Morgunblaðið - 05.10.1957, Page 8
t
MORGUNfíT4 Ðl Ð
Laugardagur 5. okt. 1957
Otg.: H.í. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
UTAN UR HEIMI
nclir ur ymóum áttum
Lesbók: Arni Öla, sími 33045
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritst]órn: Aðaistræti 6.
Auglýsingar og algreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480
Asknftargjald kr 30.00 á mánuði innanlands.
I lausasölu kr. 1.50 eintakið.
T'IMINN SEGIR SIG VERRi
EN HANN ER
LESENDUR Tímans hafa
oft kvartað yfir því, að
hann væri ekki nógu
gott fréttablað. Aldrei hefur sú
ásökun þó verið sett hatramlegar
fram en í Timanum sjálfum i
gær.
Þar er rætt um hinar furðu-
legu yfirlýsingar Eysteins Jóns-
sonar ,um að það sé í samræmi
við orð hans fyrir kosningar, að
samstarf var tekið upp við
kommúnista um stjórnarmyndun.
Tíminn kemst ekki fram hjá
þeirri staðreynd ,að á kosninga-
daginn sagði hann:
„Ekkert samstarf við komm-
únista um stjórnarmyndun".
Þetta var prentað með stórum
stöfum og í greininni, sem fylgdi
var sagt:
„Þjóðviljinn hefur þá fregn að
færa liði sínu við lok kosninga-
bardagans, að „ákveðið hafi ver-
ið í herbúðum Hræðslubanda-
lagsins, að leita til okkar um
stjórnarsamvinnu eftir kosning-
ar“.
Eins og margbúið er að lýsa
yfir, af hálfu Alþýðulfokksins og
Framsóknarflokksins, er þetta
uppspuni frá rótum og ekkert
samstarf verður haft við þetta
bandalag kommúnistanna um
stjórn, af því að þeir eru ekki
hóti samstarfshæfari en áður,
þótt þeir hafi skipt um nafn.“
★
Tíminn treystir sér ekki til að
neita þessum sínum eigin orð-
um en segir nú:
„Allt og sumt, sem Bjarni hef-
ur haft upp úr krafsinu,
eru ummæli úr ýmsum blöð-
um, Degi á Akureyri, Al-
þýðublaðinu og Tímanum, og
vitnar síðan. í orð Haralds
Guðmundssonar um að ekki
ætti að vinna með kommúnist-
um, en engar yfirlýsingar af
hendi Eysteins Jónssonar eða
Hermanns Jónssonar, sem úti-
lokuðu samstarf við Alþýðu-
bandalagið."
1 þessu felst, að ekkert mark
sé takandi á orðum „ýmsra
blaða“: Dags á Akureyri, Al-
þýðublaðsins og Tímans, hvað
þá Haralds Guðmunássonar! —
Allt öðru máli væri að gegna,
ef vitnað hefði verið til orða
slíkra öðlinga sem Eysteins Jóns-
sonar og Hermanns Jónassonar.
En við hverja átti Tíminn,
þegar hann sagði á kosningadag-
inn, að margbúið væri að lýsa
því yfir af hálfu Framsóknar-
flokksins, að ekkert samstarf
yrði haft við „þetta bandalag
kommúnistanna um stjórn“?
Það var einmitt Eysteinn Jóns-
son, sem þar var vitnað til. Aftui-
á móti hefur Morgunblaðið aldrei
haldið því fram, að Hermann
Jónasson hafi gefið slíkar yfir-
lýsingar. Blaðinu er ókunnugt
um, hvort hann hefur gert það
eða ekki og má vel vera, að hann
hafi látið það undan fallast, ein-
mitt vegna þess, að hann var
fyrir kosningarnar staðráðinn í
því að vinna með kommúnist-
um eftir kosningar, ef á þyrfti
að halda.
En því fór svo fjarri að Eysteinn
Jónsson hafi fyrir kosningar ver-
ið búinn að samþykkja þessa
ráðagerð Hermanns, að hann
trúði henni alls ekki. Það var
ekki fyrr en Eysteinn stóð
frammi fyrir staðreyndunum eft-
ir kosningarnar, að hann brotn-
aði eins og eðlisávísun Her-
manns hafði sagt til um. Og þá
notaði Hermann brotin til að
reisa skjólgarð fyrir völd komm-
únista á íslandi.
★
Um þá fyrirætlan þagði Her-
mann að vonum fyrir kosningar.
Tíminn segir raunar nú, og það
er meginuppistaðan í málsvörn
hans og Eysteins Jónssonar, að
Hermann og Eysteinn hafi í mál-
flutningi sinum fyrir kosning-
arnar, lagt áherzlu á þetta, eitt
af þrennu:
„Að færi svo að ekki næðist
hreinn meirihluti, mundi umbóta
bandalagið gangast fyrir stjórn-
armyndun í samvinnu við samtök
vinnandi fólks í landinu."
En ef þeir félagar héldu þessu
þá fram, af hverju sagði Tíminn
aldrei frá slíkum stórtiðind-
um ,heldur birti þvert á móti
þá yfirlýsingu, sem hann gerði
á kosningadaginn og gekk í
þveröfuga átt?
Hér gerir Tíminn of lítið úr
sjálfum sér. Fréttamennska hans
er betri en svo, að hann þegi
um slík tíðindi í 16 eða 17 mán-
uði. Tíminn sagði aldrei frá því-
líkum ummælum Eysteins Jóns-
sonar og Hermanns Jónassonar
einfaldlega af því, að þeir sögðu
ekki það, sem Eysteinn heldur nu
fram, heldur allt annað.
í málefnasamningi Alþýðu-
flokks og Framsóknar, sem birt-
ur var á sumardaginn fyrsta
1956, er vikið að tilteknu sam-
starfi, er fyrirhuguð stjórn þess-
ara tveggja flokka mundi hafa
við stéttasamtökin í landinu. Sú
samvinná var allt annars eðlis
en stjórnarsamvinna við Alþýðu-
bandalagið og beinlínis til að
umflýja hana. Andstæðingar
Hræðslubandalagsins héldu því
fram að sú ráðagerð væri óraun-
hæf. Það er mál fyrir sig og
kemur þessari deilu ekki við, að
öðru leyti en því, að Eysteinn
Jónsson vonar nú, að menn rugli
þessu tvennu saman og ætlar í
skjóli þess að villa um fyrir
þeim.
★
Menn hafa oft furðað sig á.
að maður eins og Eysteinn Jóns-
son skyldi una rangfærslum og
ósannindum Tímans. Vitað hef-
ur verið, að ef hann vildi, hafði
hann aðstöðu til að bæta þar úr.
Því hefur þá verið svarað til.
að Eysteinn sjálfur vandaði sig
í málflutningi, og óvinnandi verk
væri fyrir hann eða aðra að hafa
hemil á blaðamönnunum. Ekki
yrði meira krafizt en að hver sæi
um sjálfan sig.
Þessi hugsunarháttur kemur
berlega fram í Tímanum í gær.
Þar er með fyrirlitningu talað um
hvað „ýms blöð“ á borð við
Dag, Alþýðublaðið og Tímann
segi, en Eysteinn Jónsson er
hvítþveginn. Það leynir sér ekki,
hver hefur hér um fjallað. Þau
vinnubrögð stoða ekki lengur.
Héðan í frá þýðir aðstandend-
um Tímans ekki að skella skuld-
inni á ritstjórn hans eða blaða-
menn og segja að þeir geti ekki
elzt við dagleg störf þeirra. Nú
er lýðum ljóst, að Eysteinn Jóns-
son stendur sjálfur afhjúpaður
sem upphafsmaður ósannind-
anna.
Kekkonen Finnlandsforseti og kona hans voru nýlega í opinberri heimsókn í Danmörku og heim-
sóttu þá m. a. „Mindelunden“ í Ryvangen, þar sem fulitrúar frá dönsku andspyrnuhreyfingunni
tóku á móti þeim. Kekkonen lagði blómsveig við minnismerkið um þá, sem féllu I síðari heims-
styrjöldinni. Á myndinni sjást finnsku forsetahjónin og dönsku konungshjónin að athöfninni iok-
inni.
Ifertogahjónin af Windsor voru nýlega á ferð í Frankfurt og litu þá inn í fornminjaverzlun, þar
sem þau keyptu þrjú málverk eftir þýzka málai inn Carl Griinwald. Til öryggis tekur hertoginn
mál af málverkunum til að ganga úr skugga um, að rúm sé fyrir þau í ibúð hjónanna í París.
Elizabeth Brewer, 26 ára stúlka frá Wembley í Englandi, giftist nýlega Skotanum Andrew Ro-
bertson. Þau fengu bæði lömunarveikina fyrir nokkrum árum og eru meðlimir í sérstökum hjóla-
stóla-klúbbi. Þar hittust þau fyrir fjórum árum, þegar klúbburinn fór í ferðalag um HoIIand,
Danmörku og Svíþjóð. — Á myndinni eru vinir þeirra að ljósmynda þau eftir giftinguna.