Morgunblaðið - 28.12.1957, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 28.12.1957, Blaðsíða 9
Laugardagur 28. des. 1957 MORCVNBLAÐIÐ 9 Stjórn Félags íslenzkra stúdenta í Stokkhólmi: Ingunn Bene- diktsdóttir, Árni Stefánsson og Svava Stefánsdótíir. STOKKHÓLMSBRÉF Nebanjarbahrautirnar nýju — Aíhend- ing Nóúelsverðlauna — Féiagssamtök islenzkra stúdenta SUNNUDAGURINN 24. nóvemb. 1957 er merkisdagur í sögu Stokk hólms. Þann dag var vígð síð- asta tengilína neðanjarðarbraut- anna hér í borg. Hans hátign Gústaf Adólf VI. framkvæmdi vígsluna. Klippti hann með stóru saxi, sundur breiðan borða, sem áður lokaði leiðinni, en síðan ók vígsluvagninn með konungshjón in og aðra tigna gesti þann hluta leiðarinnar, sem ekki hafði áður verið farinn. Þessi síðasti hluti liggur undir hjarta borgarinnar, frá Kóngsgöt unni, um járnbrautarstöðina, gegnum Gamla staðinn, að Sluss- en. Áður gengu neðanjarðar- lestirnar, annars vegar frá Kóngs götunni til úthverfanna í norð- vestri, en hins vegar frá Slussen til úthverfanna í suðri. Er því mikil samgöngubót að þessari tengilínu, og nú komast margir leiðar sinnar með neðanjarðar- lestunum, sem áður þurftu að eyða dýrmætum tima í að skipta um vagna. Nú létta neðanjarðarbrautirn- ar einnig allverulega á götuum- ferðinni, sem hefur þéttst og aukizt að undanförnu, því einka- bílum fjölgar dag frá degi. For- ráðamenn umferðarmála .hér í borg eru að vona, að eigendur einkabíla taki upp þann hátt, sem tíðkast í stórborgum Ameríku, að leggja bílum sinum við brautar- stöð nærri bústaðnum og aka með neðanjarðarlest í vinnuna. Þannig vinnst tvennt: Umferðin gengur auðveldar um götur borg- arinnai’, og bifreiðaeigendur þurfa ekki að eyða löngum tíma í leit að bílastæði í miðbænum. Einn galli er þó á gjöf Njarð- ar. Um leið og neðanjarðarbr'aut- in var tengd, hækkuðu fargjöid verulega á öllum leiðum. Þarf mikið fé til að standa straum af þessu fyrirtæki, sem sagt er það dýrasta hér í landi. Þó mönn- um gangi dálitið illa að sætta sig við hækkun fargjaldanna, eru neðanjarðarlestirnar þéttsetnar dag hvern. Síðustu daga hefur verið frost og hálka á götunum hér í Stokk- hólmi. Hafa menn því í stærri stíl en áður skilið bíla sína eftir heima, og í stað þess, að dansa á flughálum götum borgarinnar, ekið áhættulaust í snjólausum og þíðurn iðrurn jarðarinnar. ★ Nóbelshátíðin í Stokkhólmi var haldin með venjulegum glæsi- brag 10. þ. m. Verðlaunahafar mættu allir að þessu sinni, en les endum Mbl. mun sjálfsagt kunn- ugt, hverjir hlutu verðlaunin í ár. Eins og jafnan áður drógu hvorki að lesa né skrifa. Þó var Camus settur í skóla og kennar- inn uppgötvaði gáfur hans og kom því til leiðar, að hann var settur til frekari menntunar. Lauk hann siðan fil. kand. prófi frá háskólanum í Alsír. Eftir það lagði hann fyrir sig ýmis störf. Var sölumaður, ríkisstarfsmaður, leikax’i, útvarpsmaður, blaðamað- ur og ritstjóri, unz hann helgaði sig ritstörfum eingöngu. Á skólaárum sinum í Alsír, tók Camus virkan þátt í þjóðernisbar áttu Alsíringa og aðhylltist kenn ingar Marx. Síðar sneri hann baki við Marx og hefur gagnx-ýnt flokka, sem byggja á kenningum hans. í fræðibókum hefur Camus til þeosa verið talinn forgöngumað- ur existentíalista og sagt að hann hafi orðið fyrir miklum áhrifum frá Heidegger, Kirkegárd og Husserland. Á blaðamannafundinum var | Camus m. a. spurður um Alsír- _ deiluna, trúarskoðanir sínar, kom múnisma og existentíalisma. Hann gaf skýr og vafningalaus svör. — Ég er ekki sammála frönsku stjói’ninni um Alsírvandamálið. En hér fullyrði ég aðeins, að það er ekki bara mögulegt, heldur einnig nauðsynlegt, að komast að samningum á jafnréttisgrund- velli. -— Trúarskoðanir mínar? Ég fylgi ekki kaþólsku kirkjunni, en ber einlæga virðingu fyrir Kristi. Kirkjunnar menn kalla mig guð- leysingja. Guðleysingjarnir segja mig kristin. Kommúnistar telja mig íhaldsmann. íhaldsmenn kalla mig kommúnista. Þeim skjátlast öllum. — Eigin afskipti af kommún- ismanum? Á unga aldri stökk ég upp í vitlausan vagn, Bn sá fljótt að mér. — Ég er ekki existentíalisti. Existentíalisminn er áþekkur jái’nbrautarlest, sem vantar bæði eimvagninn og síðasta vagninn. Ég hef sótt mest til grísku heim- spekinnar. Albert Camus vildi ekki segja mikið um næstu bók. Þó gat hann þess, að þar myndi hann birta reyns' ’ s'na og niðurstöður. Stefán Einarsson prófessor ritar um aðra útgáfu orðabókar Guðbrandar Vigfússonar Félag íslenzkra stúdenta í Stokkhólmi hefur verið starfsamt An Icelandic-English Dic- tionary. Initiated by Ric- hard Clcasby. Subsequently revised, enlarged and completed by Gudbrand Vigfússon, M. A. Second edition with a supplement by Sir William A.Craigie. Containing many addi- tional words and referen- ces. Oxford at the Clarendon Pi’ess, 1957. xlv, 834 blað- síður. Verð 346,50 krónur. HÉR er hin gamla og góðfræga orðabók Guðbrandar Vigfússonar komin í annari útgáfu eftir Sir William A. Craigie með viðbæti eftir hann (bls. 781—834). Hann mun hafa lifað það að sjá útkomu bókarinnar og hefur kannske lagzt rólegri til hvíldar eftir vel unnið verk í þágu íslenzkra fræða, fyrst Sýnisbók islenzkra rímna I—III (1952) og nú aðra útgáfu orðabókarinnar miklu Því miður hefur hann í þessu síð- asta verki sínu mátt sanna það sama og Þórr, mestur kraftakai’l norrænna goða, að „engi hefur sá orðið og engi mun verða, ef svá gamall verður að elli bíður, að eigi komi ellin öllum til falls“. Sir William var fæddur 13. ágúst 1867, og ef mig misminnir ekki, þá var hann níræður orðinn er hann andaðist í sumar eða haust, öllum vinum sínum harmdauði, ekki sízt íslendingum. En það er varla tiltökumál, þótt níræðum manni sé farin að förla sýn, ná- kvæmni og jafnvel dómgreind um það, hvað hann geti gert. En það er ljóst að ef Sir William hefði látið íslending lesa próförk með sér, hefði viðbætii’inn getað oi’ðið villulaus, en eins og er þá óprýða hann of mai’gar prent villur. Þetta er einkum auðsætt um bókaskrána á bls. 783, í henni eru allmargar augljósar prentvillur, en annars er hægur vandi að prenta upp þetta eina blað og láta fylgja bókinni, Vei-ra væri það sem af er þessum vetri. I ef sjálft orðasafnið væri fullt af Albert Camus bókmenntaverðlaunin að sér mikla athygli, og átti Albert Camus fund með blaðamönnum þegar eftir komuna til Stokk- hólms. Stóðst hann þær eldraun- ir allar með prýði, enda sjálfur blaðamaður frá fornu fari og meira að segja gamall leikari. Ævasaga Alberts Camus er raun- ar mjög merkileg, og vil ég rekja hana hér í fám dráttum. Hann er fæddur í Alsír árið 1913. Faðir hans var fátækur verkamaður úr Elsasshéraði. Hann féll í orrustunni við Marne þegar drengurinn var eins árs. Móðiriix var spönsk og kunni Snemma á haustinu gekkst félag ið fyrir bókmenntavöku. Voru þar lesin ljóð íslenzkra skálda við góðar undirtektir. í byrjun nóvember var haldinn aðalfund- ur í félaginu. Á þeim fundi flutti sendiherra íslands hér í borg, Magnús V. Magnússon, fróðlegt og skemmtilegt erindi um heim- sókn _sína til íran. Hallbjörg Bjarnadóttir skemmti með eftir- hei’musöng. Að kvöldi 30. nóvember gekkst félagið fyrir myndarlegum hátíða höldum í tilefni fullveldisdagsins. Þar voru fiutt venjuleg minni, en auk þess söng Árni Jónsson ein- söng við mjög góðar undirtektir. Enda þótt félagið nefnist Félag ísl. stúdenta í Stokkhólmi, er það öllu fremur félag íslendinga í Stokkhólmi. íslenzkir stúdentar eru hér fáir, en nokkuð annarra íslendinga, sem taka virkan þátt í lifi og starfi félagsins. Stjórn félagsins skipa nú: Árni Stefónsson fil. stud., formaður, Ingunn Benediktsdóttir, fil. stud. gjaldkei’i og Svava Stefánsdóttir soc. stud., ritari. Stokkhólmi í desember 1957. J. H. A. villum. í fljótu bragði sýnist það ekki vera, en þó hef ég fundið um fjörtíu villur í fyrstu níu dálkunum, stöfunum a-á, eða um fjórar villur á dálk. Þaðerísjálfu sér ekki mjög mikið, en þó nægi- legt til þess að menn verða að treysta viðbótinni með varúð. En í raun og veru er þessi viðbót ekkert aðalatriði í útkomu bókar innar, heldur það að hin gamla góða orðabók, sem alltaf stendur í sínu gildi sem vísindalegt orða- bókarverk, hefur fengizt endur prentað og það ljósprentað í heild. Veit ég ekki hvort Clarendon Press í Oxford, háskólaprent- smiðjan, hefði gert það fyrir nokkux-n nema hinn gamla fræði- mannaöldung og orðabókahöf- und, Sir William A. Craigie. En þótt íslendingar séu rikir nú og horfi ekki í að gefa út Guð- brandarbiblíur til gjafa fyrir 2000 krónur, þá veit ég ekki hvort þeir mundu hafa lagt út í að gefa út þessa Guðbrandarorðabók fyrir þær 346,50 krónur, sem hún kost- ar nú í brezku útgáfunni. Annars er það auðvitað mjög vel til fallið að bókin sé útgefin af brezku fé, eins og öldina sem Eruð þér á kjörskrá? KÆRUFRESTUR vegna kjörskrár er til 5. janúar næst- komandi. Rétt til að vera á kjörskrá í Reykjavík hafa þeir, sem þar voru búsettir í febrúarmánuði sl. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Vonarstræti 4. aðstoðar við kjörskrárkærur. Skrifstofan er opin frá kl. 9—12 og 2—5 í dag og frá kl. 2—5 eftir hádegi á morgun. leið. Því það var brezkur auðmað ur, sjálfmenntaður sérvitringur og fræðimaður, sem miklu heldur vildi vera fræðimaður en kaup- maður, sem á veg og vanda af því að hafa byrjað þessa bók og kostað hana, svo sem nafn hans á bókinni gefur til kynna. Eftir að hafa lært germönsk mál og flestar mállýzkur í Þýzkalandi að auki, ætlaði hann, haustið 1839 að fara að læra íslenzku hjá Kon- ráði Gíslasyni í Kaupmannahöfn. Komst hann fljótt að raun um að íslenzka var orðabókarlaust mál, og ekki væri annað vænna um úr ræði í því vandamáli en að hann skrifaði orðabókina sjálfur. Hélt að það mundi taka ein þi’jú ár. Næstu sjö árin vann hann sjálfur og Konráð Gíslason og margir íslendingar í Kaupmannahöfn með þeim, svo sem Gísli Magnús son, Benedikt Gröndal, Eiríkur Jónsson og Gunnlaugur Þórðar- son, allir fyrir hans fé að orða- bókinni. Þá dó hann sjálfur frá vei-kinu, en ei’fingjar hans héldu því áfram með fjárframlögum til þessara orðabókarmanna í Kaup- mannahöfn. Sjö árum síðar 1854 vildu orðabókarmennirnir enn hafa meira fé til starfans í Kaup- mannahöfn, en þá þótti ei’fingj- um Cleasbys ómagahálsinn vera orðinn nokkuð langur á verkinu og vafasamt að það tæki nokkurn tíma enda. Þeir skrifuðu þá til Kaupmannahafnar og létu senda sér safnið. Árið 1855 bauðst G. W. Dasent, sem síðar þýddi Njálu, til að sjá um prentun oi’ðabókar- innar, ef Clarendon Press í Ox- ford vildi prenta hana. Af því varð þó ekki að sinni. Níu árum síðar stakk Dasent enn upp á að Clai’endon Press prentaði bókina og fengi til þess hinn unga efni- lega fræðimann Guðbrand Vig- fússon. Svo sem kunnugt er varð þetta að ráði og orðabókin kom út 1874 á þúsund ára afmæli landsins. í fyrstu útgáfunni lét Da- sent mikið af því í formála, hve lélegt hefði verið verk þeirra Hafnaríslendinga, einkum Kon- ráðs Gíslasonar, sem telja mátti aðalhöfund orðabókarinnar þar í Kaupmannahöfn. Var verk Guð- brandar á líkan hátt hafið upp til skýja eflaust til að afsaka það við Clarendon Press og erfingja orða bókarinnar að skift var um útgef endur. Til allrar hamingju fyrir oi’ðstír Konráðs, hefur handrit orðabókarinnar frá Kaupmanna- höfn geymzt, svo að Craigie hefur getað gert samanburð á því og verki Guðbrands. En Craigie seg ir svo: „í mörgum orðum þurfti aðeins að gera smábreytingar, stundum í þýðingum en oftar í tilvitnunum, sem upphaflega voru til handrita, en voru nú gerðar til prentaðra texta, ef þeir voru til. í mörgum orðum, einkum minni háttar orðum, var tilvitn- unum sleppt, eflaust til að spara rúm. Meira svigrúm var gefið orðum ef þau snertu sögu eða menningarsögu íslands. En form stóru sagnanna og dæmin úr þeim voru öll úr safni Konráðs". Af þessu má ráða að tæplega hefði það verið rangt þótt oi’ða- bókin gengi undir einu nafni enn: nafni hins mikla fræðimanns Konráðs Gislasonar. Er það mik- ið mein þegar fræðimenn vilja heldur troða skó hver af öðrum en vinna saman í ást og bróðerni. En minning Koni’áðs hefur ekki tapað á því að fara i gegnum hendur dómarans Sir William A. Craigie, og kveður hann þó hvergi eins sterkt að staðreynd- um og ég hef gert í þessum rit- dómi. The Johns Hopkins University í desember 1957. Stefán Einarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.