Morgunblaðið - 21.12.1957, Qupperneq 1
24 síður
Fölsuðu fjárlögin afgreidd á Alþingi
Tillögur Sjálfstæðismanna felldar
ÞRIÐJU umræðu um fjárlögin Iauk kl. 4 í gærmorgun. Síðdegis'
í gær fór fram atkvæðagreiðsla um breytingatillögur og fjárlögin
í heild. Stóð hún hátt á þriðja klukkutíma og lauk svo, að fjár-
lögin voru afgreidd frá Alþingi í þeim búningi, sem ríkisstjórnin
liafði krafizt af stuðningsmönnum sínum á þingbekkjum: — Stór-
lega fölsuð og það á þann veg, að eftir bæjarstjórnarkosningar
í janúar verður að Ieggja á þjóðina a. m. k. 85 millj. kr. í nýjum
álögum, auk þess sem taka þarf vegna útflutningsframleiðslunnar.
I umræðunum gagnrýndu Sjálfstæðismenn harðlega þau einstæðu
vinnubrögð, sem nú hcfur verið beitt við undirbúning og afgreiðsltu
íjárlaga. Þeir gerðu margar tillögur um breytingar á þeim og
lögðu áherzlu á, að aðfarir stjórnarliðsins væru líklegar til að
vekja tortryggni bæði innanlands og utan.
Loks voru felldar 3 tillögur um
uppeldisheimili fyrir ungar stúlk-
ur — sú síðasta var varatillaga
um að heimilt skyldi að kaupa
land fyrir slíkt heimili en sams
konar heimild var í fjárlögum
þessa árs.
Stjórnarliðar höfðu samið
greinargerð fyrir nei-i sínu vjð
tillögunni, og var efnið það, að
slíkrar heimildar myndi verða
aflað síðar af stjórnarliðinu
sjólfu, ef ástæða þætti til!
Ekkert nýtt
frá Hermanni
LUNDÚNUM, 20. des. — Hep-
mann Jónasson, forsætisráðherra
islands, kom til Lundúna í gær-
kvöldi með flugvél. í för með
honum var Guðm. í. Guðmunds-
son, utanríkisráðherra. Forsætis-
ráðherrann heimsækir sendiráð
íslands í Lundúnum í dag, en
heldur heimleiðis á morgun.
Reuter.
Um þessar mundir er verið að setja upp radar á Reykjavíkurflugvelli. Með tilkomu radarsins
mun öll umferð um flugvöllinn í misjöfnu veðri verða mun auðveldari og öruggari. Mynd þessa
tók ljósm. Mbl. ÓI. K. M. af hinni nýju radarstöð, sem stendur skammt vestur af flugturninum á
vellinum. Sjónskífu radarsins mun verða komið fyrir uppi í flugturninum svo að fliugstjórnar-
menn geta haft fullt eftirlit með umferðinni yfir vellinum.
Hvíta húsið tilkynnir, nð Ásgeir
Ásgeirsson og Eisenhower hnfi
tnlnzt við
Blaðafulltrúi Hvífa hússins segir sér
skiljist að þeir hafi m.a. rætt efna-
hagsmál Islands, en skrifstofa forseta
Islands segir það ranghermi
Stjórnarliðið í fjárveitinga-
nefnd flutti rúmlega 70 breyt-
ingatillögur og voru þær allar
samþykktar. Stærst var tillagan
um að taka 65 millj. kr. til niður-
greiðslna á vöruverði út af gjalda
hlið frumv. og „geyma í ís“
þar til síðar (20 millj. kr. til
niðurgreiðslna sem ákveðnar eru
hafa aldrei verið teknar í frum-
varpið, svo að 85 millj. bíða eftir
nýrri tekjuöflun eftir bæjar-
stjórnarkosningar). Þá var tillaga
um að rjúfa samninga við Reykja
víkurbæ um rekstur Kvía-
bryggju. Um hana var nafnakail'
og náði hún samþykki með 27
atkv. gegn 17. Af stjórnarliðum
sátu þeir Eggert Þorsteinsson og
Páll Zóphóníasson hjá, en nokkrir
voru ekki í fundarsal. Einnig
voru samþykktar tillögur um að
lækka framlög til lögreglustöðvar
og iðnskólahúss í Reykjavik og
að fella niður fjárveitingu til
leirbaða í Hveragerði.
★
Allar sparnaðartillögur Sjálf
stæffismanna voru feildar, en
sumar þó affeins meff 22 atkv.
gegn 19. Aörar tillögur þeirra
voru líka felldar, bæffi þær,
sem bornar voru fram af
minnihluta fjárveitinganefnd-
ar og einstökum þingmönnum.
Fékk traust
LUNDÚNUM, 20. des. — í dag
fóru fram í Neðrimálstofu brezka
þingsins umræður um utanríkis-
mál og var m.a. rætt um NATO-
ráðstefnuna og yfirlýsingutia að
henni lokinni. Bevan tók m.a. til
máls og gagnrýndi yfirlýsinguna.
■— Að umræðum loknum fór fram
atkvæðagreiðsla um vantraust á
stjói-nina. Fékk hún traust með
289 atkv. gegn 251. Sex óháðir
íhaldsþingmenn studdu ekki
Menntamálaráffherra greiddí
atkvæffi gegn auknum fjár-
veitingum til íþróttasvæöisins
í Laugardal, skólabygginga í
Reykjavík og lánasjóðs stúd-
enta, félagsmálaráffherra var
á móti hærri f járveitingum til
aff útrýma heilsuspillandi hús-
næffi og til aff byggja sjúkra-
hús á Selfossi og í Reykjavík.
Allar tillögur, er miffuffu aff
því aff ieiffrétta þaff misrétti,
sem stjórnarliffiff vill beita
Reykjavík aff þvi er varð.ir
fjárveitingar úr ríkissjóffi,
voru felldar. Sama var um
tillögur frá einstökum þing-
mönnum til aff fá fé til um-
bóta í kjördæmum sínum,
hvort sem um var aff ræða
ferjubryggju á Snæfjalla-
strönd, dráttarbát til Vest-
mannaeyja — effa eitthvaff til
staffa þar á milli.
★
Eina tillagan frá einstökum
þingmönnum, sem náði fram að
ganga, var frá þingmönnum Skag
firðinga um að fá til hafnargerð-
ar á Hofsósi 50 þúsund kr.
Þá voru felldar tillögur um
meira atvinnuaukningarfé og að
því skyldi úthlutað af þingkjör-
inni nefnd. Einnig var fellt að
banna umframgreiffslur úr ríkis-
sjóði nema til kæmi samþykki
allrar ríkisstjórnarinnar. Felld
var tillaga frá Sjálfstæðismönn-
um um að fé sérleyfissjóðs verði
varið til að byggja afgreiðslu-
stöðvar fyrir bifreiðar, en ekki
til að standa undir halla á Ferða-
skrifstofu ríkisins. Eggert Þor-
steinss. hafði borið fram aðra till.
um að sjóðurinn skyldi ekki lát-
inn greiða halla Ferðaskrifstof-
unnar, en stóð upp á fundinum
í gær og tók hana aftur, þar sem
ríkisstjórnin hefði lofað sér að
vinna að lausn málsins! Sjálf-
stæðismenn tóku tillögu Eggerts
Washingtón, 20. des.
(Reuter).
í DAG var gefin út tilkynn-
ing frá Hvíta húsinu, þar sem
segir, að Eisenhower Banda-
ríkjaforseti hefði átt viðræð-
ur við Ásgeir Ásgeirsson for-
seta íslands á heimleiðinni
frá París. Wayne Hawks, sem
gegnir störfum blaðafulltrúa
forsetans um þessar mundir,
sagði við fréttamenn, að sér
skildist, að forsetarnir hefðu
rætt m.a. um efnahagsmál
Islands. — Blaðafulltrúinn
kvaðst ekki vita, hvort rætt
hefði verið um dvöl banda-
ríska varnarliðsins í NATO-
bækistöðinni á Keflavíkur-
flugvelli eða tolla á fiski, sem
Islendingar selja til Banda-
ríkjanna. Blaðamennirnir
spurðu um bæði þessi fyrr-
nefndu atriði.
Með forsetanum voru, seg-
ir ennfremur í Reutersskeyt-
ins, Strauss, formaður kjarn-
orkunefndarinnar, Anderson,
fjármálaráðherra, Killian, sér
stakur ráðgjafi forsetans um
vísindaleg efni og Twining
herráðsforingi.
Geta má þess, að í fjarveru
utanríkisráðherra var Gylfi
Þ. Gíslason í fylgd með for-
seta Islands.
SÍÐAR í gærkvöldi fékk Mbl.
skeyti frá NTB., þar sem vikiff er
aff þessu sama. Þar segir svo: Á
leiff sinni frá París til Wasliing-
ton kom Eisenhower forseti til
Reykjavíkur (svo) Hafffi hann
margra klukkustunda viffstöffu (á
íslandi) og notaffi forsetinn tæki-
faeriff til aff ræffa viff Ásgeir Ás-
geirsson forseta íslands um sam-
eiginleg vandamál ríkjanna. Viff-
ræffurnar fóru fram á Keflavíkur
flugvelli. Forsetarnir ræddu m.a.
um ákveffin vandamál í sambandi
viff efnahagsmál fslands.
★
Mbl. sneri sér til skrifstofu
forseta Islands og bar þessar
fréttir undir hana. Barst blað-
inu svohljóðandi tilkynning
frá forsetaritara: „í tilefni af
fregnum þeim, sem borizt
hafa erlendis frá um viðræð-
ur forseta Islands og forseta
Bandaríkjanna á Keflavíkur-
flugvelli, skal eftirfarandi
tekið fram: Forsetarnir rædd-
ust við alveg óformlega um
almenn málefni, í viðurvist
þeirra dr. Gylfa Þ. Gíslasonar,
menntamálaráðherra, sein fer
með utanríkismál í fjarveru
utanríkisráðherra, J. Muccio,
sendihcrra Bandaríkjanna og
nokkurra af fylgdarmönnum
Eisenhowers forseta. í við-
ræðum þessum var ekki
minnzt einu orði á efnahags-
mál íslands".
stjórnina að þessu sinni.
þá upp, en hún var felld.
Fréttir í stuttu máli
LUNDÚNUM, 20. des. — Forseti Indónesíuþings dr. Sartono vann
í dag embættiseið sem forseti Indónesíu í veikindaforföllum Suk
arnos.
Sukarno heldur til útlanda í janúar, sennilega til Indlands,
enda hafa læknar hans ráðlagt honum að taka sér frí frá störfum.
.— f dag ákvað ríkisstjórnin í samráði við þingið að nota 100 millj.
dollara rússneskt lán til kaupa á skipum, sennilega frá Ráðstjórri-
arríkjunum.
Sendiherra Ráðstjórnarríkjanna í Bonn hefur frestað för sinni
heim til Moskvu, því að Adenauer hefur kallað hann á sinn fund
í byrjun næstu viku.
Rússneski vísindamaðurinn frægi dr. Alexander Nesmejanov,
gagnrýndi harðlega á fundi æðstaráðsins í dag, hvernig búið væri
að rússneskum vísindamönnum. Hann sagði, að Ráðstjórnin yrði
að gera allt, sem í hennar valdi stæði til að Bandaríkjamenn kæm-
ust ekki fram úr Rússum í geim- og eldflaugavísindum, en á því
væri hætta, ef kjör rússneskra vísindamanna yrðu ekki bætt.
Dulles ræddi við Frankó einræðisherra í þrjá tíma í kvöld í
Madríd. Ekki mun hafa verið rætt um bandarískar eldflaugastöðv-
ar á Spáni. — Dulles hélt heimleiðis eftir fundinn.