Morgunblaðið - 24.10.1957, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.10.1957, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 24. okt. 1957 MORCVNBLAÐIÐ 13 Jónas Björnsson frá Hólabaki MINNING ÞÁ ég frétti andlát Jdnasar Björnssonar, bónda frá Hólabaki í Þingi, æskuvinar foreldra minna og ættingja, varð mér að orði, að nú væri þeim. að fækka góðu vinunum frá þeim tíma, er ég man fyrst eftir mér í föður- garði og varð hryggur við. Ég má þó ekki telja fráfall þessa góða vinar mins óskiljan- lega ráðstöfun forsjónarinnar, þegar þess er gætt, að aldurinn var orðinn hár, nær 84 ár, og sjúkleikinn hafði ágerzt. Það var hin góða og hugljúfa endurminn- ing — vinátta og órofatryggð hans, er varð mér enn svo Ijós- lifandi og kær, að hugur minn komst úr jafnvægi. Þessa góða vinar míns, trausta og mikilhæfa manns, vil ég minnast með nokkrum orðum. Hann andaðist í Héraðshælinu á Blönduósi miðvikudaginn 16. október, kl. 8 að kvöldi. Jónas Björnsson var fæddur á Hæli á Ásum í Húnavatnssýslu 23. desember 1873. Foreldrar hans voru Björn Ey- steinsson frá Orrastöðum og kona hans, Guðbjörg Jónasctóttir, frá Tindum. — Foreldrar hans skildu að sambúð er hann var 4 ára, og var Jónas tekinn í fóst- ur af þeim hjónum Páli Ólafs- syni og Guðrúnu Jónsdóttur á Akri, og þar ólst hann upp til fuilorðinsára. Voru þau tvö systkinin af fyrsta hjónabandi Björns Ey- steinssonar, hann og Guðrún, kona Páls Hannessonar, bónda á Guðlaugsstöðum. Björn bjó lengi í Grímstungu í Vatnsdal, og er stór ættleggur fró honum kominn. Á Akri ólst Jónas Björnsson upp og naut þar hins bezta upp- eldis og fræðslu í heimahúsum. Minntist hann fósturforeldra sinna ætíð með lotningu og vin- semd og eins og þau hefðu verið foreldrar hans. Á Akri kynntist Jónas systur- dóttur Guðrúnar, fóstru sinnar, Gróu Sigurðardóttur frá Vestur- Botni við Patreksfjörð, og giftust þau 1898. Gróa Sigurðardóttir var mikilhæf og góð kona og móðir. Þau hjónin dvöldu á Akri og Steinnesi um 6 ár, unz Jónas þóttist hafa safnað saman það nægu fé, að hann gæti byrjað búskap. Þau hjónin byrjuðu búskap að Geirastöðum í Þingi árið 1904, hinum megin við Húnavatn frá Akri. Jörðin var frekar lítil, og varð að sækja útheysheyskap fram á eylendið, er lá milli Steinness og Þingeyraengja. Minnist ég þess þegar Jónas á Geirastöðum kom fram á „Part- inn“ eins og kallað var, að þá var eins og færðist nýtt líf í okkur strákana. Ljárinn beit betur og kappið varð meira, A Geirastöðum bjó Jónas mesta snyrtibúskap, en árið 1911 breytti hann til og keypti jörðina Hóla- bak, og þar bjó hann áfram sama snyrti- og þrifabúskap. Á Hóla- baki jók hann búið og gjörðist brátt vel stæður fjárhagslega og var talinn með efnuðustU bænd- um sveitarinnar. Heyrði ég ýmsa tala um það, að undrun sætti hve bú hans var afurðagott, og væri eins og „drypi smjör af hverju strái“. Hólabak er góð fjárjÖrð. Jónas byggði upp hús jarðarinn- ar og sérstaklega góð fjárhús, sem standa held ég ennþá. Hann átti fallegar skepnur og fóðraði þær vel og var undirkom- inn af heyjum á hverju vori. Jónas sálugi var greindur maður, vel lesinn og fylgdist vel með og tók mikinn þátt í þjóð- málabaráttunni. Hann tók virk- an þátt í umræðum mála á fund- um, var góður ræðumaður og rökfastur og fastur fyrir. Þó vil ég það fullyrða, að hann flutti mál sitt aldrei með þrákelkni og þumbaraskap, en vann að fram- gangi þjóðnytjamála og var glögg ur að sjá leiðir til sátta, ef svo bar undir. Jónas Björnsson var í hrepps- nefnd um tugi ára og sóknar- nefnd. Um skeið var hann sýslu- nefndarmaður. Þá var hann í stjórn búnaðarfélagsins, fræðslu- nefnd og fulltrúi sveitarinnar á aðalfundum Kaupfélags Austur- Húnvetninga. Sáttanefndarmað- ur var hann og þótti slyngur á því málaþingi. Eitt var það starf, sem Jónas hafði á hendi lengi í Sveinsstaða- hreppi, er var forðagæzlustarf. 1 þá daga var það ærið vandasamt starf talið á Norðurlandi og til þess valdir menn, sem nutu trausts bænda og er líklega enn. Er mér minnisstætt forðagæzlu starf þeirra Jónasar á Hólabaki og Magnúsar á Sveinsstöðum. Þeir komu saman, mældu heyin, þukluðu búpeninginn og gáfu vitnisburð fyrir, og voru m jög sammála um allar niðurstöður og framsetningu. Báðir voru þeir greindir menn, reglusamir og fyr- irmyndarmenn í starfi fyrir hreppsfélagið sitt. Þau hjónin eignuðust tvær dæt ur, er báðar voru mjög vel gefn- ar og góðar stúlkur, Ingibjörgu, sem var eldri, misstu þau 18 ára gamla og var það þungbær sorg, að sjá á eftir henni í bezta blóma lífsins, Helga, sú yngri, var heima þar til hún fór á Kennaraskólann og að námi loknu vann hún lengi á skrifstofu Morgunblaðsins. Nú dvelur hún á Vífilsstöðum. Þau hjónin á Hólabaki voru gestrisin og góð heim að sækja, og ríkti mesta reglusemi á heim- ilinu. Árið 1929 lét Jónas af búskap, er kona hans varð að hætta bú- stjórn sökum vanheilsu og fara á sjúkrahús, þar sem hún dvaldist unz hún andaðist. — Eftir að hann lét af búskap var hann lausamaður og dvaldi lengst á Hólabaki og nokkuð á Þingeyr- um, og naut hann beztu aðhlynn- ingu og vináttu hjá þeim hús- bændum. Með Jónasi Björnssyni er fall- inn í valinn einn af mætustu mönnum þeirrar kynslóðar, sem nú eru að hverfa á brott af sjón- arsviðinu. Hann var mikill þjóðarvinur og ramm-íslenzkur í anda og taldi það skyldu hvers manns að vinna sig sjálfur upp með vinnu sinni, hyggindum og sparsemi. Jónas var mikill veiðimaður og mun sá síðasti er lifði af „gömlu herdeildinni", er stundaði sel- veiðar með Hermanni á Þingeyr- um í Bjargós. Að síðustu, er ég lýk þessu máli mínu, þá kveð ég hinn látna með hans eigin orðum „vertu blessaður og sæll og guð fylgi þér“ og bið góðan Guð að vernda hann og blessa. Ólafur Bjarnason. >■ *.•.:■ ;'V Citroen ID 19 er nú loksins fáanlegur hingað til lands gegn nauð- synlegum leyfum. Bifreiðin er gjörbreytt frá hinum eldri Citroen bifreiðum að öllu útliti og tækniatrið- um. Framhjóladrif, gasvökvafjöðrum, piotuhemlar, sjálfvirk hallajöfnun o. m. fl. Umboðsmaður: Haraldur Sveinbjarnarson Snorrabraut 22 — Sími 11909 Húseigendur Byggingatétög — Húsbyggjendur Látið okkur annast smíði og uppsetningu á eftirfar- andi: Allskonar svala- og stigahandriðum, einnig hlið- grindum í stíl við girðinguna í kringum húsið yðar. Fjölbreytt sýnishorn fyrirliggjandi. Hringið aðeins í síma 3-2778 og við komum að vörmu spori með sýnishorn og gerum tilboð í verkið. Öll vinna framkvæmd á ótrúlega stuttum tíma. Snör handtök og örugg Vélsm. „KYNDILL" HF., SuðurlandsbraUt 110. ( Herskálakamp ) INGÓLFSCAFÉ INGÓLFSCAFÉ Gömlu og nýju dansarnir í Ingólfscafé í kvöld kl. 9. Söngvarar Didda Jóns og Haukur Morthens Aðgöngumiðar seldir frá kl. 8. — Sími 12826 VETRARGARÐURINN Cömlu dansarnir i Vetrargarðinum i kvöld kl. 9. Hljómsveit Vetrargarðsins leikur. Stjórnandi Númi Þorbergsson Miðapantanir í síma 16710, eftir kl. 8. FIMMTUDAGUR Gömlu dunsurnir AÐ ÞÓRSCAFÉ ! KVÖLD KL. 9. J. H. kvintettinn leikur. Dansstjóri: Baldur Gunnarsson. Aðgöngumiðasala frá kl. 5, sími 2-33-33 OPIÐ í KVÖLD! Hin nýja dægurlagastjarna GUIníMAR ERLENDSSON Uppboð Samkvæmt kröfu Magnúsar Thorlacius hrl., fer fram uppboð á einu trippi og fjórum ám að Dal- landi, í Mosfellssveit miðvikudaginn 6. nóvember n k. og hefst kl. 2 e.h. Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu. N auðungaruppboð sem auglýst var í 20., 24. og 25. tbl. Lögbirtinga- blaðsins 1957, á hluta í Rauðarárstíg 3, hér í bæn- um, eign Gunnlaugs B. Melsted, fer fram eftir kröfu Sveins Finnssonar hdl., tollstjórans í Reykjavík og Gunnars Jónssonar hdl., á eigninni sjálfri þriðju- dagiun 29. október 1957 kl. 2,30 síðdegis. Borgarfógetinn í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.