Morgunblaðið - 21.12.1957, Síða 2

Morgunblaðið - 21.12.1957, Síða 2
2 MORGVNBLAÐIÐ Laugardagur 21. des. 1957 Eysteinn Jónsson fjárm álaráðherra lýsir yfir: Þótt sparnaðartillögur Sjálfstæðismanna væru samþykktar, yrði ekki eftir þeim farið Rlþingi sýnd fullkomin lítilsvirðing EINS og sagt var frá í Morgun- blaðinu í gær hófst 3. umræða um fjárlagafrumvarpið nokkru eftir háðegi í fyrradag. Stóð hún síð- an með nokkrum hvíldum allt fram til kl. 4 í gærmorgun. At- kvæðagreiðsla fór fram síðdegis í gær. í blaðinu í gær voru raktar 3 fyrstu ræðurnar í umræðunni: Framsöguræða Karls Guðjóns- sonar f.h. meirihluta fjárveitinga nefndar, framsöguræða Magnúsar Jónssonar f.h. minnihlutans og ræða Gunnars Thoroddsens um fjárframlög til skóla og heil- brigðisstofnana í Reykjav. og um rekstur Kvíabryggju. Einnig var nefndarálit Sjálfsteeðismanna í fjárveitinganefnd birt í gær í heild. Fer hér á eftir útdráttur úr ræðum, sem haldnar vorn eftir fundarhlé frá kl. 4—5. Á morgun verður enn sagt frá þess- ari umræöu. Vandamálunum frestað Eysteinn Jónsson fjármálaráð- herra tók til máls þegar fundur hófst aftur kl. 5. Hann viður- kenndi það í ræðu sinni, að með því að taka dýrtiðargreiðslurnar út af fjárlögum, væri verið að fresta lausn mestu vandamál- anna. Þetta væri þó gert til þess að geta afgreitt fjárlög fyrir ára- mót. Sagði hann að það væri ekki nema eðlilegt að framleiðslu og dýrtíðarmálin yrðu látin bíða framhalds þingsins fram yfir áramót. Eysteinn sagði og að fleiri fjár- hagsmálefni væru óleyst og nefndi hann til tvö dæmi, annað væri að efna fyrirheit um lækk- un skatta á lágtekjufólki, hitt að taka fyrir hjónaskattsmálið. Það hvort þessi mál yrðu leyst færi eftir því, hvort hægt yrði að afla tekna með öðru móti. Fjármálaráðherrann vék að yfirlýsingum Sjálfstæðismanna, að fjárlögin væru fölsuð með því að taka dýrtxðaruppbæturnar út af þeim. Kvað hann það ekki fá staðizt. Þvert á móti lægi málið nú skýrara fyrir þjóðinni en áður. Varðandi þá ásökun, að Sjálf- stæðismenn hefðu ekki fengið að gang að áliti sparnaðarnefndar- innar, sagði hann að nefndin hefði enn ekki lokið störfum. Frá henni hefði ekkert endanlegt komið sem hægt væri að birta. Samþykktir Alþingis ekki teknar til greina Síðan rakti hann sparnaðartil- lögur Sjálfstæðism., svo sem um lækkun kostnaðar hjá ýmsum stofnunum. Sagði hann að þessar tillögur væru algerlega þýðingar lausar, því að jafnvel þótt þær væru samþykktar af Alþingi, yrðu þær ekki teknar til greina. Að lokum endurtók Eysteinn, það sem hann hefur oft sagt í þessum umræðum, að fyrst stjórn arandstaðan leyfir sér að gagn- rýna að stjórnin kemur ekki með tillögur um hvernig eigi að leysa efnahagsmálin, þá eigi hún sjálf að koma með tillögur um lausn þeirra. Hann sagði eitthvað á þessa leið: — Sjálfstæðismenn hafa gagn- rýnt þá afgreiðslu að taka út af fjárlögum 65 milljón króna dýr- tíðaruppbætur og 20 millj. kr. sem ógreiddar eru. Samkvæmt þeirra skoðun ætti þá að vera um 85 millj. kr. halli á fjárlögunum. En hvernig vilja þeir þá láta brúa þetta bil? Þeir háfa ekki komið með neinar tillögur um lausn vandans, svo að þetta endar allt í tómri botnleysu hjá þeim. Styrkir til flóabáta Páll Þorsteinsson framsögumað ur samvinnunefndar samgöngu- mála gerði allýtarlega grein fyr ir tillögum nefndarinnar um styrki til flóabáta. Nema þær til- lögur samtals rúmum 3 millj- ónum króna og eru 287 þús. kr. hærri en á núgildandi fjárlög- um. Algert úrræðaleysi Jóhann Hafstein tók næstur til máls og flutti alllanga og efnis- ríka ræðu. Hann kvað afgreiðslu fjárlaga nú vera furðulega, og sýndi hún algert úrræðaleysi rík- isstjórnarinnar um lausn hinna mest aðkallandi mála. — í haust þegar fjárlagafrum- varpið var lagt fram og það sýndi greiðsluhalla, lofaði fjármála- ráðherra því, að það vandamál yrði leyst með því að hafa sam- ráð við stuðningsflokka ríkis- stjórnarinnar. En nú er komið fram undir jól og komið að af- greiðslu fjárlaga og enn er ekki lokið athugun ríkisstjórnarinnar á því hvað til bragðs eigi að taka. Svo er það seinasta hald- reipi stjórnarinnar að segja: Þó við höfum ekki staðið okk- ur vel, þá hefur stjórnarand- staðan ekki staðið sig betur, því að ekki hefur hún komið með tillögur til að leysa þenn- an vanda. — En það á ekki að auglýsa eftir stjórnarandstöðunni í þessu máli, sagði Jóhann Haf- stein. Það á að auglýsa eftir fjármálaráðherra. Það er ein- mitt þetta sem á að vera höfuð starf hans og ríkisstjórnarinn- ar. Á stjórnarandstaðan að af- greiða fjárlög fyrir úr- ræðalausa ríkisstjórn? Eysteinn segir, að ef stjórn- arandstaðan kemur ekki með tillögur til úrbóta, þá muni allt enda í botnleysu. Hvar tíðkast það í þingræðislönd- um, að stjórnarandstaðan fari að afgreiða fjárlög, þegar allt lendir í öngþveiti hjá ríkis- stjórninni? Er naumast hægt að hugsa sér lélegri frammi- stöðu nokkurs ráðherra en nú hjá Eysteini. Fjárlögin fölsuð til að blekkja almenning Og Jóhann Hafstein hélt áfram: — Svo segir Eysteinn, að ekk- ert sé verið að falsa og engu að leyna með því að taka 85 milljón kr. dýrtíðaruppbætur út af fjár- lögum. Það muni þvert á móti gera málin skýrari. Jóhann lýsti því yfir, að með þessum aðgerðum væri stjórnin að falsa fjárlagafrumvarpið fyrir almenningi. Því til sönnunar benti þingmaðurinn á það að nú þegar hefði eitt stjórarblaðanna birt í stórri fyrirsögn „Fjár- lagafrumvarpið verður greitt án tekjuhalla". Stjórnarflokkarnir myndu leggja áherzlu á það í áróðri sínum, að meira að segja væri tekjuafgangur á fjárlögun- um. Þessi tekjuafgangur, sem þeir guma af hefur fengizt með því að taka 65 millj. kr. lið út af fjárlögunum. En það er ekki verið að fella hann niður, það er aðeins verið að fresta honum. Það á að blekkja þjóð ina með því að sleppa öllu því sem máli skiptir. Svo á að segja í áróðrinum, að fjármála spekingur Framsóknar hafi ekki látið á sér standa. Hann hafi látið afgreiða f járlög fyrir jól og það meira að segja greiðsl uhallalaus!! — Hitt sem öllu máli skiptir á svo að bíða fram yfir bæjar- og sveitarstjórnarkosningarnar. En hvað á þá að gera? Það fær eng- inn að vita um, en jafnvel stuðn- ingsmenn stjórnarinnar hvísla um, að þá eigi að fella gegið. Þannig á að blekkja fólkið fram yfir kosningar. Óvirðing við Alþingi Jóhann Hafstein sagði, að eftir slíka frammistöðu mætti Ey- steinn Jónsson fara að taka sér frí. Og enn versnaði málið í síð- ustu ræðu Eysteins, þegar hann segir það upp í opið geðið á þing heimi, að það hafi engin áhrif þótt Alþingi samþykki sparnaðar tillögur Sjálfstæðismanna. Þær yrðu samt ekki teknar til greina. Er nú hægt að hugsa sér meiri lítilsvirðingu fyrir þinginu? spurði Jóhann. Taldi hann að eft- ir alla framkomu Eysteins Jóns- sonar, myndi þjóðin ekki taka mark á honum sem fjármálaráð- herra. Næst þessu vék Jóhann Haf- stein að einstökum breytingar- tillögum við fjárlagafrumvarpið sem hann hefur borið fram ýmist einn eða með öðrum flokksbræðr um sínum: Byggjast þær á því að flutningsmenn telja, að tekjuhlið frumvarpsins eins og það liggur nú fyrir sé vanáætluð. Laugarnesvöllurinn 1) Tillaga um 2 millj. kr. við- bótarframlag til íþróttasjóðs, sem gangi til að greiða hluta af lög- boðnu framlagi ríkissjóðs til leik vangsins í Laugardal. Jóhann rakti nokkuð fjárhags- örðugleika leikvangsbyggingar- innar, sem stafa fyrst og fremst af því að ríkissjóður á milljónir kr. vangoldnar til hennar. í júní- mánuði i sumar námu þessar van greiðslur 3,7 millj. kr. Framlag íþróttasjóðs á að nema 40% af framlagi bæjarins. Nú mun bær- inn veita 2 millj. kr. til leikvangs ins á næsta ári, svo að skuld ríkisins mun þá vaxa um 800 þús. Með nokkrum orðum rakti Jóhann þýðingu Laugardals- vallarins. Þar mun æskulýður af öllu landinu koma saman til landsmóta og þar verða haldnir alþjóðlegir kappleikir. Skv. núverandi fjárlagafrum- varpi væri ekki að vænta að farmlög ríkissjóðs ykjust neitt. Alþingi ætti þó enn kost á að leiðrétta það með samþykkt þessarar tillögu. Skoraði hann einkum á alla þingmenn Reykjavíkur, í hvaða flokki sem þeir væru að styðja hana. Útrýming heilsuspillandi húsnæðis 2) f fjárlagafrumvarpinu er nú gert ráð fyrir 4 milljón kr. fram- lagi til útrýmingar heilsuspill- andi húsnæði. Leggja Sjálfstæð- ismenn til að það verði hækkað um 8 milljónir upp í 12 millj. kr. Jóhann taldi, að þetta væri hið minnsta framlag ríkissjóðs, sem hægt væri að komast af með, ef ríkið vildi viðurkenna skyldu sína í þessum málum. Sést það bezt af því að á undanförnum 3 árum hefur Reykjavíkurbær lagt fram 34 Vz milljón króna tii út- ^rýmingar á heilsuspillandi hús- næði og bröggum, en ríkið sem á að leggja fram jafnmikið hefur aðeins lagt fram 10 millj. kr. Þingmaðurinn upplýsti að allir bæjarfulltrúar í Reykja- vík hafi undirritað áskorun um að fá framlag ríkisins hækkað. En svo þegar hann hefði leitað hófanna að fá sam stöðu um tillöguna við þing- menn stjórnarflokkanna, hafi þeir neitað því, svo að ekki blási byrlega. En Jóhann Hafstein sagði, að hér væri mikið alvörumál á ferðinni. Lýsti hann ábyrgð á hendur stjórnarflokkunum, ef þeir ætluðu með fjandskap sínum í garð Reykjavíkur að hindra útrýmingu heilsuspill- andi húsnæðis og herskála. Af öllu því sem byggja þarf, sagði Jóhann er það forgangs- krafa að hægt sé að byggja nýtt húsnæði til áð útrýma heilsuspillandi húsnæði og her skálum. En vinstri stjórnar- flokkarnir virðast ætla að skella skolleyrunum við því. Það er því þeirra sök og á þeirra ábyrgð ef þeir hindra framgang þessa nauðsynja- máls. Ábyrgðarheimildir 3) Að lokum vék Jóhann Haf- stein að tillögu sem hann hefur flutt varðandi ábyrgðarheimildir. Hann kvaðst telja að ríkisstjórn in væri komin alltof langt í því að veita ýmsum einstaklingum, fé- lögum og sveitarfélögum ábyrgð- ir á lánum, sem sæist bezt á því, að í núverandi f járlagafrumvarpi væri gert ráð fyrir nýjum ábyrgðarheimildum að upphæð 80 millj. kr. Þingmaðurinn taldi nauðsyn- legt að setja almenna löggjöf um ábyrgðarskuldir ríkissjóðs. Með- an það hefur ekki verið gert vildi hann láta setja klausu í fjár lögin um að ábyrgðarheimildirn- ar megi ekki nota nema skv. til- lögum 5 manna nefndar, sem kosin er af Alþingi. Skagastrandarhöfn Jón Pálmason fékk næstur orð- ið og ræddi um tvö atriði, — um fjárveitingu til Skagastrandar- hafnar og um fyrirvara, sem hann hafði sem nefndarmaður í áliti samvinnunefndar sam- göngumála. Jón kvaðst ekki geta unað við það, að fjárveiting til hafnarinn- ar væri skorin niður í 50 þús. kr. og leggur hann til að hún hækki upp í 150 þús. kr. sem hún hefur verið. Taldi hann hér væri um misskilning að ræða. Niðurskurð- urinn stafaði af því, að búizt hefði verið við að 360 þús. kr. kostnaður við dýpkun hafnarinn- ar í sumar yrði greiddur úr sjóði vitamálaskrifstofunar. Nú hefði hins vegar verið ákveðið að Síld- arverksmiðjur ríkisins greiddu 240 þús. kr. og höfnin sjálf 120 þús. kr. og væri því ekki lengur fyrir hendi ástæða til að skera fjárveitinguna niður. Fyrirvari sinn við álit sam- göngumálnefndar sagði Jón, að túlkaði þá skoðun að fjárveiting- ar til strandsiglinganna væru komnar út í algerar öfgar, þegar til þeirra væri greitt 3 millj. kr. meira en til allra nýbygginga þjóðvega í landinu. Hér þyrfti að breyta til. Samgöngumiðstöð Eggert G. Þorsteinsson talaði fáein orð, sem mælt voru fyrir hönd félags sérleyfishafa. Merg- ur málsins var að skv. lögum á „sérleyfissjóður“ að greiða rekstr arhalla Ferðaskrifstofu ríkisins. Síðan 1952 hafa slíkar greiðslur ekki farið fram. Á þessum tíma nemur rekstrarhalli Ferðaskrif- stofunnar 902 þús. kr. en eignir sérleyfissjóðs eru nú kr. 1,426,726,00. Félag sérleyfishafa óskar þess að eignir hans verði ekki notaðar til að greiða um- getinn rekstrarhalla, heldur verði þeim varið til byggingar sam- göngumiðstöðvar og ber Eggert fram tillögu þixr að lútandi. Alfreð vill spara Fundarhlé var kl. 7—9. Að því loknu tók Alfreð Gíslason (K) fyrstur til máls. Mælti hann fyrir tillögu um hækkun á styrk til St. Jósefsspítala og lækkun á framlögum til sendimanna í París og lögreglu á KeflavíkurflugvellL Einnig sagði Alfreð: „Lækkunar tillögur hefðu mátt vera fleiri og koma fyrr fram í umræðum. En áhuginn á slíkiu virðist ekki mikill þessa stundina hjá meiri- hluta háttvirts þingheims“. Sið- an gagnrýndi hann kostnað við alþjóðaráðstafanir, ríkislögreglu, skrifstofu flugmálastjórnar og námsstjórastöður. Sagðist hann álíta, að þjóðin ætlaðist til að stjórnin beitti sér fyrir sparnaði, Hún hefði enn ekki verið nógu mikilvirk, þrátt fyrir viðleitni af hálfu „Alþýðubandalagsins". Verzlunarskólinn Þá tók til máls Björn Ólafsson. Hann sagði m.a.: Ég vil fyrst víkja að breyting- artill., sem ég flyt um aukið fram lag til Verzlunarskólans. Lengi var það svo, að hlutfall á milli framlaga til þess skóla og Sam- vinnuskólans var 3:1, en nú er gert ráð fyrir, að Verzlunarskól- inn fái ekki nema 440.000 á móti kr. 320.000 til Samvinnuskólans. Það jafngildir því, að á hvern nemanda í Verzlunarskólanum komi kr. 1.300, en á hvern nem- anda í_ Samvinnuskólanum kr. 5.000. Ég er ekki að gagnrýna fjárveitinguna til Samvinnuskól- ans, en tel réttlátt að hækka framlagið til Verzlunarskólans upp í kr. 825.000. Myndu þá koma kr. 2.500 á hvern nemanda þar. Eysteinn genginn í björg Þessu næst vék Björn Ólafsson að f járlögunum almennt og sagði m.a.: Á síðari árum hefur Eysteini Jónssyni verið mjög hampað fyr- ir viturlega fjármálastjórn. Nú er að sjá sem hann sé orðinn all- ur annar. Eftir að hann gekk í björg með kommúnistum, er hann ekki lengur hinn varfærni og glöggskyggni maður. Hann gengur um hér í þinghúsinu þög- ull og þungbúinn eins og í dá- vímu, og ef einhvern tíma örlar á hans gamla tóni, er hann orð- inn að hversdagslegum barlómi. Þeir, sem starfað hafa með Ey- steini Jónssyni, kunna að meta það, sem hann hefur til brunns að bera, og harma hlutskipti hans nú. Fjármálastjórn hans í 12 ár hefur ekki verið hafin yfir gagn- rýni, en hún hefur markazt af ákvörðunum, sem hann hefur eftir beztu vitund talið réttar. Nú er yfir ráðherranum óskilj- anlegt lánleysi og hann hefur beitt sér fyrir herfilegustu og háðulegustu fjárlögum, sem Al- þingi hefur nokkru sinni verið beðið að samþykkja. Þannig end- ar oft ferill mikilhæfra manna, er þeir af pólitísku ístöðuleysi °S gegn mótmælum samvizku og skynsemi ganga til samstarfs við erkióvini sína. Þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram var það sjálft með 71 millj. kr. tekjuhalla. Einu sinni hefði mönnum aldrei til hugar komið, að Eysteinn Jónsson myndi láta sig henda slikt. f ræðunni, sem hann flutti í útvarp ið hinn 16. október var tóninn mjög aumur. Til afsökunar hátta lagi sínu færði ráðherrann það, að ekkert tækifæri hefði gefizt tii að ráðgast við stuðningsflokka Framh. á bls. 3.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.