Morgunblaðið - 01.10.1957, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.10.1957, Blaðsíða 14
14 MORCUWBT. AÐIB Þriðjudagur 1. okt. 1957 D/ese/ Framkvæmum viðgerðir á olíuverkum með full- komnustu tækjum og af æfðum fagmönnum. —■ Góð varahlutaþjónusta. BOSCH umboðið á íslandi Bræðurnir Ormsson hf. Vesturgötu 3 — sími 11467 (3 línur) I Ódýr ínnskotsborð úr teakvið 995 kr. úr mahogny 950 kr. einnig skrifborð frá 1850 kr. og stakir stólar frá 1350 kr. Húsgagnaverzlun Gunnars Mekkinóssonar. Laugaveg 66. — Sími 16975. Q/uzScó S*LT ‘EttEH, HÆCu DósvmjM. Os t BUu HElAtSi 'ÞEKKT C/£iMv AHa Varahlutir i Kitchen Aid- hrærivélar NÝKOMNIR Element í CREDA-hraðsuðukatla ÞJÓNUSTA VIÐGERÐIR RAFLAGNIR RofmagnsTerkstœði S.Í.S. Hringbraut 119 — Símar 17080 og 15495. Lœknaskipti Þeir samlagsmenn, sem óska að skipta um sam- lagslækna frá n.k. áramótum, gefi sig fram í af- greiðslu. samlagsins í októbermánuði og hafi með sér samlagsbók sína. Listi yfir þá lækna, sem um er að velja, liggur frammi hjá samlaginu. Sjúkrasamlag Reykjavíkur. Landsleikirnir í knattspyrnu eftir Cunnl. Lárusson ÉG hefi undanfarið leitt hugann að öllum þeim gauragangi og moldviðri sem upp var þyrlað í sambandi við val landsliðsnefnd- ar í landslið okkar gegn Frakk- landi og Belgíu í byrjun þessa mánaðar. Varð ég þar persónu- lega fyrir miklu aðkasti sumra íþróttafréttaritara, þar talinn hlutdrægur, óvitur o. m. fl. Þeir, sem að þessum skrifum stóðu, vita vel að það er mjög erfitt fyrir landsliðsnefndina sem slíka, að ræða þessi mál á opinberum vettvangi. Þess vegna er hægt tiltölulega áhættulítið að úthúða meðlimum þessarar frægu nefnd- ar fyrir bjánaskap, hlutdrægni, hatur o. þ. u. L „Krítik“ á slík „vináttuskrif“ er tæpast að vænta. Það hefur líka verið regla hjá meðlimum nefndarinnar að láta allt slíkt liggja milli hluta. Engin regla er þó án undantekn- inga, því öllu má ofbjóða. Ég þykist nú hafa fengið það tilefni sem dugar til þess að láta mitt sjónarmið koma fram í þessu máli. Líklegt er þó að fari eins og jafnan fyrr, að aðrir hafi þar síðasta orðið, en álit mitt á mál- inu í heild er þetta: Þegar valið var í lið okkar gegn Frökkum var það gert eins og jafnan áður. Reynt var að finna ellefu leikmenn sem mynd- að gætu beztu heidina. Höfð var, eins og áður, hliðsjón af þeim form. Landsl.nefndar leikjum sem okkar menn höfðu leikið vikurnar á undan, þar að sjálfsÖgðu meðtaldir landsleikir okkar hér heima við Norðmenn og Dani. Öllum var ljóst að nú áttu okkar menn að mæta liði sem í dag er talið eitt af 4 beztu liðum í Evrópu ásamt Rússum, Spánverjum og ítölum. Eftir að lið okkar var ákveðið, sem að sjálfsögðu var okkar bezta lið að áliti nefndarinnar, réðust sumir íþróttafréttaritarar að nefndinni með miklu offorsi og létu jafn- vel svívirðingarnar ganga á henni og sérstaklega þó á mér. Iþróttafréttaritararnir vissu bet- ur hvað bezt var okkar landsliði, þeir heimtuðu Albert Guðmunds- son með. Leikurinri fór nú fram. Skoðun min um leikinn er í stuttu máli þessi: Leikmenn okkar urðu sér til sóma með frammistöðu sinni og áttu skilið hagstæðari marka- tölu en fékkst, eftir tækifærum og gangi leiksins að dæma. 4 mörk gegn 2 hefði verið sann- gjörn úrslit. Hver og einn liðs- maður lagði sig allan fram. Þarna var baráttuviljinn, þarna var út- haldið og krafturinn, — já oft undarlega hratt og gott spil svo að franska vörnin var á stund- um í hreinni upplausn. Mátti með sanni segja að það væri hrein óheppni að okkar menn skoruðu ekki tvisvar í fyrri hálfleik. Að öllu samanlögðu er þetta einn allra bezti leikur islenzka lands- liðsins frá upphafi. Þykist ég þar tála af nokkurri þekkingu. Liðið var eins og einn hugur og ein hönd, samstillt og spilaði betur en þeir bjartsýnustu þorðu að vona. Frakkarnir voru líka hissa á, hvað þessir íslenzku áhuga- menn gátu gegn þrautreyndum atvinnuknattspyrnumönnum, já, e. t. v. einu af 4 beztu liðum álf- unnar. Þess má geta að þessir frönsku knattspyrnumenn hafa hver um sig sem svarar 150 ensk- um sterlingspundum í kaup á mánuði fyrir að þjálfa sig og keppa. Er það þeirra eina at- vinna. Franski landsliðsnefndarfor- maðurinn, sem hér var með liði sínu, lét það álit sitt í ljós við form. KSÍ að þetta ísl. lið, eins og það lék þennan dag, væri 1. flokks knattspyrnulið. Að aflokn- um leiknum lýsti og formaður KSÍ því yfir, sem skoðun sinni, að lið okkar hefði í rauninni unnið stórsigur með þessum leik sínum. Var tvennt ólíkt að sjá lið okkar nú, eða þegar leikið var við Norðmenn og Dani 5—6 vik- um áður. Þó eru þessar þjóðir mun lakari knattspyrnulega en Frakkar, enda áhugamenn um íþróttina eins og við. Ég var því mjög ánægður yfir árangri okkar manna og mátti vera það. Leikurinn sýndi mikla framför okkar liðs frá leikjunUm við bræðraþjóðirnar, þar sem við ég þakka Colgate velgengni mína Flugfreyja, eins og ég, verður að hafa fall- egt bros.Hið frábæra COLGATE DENTAL CREAM, heldur tönnum- mínum mjallhvít- um. Ég hef erfitt starf, en hef aldrei haft frátafir vegna tannpínu. COLGATE ver tennur min. ar skemmdum. '“V burstið tennur yðar með COLGATE DENTAL CREAM það freyðir! það hreinsar munninn medan þa d verndar tennur yðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.