Morgunblaðið - 05.10.1957, Side 6

Morgunblaðið - 05.10.1957, Side 6
 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 5. okt. 1957 Kommúnistar virtn ekki reglur þingræðisins í Son Marino UPPI í íjöllum á austan- verðri Ítalíu er sjálf- stætt dvergríki, sem kall ast San Marino. Það er nú talið elzta lýðveldi í Evrópu, talið stofnað árið 855. Það er umlukt ítölsku landi á allar hliðar og þótt íbúarnir tali ítölsku hefur þeim tekizt að varðveita sjálf- stæði sitt gegnum aldirnar. Þeg- ar Ítalía sameinaðist kringum 1860 hélt þetta litla ríki enn sjálf- stæði sínu, vegna þess að þar var lýðveldi. Þar var enginn fursti til að steypa, heldur ákváðu þjóð- kjörnir fulltrúar að vísa enn til gamalla samninga um að sjálf- stæði dvergríkisins skyldi við- urkennt. Landið er aðeins 64 ferkíló- metrar á stærð og í því búa um 13 þúsund manns. Þeir hafa komizt vel af og haft hag af sjálfstæðinu. Ein stærsta tekjulindin hefur ver- ið að selja hégómlegu fólki aðalstitla og eru aðalsmenn sem þar hafa verið dubbaðir upp yfirleitt kenndir sem her- togar eða greifar við einhvern fjailstindinní San Marino. Þá græðir ríkið á útg. frímerkja og hefir talsverðar tekjur af því að auðveldara er að fá hjónaskilnað þar en fyrir dóm stólum á ftalíu. Loks greiðir stjórn ftalíu ríkinu mánaðar- lega ákveðna fjárhæð, 35 millj lírur (um 750 þús. kr.) sem endurgreiðslu á tollum, en all- «r vöruflutningur til landsins fer í gegnum ítalska tollgæzlu. ★ Jafnvel á dögum Mussolinis var sjálfstæði San Marino virt. Það var fyrst síðla í styrjöldinni, sem Þjóðverjar hernámu landið til að tryggja sér varnaraðstöðu í því. Þeim tókst þó ekki að halda landinu nema stutta stund. Banda menn sóttu á, það var barizt um San Marino og mikil spjöll urðu þar. Alexander marskálkur Breta gerði innreið sína í landið og viðurkenndi að því loknu sjálf- stæði þess. Nú ber að geta þess, að þótt San Marino sé sjálfstætt hafa ítalskar stjórnmálahreyfingar mjög áhrif í landinu. Á dögum Mússolínis létu fasistar t. d. all- mjög að sér kveða. Og eftir lok heimsstyrjaldarinnar varð stjórn CmnO». I, tivorro\ RíjrenetX^ " ' \ itaucn m —: Uppdráttur er sýnir legu San Marino málaástandið í San Marino líkt og í nágrannahéruðunum. San Marino er staðsett í miðju Emilia-héraðinu ítalska, sem hefur verið aðalhreiður kommúnista. Það er skammt frá borginni Bologna, sem er háborg kommúnismans. Þess vegna hefur ekki farið hjá því, að kommúnisminn hefur feng ið ítök í landinu. Eftir að land- ið var frelsað undan Þjóðverj- um, óðu svonefndar „frelsis- sveitir" kommúnista uhi fjalla héruðin, vopnaðar vélbyssum og myrtu andstæðinga sína að næturlagi í tuga og hundraða- tali. Var þetta sama sagan og gerðist þar í nágrannahéruð- unum. Þegar fyrstu kosningarnar fóru svo fram til þings San Marino náðu kommúnistar þar hreinum meirihluta, sem þeir hafa haldið í 12 ár, eða þar til fyrir nokkrum dögum, að stór tíðindi gerðust í San Marino. ★ Síðustu kosningar í San Marino fóru fram fyrir nærri tveimur árum. Höfðu andstæðingar komm únista þá mikinn viðbúnað að reyna að sigra þá í almennunj kosningum. Sameinuðust þeir all Lögreglustjóri San Marino, að nafni Ettori Sozzi er fjaður- skrýfður ir í eina fylkingu og töldu sig- urvonir sínar miklar. En úrslit kosninganna urðu allt að einu þau, að af 60 þingsætum kræktu kommúnistar í 35 en andkomm- únistar aðeins í 25. Þessi úrslit þóttu mörgum kynleg og hermir( almannarómur, að hinir komm- únísku valdhafar hafi með ein- hverjum ráðum framið kosninga svik og breytt úrslitum sér í hag. Þessi sífelldi orðrómur um kosningasvik, ásamt fregn- um af hermdarverkum komm únista í Ungverjalandi hefur gert fylgi kommúnista í San Marino ótryggara en nokkru sinni áður. Þegar ofbeldisverk in í Ungverjalandi voru mest á dagskrá tilkynntu fimm af þingfulltrúum kommúnista að þeir hefðu sagt sig úr flokknum. Nú voru styrkleika hlutföllin í þinginu 30:30, en kommúnistar héldu þó öllum völdum, vegna þess að sjálf- ræði ráðherranna tveggja er meira en ella tíðkast í þing- ræðislöndum. En hinn 19. sept. sl. dró að úr- slitastund. Þá skyldi endurkjósa ráðherrana tvo, sem völdum halda í landinu. Nokkru áður en kjör þetta skyldi fara fram í þing inu tilkynnti enn einn af þing- mönnum kommúnista, Giannini að nafni, að hann segði sig úr flokknum. Nú var því sýnt, að frambjóðendur andkommúnista yrðu kjörnir með 31 atkvæði. Þannig hefði allt gengið hávaða- laust fyrir sig, ef þingræðisregl- um hefði verið hlýtt. En hvenær er vitað til þess að kommúnistar fylgi lýðræðisregl- um, ef þeir sjá sér fært oj; telja sig hagnast meira á að beita rang indum? Það er víst ólíklegt og sannaðist þetta enn í smáríkinu San Marino. Þegar þingheimur San Mar- ino var saman kominn til að kjósa nýja ráðherra, stóð upp annar af fráfarandi ráðherr- um kommúnista og tilkynnti þingrof. Leysti hann þingið síðan tafarlaust upp og til- kynti nýjar kosningar í nóv- ember. Kvaðst hann byggja þingrofsheimildina á þeirri staðreynd að 34 þingmenn hefðu boðað að þeir ætluðu að segja af sér þingmennsku. Þingið væri því óstarfhæft. Rök fyrir þessum afsögnum hafa þó hvergi komið fram. Það er skemmzt af að segja að and-kommúnistar í San Marino mótmæla þessum aðgerðum, sem fullkomnum lagabrotum. En gagnslítið er að mótmæla, þar sem lögregluvaldið er í höndum kommúnista. Þó hefur lögregiu- stjórinn Ettori Sozzi lýst því yfir að hann eigi ekki þátt í þeirri ákvörðun kommúnistaráðherr- anna, að kalla út 200 manna vara lið kommúnista og skipa þá vara iögreglumenn. ★ í fyrstu fregnum frá San Marino var látið að því liggja að þessir atburðir væru ekki mjög alvarlegir. Xil dæmis var skýrt frá því að varalög regla kommúnista hefði verið búin gömlum miðaldarifflum, en hefði engin skotfæri. Fréttamenn sem komið hafa á staðinn síðar telja þó hættuna meiri, því að kommúnistarnir ern raunar allir búnir litlum nýtízku handvélbyssum. Þetta eru vopnin frá styrjöldinni er liafa verið tekin fram og kommúnistar virðast reiðu- búnir að halda áfram „frelsis- aðgerðum" sínum frá því í stríðslok. Nú eru tvær ríkisstjórnir í San Marino. Kommúnistastjórnin sit- ur í þinghúsinu og hefur um sig vörð vopnaðra kommúnista. And kommúnistar hafa stofnað eigin stjórn, sem nýtur fylgis 31 þing- manns. Hafa þeir búið um sig í gamalli gúmmíverksmiðju í út- jaðri San Marino. Þar hírast all- ir þingmennirnir 31 að tölu við þröngan kost. Sofa þeir á dýnum á köldum og rökum steingólfum. Þótt þeir hafi meirihluta þings- ins skortir þá allt lið til fram- kvæmda. ★ Það mun hinsvegar verða and kommúnistum til mikillar styrkt ar, að Ítalía hefur viðurkennt þeirra stjórn löglega og svo munu aðrar vestrænar þjóðir gera. Þá hafa ítölsk yfirvöld lok- að öllum vegum til San Marino og er það gert til að hindra að ítalskir kommúnistar geti hópast til landsins og veitt ofbeldis- stjórninni þar lið. Ástandið er sem sagt hið al- varlegasta og getur verið að blóðs úthellingar verði þar á hverri stundu. Góðteoilarahúsið í Reykjuvík 70 óra síðastliðinn miðvikudag Afmælisins minnzt með hófi í Góðfempiarahúsinu 2. ÞESSA mánaðar hélt Góð- templarareglan í Reykjavík há- tíðlegt sjötíu ára afmæli Góð- templarahússins í Reykjavík, en það var vígt 2. okt. 1887. Hátíða- höldin hófust með sameiginlegri kaffidrykkju, en þar var saman komið margt manna og kvenna. Hófinu stjórnaði Indriði Indriða- son og fór það mjög virðulega og vel fram, ræður voru fluttar, lesin upp skeyti og kveðjur er bárust og einnig fóru fram skemmtiatriði. Að síðustu var dansað. „Þangað geta mörg menning- armál rakið spor sín“. Aðalræðu kvöldsins flutti Freymóður Jóhannesson. Rakti hann sögu hússins og uppruna þess. Gat hann þess, að er Góð- templarahúsið var vígt, voru sfcrifar úr daglega lífinu VELVAKANDA hefir borizt bréf fró unga júgóslafneska menntamanninum, sem skýrt var frá á sínum tíma hér í dálkunum. Þakkir júgóslafneska menntamannsins HAGIR hans voru slíkir, að hann var að stunda íslenzku- nám, en þá vildi svo illa til fyrir honum að mestallur bókakostur hans íslenzkur brann. Leitaði hann hingað til lands um hjálp, og gekkst Velvakandi fyrir því, að safnað var bókum á nýjan leik handa honum. Lesendur þessara dálka brugðust mjög vel við þeirri málaleitan, svo vel að Vel- vakandi hafði ekki gert sér nein- ar vonir um slíkar undirtektir. Fjöldj bóka barst, margar verð- mætar mjög, og voru þær allar sendar austur til Júgóslafíu. Og nú er sem sagt komið bréf frá honum. Það hljóðar svo í lausl. þýðingu: „Ég varð frá mér numinn af gleði, þegar ég fékk hið vir.sam- lega bréf yðar og tvo stóra böggla verðmætra íslenzkra bóka og blaða. Ég þakka yður og öllum vinum yðar, sem bækurnar sendu innilega fyrir hina miklu vinsemd sem mér hefir verið sýnd. Þessi rausnarlega bókagjöf kemur mér mjög að haldi við íslenzkunám mitt, og gerir mér kleift að halda því áfram. — Með beztu kveðjum og miklu þakklæti, — R. Klodic. Skólar hefjast ÞESSA dagana er verið að setja skóla landsins og það má imerkja það á bæjarlífinu hér í Reykjavík. Þó er það ennþá greini legra í smærri bæjum úti á landi þar sem skólar eru staðsettir. Ann ar svipur kemur á miðbæinn, ung og glaðleg andlit sjást á götunum, sem ekkj voru þar áður, skóla- piltar fara gjarnan í smáhópum og láta allmikið á sér bera, ef því er að skipta. Kaffihús fá strax aukna aðsókn því á þeim stöðum hafa skólapiltar innan við tvítugt alla jafna krufið heimsvanda- málin til mergjar og leyst lífs- gátuna. Og það er alltaf einhver sérstakur bjarmi og blær yfir skólunum og umhverfi þeirra, einkum menntaskólunum. Nýlega var ég við skólasetn- ingu í einum framhaldsskólanna þar sem flestir skólapiltanna eru þó komnir um tvítugt eða eru eldri. Skólastjórinn bað þá þess lengstra orða að forðast áflog inni í skólastofunum, vegna húsgagn- ánna og á göngum skólans, er slíkir fílefldir karlmenn ættust við en flytja handalögmál sín vin samlegast út í skólagarðinn! Þetta hljómar kannske dálítið undarlega svona fyrst í stað en svo mikið er eftir af drengs- eðlinu, eða öllu heldur víkingseðlinu, í lundarfari tvítugra íslenzkra pilta að áflog og stimpingar eru þar ekki sjaldgæfur viðburður. Mér þótti þetta skemmtilegur vitnisburður um það að enn eru kraftar í köggl um tvítugra pilta, jafnvel þótt ljúfir eigi að vera í skólabekk, og víst eru slíkir ljónfjörugir skóla- strákar ólíkt geðslegri en dauð- yfli og bókabéusar, sem aldrei stekkur bros. Og þó að skólastjór- inn hafi kannske ekki verið á sama máli (vegna húsgagnanna) þá held ég samt að öllu sé slík lífsorka affarasælli fyrir land og þjóð þegar til lengdar lætur. Beizlun slagsmála- hneigðarinnar EN er ekki hægt að beizla slags- málahneigðina? Um það hafa uppalendur og sálfræðingar lengi hugsað og fundið ýmis ráð til. Og því hefir það vakið athygli í fréttum síð- ustu daga að Æskulýðsráð Reykja víkur virðist hafa gert eina skyn- samlegustu tilraunina til þessa, sem lengi hefir verið fram- kvæmd. Það hefir opnað tóm- stundaheimili á Lindargötunni fyrir unglinga á skólaaldri, ein- mitt þeim aldri, sem menn verða vandræðamenn flestir, ef þeir þá nokkurn tíman fara út í þá sálma. Þessi starfsemi er mjög þörf og sætir reyndar furðu að ekki skuli félagssamtök ýmis, sem kenna sig við æskulýðinn hafa komið þess- ari starfsemi á fyrir löngu. En hér er ekki staður til að fordæma einn eða neinn, heldur gleðjast yfir því að nú skuli starf þetta hafið, og hvetja unglinga til þess að nota sér það. fyrst viðhafðir vígslusiðir á ís- landi, að undanskildum kirkjum. Kvað hann 360 manns hafa ver- ið viðstadda þá athöfn. Góð- templarahúsið í Reykjavík var annað húsið sem reglan eignaðist hér, en hið fyrsta var reist í Hafnarfirði 1886 af Morgim- stjörnunni þar. Það var Ein- ingin nr. 17 sem átti stærstan þátt í byggingu Góðtemplara- hússins hér. Er bygging þess var hafin komu stúkurnar Verðandi nr. 9 og Framtíðin nr. 13 til liðs við Eininguna í byggingarmál- inu og húsið var reist á skömm- um tíma. Var það á næstu árum á eftir einn aðal sam- komusalur Reykvíkinga og allt fram undir aldamót. „Hing- að geta mörg menningarmál rak- ið spor sín“, sagði Freymóður, „svo sem leiklist, íþróttir, tón- list og fleira mætti telja“. Kveðjur og skeyti. Að ræðu Freymóðs lokinni, söng Guðrún Á. Símonar, óperu- söngkona nokkur lög, með undir- leik Fritz Weisshappels, eftir innlenda og erlenda höfunda. — Var söngkonunni tekið með mikl- um fögnuði og varð hún að syngja aukalag. Þá las Indriði Indriðason upp skeyti og kveðjur er borizt höfðu í tilefni afmælisins. Voru það skeyti frá Daníelsher í Hafnar- firði og Steindóri Björnssyni í Hveragerði. Kveðja barst frá Böðvari Bjarnasyni formanni húsráðs, en hann gat ekki verið viðstaddur. Að því loknu mælti séra Friðrik Friðriksson nokkur olð. Árnaði hann reglunni guðs blessunar. Skemmtiatriði. Næst söng tvöfaldur kvartett úr IOGT undir stjórn Ottós Guð- jónssonar nokkur lög. Var söngn- um vel tekið og söng kórinn aukalag. Þá flutti Karl Guð- mundsson gamanleikari skemmti- þátt „Gullna hliðið“ og varð af því mikil ánægja meðal áheyr- enda. Benedikt Björnsson stórtempl- ar flutti ávarp og skýrði meðal annars frá því, að nú hefðu yfir- völdin gefið tilskilin leyfi til byggingar nýs Góðtemplarahúss. Mun því vera ætlaður staður á Skólavörðuholtinu. Þorsteinn J. Sigurðsson mælti að lokum nokk- ur orð. Aldnir templarar viðstaddir Til þessarar ágætu samkomu mættu alstu templarar bæjarins, séra Friðrik Friðriksson, sem hef- ur verið templari frá 1886, Á- gústa Ágústsdóttir, templari frá 1887, Arndís Þorsteinsdóttir, séra Sigurbjörn Á. Gíslason og Krist- ín Thorberg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.