Morgunblaðið - 05.10.1957, Blaðsíða 12
12
M ORGUNBlAÐIÐ
Laugardagur 5. okt. 1957
I
I
A
ustan
eftir
John
Steinbeck
148!
ist eitthvað hugsandi S svipinn,
svo að Cal sagðí: — „Ég er Cal
Trask“.
„Ja hérna. Það er naumast þú
ert orðinn rtór og mikill maður.
Er hann pabbi þinn hér líka?“
„Nei. Ég kom einn“.
„Gerðu svo vel og fáðu þér
sæti. Þú reykir líklega ekki.
„Jú, stundum. Vindlinga“.
Will ýtti pakka af Murad yfir
borðið til hans. Cal opnaði hann,
en lokaði honum jafnskjótt aftur:
— „Ég held að ég hafi ekki lyst
á því núna.“
Will virti fyrir sér dökkleitt
andlit drengsins og honum leist
vel á það. — „Þetta er greindur
strákur", hugsaði hann með sér.
— „Hann lætur ekki leika á sig“.
Svo sagði hann. — „Ég þykist
vita að þú farir fljótlega að spila
á þínar eigin spýtur?"
„Já, ég hefi hugsað mér að
byrja búskap á jörðinni okkar,
þegar ég er búinn með skólann."
„Það er ekkert á því að græða“,
sagði Will. — „Bændur verða
□-
-□
Þýðing
Sverrn Haraldsson
□-------------------□
aldrei ríkir. Það eru hinir sem
græða, sem kaupa og selja af-
urðir bændanna. Þú verðirr
aldrei ríkur á búskapnum. Will
fann að Cal var að reyna hann,
rannsaka hann, prófa hann og
það var honum alls ekki á móti
skapi.
Og Cal hafði ákveðið sig, en
fyrst spurði hann: — „Hr. Hamil-
ton, eigið þér engin börn?“
„Nei og mér þykir það mjög
leiðinlegt. Það er kannske mitt
mesta h: yggðarefni." Og því
næst: — „Hvers vegna spyrðu að
því?“
Cal lézt ekki heyra spurning-
una: — „Mynduð þér vilja gefa
mér ráð?“
Will hlýnaði af ánægju: — „Ef
ég get. þá skal ég gera það með
Fegurstu konur heims
... veiju Drene shnmpoo
Takið eftir hinum gullfallegu kvikmynda-
stjörnum, heillandi dansmeyjum og hrífandi
tízkusýnum. Sjáið hve hárið er mikill feg-
urðarauki. Og flestar þeirra velja DRENE
-shampooið, sem gerir hárið silkimjúkt og
auðvelt við að eiga. Hár yðar getur orðið
eins undurfagurt . . . ef þér notið DRENE
og auðvelt við að eiga.
DRENE SHAMPOO
gerir hárið silkimjúkt
SHAMPOO.
mestu ánægju. Hvað er það sem
þú vilt vita?“
Og þá gerði Cal það, sem Will
líkaði énn betur. Hann notaði
hreinskilni sem vopn. Hann sagði:
„Mig langar til að eignast mikla
peninga. Viljið þér segja hér
hvernig ég á að fara að pví?“
Will var næstum farinn að
hlæja, en honum tókst að halda
alvörusvipnum á andlitinu. Enda
þótt spurningin væri barnaleg,
þá áleit hann Cal alls ekki barna-
legan í hugsun. „Það vilja allir
verða ríkir", sagði hann. — „Hvað
kallar þú mikla peninga?"
„Tuttugu-þrjátíu þúsund doll-
ara.“
„Herra minn trúr“, sagði Will
og tók viðbragð í stólnum. Og
nú hló hann, en ekki hæðnislega.
Cal brosti aðeins, þegar Will hló.
„Geturðu sagt mér hvers
vegna villt þú eignast svona mikla
peninga?“, spurði Will.
„Já“, svaraði Cal. — „Það get
ég sagt yður.“ Hann opnaði
Murads-pakkann, tók sér einn
vindling með korkmunnstykki og
kveikti í honum.
Will hallaði sér aftur í stólnum
og skemmti sér hið bezta.
„Faðir minn tapaði miklum
peningum."
_„Ég veit það“, sagði Will. —
„Ég ráðlagði honum að reyna ekki
að flytja fryst grænmeti yfir
þvert landið."
„Gerðuð þér það? Hvers
vegna?“
„Það var engin trygging fyrir
hendi“, sagði Will. — „Kaup-
sýslumenn verða að vernda sjálfa
sig. Kæmu einhver óhöpp fyrir,
þá var úti um hann. Og óhöppin
létu ekki standa á sér. En haltu
áfram.“
„Ég þarf að eignast nógu mikla
peninga, til þess að bæta honum
upp það sem hann missti.“
Will starði á hann: — Hvers
vegna?“. spurði hann.
„Mig langar til þess.'
„Þykir þér vænt um hann?“,
spurði Will.
„Já.“
Kippir komu í holdugt andlit
Wills og endurminningu brá
snöggt fyrir í huga hans. eins og
köldum stormsveip. Hmn þreif-
aði sig hægt til baka, aftur í for-
tíðina. Hún var þarna Öll komin
leiftursnöggt, öll árin-eins og
mynd, tilfinning, örvænting —
stönzuð eins og þegar suðandi
kvikmyndavél stanzar skyndilega
og allt stendur kyrrt. Þarna var
Samúel, bjartur eins og heiðrík
dögun með sitt frjálsa og óbeizl-
aða hugmyndaflug. Og þarna var
Tom, góður og hugsandi og Una
sem hafði vindinn fyrir gangvara
og hin hrífandi Molly, Dessie hin
hugljúfa og hláturmilda, Gecrge
sem var svo myndarlegur og góð-
ur, að velviljj hans og góðvild
fylltu húsið eins og blómailmur.
Og þarna var Joe, hinn yngsti
og vinsælasti. Sérhvert þeirra
veitti fjölskyldunni einhverja
góða gjöf af gnægð sinni.
Flestir munu búa yfir leyndum
harmi eða sársauka, sem engir
aðrir eiga hlutdeild í. Will hafði
leynt þeirra einkaeign sinni mjög
vel. Hai’n hafði hlegið hátt, hag-
nýtt sér rangsnúnar dygðir og
aldrei látið langanir sínar og
metnað komast á glapstigu. í eig-
in augum var hann hversdagaleg-
ur, klunnalegur, íhaldssamur og
leiðinlegur. Engir stórir draumar
lyftu honum til flugs og -ngin
örvænting knúðj hann til sjálfs-
eyðingar. Hann hafði ávallt reynt
að finna sér fótfestu innan fjöl-
skyldunnar með þá eiginleika er
hann hafði til að bera, hirðusemi,
skynsemi, iðni. Hann sá um bók-
haldið, réði málflutningsmennina,
útvegaði útíararstjóra og greiddi
loks reikningana. Hinir meðlim-
ir fjölskyldunnar vissu jafnvel
ekki að þeir þörfnuðust hans.
Hann kunni að eignast peninga
og eiga þó. Hann áleit. að fjöl-
skyldan fyrirliti sig fyrir þenn-
an eina hæfileika, sem hann hafði
hlotið í vöggugjöf. Hann hafði
alltaf eiskað ættingja sína og allt-
af staðið tilbúinn með peningana
í höndunum, til þess að bjarga
þeim út úr hvers konar vand-
ræðum. Hann hélt að þeir skömm
uðust sín fyrir hann og hann
gerði allt sem hann gat, til að
öðlast viðurkenningu þeirra. Allt
þetta rúmaðist í hinni nístandi
köldu vindhviðu, sem næddi í
gegnum hann.
Hin fremur útstæðu augu hans
voru rök, þegar hann starði langt
fram hjá Cal og drengurinn
spurði: — „Hvað gengur að yður,
Hamilton? Líður yður ekki vel?“
Will hafði þekkt fjölskyldft
sína, en hann hafði ekki skilið
Unglingar
eða eldra fálk 'óskasf fil að hera
blaðið til kuupwuud vtoanfKgar um
bœinn
Sími 2-24-80
M A R K Ú S Eftir Ed Dodd
1) Þú kveiktir eldinn með i — Lögreglustjóri, viljið þér j 2) Lögreglustjórirm fer ofan í. 3) — Hérna er sönnunin, ann-
þessu kerti og ég held ég geti ekki framkvæma leit á manninum. vasa Láka. I að kerti. Þú ert handtekinn, Láki.
gannað það. I ‘ «
hana og hún hafði ekki vitað
að margt það bjó innra með hon-
um, sem kallaði á skilning. Og nú
kom þessi drengur til hans. Will
skildi hann, gat gert sér tilíinn-
ingar hans ljósar, þekkti sjálfan.
sig aftur í honum.
Svona son hefði hann þurft að
eiga, eða bróður, eða föður. Og
hinn napri næðingur minning-
anna breyttist í hlýju og góðhug
gagnvart Cal — steig upp og
fyllti brjóst hans.
Hann neyddi athyglma aftur
inn fyrir glerveggi skrifstofunnar,
Þar sat Cal hinn rólegasti í stóln-
um og beið
Will vissj ekki hversu lengi
hann hafði setið þögull.
„Ég fór að hugsa um dálítið
sérstakt", sagði hann hljóðlega.
Svo brýndi hann róminn: — „Þú
baðst mig um dálítið“, sagði hann.
„Ég er kaupsýslumaður. Ég gef
ekki neinum neitt. Ég sel það.“
„Já, hr. Hamilton.“ Cal var var
um sig, hann fann að Will Hamil-
ton líkaði vel við hann.
„Það er dálítið sem ég vil fá að
vita“, sagði Will. — „Og ég vil
fá að vita sannleikann. Vilt þú
segja mér hann?“
„Það veit ég ekki“, sagði Cal.
„Þetta svar líkar mér vel.
Hvernig geturðu vitað það, áður
en þú hefur heyrt spurninguna?
Þetta var gott svar. Það var skyn
samlegt-og heiðarlegt Hlustaðu
nú á mig. — Þú átt bróður. Þykir
föður ykkar vænna um hann en
þig?“
„Það þykir öllum“, sagði Cal
stillilega. — „Öllum geðjast vel
að Aroni.“
„Þér líka?“
„Já, hr. Hamilton. Að minnsta
kosti — já . . . “
„Hvað áttu við með. Að minnsta
kosti?“
Stundum finnst mér hann
heimskur, en mér þykir samt
vænt um hann.“
„En hvað með pabba þinn?“
„Mér þykir vænt um hann“,
sagði Cal.
„Og honum þykir vænna um
bróður þinn.“
„Ég veit það ekki.“
„Þú sagðist vilja gefa pabba
þínum aftur peningana, sem
hann hefði tapað. Hvers vegna?“
Venjulega var augnatillit Cals
ódjarflegt og varfærið, en nú var
það svo opinskátt og ákveðið að
það virtist ætla að lesa innstu
hugrenningar Wills.
„Pabbi minn er góður“, sagði
hann-„og mig langar til að bæta
honum það upp, að ég er ekki
góður.“
„En ef þú gerir það, ertu þá
ekki góður?“ v
„Nei“, sagði Cal. — „Ég held
ekki að ég geri það vegna
þe;-s að ég sé goður.“
Will hafðí aldrei heyrí nokkurn
mann tala svona bert og hrein-
skilnislega Það ló við að það
gerði hann vandræðalegan og
hann vissi hve ósæranlegur Cal
var í sinni einföldu hreinskilni.
— „Aðeins eina spurningu enn“,
sagði hann — „og mér er nokkurn
veginn sama þótt þú svarir henni
ekki. Ég held að ég myndi ekki
svara henni, í þínum sporum.
Og hérna kemur hún: — Ef þú
fengir þessa peninga og gæfir
pabba þínum þá myndi það þá
nokkurn tíma hvarfla að þér að
þú værir að reyna að kaupa ást
hans?“
„Já, hr. Hamilton. Og það værí
satt.“
SJÚtvarpiö
Laugardagur 5. október:
Fastir liðir eins og venjulega.
12,50 Óskalög sjúklinga (Bryndís
Sigurjónsdóttir). 14,00 „Laugar.
dagslögin". 19,00 Tómstundaþátt
ur barna og unglinga (Jón Páls-
son). 19,30 Einsöngur: Richard
Tauber syngur (plötur). — 20,30
Tónleikar (plötur). 20,45 Leikrit
„Móðurhjartað" eftir Leck Fis-
her, í þýðingu Ragnars Jóhannes
sonar. — Leikstjóri: Indriði
Waage. 22,10 Danslög (plötur).
24,00 Dagskrárlok.