Morgunblaðið - 24.10.1957, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 24. okt. 195''
MORCTHVTtr 4fíl ©
15
Pdllond vonn Rússlnnd 2:1
U M sl. helgi fór fram í Chorzow
landsleikur í knattspyrnu milli
Pólverja og Rússa. Var þetta lið-
ur í undankeppni heimsmeistara-
keppninnar, en Rússland, Pólland
og Finnland eru saman í riðli.
Þau urðu óvænt úrslit þessa
leiks að Pólland vann með 2:1.
Eiga nú Pólverjar eftir að leika
við Finna á heimavelli og vinni
Pólverjar, sem almennt er talið
líklegt, þá verður fram að fara
aukaleikur milli Rússa og Pól-
verja um það hvort landið á að
mæta í úrslitakeppninni í Sví-
þjóð. Fyrri leik landanna unnu
Rússar með 3:1.
Rússum er spáð sigri í auka-
leik, en fari svo að Pólverjar
vinni aftur og Rússar komist
ekki í úrslitin í Svíþjóð, þá telja
kunnugir að það muni þýða tug-
þúsundatap fyrir Svía.
Lfós og slys
UM ÞAÐ BIL 5000 bifreiðir með
röng ljós í Reykjavík, segir í
grein í Morgunblaðinu í dag og
er hér um greinargerð að ræða
af hálfu lögreglunnar og Félags
ísl. bifreiðaeigenda. Um rangt og
rétt í þessum efnum er erfitt að
fullyrða nokkuð enn sem komið
er, enda reynslan sem fengin er
lítil sem engin. Tilraun þá, sem
gerð er með breytingu ljósa á
bifreiðum ber að meta sem við-
leitni til aukins öryggis öku-
mönnum og vegfarendum, hitt er
aftur meira á huldu hvort breyt-
ingin er til bóta frá því sem áður
var.
Á því er lítill vafi, að fyrir
ökumenn bifreiða og farþega
þeirra er mikil bót að breytingu
ljósanna. Þau eru lægri en áður
og beinast meir að vegarbrún.
Auðveldar hvorutveggja bifreið-
um að mætast, að því tilskyldu að
báðir ökumanna hlýti reglunum
og lækki Ijósin. Geri annar það
en hinn ekki eða hvorugur, sem
ekki mun ótítt, mun bótin lítil
frá því sem áður var. En þetta
er aðeins önnur hlið málsins.
— Varðarfundur
Framh. af bls. 9
Allt mælir þetta með því, að
verksmiðju- og íbúðahverfi séu
sem mest aðskilin, og virðist æski
legt, að verksmiðjuhverfi séu
ekki um of dreifð í bænum.
Þar sem augljóst virðist, að
íbúðahverfi bæjarins muni í fram
tíðinni aðallega teygja sig til suð-
urs, virðist eðlilegt, að verk-
smiðjuhverfi rísi meðfram Graf-
arvogi og þar norður af. Ætti þá
að skipuleggja þar stór landsvæði
einungis fyrir verksmiðjur og
iðnað.
Breikkun Laugavegs
Gísli Halldórsso* minntist á
ýmis önnur atriði, er skipulags-
nefndin hefur rætt. Má þar til
nefna það, að nefndin telur, að
ekki skuli byggja hærri hús en 3
hæðir, án þess að í þeim séu
lyftur.
Nefndin hefur einnig kynnt sér
nökkuð möguleika á að breikka
Laugaveg, og lízt henni vel á
þær hugmyndir, að opna skuli
svæði frá götunni með því að
koma upp súlnagöngum meðfram
henni að sunnan. Myndu súlurn-
ar bera uppi efri hæðir húsanna.
Einnig mætti taka bakgarðana
við götuna fyrir grasgarða og
bílastæði.
Skipulag austan Sjómannaskól-
ans.
í sambandi við umræðurnar á
Varðarfundinum um skipulags-
mál verzlunarhverfa Reykjavík-
ur tók Sveinn Benediktsson
framkvæmdastj óri til máls. Var
hann þeirrar skoðunar að skipu-
leggja ætti nýtt verzlunarhverfi
á svæðinu austan Sjómannaskól-
ans. Lagði hann fram eftirfarandi
tillögu, er vísað var til bæjar-
stjornarflokks Sjálfstæðismanna
asamt tillogum skipulagsmála-
nefndar:
Beykjavíkurbær láti skipu-
leggja svæðið frá Kirkjusandi til
Kringlramýrar með það fyr
ir augum að þar geti myndazt ný
verzlunar og framkvæmdamið-
stöð í bænum.
Hin hliðin er vegfarandans, hins
gangandi manns.
í áðurnefndri grein er réttilega
tekið fram, að vegfarendur fari
mjög ógætilega og að bifreiða-
stjórar forði mörgum banaslysum
á hverju ári. Komi hvorutveggja
til, gætni þeirra og snarræði.
Undir þetta ber að taka. En er
þeim gert auðveldara fyrir með
að forða slysum, við þá breytingu
sem gerð hefur verið á ljósbún-
aði ökutækjanna? Ég veit það
ekki, en efast þó um að svo sé þá
öll kurl koma til grafar.
Á þeim tíma, sem liðin er frá
því, að ég lét breyta ljósunum á
bifreið minni, hefir það tvisvar
hent mig að koma ekki auga á
vegfarendur, sem gengu á ak-
brautinni nær miðju vegarins,
fyrr en örskammt framundan bif
reiðinni og eingöngu vegna þess
að ljóskeila lægriljósanna náði
svo stutt fram á veginn. En eitt
fyrsta skilyrði til þess að forða
slysi er að sjálfsögðu það, að öku-
maður sjái svo langt framundan
bifreiðinni að ráðrúm sé til að
stöðva hana eða víkja frá hætt-
unni. Þetta frumskilyrði í um-
ferðaröryggi vegfarenda torvelda
mjög hin lágu ljós.
Á seinustu tveim vikum hafa
orðið mjög mörg, jafnvel óeðli-
lega mörg umferðarslys hér í
bænum. Ég get ekki svarað því
hvort hin nýja regla um ljósa-
búnað bifreiða á þar sök á. Að
mér læðist þó grunur um að svo
gæti verið. Eru það því tilmæli
mín til þeirra sem þessu ráða, að
á því fari fram athugun og eins
hitt, hvort sú stilling ljósanna,
sem gerð er, sé í rauninni sú
nákvæmlega rétta.
Reykjavík, 22. okt. 1957
Alexander Guðmundsson.
Spörum vatn til
bílaþvotta
Á FUNDI bæjarráðs á þriðjudag-
inn var rætt um bað að
nauðsyn bæri til að finna aðrar
ieiðir til bílþvotta en nú tíðkast,
svo gífurleg er vatneyðslan. Borg
ir erlendis hafa ekki efni á því
að láta jafnmikinn skerf af vatni
borganna til bílþvotta sem hér
er. Mun. því örugglega vera
hægt að finna leiðir til vatns-
sparnaðar við bílþvottinn. Fól
bæjarrág vatnsveitustjóra að
láta í té tillögur um nýja tilhög-
un á bilþvotti, með vatnssparnað
tyrir augum.
Talar um hitaorku
Krýsuvíkur
HAFNARFIRÐI —- Aðalfundur
Sjálfstæðisfélagsins Fram verð-
ur haldinn í Sjálfstæðishúsinu í
kvöld og hefst kl. 8,30. Auk
venjulegra aðalfundarstarfa, flyt-
ur Valgarð Thoroddsen rafveitu-
stjóri erindi um hitaorku Krýsu-
víkur. Síðan fara fram almenn-
ar umræður.
Er Sjálfstæðisfólk hvatt til að
fjölmenna á fundinn og taka með
sér gesti. — G.E.
2-24-80
íslenzk handrit
Frh. af bls. 3.
Páls saga byskups og aðrar bysk-
upasögur í útgáfu Turville-
Petre’s.
Á handrita- og bókasýningunni
verður handrit Gunnlaugs sögu
úr Árnasafni, fyrsta prentun sög-
unnar, Khöfn 1775, Fornritafé-
lagsútgáfan 1938, fyrsta enska
þýðingin eftir Eirík Magnússon
og William Powell 1875, amerísk
þýðing eftir M. H. Scargill 1950
og loks hin nýja útgáfa eftir Peter
Foote og R. Quirk, Edinborg 1957.
f annan stað verða sýndar ljós-
prentanir merkra íslenzkra hand-
rita, svo sem Konungsbókar,
Wormsbókar, Frísbókar, Flateyj-
arbókar og Staðarhólsbókar og
íslenzk handrit úr Þjóðbókasafni
Skotlands. Meðal þeirra handrita,
sem eru um 100 að tölu, má nefna
Jónsbókarhandrit, Orkneyinga
sögu, Sæmundar Eddu, Snorra
Eddu, Kormáks sögu og Sturl-
unga sögu. Loks verða sýnd 20,
eintök af prentuðum ritum ís-1
lenzkum frá fyrstu tíð og fram
á fyrstu ár 19. aldar og 17 rit
prentuð í Bretlandi um íslenzk
efni, aðallega bókmenntir og
málfræði, og er hið elzta þeirra
Rudimenta (málfræðiágrip) Run-
ólfs Jónssonar (d. 1654), sem
prentað var í Oxford 1689.
Vönduð sýningarskrá hefur ver
ið gefin út, ásamt fylgiriti um
hina nýju útgáfu íslenzkra rita,
og er framan á báðum mynd af
bagli Páls byskups Jónssonar,
sem fannst í steinkistu byskups
í grunni Skálholtsdómkirkj u fyr-
ir nokkrum árum.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
Félagslíl
T. B. R.
Þeir félagar Tennis- og Badmin
tonsfélagsins, er ætla að taka þátt
í áskorunar-keppninni í xetur,
eru beðnir að tilkynna þátttöku
til Kristjáns Benjamínssonar fyr-
ir 28. þ. m. — Stjórnin.
Þróttur — Handknattleiksdeild
Æfing hjá mfl., 1. fl. og 2. fl.
karla í kvöld að Hálogalandi kl.
8,30. — Jón Ásgeirsson.
Ilandknattleiskdeild Árnianns
Áríðandi æfingar í kvöld kl. 6
3. fl. karla. Kl. 6,50 kvennafl. Kl.
7,40 meistara, 1. og 2. fl. karla.
Mætið öll..
Ármenningar
Æfingar í kvöld í íþróttahús-
inu. — Stóri salur kl. 7 1. fl. kv.,
fiml.; kl. 8 2. fl. kv., fiml.; kl. 9 ís-
lenzk glíma. Mætið vel. Stjórnin.
íþróttafélag kvenna
Munið leikfimina í kvöld kl. 8
í Miðbæjarskólanum.
Samkomur
Hjálpræðisherinn
1 kvöld kl. 20,30: Almenn sam-
koma. Söngur og hljóðfærasláttur.
Allir velkomnir.
Kristniboðsvikan
Allir eru velkomnir á kristni-
boðssamkomuna í húsi KFUM og
K í kvöld kl. 8,30. Þar verður
kristniboðsfrásaga, einsöngur og
séra Jón Árni Sigurðsson, Grinda
vik talar. —
Kristniboðssambandið.
ZION
Alm. samkoma í kvöld kl. 8,30.
Allir velkomnir.
Heimatrúboð leikmanna.
Fíladelfía
Biblíuskólinn. — Biblíulestrar
hvern dag kl. 2, 5 og kl. 8,30. Allir
velkomnir!
I. O. G. T.
St. Andvari nr. 265
Fundur í kvöld kl. 8,30. Inn-
taka. — Spilakvöld. — Félagar,
fjölsækið. — Æ.t.
St. Hröfn nr. 55
Fundur í kvöld kl. 8,30. — Æ.t.
Akumesingar hætlir
síldveiðum
AKRANESI, 23. október. — Sú
ákvörðun var tekin í gærkveldi,
af útgerðarmönnum og öðrum
viðkomandi aðilum, að láta fara
fram afskráningu skipshafnanna
á öllum reknetjabátunum nema
tveimur, Sigurvon og Aðalbjörgu.
Eiga þeir að leita fyrir sér og
fylgjast með því ef einhver síld
kemur á miðin.
Aðeins tveir af þeim 9 bátum,
sem úti voru í fyrrinótt lögðu
netin. Fékk annar sjö síldar en
hinn þrjár. — Oddur.
Dágóðar sölur
HAFNARFIRÐI. — Tveir íslenzk-
ir togarar hafa selt afla sinn í
Þýzkalandi, það sem af er þess-
ari viku: Akranes-togarinn Bjarni
Ólafsson sl. mánudag 142 lestir
fyrir 108 þús. mörk og Surprise
á þriðjudaginn 187 lestir fyrir 112
þús. mörk. — Slæm tíð hefir ver-
ið undanfarið á miðum togaranna
og lítið aflazt þegar þeir hafa
komizt út. — Hafnfirzku bátarnir
hafa lítið getað aðhafzt a. m. k.
síðasta hálfan mánuðinn sökum
óhagstæðs veðurs. Eru nú flestir
þeirra hættir reknetjaveiðum,
enda ekkert aflazt nú um langan
tíma. — G. E.
Okkar kæra móðir og tengdamóðir
STEINUNN ODDSDÓTTIR
frá Óslandi í Höfnum lézt þann 23. október.
Börn, fósturbörn og barnabörn.
Maðurinn minn, sonur okkar
RANDVER ÞORVALDUR GUNNARSSON
vélstjóri, andaðist í Landsspítalanum 22. október.
Hjördís Þorsteinsdóttir,
Doróthea Ólafsdóttir, Gunnar Jónasson.
Móðir okkar
FRANCISKA OLSEN,
lézt 23. þ. m.
Lena Kampmann, Hanna Þorsteinsson.
Föðursystir mín
ÓLÖF HAFLHJADÓTTIR
Stórholti 24, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, föstu-
daginn 25. október kl. 1,30 e.h.
Jarðsett verður í gamla kirkjugarðinum. Blóm vin-
samlega afþökkuð, en bent á líknarfélög. Athöfninni
verður útvarpað.
Sigurður Hafliðason,
Teigagerði 4.
Jarðarför mannsins míns
GUÐMUNDAR SALÓMONSSONAR
fer fram frá heimili hans Sólbakka, Höfnum, laugardag-
inn 26. október og hefst heima með bæn kl. 2 e.h. Blóm
og kransar eru vinsamlega afbeðnir, en þeir, sem vildu
minnast hins látna eru samkvæmt ósk hans beðnir að
láta Kirkjuvogskirkju njóta þess.
Bílferð verður frá Vatnsnestorgi í Keflavík kl. 1,15.
Sigurlaug Þórðardóttir.
Maðurinn minn og faðir okkar
GUÐNI JÓNSSON
vélstjóri, sem lézt af slysförum 18. þ.m., verður jarðsung-
inn föstudaginn 25. þ.m. Athöfnin hefst með húskveðju
frá heimili hins látna Vatnsnesvegi 25, Keflavík kl. 1,30
e.h.
Karólína Kristjánsdóttir,
börn, tengdabörn og barnaböru.
Maðurinn minn og faðir okkar
GARÐAR FLYGENRING
Sólvallagötu 18, verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni
í Hafnarfirði laugardaginn 26. þ. m. kl. 2,30.
Blóm vinsamlegast afbeðin.
Ingibjörg Flygenring og börn,
Útför
EGGERTS EINARSSONAR
Vík í Mýrdal, er andaðist 14. þ.m., fer fram föstud. 21.
október. Hefst athöfnin með bæn á heimili hins látna kl.
2 e.h.
Hulda Magnúsdóttir, Kristín Eggertsdóttir.
Kveðjuathöfn um móður okkar
SYLVÍU N. GUÐMUNDSDÓTTUR,
fer fram föstudaginn 25. þ. m. kl. 3 e. h. frá Fossvogs-
kirkju.
Jarðsett verður í Vestmannaeyjum.
Börnin.