Morgunblaðið - 29.09.1957, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 29.09.1957, Qupperneq 3
Sunnudagur 29. sept. 1957 3 HtORGVNBÍ. AÐÍÐ Úr verinu Þórir Þórðarson dósenf: Postulleg kirkja Togaramir Tíðin var góð hér við land þessa síðustu viku, engin frátök hjá togurunum þrátt fyrir all- snarpa vestanátt síðarihluta vik- unnar. Við Grsenland var einnig gott fiskiveður. Á heimamiðum hefur verið sæmilegur afli og hjá sumum á- gætur eins og Þorsteini Ingólfs- syni, sem kom inn í fyrradag með nærri fullfermi, 240 lestir, og fór rakleitt til Þýzkalands. Við Grænland hefur afli verið misjafn. Tvö skip, Neptúnus og Marz, fengu þar uppgripaafla á svonefndum Banan-banka, norð- arlega við Vestur-Grænland um 1100 mílna siglingu frá íslandi eða álíka vegalengd og til Hull. Fengu skipin fullfermi, um 350 lestir, á tveimur sólarhringum, allt karfi. Það er víst vart hægt að koma meiri afla niður í farm- rými togara á styttri tíma. Skip hafa reynt þarna áður og fengið þar góðan afla, en ekki eru þetta víðáttumikil mið, a.m.k. hvað karfann snertir, og ekki fengu tvö skip, sem komu þarna rétt á eftir, afla, en það má vera, að veðrið hafi átt þar nokkurn þátt i. Fisklandanir sl. viku: Skúli Magnúss. 248 tn 16 dagar Marz 321 — 11 — Neptúnus 349 — 12 — Samtals 918 tn Sölur erlendis: Karsefni 224 tn DM 123 þús ísborg 132 — — 81 — Vöttur 200 ------ 117 — Reykjavík Síðarihluta vikunnar hefur verið ótíð, þó hafa netjabátarnir vitjað um annan hvern dag, og hefur afli verið um 2 tonn í róðri. Nokkrir hafa skroppið út með handfæri, en afli verið sáratreg- ur, einn bátur, Happasæll, komst hæst upp í 1100 kg. yfir daginn. Keflavík Síldarbátamir hafa ekki farið út síðustu daga vegna vestan storm-streKkings. Aðfaranótt laugardagsins var ætlunin að róa og nokkrir fóru af stað, en sneru aftur. Fyrrihluta vikunnar, sem róið var. var afli rýr eins og áður. Kinn eða tveir bátar fengu 3d— 40 tunnur í róðri síðast, þegar farið var út á miðvikudaginn, en hi íir voru með minna og sumit ekki neitt. Sjómenn segja margt, en fátt gott um síldveiðarnar, en flestir búast þó við síld í næsta straum kringum 10. október. Nú þegar allir tala um síldar- leysið, er ekki ófróðlegt að rifja upp, hvað sagt var í „Verinu'* um síldaraflann um þetta leyti í fyrra. Þann 7. október segir: „Enginn bátur hefur lagt fyrir síld í vikunni, en handfærabátar mældu mikla sild og fengu fal- lega síld á færi“. „Vélbáturinn Böðvar varð síld ar var í vikulokin, hafði fengið % tn. í net og orðið viða var við þó nokkra síld á dýptarmælinn við Reykj anesskerin“, Akranes Ekki var róið þrjá síðustu daga vikunnar, þó fóru 6 bátar á sjó aðfaranótt laugardagsins, en ein- hverjir þeirra sneru aftur vegna veðurs. Það var róið tvo daga fyrri hluta vikunnar, og var afli rýr, annan daginn 15 tunnur að með- alafli á bát og hinn 30 tunnur. Öll síld hefur verið söltuð fram að þessu. Báðir togararnir eru úti á veið um, og hefur aflazt heldur illa, eftir þvr sem frétzt hefur. V estmannaey jar Sjóveður voru aðeins þrjá fyrstu daga vikunnar, á fimmtu-' dag gerði allhvassa suðvestanátt og frátök. 5 vélbátar róa nú orðið með línu, og hefur afli verið 4—5 lestir á 30 stampa. Hjá trillunum hefur verið rýr afli á linuna, 300—500 kg í róðri. Handfærabátar hafa aflað sæmilega sumir hverjir, en mis- jaínt, komizt upp í 8 lestir yfii daginn, allt ufsi. Allflestir reknetjabátarnir, er voru syðra, eru komnir heim og bíða nú betra veðurs, en surnir fara tkki út attur fyrr en afli glæðiiit, Mesta vandamálið Menn standa andspænis því, að afli minnkar árlega hér við land, ekki aðeins á línu og í botn vörpu, heldur einnig í þorskanet. Er þó alltaf verið að hverfa meira yfir í fínni og veiðnari net. Ef nú væru notuð hampnet, eins og fyrir nokkrum árum, sæist varla fiskur í net. En þrátt fyrir þessa augljósu staðreynd, neita menn að viður- kenna hana og kjó&a heldur að lifa í skýjaborgum vonarinnar, þar sem þeir sjá meiri og meiri afla, helzt á borð við það, sem var áður en ofveiðin sagði jafn greinilega til sín og nú. Það er gott að vera bjartsýnn, þegar það á við. En bjartsýni, sem verður til þess að draga á langinn nauðsynlegar aðgerðir, sem mættu verða til þess að forða enn meira tjóni, á ekki rétt á sér. Sé um ofveiði að ræða á mið- unum, er ekkert líklegra en afli minnki í vetur frá því, sem hann var í fyrravetur, en þá var hann 20% minni en árið áður. Og hvernig stendur sjávarútvegur- inn eftir aðra slíka vertíð eða verri? Það er tvennt, sem hægt er að gera til að mæta árlega minnk- andi aflamagni: Að auka styrk- ina eða færa út landhelgina. Útgerðarmenn og sjómenn geta ekki annað en krafizt þess, að hin föðurlega forsjá ríkis- stjórnarinnar nái einnig til þ'eirra eins og allra annarra í þessu blessaða styrkja-, uppbóta- og niðurgreiðslna-þjóðfélagi voru. Þeir verða að fá hækkað fiskverð, eftir því sem afli þverr og tilkostnaður vex. En þeir segja líka allir einum rómi: Færið út landhelgina. Það má vera meira en lítið, sem stendur í vegi fyrir þessu máli, að hér skuli ekki vera látið til skarar skríða með svo mikinn einhug landsmanna að haki sér og stór orð valdhafanna fyrr og síðar. Norðmenn riðu á vaðið af Norðurálfuþj óðanna — kannske fyrir utan Rússa — með að færa landhelgina úr þremur mílum í fjórar og að láta hana ná til allra flóa og fjarða. Þessi mál hafa mikið þokazt í áttina, síðan Norðmenn og íslendingar stigu þetta skref og vaxið skiln- ingur þjóðanna á nauðsyn frið- unar uppeldisstöðva fisksins. En hvað dvelur þá Orminn langa? Treystir ríkisstjórnin sér ekki til að verja landhelgina, ef í odda skerst. Hve margar þjóðir hafa ekki fært út landhelgi sína jafnvel um tugi mílna? Sumar hafa að vísu orðið að standa í ströngu. En hver er kominn til með að segja, að stórþjóðirnar fari að beita íslendinga valdi í friðunarmálinu? Her er allt að vinna, en engu að tapa. Fjöregg þjóðarinnar er í hættu. Við getum innan skamms búið við fiskileysi á borð við Færeyinga og Skota, sem fyr ir ekki ýkjalöngu áttu auðug fiskimið. Það var siður herkonunga hér áður fyrr, þegar veldissól þeirra tók að hníga, að þeir lögðu til orrustu til að freista þess að sam- eina þjóðina um sig á ný. Vill nú ekki íslenzka rikisstjórnin leggja til orrustu í landhelgismálinu, það er ekki seinna vænna. Hún hefur þó alltaf á að skipa 7 varð- skipum og ef í harðbakka slær, mætti vopna togarana og sjá, hversu margir yrðu til að leggja í íslendinginn ,sem berðist fyrir lífsbjörg sinni. Rússar byggja ©g byggja Rússar halda látlaust áfram að byggja fiskiskip, hvar sem þeir geta höndunum undir kom- ið. Þeir sömdu fyrir nokkru um byggingu 20 togara í Lovestoft í Bretlandi. Hafa 12 þeirra þegar verið afhentir. Skipin eru 700 lestir að stærð og kosta 13,5 millj, króna hvert. Skipasmíðastöðin segir, að eft- irlitið og gagnrýnin hjá Rússun- um sé meiri en þeir hafi átt að venjast. Bræðsla Norðmanna á Íslandssíld Norðmenn fengu um 45.000 mál af bræðslusíld af íslands- miðum. Voru það 7 verksmiðjur sem fengu síldina. Ekki gaf þetta neinn fjárhagslegan ábata, en dýrmæta reynslu. Eru Norðmenn ákveðnir í að reyna þetta aftur næsta ár. Fjórðungur á við íslendinga Norðmenn hafa í ár fryst um fjórðung á við íslendinga af fisk- flökum, eða 10.000 tonn til miðs ágústs. Þó var þetta um 10% meira en á sama tíma í fyrra. Eitraðir fiskar Þegar talað var um eitraða fiska, var það nánast álitið hind- urvitni og til þess eins að hræða með börn og unglinga. Þegar graiið var eftir maðki í fjörunni og i:ota átti til beitu, var krökk unum sagt, að sumir væru eitr- aðir, einkum áttu þeir, sem voru gulröndóttir, að vera það. En hvað sem líður marklausu hjali um eitraðan fisk við íslands strendur eða hættulega orma í fjörunni, er það nú svo, að í haf- inu eru taldar vera 300 eitraðar fisktegundir. Einkum er urmull slíkra kvikinda í hitabeltinu. Og þar eru líka um 50 tegundir af ormum jafneitraðir og gleraugna slanga. Hér er aðeins ein fisktegund, sem er eitthvað í líkingu við það, sem er í hitabeltinu, og það er marhnúturinn. Hann er ineð eit- ur í fálmurunum og stingur auð- veldlega. fslendingar hafa held- ur aldrei lagt hann sér til munns. Fisk 2 daga í viku. Hér á landi mun það algengt að hafa kjöt 2 daga í viku, þótt margar undantekningar séu að sjálfsögðu. Víðast erlendis er fiskur aðeins einn dag í viku, föstudaginn. Bæði er nú það, að þetta er ævaforn siður og svo hitt, að fiskur er víðast erlendis dýrari fæða en kjöt. Nú hafa Englendingar og þá einkum togaraeigendur og fisk- kaupmenn hafið herferð til þess að fá fólk til að neyta fisks tvo daga í viku, þriðjudaga og föstu- daga. Fyrst um sinn verður varið til þessara auglýsinga um 15 millj. króna. Þverrandi fiskafli í Kanada í júnímánuði var fiskaflinn í Kanada 18% minni en árið áður í sama mánuði, og var verðmætið 16% minna. Þetta átti éinkum rót sína að rekja til minni þorskafla við Nýfundnaland og minni lúðu- og laxveiði við vesturströndina. Það er víðar en við ísland, að aflinn gengur saman. HVAÐ er kirkjan? Hvert er eðli hennar, hvert hlutverk? Hvaðan fær hún svör við spurningum um tilgang sinn, hver er grund- völlur hennar? Þessara og því- líkra spurninga er spurt víða um heim í dag. Fyrir starf alkirkju- hreyfingarinnar svonefndu hefir eins konar vakning hafizt víða um heim meðal kirkjufólks og leiðtoga kirkjunnar. Menn hafa uppgötvað. að kirkjan er ekki á verði sem skyldi, lifir víða á niðursoðinni næringu vanans en fer á mis við þá kjarngóðu fæðu sem forfeður vorir nærðust á. Alkirkjuhreyfingin hefir enga stefnuskrá. Hún er samtök þeirra kirkna, sem trúa á Jesúm Krist sem frelsara og Drottin. Stefnu- mál hreyfingarinnar er það eitt, að kirkjurnar sameinist um þá bæn, að Herra hennar og brúð- gumi sendi endurlífgun anda síns. Hreyfingin vill vinna að því að opna augu manna fyrir því, hvaðan oss kemur hjálp. Stefnu- miðið er ekki vort að ákvarða, stefnuskráin ekki vor heldur Guðs. Allt annað væri hjáguða- dýrkun. Guðs andi mun leiða kirkju sína þangað, sem hans vilji bíður, jafnvel þangað, sem kirkj- an vill ekki fara eins og Pétur forðum, er hann flúði Róm og var snúið aftur. Prófessor Alan Richardson er í hópi bezt þekktu guðfræðinga Englendinga af yngri kynslóð- inni. Hann hélt nýskeð fyrirlestra á prestaþingi hér í Chicago og talaði um eðli kirkjunnar. Fyrir- lestrar hans gefa góða hugmynd um þá áherzlu, sem margir guð- fræðingar nútímans leggja á biblíulegan grundvöll kirkjunn- ar og vinna þeir innan al- kirkjuhreyfingarinnar að fram- gangi þess máls. Kirkjan hefir týnt sjálfri sér vegna þess, að hún hefir gleymt því, að grund- völlur kirkjunnar er lagður í Nýja testamentinu. Nýja testa- mentið (og hið Gamla með kenn- ingu sína um „Guðs lýð“) er stjórnarskrá kirkjunnar. Þar og hvergi annars staðar er að finna lífslind hennar. Prófessor Richardson dró fram þrjá þætti þessa máls. Kirkjan er postulleg, þ. e. a. s. hún er send af Guði til þess að gegna ákveðnu hlutverki. Hún er presta dæmi, þ. e. a. s. tilvera hennar er þeim tilgangi háð að færa Guði þekkar fórnir andans og trúar- innar og höfuð hennar, Kristur, er sjálfviljugur hin eina full- gilda fórn, eins og sést skýrast á myndamáli Hebreabréfsins. Hún Sjötugsafmæli Arnbjörg Siguröardóttir frá Keflavík er sjötug í dag. Afmæl- isgrein um hana eftir sr. Björn Jónsson verður því miður að bíða birtingar vegna þrengsla í blað- inu í dag. — Frú Arnbjörg dvelst í dag að Hringbraut 66, í Reykja- vík. er þjónninn, þ. e. a. s. eins og Kristur þjónaði, þannig á hún að vera allra þjónn. í dag ætla ég að geta um fyrsta þátt málsins. Postuli þýðir sá sem sendur er. Kirkjan er postul- leg, það merkir, að hún er send. Hún er „mission". Hún er ekki til sjálfrar sín vegna, hún hvílir ekki í sjálfri sér né gælir hún við sjálfa sig, hún hefir hlut- verki að gegna hér í heimi, sem Guð hefir sett henni, og hún má ekki út af víkja. f þrettánda kapítula Markúsar guðspjalls eru varðveitt orð Jesú um „hina síðustu hluti“, um endi hins sýnilega heims. f því sambandi talar hann um það, að fagnaðarerindið verði „fyrst að vera prédikað öllum þjóðum“. Kirkjan hafði því hlutverki aS gegna að prédika fagnaðarerindið öllum heiminum. Til þess var hún send. Það er hlutverk hennar í dag að bera vitni hjálpræði Guðs í Kristi. Hún er postulleg að þvx marki, sem hún rækir þetta hlut- verk. Nýja testamentið er gagnsýrt þeirri sannfæringu, að nýtt tíma- bil sé hafið í sögu mannkyns með komu Krists. Tímans rás er skipt í tvennt, hinn gamla sátt- mála og hinn nýja. Sjálfir tölum vér um „fyrir Krist“ og „eftir Krist“ þótt í daglegu tali sé átt einvörðungu við hentuga tíma- skiptingu. En kirkjan byggir á þeirri vitund, að með Kristi sé nýtt tímabil upp runnið, tímabil guðsríkisins. Það merkir, að fræ- korninu hefir verið sáð, er af mun spretta voldugur meiður. Frumsigurinn var unninn á kross- inum, og mun hann leiða til hins endanlega sigurs Guðs yfir öllu illu. „Dagurinn er í nánd“. „Tím- inn er fullnaður". Þó ekki þannig, að menn eigi með ugg og ótta að reikna út tíma og stundir, hve- nær heimsendir komi. Kristur ræður mönnum frá þeim heila- brotum: „um þann dag eða stund veit enginn, ekki einu sinni engl- arnir á himni né sonurinn held- ur aðeins faðirinn". En kirkjan á að vera tákn þess, að tíminn er í nánd. Hún á ekki að ætla sér af um boðun fagnaðarerindis- ins öllum þjóðum, þar til endir- inn kemur. Þessu hlutverki sínu má kirkj- an ekki gleyma, vilji hún vera ætlunarverki sínu trú. Allt frá miðöldum fram á nýju öldina var þessi kenning Nýja testamentis- ins í láginni þar til á 18. og 19. öld, að menn vöknuðu til vitund- ar um hlutverk kirkjunnar gagn- vart heiðingjunum. 19. öldin hef- ir verið kölluð mesta uppgangs- tímabil kirkjunnar frá upphafi. Á þeirri öld voru stofnuð félög þúsunda manna um allan hinn kristna heim, er höfðu það að markmiði, að fagnaðarerindið skyldi „prédikað öllum þjóðum". Áhrifin á kristnilíf Evrópu voru augljós. Því meir sem kirkjurnar störfuðu út á við, efldust þær inn á við. Samkvæmt Nýja testamentinu hefir Guð stofnað kirkjuna til þess að gegna ætlunarverki, sem er hluti þess tilgangs, sem býr að baki allra ytri atburða og er mönnum hulinn þar til hann er þeim opinberaður. Rás þessarar veraldar er ekki óendanleg, hún er háð skilyrðum baráttunnar milli góðs og ills, en að lyktum mun Guð leiða fram til sigurs, hann mun drýgja dáðir,sem brjóta á bak aftur veldi hins illa. Þetta nefnist „eskatológía“ á máli guð- fræðinnar og heimspekinnar (sbr. andstæðu þessa, en um leið hlið- stæðu, eskatológíu marxismans). Kirkjan er einn liðurinn í ætl- unarverki Guðs. Hennar hlut- verk er það að veita sigurafli Guðs inn í heiminn, til allra manna. „Fagnaðarerindið verður fyrst að vera prédikað öllum þjóðum".

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.