Morgunblaðið - 28.12.1957, Side 6
6
MORGUNBLAÐIí.
Laugardagiír 28. des. 1957
EINRÆÐI RUSSA
ÞEGAR uppreisnin stóð í
Ungverjalandi og Pól-
verjar virtust hafa rutt
af sér þyngsta okinu að austan,
ritaði ítalski sósíalistinn Matte-
otti grein um þessi mál, þar sem
hann hélt því fram að kröfur
landanna í austanverðri Evrópu
til meira sjáifstæðis gerðu að
engu þá kenningu Sovét-Rússa,
að þeir og ríki þeirra ættu að
hafa skilyrðislausa forustu í mál-
um kommúnistalandanna. Sovét-
Rússland væri ekki lengur for-
ustuþjóðin, sem afdráttarlaust
bæri að hlýða. Matteotti gekk svo
langt að spá því, að nú væri skrið
ur kominn á það, sem hann kall-
aði „demokratiseringu sovétveld-
isins“, en með því átti hann við
að stjórnarfar þar mundi nú snú-
ast meira í átt til lýðræðislegra
hátta.
Því miður reyndist þessi spá-
dómur rangur. Það hefur sýnt
sig á því ári, sem síðan er liðið,
að stjórnarfar Rússlands og að-
staða þess til hinna annarra aust-
urþjóða hefur síður en svo færzt
í lýðræðisátt. Ummæli Matte-
ottis byggðust á þeim vonum,
sem menn gerðu sér, eftir að
Krúsjeff hafði í ræðu sinni í
febrúar 1956 bannfært Stalin-
dýrkunina. En það varð brátt
augljóst, að hér var um enga
þróun í lýðræðisátt að ræða og
þau skref, sem virtust hafa verið
tekin í þá átt voru nú bráðlega
stigin til 'baka. Uppreisn stúd-
enta og verkamanna í Ungverja-
landi bar barin niður af rúss-
nesku skriðdrekaliði og sett á
stofn í landinu blóðug einvalds
stjórn. I Póllandi hafa málin snú-
izt svo að Gomulka hefur tekið
stranglega í taumana gegn öllum
hreyfingum í landinu í áttina til
meira frjálsræðis og þar hafa
farið fram flokkshreinsanir, sem
hafa ekki sízt beinzt gegn hinunx
frjálslyndari mönnum. Og i
Sovét-Rússlandi sjálfu hefur
gerzt svipað. Einveldi kommún-
istaflokksins hefur enn verið
fest í sessi, hin svokallaða „sam-
virka forusta“ fleiri manna hef-
ur orðið að engu og Krúsjeff hef-
ur rutt burt í kringum sig þeim
mönnum, sem með honum áttu
að standa í þessari nýju samvirku
stjórn. Og nú stendur hann eftir
einn á toppnum í aðstöðu
ekki óvipaðri og Stalin eftir
að hann hafði rekið Trotsky úr
landi og gert aðrar „hreinsanir"
í kringum sig fyrir 30 órum síð
an.
Það kemur raunar ekki á óvart
að eftir hátíðahöldin í október i
Moskvu út af byltingarafmælinu
voru haldnir fundir kommúnista-
foringja hvaðanæva að og því
lýst yfir, að nú riði á mestu að
treysta samstöðu og einingu
heims-kommúnismans, en í því
felst, að nú skuli það aftur verða
óhrekjanleg kenning, að Sovét-
Rússland sé forusturíkið og 511
kommúnísk lönd eigi að lúta
boðum þess og banni.
Sá vettvangur, sem Rússar
hafa notað til að beita valdi sínu
yfir kommúnistaflokkum annarra
landa, hefur jafnan verið hið svo
nefnda Alþjóðasamband komm-
únista. Fyrsta Alþjóðasambándið,
Komintern, var stofnað í
Moskvu í marz 1919. Takmark
þess var að koma á alheimsbylt-
ingu kommúnismans, sem bolsje-
vikkana dreymdi um á þeim
dögum. Rússnesku kommúnist-
arnir kröfðust þess þá, að hafa
algera forustu um að koma þess-
ari byltingu á. Lenin gaf þá út
svokallað „21 skilyrði", fyrir
því, að kommúnistaflokkur fengi
inngöngu í Komintern. Aðalskil-
yrðið var afdráttarlaus hlýðni
flokksins við hinar „alþjóðlegu
höfuðstöðvar uppreistar öreig-
anna gegn heimsveldissinnun-
um“. Sterkur agi skyldi vera inn-
an allra flokkanna og bent var
á þá leið að hreinsa til í flokK-
unum við og við, til þess að efla
einingu þeirra. Hvernig þær
hreinsanir hafa svo verið fram-
; kvæmdar, hefur sagan sýnt. —
Megináherzla var lögð á, að
kommúnistastjórnin í Moskvu
væri óskeikul í öllum ákvörðun-
um sínum um markmið og leiðir
t kommúnistaflokkanna í heimin-
! um. Hér er ekki staður til þess
j að rekja alla þá þróun, sem hef-
ur orðið í þessum málum, á árun-
Krúsjeff
um síðan 1919. En allan þann
tíma var það ætíð höfuðkenn-
ing rússnesku kommúnistanna,
að í Moskvu skyldi forustan vera
og kommúnistaflokkar annarra
landa ættu að hlýða miðstjórn-
inni þar skilyrðislaust. En heims-
byltingin, sem bolsjevikkarnii
höfðu talið svo örugga á fyrstu
árunum eftir 1917, lét bíða eftir
sér, og brátt var sjáanlegt að af
henni mundi ekki verða. Stalin.
sem tók við að Lenin, lýsti þvi
þá yfir að vel væri mögulegt að
framkvæma sósíalisma í einu
landi. Eftir að málin höfðu skip-
azt þannig varð Komintern í raun
inni fyrst og fremst verkfæri ut-
anríkismálastefnu Sovét-Rússa
Hlutverk þess að koma af stað
heimsbyltingu, hvarf þá í skugg-
ann, en nú varð Komintern tæki
Rússa til þess að koma áformum
sínum fram í löndum utan Rúss
lands. Kommúnistaflokkarnir í
hinum ýmsu löndum hlýddu
Komintern í blindni, en skýr-
asta dæmið um það er hvernig
flokkarnir víðs vegar í heimin-
um hringsnerust í sambandi við
samning Rússa við Hitler 1939,
og svo aftur í júní 1941, þegar
Þjóðverjar réðust á Rússland. Er
sá hringsnúningur og línudans í
fersku minni einnig hér á landi.
★
Meðan á heimsstyrjöldinni
seinni stóð, eða 22. maí 1943,
leysti Stalin Komintern upp og
var látið heita svo að þetta -væri
gert vegna þess að kommúnista-
flokkarnir vildu nú starfa á lýð-
ræðisgrundvelli og skipulag
þeirra innbyrðis og afstaða
þeirra gagnvart Moskvu væri nú
ekki lengur bundin við skilyrðis
lausa hlýðni, heldur væri þar um
að ræða lýðræðislegt skipulag.
Sú ráðstöfun Stalins að leysa
Komintern upp var í eðli sínu
einungis til þess gerð að gefa
kommúnistaflokkunum tækifæri
til að klæðast þjóðlegtim dulbún-
ingi. Þeir áttu nú að notfæra sér
frelsishreyfingar þjóðanna og
andúð þeirra á þjóðernisjafnaðar-
mönnum, út í æsar. Nú var látið
í veðri vaka, að flokkarnir væru
lausir við hlýðnisskylduna gagn-
vart Moskvu og væru orðnir þjóð
legir og frjálslyndir. I upplausn-
inni í stríðslokin notuðu komm-
únistarnir sér örvæntinguna og
forustuleysið og ruddust til valda
í mörgum ríkjum, sem nú stynja
undir járnhæl Rússa. Blekking
Stalins tókst þannig alltof vel.
★
Þegar bandalag Sovét-Rússa
við lýðræðisþjóðirnar, sem staðið
hafði í styrjöldinni, hrundi til
grunna að henni lokinnl, leið
Gomulka
ekki á löngu óður en Komintern
lifnaði aftur við í nýrri mynd
í september 1947 var hið svokall-
aða Kominform stofnað og haföi
það aðsetur í Belgrad. Látið var
í veðri vaka, að það væri vett-
vangur þar sem kommúnistaflokK
arnir gætu skipzt á upplýsingum
en þátttakendur voru kommún-
istaflokkar Sovét-Rússlands.
Júgóslavíu, Póllands, Rúmeníu
Búlgaríu og Tékkóslóvakíu, auk
flokkanna á Ítalíu og í Frakk-
landi. Markmiðið með endurreisn
Komintern í þessu nýja formi
var vitaskuld að samhæfa stefnu
hinna ýmsu kommúnistaflokka
og tengja þá fastar við Moskvu.
Þetta var þvi meiri nauðsyn x
augum Rússa, sem tvö af járn-
tjaldsríkjunum, Pólland og
Tékkóslóvakía, höfðu lýst því op
inberlega yfir sð þau hefðu ••
hyggju að taka við Marshall-
hjálp. Rússar komu í veg fyrii
það og sá maður, sem fékk það
hlutverk að hafa rekstur hinna
nýju samtaka með höndum var
Schdanow. Hann kom nú af stað
mikilli hreyfingu meðal komm-
únistaflokkanna í hinum ýmsu
ríkjum í þá átt að spilla fyrir
árangri hinnar efnahagslegu við
reisnar Evrópu. Kom það fram
með ýmsu móti, svo sem verk-
föllum og uppþotum. Það leið þó
ekki á löngu áður en ljóst varð
að þessi stefna mundi ekki hrósa
sigri, og bar ósigur Rússa í sam-
bandi við innikróun Berlínar ljós
an vott um það. Því næst kom
svo áreksturinn við Tító, sem
sagði sig úr lögum við Moskvu og
nú var aðsetur Kominform flutl
frá Belgrad til Búkarest. Það
varð svo öllum heimi ljóst, að
bak við allt talið um sjálfstjóru
hinna einstöku kommúnistaríkja
var ekkert annað en hin gamla
einræðishugsun í Moskvu, þeg-
ar Stalin lét í febrúar 1948 fram-
kvæma hinar víðtæku „hreinsan-
ir“ í járntjaldslöndunum með af-
tökum og fangelsunum fjölda
manna. En í stað hinna drepnu
og fangelsuðu komu öruggir
þjónar Stalins.
★
Svo dó Stalin og eftirkomend-
ur hans tóku nú að prédika hina
„friðsamlegu sambúð“, sem svo
var kölluð og sendu nýjar frið-
ardúfur á stað. Sættir tókust í
orði kveðnu með Moskvumönn-
um og Tító og loks kom svo af-
hjúpun Stalins. Það hlaut því að
líða að því, að Kominform yrði
leyst upp, enda fór það svo og
hinn 18. apríl 1956 lét Krúsjeif
það boð út ganga að Kominform
væri ekki lengur til.
Þegar Rússar gera nú nýjar til-
raunir til þess að sameina komm
shrifar úr 1
daglega lífinu J
„Pólitík Sýningar-
salarins
HR. ritstjóri. Vegna ummæla
Velvakanda um „pólitíska"
starfsemi Sýningarsalarins í
blaði yðar 17. desember óskar
Sýningarsalurinn við Hverfis-
götu að taka fram eftirfar-
andi. Samkvæmt skýrgreiningu
eða notkun Velvakanda á orð-
inu pólitískur þá mun Sýn-
ingarsalurinn hafa verið „póli-
tískur“ frá því að hann hóf starf-
semi sína eða nánar tiltekið frá
28. apríl 1957. Fyrirsögn Vel-
vakanda „Sýningarsalurinn ger-
ist pólitískur", er því nú síðborin
og nær óskiljanleg — nema að
Velvakanda hafi langað til að
skrifa „kommúnistískur" í stað
,,pólitískur“, því þá væri um nýj-
ung að ræða sem vara mun í
sjö daga. Það er rétt að gluggi
í Sýningarsalnum er „áróðurs-
gluggi“, þ.e. auglýsingagluggi fyr
ir kínverska listmuni og China
Reconstructs- og China Recon-
structs er „áróður", kynmngar-
rit fyrir Sovét-Kína. En einmitt
vegna þess að Sýningarsalurinn
ekki er pólitískur í venjulegri
hérlendri merkingu þessa orðs„
(hefur til dæmis ekki á stefnu-
skrá að útiloka sósíalista frá að
| sýna í salnum) þá þótti ekki rétt
' að neita félaginu Menningar-
1 tengsl Kína og íslands að leigja
ígluggann í sjö daga fyrir áður-
nefnda listmuni og rit. En „póli-
tisk“ stefna Sýningarsalarins er
eins og kunnugt er kynningar-
starfsemi í fyrsta lagi sýningar,
(samsýningar, sérsýningar og
kynningarsýningar).
Nú er t.d. í Sýningarsalnum
eins og menn vita Myndlistar-
markaður og þar sýna 2 mynd-
höggvarar og 12 málarar verk
sín. En auk þess er listiðnaður,
endurprentanir og listaverkakort
(jólakort) til sýnis og sölu í saln-
um.
Sýningarsalurinn er fyrst og
fremst stofnaður til þess að efla
skapendur og skoðendur mynd-
listar og listiðnaðar, að örfa ein-
staklingana til að skoða og kaupa
fagra muni og listaverk (óháð
landamærum). Hugmyndin er að
hafa í salnum stöðugar sölusýn-
ingar á myndlist og listiðnaði.
Auk þess listaverkabækur, eftir-
prentanir málverka og kort af
myndlistarverkum til kynningar
á listarmönnum og verkum
þeirra. Minningarrit sem fjalla
um myndlist, listiðnað og aðrar
listir.
Það eru ekki stílar eða stefnur
né nöfn höfunda sem ákveða
hvort hlutir fást sýndir í Sýning-
arsalnum heldur eigið gildi hlut-
anna.
Af framanskráðu sést að Sýn-
ingarsalurinn hefur ekki íarið út
fyrir eigin ramma eða stefnu,
hvorki í orði né verki, ekki held-
ur með umræddum glugga. Sýn-
ingarsalurinn hefur því ekkert
að „skammast" sín fyrir þótt Vel-
vakanda finnist svo. Og glugga-
sýning þessi er ekki sú fyrsta sinn
ar tegundar í salnum. Þar var
t.d. í vor gluggasýning í sam-
bandi við norsku kvikmyndina
„Same Jakke“, sem Guðrún
Brunborg sýndi í Stjörnubíó til
ágóða fyrir norsk-íslenzk stúd-
entaskipti o. fl. mætti nefna.
Sýningar þessar falla undir lið-
inn kynningarsýningar hjá saln-
um. Rétt er að vekja athygli hér
á því að salurinn tekur að sér
að sjá um slíkar sýningar fyrir
einstaklinga og félög og að hægt
er að leigja glugga salarins eða
hluta hans sem og salinn allan í
þessu augnamiði.
Sýningarsalurinn Hverfisgötu
8—10 vill hér með láta í ljós að-
dáun sína á hve Velvakandi er
trúr á vaktinni og þakkar honum
allt gamalt og gott nú síðast aug-
lýsinguna á salnum enda þótt
annarleg sé. En félagið Menn-
ingartengsl Kína og íslands verð-
ur að þakka Velvakanda fyrir sig
þ. e. fyrir auglýsinguna á China
Reconstructs.
Með þökk fyrir birtinguna.
F.h. Sýningarsalarins,
Sigríður Kristín Davíðsdóttir.'
únistaflokkana undir einn hatt,
hálfu öðru ári eftir að þeir hafa
leyst upp Kominform, þá á það
sínar rætur í því ástandi, sem
skapazt hefur innan kommúnista-
ríkjanna. Eftir að Krúsjeff hafði
afhjúpað Stalin, kom það fljót-
lega í ljós, að mörg sundrungar-
öfl eru til staðar innan komm-
únistaflokkanna. Þetta kom ber-
legast fram í Póllandi og Ung-
verjalandi og Austur-Þýzkalandi,
þar sem uppreisnir brutust út,
sem virtust í fljótu bragði ætla
að höggva stór skörð í veldi
kommúnistanna. Jafnvel Tító hef
ur vafalaust séð að eftir þessa
atburði væri nauðsyn á að tengja
kommúnistalöndin með einhverj-
um hætti fastar saman. Krúsjeff
sætti þungri gagnrýni, meðal
ýmissa kommúnistaforingja í
Moskvu, fyrir að hafa leyst þau
öfl úr læðingi, sem nú kostaði
svo stór og örlagarík átök, að
bæla niður. Og nú vill Krúsjeff
stíga spor í þá átt að treysta
yfirráð Moskvu enn á ný og af því
er yfirlýsing kommúnistaforingj-
anna eftir byltingarafmælið
sprottin. í yfirlýsingu þeirra frá
22. nóvember, sem Mao Tse Tung
undirritaði ásamt hinum öðrum
foringjum, kemur það glögglega
fram, að í Moskvu skuli höfuð-
stöðvar og yfirstjórn heims-
kommúnismans vera og hinir
einstöku flokkar kommúnista úti
um heiminn, lúta þeirri yfir-
stjórn. Jafnframt þessu reyna
svo Rússar að herða á klónni
innan Varsjár-bandalagsins og i
yfirlýsingunni er sagt, að það
bandalag sé ekki eingöngu til
varnar, heldur sé einnig hlutverk
þess að færa út yfirráð komm-
únista.
Með yfirlýsingu kommúnista-
foringjanna hefur Krúsjeff unnið
stórsigur og stigið mikið skref í
þá átt að sameina heimskomm-
únismann aftur. í þessu sam-
bandi má benda á þann árangur,
sem Rússar hafa náð á sviði eld-
flauganna og má jafnvel segja
að hin nýja yfirlýsing um alveldi
Moskvu innan kommúnistaflokk-
anna, sé komin fram undir merki
Sputniks.
En vafalaust bíða hinna nýju
samtaka ýmsir erfiðleikar. Það
var auðveldara að stjórna komm-
únistaflokkunum frá Moskvu
með járnhendi á meðan Rúss-
land var einasta kommúnista-
ríkið. Nú eru mörg kommúnista-
ríki sprottin upp og sum allstór
og voldug, svo sem Kína. Hvort
það tekst að hafa fulla samheldni
með öllum þessum ríkjum, mun
framtíðin leiða í ljós, en augljóst
er að miklu meiri hætta er á
sundrungu, þegar um mörg ríki
er að ræða, heldur en ef um eitt
ríki er aðeins að tefla, sem held-
ur öllum þráðum í sinni hendi, í
krafti þess að vera einasta ríkið,
sem framkvæmt hafi kommún-
ismann.
Leiðrétting:
Nokkrar prentvillur eru í grein
Ólafs Ólafssonar um Konsó í jóla
blaði Morgunblaðsins II.
Bls. 38: Öðrum dálki, stakka-
píramidi á að vera „stailapíra-
mídi“. Fjórða dálki, 22. línu að
neðan ofaukið en í stað hennar
komi „húsið, sem“, 14. línu að
neðan stendur það er á að vera
„þar er“. 24. línu að ofan stendur
„húshæðir" á að vera „mishæð-
ir“. 17. línu að neðan stendur
Makaðsdagur, á að vera „Mark-
aðsdagur".
Bls. 39: í öðrum og þriðja dálki
eiga efstu línur undir neðri mynd
inna að standa efst í dálkunum.
Stórt línubil ætti að vera í þriðja
dálki á undan orðunum: „Þig hef-
ur dreymt —“.
Bls. 42: í 46 línu stendur
stofað, á að vera „stofnað“. — Og
3. dálki 28. línu að ofan stendur
hana, á að vera „hann“.
KAUPMANNAHÖFN, 19. des. —
Mikið óveður skall yfir Færeyj-
ar í nótt. Skozkur togari strand-
aði þar svo og rússneskt flutn-
ingaskip úr rússneska síldveiði-
flotanum.