Morgunblaðið - 13.09.1957, Page 8
8
MORGXJTSBIAÐIÐ
Föstudagur 13. sept. 1957
roðtntfrfaMfr
Útg.: H.i Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Öla, sími 33045
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480
Askriftargjald kr. 30.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið.
VANDAMÁL LANDBÚNAÐARINS
AÐALFUNDUR Stéttarsam-
bands bænda stendur um
þessar mundir yfir. Eru
þar að sjálfsögðu rædd vandamál
landbúnaðarins, sem mörg hver
eru jafnframt mál er varða þjóð-
ina í heild. Enda þótt framleiðsla
landbúnaðarafurða hafi stórauk-
izt á undanförnum árum með auk
inni tækni, er þó hagur og af-
koma bændastéttarinnar ákaf-
lega m.isjöfn. Búin eru mjög mis-
jöfn að stærð og sama gildir um
arðsemi búpeningsins. Sést það
greinilegast af því að bezti arður
af fóðraðri kind er talinn vera
28 kg. af kjöti en lakasti arður
af kindinni er hins vegar talinn
vera þriðjungi minni. Mesta af-
urðamagn eftir kúna er hins veg-
ar talið vera 3600 lítrar mjólkur
með 4,13% fitu en lakast 1800
lítrar með 3,4% fitumagni.
Af þessu sést það greinilega
hversu geysiþýðingarmikið það
er að unnið sé ötullega að kyn-
bótum á bústofninum og sem
beztri meðferð hans.
Samkvæmt upplýsingum
sem fram komu á Stéttarsam-
bandsfundinum í gær eru rúm-
lega 4000 bændur, sem hafa
það lítil bú, að þau þola nær
enga fjárfestingu. Þessi stóri
hópur bænda hefur minna bú
en gert er ráð fyrir, þegar
reiknaður er út verðlagsgrund
völlur landbúnaðarafurða, en
samtals munu vera rúmlega
6000 bændur í landinu,
Erfiðar aðstæður
Ýmsar ástæður liggja til þess
að búin eru svo smá, sem raun
ber vitni. Heilir landshlutar hafa
fram á síðustu ár verið nær veg-
lausir og ekki átt kost á því að
fá til sín stórvirkar ræktunar-
vélar. f þessum héruðum hefur
ræktunin gengið of hægt til þess
að búin gætu stækkað svo nokkru
næmi. En aukin ræktun hlýtur
ávallt að verðá frumskilyrði
bættrar afkomu og aukinnar
framleiðslu í sveitum landsins.
Þá hefur fólksleysið undanfar-
ið sorfið að bændum í flestum
landshlutum. Hefur það átt rík-
an þátt í því að hindra myndun
stórbúa í íslenzkum sveitum. En
að því verður hiklaust að keppa
að skapa hér aðstöðu til stórbú-
skapar, sm víðast um landið. Án
hans verður erfitt að gera land-
búnaðinn að þeirri kjölfestu í
þjóðlífinu, sem hann þarf að vera.
Skortur á stofnfé
Enda þótt ungir menn séu
mjög hvattir til þess um þessar
mundir að hefja búskap, verður
því þó alls ekki neitað að skil-
yrðin til þess eru engan veginn
eins góð og æskilegt væri. Til
þess að kaupa jörð, vélar og bu-
stofn þarf mikið fjármagn. Engin
sérstök lánastofnun hefur það
sérstaka hlutverk slt lána frum-
býlingum til bústofnunar. Veð-
deild Búnaðarbankans er aðeins
veikur vísir að slíkri starfsemi,
en er í raun og veru sáralítils
megnug í þessum efnum.
Það er eitt mesta vandamál
bændastéttarinnar í dag,
hvernig úr þessu verður bætt.
Það er ekki nóg að efla þá
• sem nú búa í sveitum lands-
ins til ræktunar og byggingar-
framkvæmda, ef örfáir menn
hafa aðstöðu til þess að taka
við jörðunum síðar.
í þessum efnum verður að
vinna af meiri framsýni og hygg-
indum en áður hefur verið gert.
Fjölbreyttari framleiðsla
Á það verður einnig að leggja
aukna áherzlu, að gera fram-
leiðslu íslenzkra landbúnaðaraf-
urða fjölbreyttari en hún er í dag.
Svo er nú komið að innanlands-
markaðurinn tekur ekki við nánd
ar nærri öllu því magni, sem
framleitt er af mjólkurafurðum
og kindakjöti. Segja má að vísu
að bændur eigi sama rétt á því
og aðrir framleiðendur að ríkis-
sjóður verðbæti þann hluta af-
urða þeirra, sem út er fluttur.
Engu að síður verða bændur að
freistast þess að haga framleiðslu
sinni nokkuð með tilliti til hins
erlenda markaðar. Þess vegna
bendir margt til þess að skynsam-
legt sé, eins og vakin hefur ver-
ið athygli á, að auka hér verulega
ræktun holdanautgripa, sem lík-
legt er að verði útgengilegri vara
á erlendum mörkuðum en ísl.
kindakjöt.
Trúin á landið
Enda þótt margvíslegir erfið-
leikar, svo sem sífelt vaxandi
dýrtíð og skortur á fjármagni og.
fólki, blasi við íslenzkum bænd-
um í dag, er þó síður en svo á-
stæða til þess að örvænta um hag
landbúnaðarins á Islandi. Hér
hafa á skömmum tíma orðið stór-
felldar framfarir. Ein eða tvær
kynslóðir hafa lyft Grettistökum
á sviði ræktunarmálanna, sem
þjóðin í heild mun um langa
framtíð njóta góðs af. fslenzkar
sveitir eru í dag betri og byggi-
legri en nokkru sinni fyrr. Kapp-
hlaupið um skjótfenginn gróða
hefur að vísu villt mörgum sýn
á síðustu árum. Þrátt fyrir það
er trúin á landið, arð moldarinn-
ar og hins skapandi ræktunar-
starfs, þróttmikil og lifandi í
brjóstum þúsunda dugmikilla
manna. Ef forystumenn þjóðar-
innar sýna skilning á þörfum
landbúnaðarins, mun hann halda
áfram að blómgast. Hann mun
tryggja þjóðinni holl og nauðsyn
leg matvæli, um leið og gamall
menningararfur heldur áfram að
ávaxtast í sveitum landsins.
Nýi verðlagsgrund-
völlurinn
Um hinn nýja verðlagsgrund
völi iandbúnaðarafurða, eru
sjálfsagt skiptar skoðanir.
Margir bændur munu teija
hann sér mjög óliagstæðan,
aðxir telja hann sér sæmilega
hagstæðan. En hann er ávöxt-
ur samkomulags milli fulitrúa
neytenda og framleiðenda. Sú
staðreynd verður hins veg-
ar ekki sniðgengin, að hratt
vaxandi dýrtíð bitnar í dag
harkalega á bændastéttinni,
sem viðurkennd er sem spar-
samasta og hófsamasta stétt
landsins.
ÖR HEIMI
J
Alvarlegar horfur hjá
norskum sjávarútvegi
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi grein frá norska
blaðamanninum Ketil Jamte
Einrem:
„EKKI alls fyrir löngu átti
norska stjórnin fund við full-
trúa norskra sjávarútvegsmanna.
Vandamálin, sem fyrir fundinum
lágu, voru alvarleg. Nú er svo
komið, að grípa verður til rót-
tækra aðgerða til að bjarga norsk
um sjávarútvegi. Að öðrum kosti
má ganga út frá því sem vísu, að
sjómenn geri alvöru úr hótunum
sínum um verkfall. Það leiðir
ekki aðeins til þess, að Norð-
menn fá lægri tekjur af útflutn-
ingi, heldur munu keppinautar
þeirra á hinum alþjóðlega fisk-
markaði án efa kunna að hag-
nýta sér möguleikana meðan
norsku fiskiskipin liggja við
bryggju.
Forsaga
Forsaga þessara ^rfiðleika er
sem hér segir:
Eftir að nokkrar vertíðir hafa
brugðizt, er norskum sjómönnum
orðið það ljóst, að þeir hafa
dregizt aftur úr í velmegunar-
þróun Noregs. Þess vegna krefj-
ast þeir uppbóta í hærra fisk-
verði. Hins vegar hefur fram-
leiðslukostnaður aukizt svo mjög
í Noregi, að margar vörur eru
orðnar alltof dýrar fyrir erlend-
an markað. Og 85% af öllum
fiski, sem Norðmenn veiða, eru
flutt út.
Hallarekstur
Ef síldinni er sleppt, nam hall-
inn á fiskútflutningi Norðmanna
í fyrra um 50 milljónum norskra
króna. Horfurnar á þessu ári eru
sízt bjartari. Einu fiskafurðirnar
sem hægt verður að flytja út
hallalaust eru saltfiskur. Allar
áðrar fiskafurðir eru greiddar
niður úr Fiskverðjöfnunarsjóðin-
um en hann hefur alls haft
um 250 millj. króna tekjur árin
eftir stríðið. Hinn 1. júlí í
ár voru eftir í sjóðnum aðeins 53
milljónir króna, og búizt er við,
að í lok þessa árs verði sjóður-
inn þurrausinn. Það eru vanda-
málin, sem skapast munu við það
sem stjórnin hefur nú rætt við
fulltrúa sjávarútvegsins.
Sjómenn hafa gefið í skyn, að
þeir vilji fá ríkistryggt lágmarks-
verð og tryggingu fyrir ákveð-
inni sölu' til að geta búið við
sæmileg lífskjör. En hvernig á
að greiða þetta, þegar sjóðurinn
er þurrausinn, ef markaðshorfur
batna ekki? Útlitið fyrir betri
markaði er ekki heldur bjart. Þá
er ekki annað eftir en greiða
niður fiskútflutninginn úr ríkis-
sjóði — annaðhvort beint eða
óbeint með því að veita styrki til
beitukaupa, eldsneytis, veiðar-
færa flutninga o s. frv.
fyrir kosningarnar til Stórþings-
ins 7. okt. Ástæðan er nefnilega
sú, að margir ráðherranna, þeirra
á meðal sjávarútvegsmálaráð-
herrann, virðast ekki hafa neina
sérstaka trú á tillögunni. Þeir
óttast, að ríkisrekstur útflutn-
ingsins muni aðeins torvelda
lausn núverandi vandamála og
e. t. v. skapa ný.
Vilia aukið frelsi
Fáir atvinnuvegir hafa verið
jafnbundnir reglum og lögum eft-
ir stríðið og sjávarútvegurinn.
Fiskframleiðendur og útflytjend-
ur hafa yfirleitt greitt meira en
lágmarksverð, en mestur hluti
milliliðagróðans hefur farið í
Fiskverðjöfnunarsjóðinn sem út-
flutningsgjöld. Meðal þeirra
sjávarútvegsmanna, sem ekki eru
alltof mikið á snærum stjórnar-
innar, er nú sívaxandi skilning-
l ur á því, að veita þurfi atvinnu-
lífinu meira frelsi. Þeir benda á,
að eftir stríð hafi verið strangar
reglur og eftirlit með framleiðsl-
unni, og árángurinn sé sá, að nú
standi menn gagnvart óyfirstíg-
anlegum erfiðleikum.
Ný stjórn mundi auka
frelsið
Hins vegar er lítil ástæða til
að gera ráð fyrir því að stjórnin
muni áræða að ganga í berhögg
við róttækustu stuðningsmenn
sína með því að slaka á taumun-
um. En sá möguleiki er fyrir
hendi, að eftir kosningarnar í
haust verði stjórnarskipti, og það
er hafið yfir allan vafa, að stjórn,
sem lýtur ekki leiðsögn Verka-
mannaflokksins, mun leitast við
að skapa aukið frelsi í sjávarút-
veginum, sem er Norðmönnum
svo mikilvægur.
Víkkun landhelffinnar
Sums staðar í Noregi er því
haldið fram, að víkkun land-
helginnar í 12 mílur og frjálst
viðskiptasvæði í Evrópu séu einu
möguleikarnir, sem Norðmenn
hafi til að skapa þolanlegt ástand
í sjávarútvegi sínum. En eins og
menn vita, er það mikið vafamál,
að fiskur verði tekinn með, ef
frjáls verzlun í Evrópu kemur
til framkvæmda, og það er líka
óráðin spurning, hvernig norsk
stjórn mundi snúast við, ef til
þess kæmi að víkka landhelgina.
Líða mun enn nokkur tími, áður
en það vandamál verður útkljáð
í hinni sérstöku nefnd S. Þ., sem
fjallar um þetta erfiða vanda-
mál.
Deilt um víkkunina
í Noregi eru menn engan veg-
inn á einu máli um víkkun land-
helginnar. Sjómenn í Norður-
Noregi virðast vera hlynntir hug-
myndinni, því þá mundi meiri-
hluti hinna útlendu togara, sem
halda sig við strendur Noregs,
hverfa og þessi físksælu mið
geymd handa Norðmönnum ein-
um. Með því mundu möguleik-
arnir á aukinni fisksölu til Eng-
lands, Frakklands og Þýzkalands
einnig aukast, þar sem með því
er reiknað, að þessi lönd geti ekki
stundað fiskveiðar svo nokkru
nemi á Barentshafinu einu saman,
þar sem öll skilyrði eru mjög
ótrygg.
Sjómenn í Vestur-Noregi eru
hins vegar lítið hrifnir af víkkun
landhelginnar. Þeir reikna með
því, að Noregur verði ekki eina
landið, sem víkkar landhelgi
sína, heldur muni önnur lönd
gera slíkt hið sama. Það kynni að
leiða til þess, að fiskveiðar Norð-
manna í fjarlægum höfum drægj-
ust mjög saman eða stöðvuðust
með öllu.
Leysir ekki vandann
Hvaða afleiðingar víkkun land-
helginnar kann að hafa fyrir
norskar siglingar yfirleitt, er
ekki heldur ljóst ennþá. Það er
a. m. k. hægt að slá því föstu,
að þeir, sem vona, að 12 mílna
landhelgin muni leysa öll fisk-
veiðivandamál Norðmanna í einu
vetfangi, eru heldur um of bjart-
sýnir. Það þarf áreiðanlega rót-
tækari aðgerðir til þess, og þeg-
ar líður á haustið mun koma í
ljós, hvaða aðgerðir þykja beztar
í bili. Hins vegar er það augljóst
mál, að Norðmenn geta ekki leyst
vandamál sjávarútvegsins á
skömmum tíma — nema því að-
eins að markaður batni skyndi-
lega. En því miður bendir ekkert
til að það muni gerast.
Svíar hækka tollana
Hinir raunverulegu erfiðleikar
hafa annars haft það í för með
sér, að hlaupið hefur smásnurða
á þráðinni milli Svíþjóðar og
Noregs. Eftir styrjöldina hafa
Norðmenn byggt upp nýtízku
iðnað fyrir frystan fisk, og selja
þeir að jafnaði árlega um 3000
tonn af frystum fiskflökum og
fiskbollum til Svíþjóðar. En með
tilliti til hagsmuna sænskra fisk-
framleiðenda, hafa sænsk yfir-
völd lagt svo háa tolla á inn-
fluttan frystan fisk, að telja má
næstum ókleift að selja þessar
afurðir þangað. Norskir sölu-
menn gera ráð fyrir því, að með
lækkuðum tollum gætu Norð-
menn selt nágrannaþjóðinni a.
m. k. 10.000 tonn af frystum fisk-
afurðum árlega. Mundi það hafa
mikla þýðingu fyrir sjávarútveg-
inn og fiskframleiðsluna í Noregi,
en eins og sakir standa virðast
Svíar ekki ætla að lækka toll-
ana. Sænskir sjávarútvegsmenn
hafa meira að segja heimtað enn
hærri tolla til að minnka inn-
flutninginn. Utanríkisráðuneyti
landanna hafa rætt málið, en án
endanlegs samkomulags enn sem
komið er“.
Fágaður Ijóðaflutningur
Sumir vilia ríkisrekstur
En þetta eru ekki einu vanda-
málin,' sem norskur sjávarútveg-
ur stendur andspænis. Fiskimála-
sérfræðingar Verkamannaflokks-
ins hafa einnig beint skeytum
sínum að útflytjendum og sagt
sjómönnum, að margir af erfið-
leikunum mundu hverfa, ef út-
flutningurinn væri í höndum ríkis
ins eða einhverrar stofnunar á
vegum þess. Sjávarútvegsmála-
ráðuneytið skipaði ekki alls íyrir
löngu nefnd, sem komst að þeirri
niðurstöðu.
Ríkisstjórnin hefur hins vegar
ekki enn tekið afstöðu til tillög-
unnar, og mun tæplega gera það
í STÓRBORGUM Evrópu telst
það mikill tónlistarviðburður er
ljóðaflokkur Mullers og Franz
Schuberts „Die schöne Muller-
in“ er fluttur í heild á opinberum
tónleikum. Aðeins hámenntaðir
listamenn ráðast þar í það að
flytja þetta mikla verk, sem gerir
geysimikla kröfu til músikþroslca
og söngkunnáttu.
í Reykjavík er það stórviðburð-
ur og aðeins á færi félaga, sem
eiga innan sinna vébanda mikinn
fjölda þroskaðra áheyrenda.
Meðferð Hermanns Prey og Guð
rúnar Kristinsdóttur á þessu dá-
samlega rómantíska verki var
yfirleitt með afbrigðum góð.
Hverju orði, hverri línu og lagi
var gefið innihald, sem oft nálg-
aðist fullkomna listræna túlkun.
Sama mátti segja um samstarfs-
mann söngvarans undirleikarann
Guðrúnu Kristinsdóttur. Guðrún
er augsýnilega efni í mikla lista-
konu.
Hermann Prey er aðeins 28 ára
gamall, en hefir náð leikni og
þroska í meðferð ljóðs og lags,
sem nágast að vera einsdæmi um
mann á þessum aldri.
Vikar.