bezt þeir gótu, meðan hún var á Lundúnaflugvelli. Ekki hefur slík vél oft sézt á Vestur- löndum síðan þeir Krusjeff og Bulganin voru í Bretlandi, en þó mun flugvél af þessari gerð hafa komið við i Kaupmannahöfn. Flugvélin, sem kemur við i Keflavík, er á leið vestur um haf með rússnesku sendinefndina á þing S. Þ. Ekki getur hún flogið með alla nefndina ‘ einu, svo að ráðgert er, að farnar verði tvær ferðir. Vélin er væntanleg til Keflavíkur á fimmtudagsmorgun og svo aftur einhvern tíma 4 tímabilinu 13.—15. september n.k. Ekki er blaðinu kunnugt um hvort komið verður við á íslandi í bakaleiðinni. Mbl. hefur snúið sér til Björns Jónssonar flugumferðarstjóra og spurt hann um flug þetta. Hann sagði, að Rússar hefðu fyrir nokkru snúið sér til íslenzka ut- anríkisráðuneytisins og beðið um lendingarleyfi hér og hefðu þeir nú fengið það. Hann bætti því við, að við hefðum ekki loftferða samning við Rússa og þegar svo væri, þyrfti sérstaklega að biðja um lendingarleyfi. Björn Jónsson benti á, að þetta væri í fyrsta skipti sem flugvél af þessari gerð flýgur yfir At- lantshafið og mundi hún þurfa að koma við í Lundúnum, þar sem ekki væri fullkomlega öruggt að fljúga beint frá Moskvu til Reykjavíkur, hér væri enginn varaflugvöllur fyrir svo stórar þotur. Þær gætu hvergi lent nema á Keflavíkurflugvelli. Þá sagði hann ennfremur, að Rússar hefðu óskað eftir því, að beint talsamband yrði úr flugturninum á Reykjavíkurflugvelli til Moskvu, en ekki kvaðst hann vita, hver væri tilgangurinn með því. Sennilega vildu Rússar fylgj Austurrískir leið- angursmenn hcr í GÆRDAG tók fólk eftir því r.ð margir útlendingar, alskeggjaðir voru á ferli á götum bæjarins og töluðu þýzku og ensku. Vöktu mennirnir nokkra eftirtekt, sér- staklega vegna skeggsins. Þetta voru þó hvorki Þjóðverj- ar eða Englendingar, heldur aust urrískir Lauge Koch-leiðangurs- menn á leið heim til sín frá Grænlandi þar sem þeir hafa dvalizt undanfarna mánuðj við jarðfræði- og jöklarannsóknir. Nokkrir þessara leiðangurs- manna héldu til Austurríkis héðan í gærdag, en þeir síðustu fara í dag snemma. Höfðu menn- irnir haft lítinn tíma til að láta skera hár sitt og skegg meðan þeir dvöldust á Grænlandi en létu það verða eitt sitt fyrsta verk er þeir komu hingað. ast eins nákvæmlega með flug- inu og þeir gætu. Þeir ættu ekki aðild að Alþjóðaflugmálastofn- uninni og þekkja lítið það fjar- skiptasamband sem hún sér um, þegar um venjulegt flug er að ræða. Björn kvaðst einmitt hafa reynt talsambandið í gærmorgun, en skilyrði hefðu verið slæm og lítið heyrzt. Það stæði þó senni- lega til bóta. Flug þetta hefur vakið mikla athygli erlendis og í fréttum hef- ur verið skýrt frá því. Ákveðið mun vera, að Rússarnir leggi upp frá Moskvu og fljúgi til New York með viðkomu í Lundúnum, Keflavík og í Goose bay á Labra- dor. Þar koma bandarískir loft- siglingafræðingar um borð og stjórna flugvélinni til New York. Flogið verður í 35 þúsund feta hæð og er gert ráð fyrir, að flug- ið taki um 13 klukkustundir. — Flugleiðin er um 5400 mílur. gjaldeyrisbraski kommúnista EINN þátttakendanna í Heims- mótinu i Moskvu, Magnús Þórð- arson stud. jur., segir m. a. í grein, sem hann hefur skrifað um mótið, hér í blaðinu: „Fyrir hvern íslending voru greiddir 4 dollarar á dag í hina 15 móts- daga, eða um 980 krónur alls. Aðra peninga hafa Rússar ekki getað fengið frá okkur með lög- legum hætti, því að það sem um- fram var í yfirfærsluleyfi fyrir hvern íslending, var okkur greitt í dönskum krónum í Ilöfn, og greiddi hver fyrir það sér- staklega hér heima. Þar sem ís- lenzka þátttökugjaldið var 5500 kr. á mann (4700 kr. fyrir söng- fólk) verða því alltaf eftir óút- skýrðar milli 3500 og 4000 kr.. þegar frá er dregið fargjaldið á Drottningunni. — Við skulum samt vona, að þær hafi einhvern veginn komizt til skila. Hvort nokkurt gjaldeyrisbrask fór fram í sambandi við mótið eða ekki, get ég ekki fullyrt neitt um, þar sem mér var ekki boðin þátttaka í því. Hitt er annað mál, að opinskátt var talað um, að 3000 kr. danskar hefðu verið seldar á svartamarkaðsverði í skrif- stofu íslenzku mótsnefndarinnar, en sumir nefndu hærri tölu. — I Moskvu gat svo hver sem viidi keypt rúblur fyrir hina ágætu íslenzku krónu, og er það enn eitt dæmi um gestrisni og kurteisi Rússa. Þó munu þeir hafa fengið „eftirþanka" því að túlk- arnir fjargviðruðust mjög yfir því, að íslendingar keyptu rúbl- ur allra þjóða mest“. Hér er svo langt sem það nær staðfest frásögn Mbl. af gjald- eyrisbraski kommúnista í sam- bandi við Moskvumótið og verð- ur ekki séð, hvernig stjórnar- völdin geta leitt málið hjá sér öllu lengur og skellt skollaeyr- um við háværum kröfum um rannsókn á þvi. Farþegaþotan TU-104 Þórður Jónsson (11) skoraði einasta mark fslands í Iandsleiknum. Markvörðurinn var illa staðsett- nr og varnarleikmenn höfðu ekki minnstu mögdleika að varna marki. Þarna kom gat í frönsku vörnina. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M. í GÆRKVÖLDI var héraðsmót Sjálfstæðismanna í Eyjafirði, í hinu nýja félagsheimili að Frey- vangi í Öngulsstaðahreppi. Var mót þetta mjög fjölsótt og hið ánægjulegasta. Árni Ásbjarnarson bóndi í Kaupangi setti mótið og stjórn- aði því. Bauð hann velkomna langt aðkomna gesti, ræðumenn og skemmtikrafta og þakkáði þeim komuna. Magnús Jónsson alþingismaður, tók fyrstur til máls. Hóf hann mál sitt með því að lofa híð glæsilega félagsheimili og óska íbúum sveitarinnar til ham- ingju með það. Síðan vék hann máli sínu að stjórnmálaástand- inu og ræddi um það á víð og dreif. Benti hann á að núver- andi stjórnarflokkar skömmuðu Sjálfstæðismenn fyrir að skýra fólki frá því sem væri að gerast í stjórnmálum þjóðarinnar, hins vegar vildi stjórnin halda þar öllu leyndu. En það væri sannfæring Sjálfstæðismanna að það væri sannleikurinn einn sem segja yrði þjóðinni um gang stjórnmálanna á hverjum tíma. Ingólfur Jónsson alþingismað- ur ræddi einnig stjórnmálaástand ið í dag. Gerði hann m.a. að um- talsefni vinndeilurnar og efndir stjórnarsinna á loforðum um vinnufrið. Þá benti hann á hvern ig Sjálfstæðismenn hefðu í fyrr- verandi stjórn viljað leysa aðsteðjandi vandamál vegna verð bólgunnar. Hefðu ráðstafanir þær er þeir hefðu lagt til að gerð- ar yrðu kostað þjóðina, sam- kvæmt útreikningi Hagstofunnar á fyrra ári 20—25 miljónir kr. og ef til vill 30 millj. á þessu ári. Hins vegar hefði þjóðin nú fer.g- ið 300 millj. kr. auknar álögur vegna aðgerða núverandi stjórn- ar. Ræðum alþingismannanna var mjög vel tekið. Að loknum ræðum þeirra Magnúsar og Ingólfs var fluttur söngleikurinn Ást og andstreymi eftir Offenbach. Voru söngvarar þau Guðmunda Elíasdóttir, Þuríð ur Pálsdóttir og Guðm. Jóns- son, en undirleik annaðist Fritz Weisshappel. Var þessum létta gamansöngleik mjög vel fagnað og að lokum var stiginn dans. — vig. Moskvufari staðfestir frásögn Mbl. af

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.