Morgunblaðið - 24.10.1957, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 24.10.1957, Qupperneq 10
10 MOnCVlSBT AÐIÐ okt. 1957 Úr Austur-Skagafirði Gott sumar oð kvebja — Saubtjár- slátrun oð Ijúka — Fólki fækkar i sveit- unum — Lampaljós i skammdeginu Bæ, Höfðaströnd, 17. okt. SENN líður sumarið — eitt hið bezta, sem við núlifandi Skag- firðingar höfum fengið, og þó seihnihluti þess væri sumum, sem síðbúnir voru með heyjannir nokkuð erfiður, þá útleiddist þetta allt saman með ágætum. Ekki veit ég um neinn, sem kvart ar yfir litlum og slæmum heyj- um í þetta sinn, erum við þó stundum nokkuð vanþakklátir skaparanum. Garðávextir Garðamatur allur er kominn í hús. Reyndist hann meiri og betri en undanfarin ár. Rófur eru lítið ræktaðar vegna kálmaðks, sem undanfarin ár hefur eyðilagt þá uppskeru. í sumar hefur þó ekki borið á þeirri plágu svo að rófurnar virðast góðar, enda eftir sótt vara. Káltegundir þroskuðust mjög sæmilega, en því miður allt of óvíða og of lítið ræktað af þeim, enda óviss uppskera undanfarin ár hér á norðurhveli. Ný skilarétt. Fjallgöngur voru gerðar um svipað leyti og vanalega, en sauð fjárslátrun byrjaði þó fyrr. Féð er iíka komið heim á mörgum bæjum svo að hægðarleikur er að ná í nokkrar skjátur. Ef hret og stórrigning kemur að sumrinu, sérstaklega þegar líða tekur að hausti, þá streymir það niður. Sést það renna niður á láglendið alveg eins og verið væri á eftir því. í sumar byggðum við Höfð- strendingar með Hofsós nýja skilarétt á Árhólum nálægt Ljóts stöðum. Rétt þessi er öll stein- steypt og hið myndarlegasta mannvirki.Ekki er að fullu búið að taka saman byggingarkostnað en nokkuð á annað hundrað þús- und mun hún kosta. Nokkur við- höfn var við vígslu réttarinnar og fjölmenni mikið var þar sam- an komið. Elzti bóndi byggðar- lagsins, bændaöldungurinn Einar Jóhannsson, Mýrakoti, leiddi fyrstu kindina inn í réttina undir blaktandi fánum, en oddviti Hofs hrepps iýsti blessun sinni yfir réttinni og öllum þeim störfum, er þar yrðu framkvæmd Hann þakkaði einnig smiðum og verk- stjóranum, Ólafi Þorsteinssyni, bónda að Vatni, sem með dugn- aði sá um verkið samfara búskap sínum. Slátrun gekk vel Eins og að framan er sagt, byrj aði haustslátrun nokkrum dögum fyrir réttir. Er þetta nauðsyn, sérstaklega ef haustar snemma. Þá er gott að hafa lokið slátrun fyrr en ella. Slátrun gekk í alla staði prýðilega, enda hjálpaði veðurfarið til að létta mönnum störfin og gera allt að mun auð- veldara. Mér virtist sláturfé feit- ara en sl. ár og flokkun verður því betri. Þó er ég ekki viss um meðalvigt sé rtiikið meiri en sl. ár.Hæst mun veðalvigt hjá bónda hafa verið rúm 18 kg en 2416 kg. þyngsti kroppur. Það ólán henti okkur bændur að garnaveiki kom upp á einum bæ hér í hreppnum. Þetta setur óhug í menn þó aðstæður séu nú breyttar þar sem hætt er að skera niður við þessari veiki, en lömbin bólusett árlega. Er nú í ráði að bólusetning fari fram á allstóru svæði. Kýr eru að koma í hús, og er það óvenjuseint á þessum slóð- um. Einnig munu menn vera að taka lömb sín. Verður iambalíf liklegast nokkru meira en sl. ár. Það þarf líka að endurnýja gömlu ærnar því margt af þeim er ejkki frambúðarskepnur, sem sjá má af því, að einn dag var komið með 300 ær til slátrunar á Hofsósi í haust. Af þessum 300 voru 50 kroppar sendir heim vegna brjósthimnubólgu, en var- azt er að láta nokkurn sjúkan kropp fara til sölu. Stórgripaslátrun fer nú að hefj ast í sláturhúsunum. Það er sem sagt allt fullt af kjöti og öðrum sláturafurðum. Lítið er þó gert af slátri samanborið við það sem áður var. Nú er mest af því geymt nýtt í frystihúsunum og soðið allt árið um kring, bara þegar fólkið langar í nýjan sláturbita. Svið og annað góð- gæti úr kindinni okkar er einnig geymt nýtt. En það er svo sem fleira gert hjá okkur hér austan vatna en lóga fénaði. Félagsheimili. Byrjað er að reisa nýtt félags- heimili á Hofsósi og verður það myndarleg bygging ef dæma má eftir teikningu. Að því standa ýmis félagasamtök ásamt Hofós- hreppi. Ekki er þó að fullu ráðið hvort fleiri og víðari samtök standi þar að. Nokkur önnur hús eru einnig í smíðum bæði í kaup túninu og í sveitinni. Tvær skurð- gröfur hafa verið að verki hér í sveit í allt sumar. Er því í und- irbúningi geysimikil ræktun. Sjórinn hefir lítið verið stund- aður nú á meðan sláturtíð hefir staðið, því margt af sjómönnum er bundið við slátrun, enda illt að taka á móti fiski samhliða sauð- fjárslátrun. Fiskur mun þó vera nokkur og smásíld töluverð. Ef menn spyrja um heilsufar, þá er vanalega minnzt á kvef og þess háttar vilsu. Það er svo vana legt að enginn tekur til þess orð- ið. Um alvarlegri farsóttir held ég að ekki sé að gera a. m. k. hefir læknir ekki sett mig eða aðra í bann nýlega. Þó að alltaf fækki í sveitunum þá er þó mannfjölgun nokkur, enda værum við Skagfirðingar þá illa beygðir, ef slíkt brygð- ist, en okkur gengur illa að halda unga fólkinu í sveitunum hér sem annars staðar og eru mikil vand- ræði þar af. Okkur gengur lika illa að bjóða á móti frystihús- unum og öðrum hliðstæðum stofn unum. Stúlkurnar segjast geta fengið þar um 10.000 kr. þremur mánuðum. Nei, þá verð ég og fleiri að leggja niður rófu og kokka sjálfir ef á þarf að halda. Já, það er víða fátt um fólkið í sveitinni. Á sumrin stundum um og yfir 20, á veturna 3-4-5 hræður og það jafnvel nokkuð víða aðeins 2 sáiir ráfandi, nóg er að gera, svo að ekki ætti manni að leiðast, en þó saknar maður fjölmennis, já, og jafnvel blessaðra gestanna. Það haustar nú að, og þá finna þeir, sem lampaljósin hafa miklu betur, að ennþá vantar rafmagnið á þessar slóðir. Okkur er lofað, já statt og stöðugt að ef við kjósum þennan eða hinn, þá fáum við rafmagn, togara og fleiri lífsins gæði, en fjandakornið að bólar á neinu þvílíku. Nei, einn vetur- inn enn verður margur að una við léleg ljós og annað, sem víða er varla talið samboðið mennt- uðu fólki. Það tekur oft á þolin- mæðina að bíða eftir því, sem sjálfsagt er talið að fáist þetta eða hitt árið, en við erum orðin svo vÖn því, að ekki er talið umtalsvert þó loforð séu svikin. Björn í Bæ. jr iSi s K Á Si r i I i EFTIRFARANDI skák er tefld í keppni milli U.S.S.R. og Júgó- slavíu. Hvitt: T. Petrosjan Svart: N. Karaklaids Drottningarbragð. 1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. Rf3 d5 4. d4 Bb4 5. a3 .... (Hér er einnig leikið 5. Bg5, 5. e3, 5. Da4) 5..... BxcSf 6. bxc3 dxc4 (Svartur kýs heldur að taka peð- ið, en leika c5, sem leiðir til þægilegs afbrigðis í Nimzo-ind.) 7. e3 b5 (Nú væri of seint að snúa aftur vegna þess að hvítur fær óum- flýjanlega yfirráð á miðborðinu) 8. a4 c6 (Upp er nú komin staða, sem líkist mjög afbrigði í Slafneskri vörn er Petrosjan hefur tileinkað sér 1. d4 d5. 2. c4 c6. 3. Rf3 Rf6. 4. Rc3 dxc4. 5. e4!? b5. 6. e5 Rd5. 7. a4) VETRARÁÆTLUN Gildir frá 15. október 1957 - 17. mai 1958 til og frá Reykjavík . > !!., • ’UV - l BANDARIKIN • AUSTURLEIÐ md. TIL REYKIAVIKUR 8 Zi : —i j U 300 | föd 1 1300 ! 1 1300 | md. I 0700 | 0700 Id. mmmmm 1300 FRÁ REYKJAVÍK TIL STAFANGURS FRÁ STAFANGRI TIL OSLÓAR FRÁ OSLÓ TIL GLASGOW FRÁ GLASGOW TIL GAUTABORGAR FRÁ GAUTABORG TIL KAUPMANNAHAFNAR FRÁ KAUPMANNAHÖFN TIL HAMBORGAR I áaetAwnlimi mr g«rt ráð fyrlr »taA»r«»ma. nema i New Yorfc. fcar er reikna* mmt EST. mmmm Geriö svo vel að geyma auglýsinguna. 9. Dc2 Rbd7 10. e4 Bb7 11. e5 Rd5 12. Rg5 .... (Hótanir hvits eru orðnar óþægi- legar. Meðal annars hótar hann Rxh7 og Re4, d6) 12... Da5! 13. Bb2 b4 14. Bxc4 bxc3 (Tryggara virðist 14.Rxc3 og halda skálínunni a3—f8 lok- aðri. Ekki þarf svartur að óttast 15. Bxe6 fxe6 16. Rxe6 vegna Ke7) 15. Ba3 Rd7—b6 (Ef 15..... Ba6, þá 16. Re4 Bxc4 17. Rd6f) 16. Be2 Dxa4 17. Dxa4 .... (Það verður að teljast undar- legt að hvítur skuli voga sér að skipta á drottningum með tvö peð undir, en þegar þess er gætt að hann á biskupaparið og mjög vel staðsettan riddara, þá er hægt að skilja sjónarmið hans) 17... Rxa4 18. 0-0 Rab6 19. Hfbl Rf4? 20. Bfl f5? (Nauðsynlegt var 20..a5! og leika síðan Ba6) 21. exf6 gxf6 22. Re4 0-0-0 23. Bc5! ABCBEFGH A B D E F G H 23..... 24. Rxf6 25. Re4 26. g3 Kb8 Rfd5 Hhg8 Hge8 (Hvítur hafði í hyggju að leika 27. Bh3). 27. Bd6f Ka8 28. Hcl .... (Skemmtileg fórn var 28. Hxa7t Kxa7 29. Halt Ba6? (Ra4!) 30. Hxa6t Kb7 31. Rc5t Kc8 32. Ha8t Rxa8 33. Ba6t mát) 28............ Rbd7 29. Ha3 Rd7—b6 30. Hcal Rc8 31. Be5 h5 32. h4 .... (Vitaskuld vill hvítur fyrirbyggja að svartur skipti upp á hinu veika h-peði) 32............. HÍ8 33. Bg2 Hd7 34. Rxc3 Rdb6 35. Bfl HdfJ 36. Kc4 Rbd7 (Ef 36....c5, þá 37. Rg5 Hxf2 38. Rxe6 og vinnur) 37. Bd6 Rxd6 (Meiri varnarmöguleika veitti Hg8) 38. Rxd6 og svartur gaf. — Ingi R,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.