Morgunblaðið - 29.09.1957, Page 16
VEÐRIÐ
Norðan kaldi. Víðast
léttskýjað
Reykjavíkurbréf
Sjá bls. 9.
Gjaldeyrisskorturinn herðir
Orsakanna ekki að leita
í óvenjulegum aflabresti
að
Gjaldeyrisskorturinn kreppir
nú æ harðar að, dregur úr nauð-
synlegum innflutningi og tor-
veldar framkvæmdir. Algerri
stöðvun hefur með naumindum
verið forðað með töku erlends
stórláns og minnkun vörubirgða
í landinu, bæði innlendra og að-
fluttra.
Á fyrsta valdaári V-stjórnar-
innar versnaði aðstaðan að þessu
leyti um a.m.k. 300 millj. kr.
Stjórnariiðum ber engan veg-
inn saman um orsakir þessa fyr-
irbæris né hversu alvarlegt það
sé. Lúðvík Jósefsson sagði hinn
5. ágúst: „Gjaldeyriserfiðleikar
okkar stafa ekki af neinu óvæntu
atviki eða óhöppum". í samræmi
við þetta gerir Þjóðviljinn sem
minnst úr erfiðleikum og segir
að í rauninni sé allt í lagi.
Tíminn hefur aftur á móti
margendurtekið, að versnandi
gjaldeyrisástand væri vegna ó-
venjulegs aflabrests á fisk- og
síldveiðum, og sakar Morgunblað
ið um að þegja yfir, hversu al-
varlegt ástandið sé!
Af þessum sökum er fróðlegt
að kynna sér aflaskýrslurnar og
athuga aflamagnið á undanförn-
um árum. Er þá eðlilegt að bera
fiskaflann á fyrsta valdaári nú-
verandi stjórnar, ágúst—júlí
1956—57 saman við sama tímabil
næstu ár á undan.
Samkvæmt aflaskýrslunum hef
ur fiskaflinn (annað en síld) að
undanförnu verið þessi:
þús.smál.
Ág. 1951—júlí 1952 282
Ág. 1952—júlí 1953 303
Ág. 1953—júlí 1954 335
Ág. 1954—júlí 1955 351
Ág. 1955—júlí 1956 342
Ág. 1956—júlí 1957 331
Fiskaflinn síðasta ár var að vísu
ívið minni en stundum áður. Það
er þó aðeins um slíka sveiflu að
ræða, sem alltaf má búast við og
engan veginn óvenjulega.
Síldveiðar norðanlands hafa
árin 1952—1957 verið svo sem nú
skal greina:
þús. tn. og Áætl. útflutn-
mál alls ingsverðm.
brests fyrir hinu hörmulega á-
standi í gjaldeyrismálunum nú.
Lúðvík Jósefsson reynist í þessu
hafa réttara fyrir sér en Tíminn,
þó að síðara skraf Lúðvíks og
Þjóðviljans um, að í rauninni sé
ekkert að, nái auðvitað ekki
neinni átt.
Er nú vissulega tími til þess
kominn ,að ríkisstjórnin gefi
rétta og óhlutdræga skýrslu um
þann vanda, sem hún hefur stýrt
þjóðinni í, og geri grein fyrir
hinu sanna orsakasamhengi.
Síldveiðin
KOMIN er norðan strekkingur á
miðum síldarbátanna hér fyrir
sunnan og var landlega hjá þeim
í gær.
Það hefur sem kunnugt er verið
lítil veiði undanfarið. Nú munu
allmargir útvegsmenn ætla að
bíða unz veðrinu slotnar og sjá
þá til hvort ekki lifni yfir síld-
veiðinni á ný. Komi ekki fjör-
kippur í veiðina, má búast við að
nokkur hluti bátaflotans hætti
veiðum að minnsta kosti í bili,
eins og í fyrra er síldveiðin lá
niðri fram um miðjan október-
mánuð.
Stórmótinu lýkur í dag
- fvísýnt mjög um úrslit
1 DAG lýkur stórmóti Taflfélags
Reykjavíkur. Ér það 11. og loka-
umferð mótsins, sem tefld verður
og hefst hún í Listamannaskálan-
um kl. 2 síðdegis. Staðan er það
jöfn að ógerlegt er að segja fyrir
um hver muni verða sigurvegari
mótsins, því þrír efstu menn hafa
nær því jafna möguleika til sig-
urs.
Sem fyrr segir verður byrjað
að tefla klukkan 2 og stendur svo
umferðin yfir til klukkan 6. Verði
einhverjum skákum þá enn ólokið,
fara þær í tveggja klst. bið, og
verða tefldar áfram klukkan 8 í
kvöld. Formleg mótsslit og verð-
um undir á annað hundrað
íbúðir úthlutað
Al I morg byggingarsamvinnufélög
reisa sambýlishús
Á FUNDI bæjarráðs á föstudag-
inn var lögð fram skrá um út-
hlutun byggingarlóða, sem ný-
Iega hefir farið fram. Hefir í þetta
sinn verið úthlutað lóðum fyrir
rúmlega 130 íbúðir. Lóðir þesyar
eru fyrir fjölbýlishús, raðhús,
tvílyft hús og einbýlishús. Bygg-
ingarlóðirnar eru við þcssar göt-
ur í bænum: Austurbrún (12
hæða fjölbýlishús) Glaðheima,
Háagerði, Hjarðarhaga, Hrísteig,
Hörgshlíð, Laugalæk, Otrateig
og Grimshaga.
Meðal þeirra sem lóðir fengu
á þessum stöðum eru
Byggingarsamvinnufélag vega
gerðarmanna, byggingarsam-
vinnufélag lögreglumanna bygg-
ingarsamvinnufélag starfsmanna
Reykjavíkurbæjar, byggingarsam
vinnufélag S.V.R. og byggingar-
samvinnufélag starfsmanna
Landsbanka íslands.
Minningarguðsþjónusto um
Húkon konung í Dómkirkjunni
A ÞRIÐJUDAGINN, er útför Há-
konar Noregskonungs verður
gerð í Osló, fer hér fram í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík minning-
arguðsþjónusta.
Margir lœra að fljúga
ÖLLUM ber saman um það, að
sumarið hafi verið eitt hið bezta
um langt skeið. Kennarar við
flugskólann Þyt eru á sama máli,
því að aldrei hefur verið flogið
meira hjá flugskólanum en ein-
mitt í sumar — og er flug á litl-
um flugvélum mjög háð veður-
farinu sem vænta má.
Hafa mjög margir stundað flug-
nám í sumar og um 60 þeirra
hafa þegar lokið fyrsta stigs
prófi, hlotið réttindi til þess að
fljúga lítilli flugvél án þess að
hafa farþega. Um þessar mundir
er að hefjast nýtt námskeið í
skólanum og sækja það um 50
nemendur. Hér er aðallega um
að ræða unga menn, en áhugi
fólks á fluginu virðist hafa auk-
izt mjög að undanförnu. Lítill
hluti þessara manna byrjar flug-
námið með atvinnuflug fyrir aug
um. Það er flugið sjálft, sem
heillar.
Guðsþjónustan hefst kl. 11, en
á sama tíma hefst útför hins
látna konungs í Noregi.
í Dómkirkjunni, sem verður
skreytt með norskum og íslenzk-
um fánum og blómum, mun
biskup landsins, dr. Ásmundur
Guðmundsson, flytja minningar-
ræðuna um Hákon konung.
Það er Nordmannslaget hér i
Reykjavík, sem hefur um þetta
forgöngu. Hefur það boðið ríkis
stjórninni, fjölmörgum embættis
mönnum ríkis og bæjar, sendi
herrum erlendra ríkja, og að
sjálfsögðu þeim mönnum, sem
mest hafa unnið að norsk-islenzk-
um viðskiptum svo sem stjórn
félagsins ísland—Noregur, þá
munu einnig verða viðstaddir at-
höfnina Norðmenn búsettir hér
og Noregsvinir.
launaafhending fer fram annað
kvöld í Tjarnarkaffi kl. 8,30.
Þeir Friðrik Ólafsson, Benkö og
Pilnik eru sem kunnugt er efstir
með 8 vinninga, 7V4 og 7 vinninga,
og má af því sjá að þessi lokaum-
ferð getur orðið afar spennandi
og tvísýn. Friðrik teflir við Pilnik
og hefur hvítt, Benkö teflir við
Arinbjöm Guðmundsson, Stáhl-
berg, sem er í 4. sæti með 6^4 vinn
ing teflir við Gunnar Gunnarsson
Ingvar Ásmundsson og Ingi R,
Jóhannson, Guðmundur S. Guð-
mundsson og Guðm. Pálmason, og
þeir Guðmundur Ágústsson og
Björn Jóhannesson eigast við.
Þá hefur St&hlberg orðið við
ósk Taflfélagsins að þreyta
klukkufjöltefli á þriðjudagskvöld-
ið á 10 borðum. — Skákmenn,sem
áhuga hafa á þátttöku ættu að
gefa sig fram þegar í dag i Lista-
mannaskálanum og snúa sér til
aðgöngumiðasölunnar þar.
Martinson fer í dag
SÆNSKl rithöfundurinn Harry
Martinson fer utan í dag. Er MbL
hafði spurnir af honum í gær,
var hann í ferðalagi, en átti að
vera á samkomu með rithöfund-
um kl. 4. í blaðinu í gær var
sagt frá fyrirlestri Martinsons í
háskólanum í fyrrakvöld. Frétta-
menn blaðsins tóku hinn stór-
vaxna en' fölleita Svía tali ör-
stutta stund að fyrirlestrinum
loknum, og kvartaði hann þá yfir
því, að mikið yrði að gera, er
heim kæmi. „Allt Nóbelsverð-
launastússið er framundan" sagði
skáldið og bar dularfullt balsam
í nef sér. Kvaðst hann hafa kvef-
azt í íslandsferðinni, en lét ann-
ars vel yfir sér.
Reykjanesmót
í DAG kl. 13,30 hefst Reykjanes-
mót í knattspyrnu á knattspyrnu-
vellinum í Keflavík. Fjögur félög
taka þátt í mótinu: Knattspyrnu-
félag Keflavíkur, Ungmennafél.
Keflavíkur, Reynir, Sandgerði og
íþróttafélag Keflavíkurflugvall-
ar. Kl. 13,30 keppa ÍKF og
Reynir, en kl. 17 KFK og UMFK.
íþróttabandalag Keflavíkur sér
um mótið. —BÞ.
m. kr.
1952 76 22.8
1953 296 86.2
1954 199 38.6
1955 214 71.4
1956 520 124.3
1957 684 111.3
Meiri síldveiði norðanlands ár-
ið 1956 og 1957, þ.e. á þeim tíma,
sem núverandi stjórn nýtur góðs
af, gerir þvi meira en að bæta
upp það sem munar á fiskveiðun-
um.
Loks er þess að gæta að síld-
veiði suðvestanlands var mun
meiri sl. haust en undanfarin ár,
svo sem þessi skýrsla sýnir:
þús. tn.
og mál
1952 174
1953 226
1954 168
1955 200
1956 254
Ljóst er, að leita verður ann-
arra orsaka en óvenjulegs afla-
NÚ eru skólarnir að byrja og
veldur það miklum breytingum
á útburðarstarfsliði blaðsins. Má
búast við að þetta valdi nokkr-
um erfiðleikum við að koma
blaðinu til kaupenda a.m.k.
fyrstu daga mánaðarins. En að
sjálfsögðu verður allt gert til'að
flýta fyrir útburðinum.
Forráðamenn barna- og gagnfræðaskólanna í Reykjavík. — Eins og skýrt er frá í blaðinu í dag og í gær, hafði Fræðsluráð Reykja-
víkur, fræðslustjóri, námsstjóri gagnfræðastigs, svo og skólastjórar og yfirkennarar barna- og gagnfræðaskólanna í borginni o. f!.,
fund með blaðamönnum í fyrradag. Myndin er tekin að honum Ioknum, og eru á henni (talið frá vinstri): 1. röð: Systir Clemen-
tia (Landakotsskóla), Steinþór Guðmundsson (fræðsluráðsmaðuri, Kristján J. Gunnarsson (fræðslurm. og yfirkennari Langholts-
skóla), Magnús Gíslason (námsstjóri gagnfræðastigs), Helgi H. Kiríksson (formaður fræðsluráðs), Jónas B. Jónsson (fræðslustj.),
Helga Þorgilsdóttir (yfirk., Melaskóla), Helga Magnúsdóttir (skóla ísaks Jónssonar), dr. Guðni Jónsson (skólastj. Gagnfrsk. Vest-
urbæjar), Sveinbjörn Sigurjónsson (skólastj. Gagnfrsk. Austurbæjar), Árni Þórðarson (skólastj. Gagnfrsk. við Hringbraut). 2.
röð: Jón Guðmannsson (yfirk. Miðbæjarsk.), Ástráður Sigursteindórsson (skólastj. Gagnfrsk. við Vonarstræti), Helgi Þorláksson
(yfirk. Gagnfrsk. Austurbæjar), Magnús Sigurðsson (skólastj. Eskihlíðarsk.), Arnfinnur Jónsson (skólastj. Austurbsk.), Arngrímur
Kristjánsson (skólastj. Melask.), Gunnar Guðmundsson (yfirk. Laugarnessk.), Friðbjörn Benónýsson (form. Fél. gagnfrsk.kennara
í Rvík), Jens Guðbjörnsson (fulltrúi í fræðsluskrifst. Rvíkur), Ragnar Georgsson (skólastj. Gagnfrsk. við Réttarholtsveg). 3. röð:
Pálmi Jósefsson (skólastj. Miðbæjarsk.), Gísli Halldórsson (framkvstj. byggingarnefndar skóla), Hjörtur Kristmundsson (skóla-
stjóri Breiðagerðissk.), Jón Á. Gissurarson (skólastj. Gagnfrsk. við Lindarg.), Ragnheiður Friðriksdóttir (ritari í fræðsluskrifst.
Rvíkur), Magnús Óskarsson (fulltrúi fræðslustjóra), Ingibjörg Björnsdóttir (ritari í fræðsluskrifst. Rvikur), Þórður Kristjánsson
eftirlitsm. með kristindómsfræðslu í Rvík), Jónas Jósteinsson (yfirk. Austurbæjarsk.) og Gísli Jónasson (skólastj. Langholtssk.)
(Ljósm.: S. E. Vignir)