Morgunblaðið - 28.12.1957, Page 13
Laugardagur 28. des. 1957
MORGVN BLAÐIÐ
13
Cuðmundur Bjarnason
fyrrv. bóksali, Seyðisfirði
minning
„Nú fækkar þeim óðum, sem
fremstir stóðu,
sem festu rætur í íslenzkri jörð“.
Þessar ljóðlínur góðskáldsins,
Davíðs Stefánssonar komu mér
í hug, er mér barst dánarfregn
hins aldna vinar míns, Guðmund-
ar Bjarnasonar, fyrrum kaupfé-
lagsstjóra og bóksala frá Seyðis-
firði, er lézt að Kvisthaga 1 í
Reykjavík 5. des. sl.
Guðmundur Bjarnason var
einn af kjörviðum þeirrar kyn-
slóðar, sem nú er að hverfa, kyn-
slóðarinnar, sem fædd var kring-
um þjóðhátíðarárið 1874. Þegar
birta tók yfir draumum þjóðar-
innar um að losna úr fjötrum
oks og erlendra yfirráða, er hún
hafði öldum saman verð hlekkj-
uð í. Kynslóðarinnar, sem setti
sér það mark og mið, að berjast
af alhug fyrir því, að bera fram
til sigurs það merki, sem frelsis-
hetjan Jón Sigurðsson hafði reist
í frelsis- og viðreisnarmálum
lands og lýðs. En þó létta tæki
yfir á vonahimni þjóðarinnar um
1870, átti þó sú kynslóð, er á
næstu áratugum eftir ólst upp,
við marga raun að etja.
Enn var tvísýnt í lofti um allar
frelsisvonir og róðurinn harður
í róti stjórnmálanna. Og enn áttu
hafísa- og harðindaár eftir að
sverfa fast að högum og heill
þjóðarinnar. — En kynslóðin,
sem þessa áratugi óx upþ kom
ekki út úr þeirri baráttu kalin á
hjarta, sem veizlugestir Goðmund
ar á Glæsivöllum, heldur hert að
vilja, starfsþroska og heilbrigðri
lífssýn. Og þrátt fyrir örðuga
baráttu ól hún í brjósti þá bjart-
sýnistrú um framtíð og menningu
þjóðar sinnar, sem að lokum
færði fram til sigurs þá drauma,
sem íslendingshjartað hafði um
aldaraðir dýrsta og stærsta
dreymt.
Guðmundur Bjarnason fæddist
að Desjamýri í Borgarfirði eystra
6. april 1873. Voru foreldrar hans
hjónin Jóhanna Bjarnadóttir og
Bjarni Pálsson, er þá áttu heima
á Desjamýri. Voru þau bæði
Borgfirðingar að ætt. Ungur flutt
ist Guðmundur upp í Hjaltastaða
þingá á Fljótsdalshéraði og ó!st
þar upp. — Þrátt fyrir örðugan
fjárhag brauzt Guðmundur í að
ganga í Möðruvallaskóla og lauk
þaðan góðu prófi. Fékkst hann
þar á eftir fyrst við barnakennslu
á vetrum, en sneri sér síðan að
verzlunarstörfum, sem síðan urðu
ævistörf hans, meðan orka entist.
— Hann var um skeið við v.erzl-
unarstörf á Húsavík, verzlunar-
stjóri á Breiðdalsvík, og síðan,
lengstan hluta ævinnar vann
hann við verzlunarmál á Seyðis-
firði fyrst sem skrifstofumaður
og siðar kaupfélagsstjóri, áfeng-
issölustjóri og bóksali. Guðmund-
ur kvæntist Guðbjörgu Guð-
mundsdóttur, ættaðri úr Hjalta-
staðaþinghá, glæsilegri myndar
og kostakonu, er bjó honum hið
indælasta heimili. Lifir frú Guð-
björg mann sinn. — Þau hjónin
eignuðust 3 börn: Ragnhildi,
gifta Benedikt Þórarinssyni kaup
manni í Reykjavík, Jóhönnu,
gifta Jóni Sigurðssyni fyrrv.
framkvæmdastjóra Alþýðusam-
bands fslands í Reykjavík og
Baldur, er lézt ungur að árum.
Heimili þeirra Guðbjargar og
Guðmundar var, hvar sem þau
bjuggu, rómað fyrir gestrisni,
aðúð og höfðingsskap, Voru þau
hjón bæði samhent að taka sem
bezt á móti hverjum, sem að
garði bar. Eiga og margir, og þá
ekki sízt við Austfirðingar, ótald-
ar og ánægjulegar minningar,
frá þeim stundum, er við dvöld-
um gestir á heimili þeirra og
nutum þar gleði og ljúfmannlegr-
ar rausnar.
Njálssaga lýsir svo Njáli á Berg
þórshvoli: „Vitur var hann og
góðgjarn, hógværr og drenglynd-
ur“. Ég hygg að það sé í engu
ofmælt, að þessi mannlýsing eigi
einnig heima um Guðmund
Bjarnason. — Guðmundur var
skarpvitur maður, er kunni og
vissi skil á flestum hlutum, hverj
um manni fróðari og minnugri ng
raunsær á flestar gátur lífsins.
Þrátt fyrir skamma dvöl á skóla-
bekk, var hann fjölmenntaður
maður, sílesandi og leitandi fróð-
leiks og þekkingarauka. — Hann
var afburðavel að sér i sögu og
skáldskap og unni þeim fræðum
allshugar. — Var unun að sitja og
hlusta á hann ræða slíka hluti og
veit ég ekki hvort ég hef nokkr
um manni kynnzt, er jafnist á við
hann að kunnáttu í ljóðum og
vísum. Gat hann flutt, af munni
fram, tímunum saman ljóð og
ljóðabrot og hafði æ á reiðum
höndum, um hvað sem rætt var,
tilvitnanir í sögu og ljóð. — Var
hann jafnvel heima hvort, sem
hann ræddi um ljóð og verk ís-
lenzkra skálda, eða á góma bar
skáldskap Björnsons, Hamsuns
eða Burns. — Engu skáldi, ís-
lenzku eða útlendu unni þó Guð-
mundur sem Þorsteini Erlings-
syni. Hafði hann á æskuárum sín
um hrifizt svo af ljóðum Þor-
steins, er á sínum tíma fóru eldi
um hrifizt svo af ljóðum Þor-
árum fór með þau eða ræddi, var
sem hann allur yngdist að árum
og ylmóði. — Svo heitt unni hann
þeim og höfundi þeirra.
Sjálfur var Guðmundur skáld-
Kaupum hreinar
léreftstuskur
Prentsmiðja
yyiorffiAnbla&í
ómó
Verzlunarhúsnœði
Iðnaðarhúsnœði
ásamt stóru geymsluplássi, ef æskt er, til leigu
við miðbæinn.
Tilboð merkt: „Áramót —7907“, leggist á afgr;
blaðsins fyrir mánudagskvöld.
mæltur með ágætum og mun eigi
svo litið hafa að því gert að yrkja
og skrifa. En engu slíku viidi
hann flíka og mun því hafa valdið
bæði hlédrægni hans og einnig
það, að hann var manna vand-
fýsnastur um slíka hluti, bæði við
aðra og sjálfan sig. Veit ég þó
að skaði er, að ýmislegt af því
er Guðmundur hefur á pappír
fest, komi eigi fyrir almennings-
sjónir.
Hann var góðgjarn, hógvær og
drenglyndur, segir Njálssaga um
bóndann á Bergþórshvoli.
Alla þessa kosti hafði Guðmund
ur Bjarnason í rikum mæli. Hann
var orðfár um bresti manna og
yfirsjónir og vildi jafnan leiða
hjá sér dóma um aðra. Og góð-
girni hans og drengskap efaði
enginn, sem honum kynntist.
Átti því Guðmundur margt vina
og aðdáenda, en engan vissi ég
hans óvin vera.
Drengir heita vaskir menn og
batnandi, segir Snorri Sturluson.
Guðmundur Bjarnason, var einn
þeirra manna, er alla ævi var
batnandi. Hann var sífellt að
þroska sál sína og auðga að þekk
ingu og fróðleik, síleitandi að
sannindum og leiðum, sívakandi
fyrir öllu þvi, er nann taldi að
verða mætti til að auðga lífið að
fegurð og fullkomnun.
Og nú er hann genginn til feðra
sinna, þessi aldurhnigni afbragðs
maður, yfir á land lífsins, þar
sem hans bíður enn meiri þroski.
En Austurland, þar sem hann
lifði og starfaði hefur orðið á bak
að sjá einum sínum ágætasta
syni. Og þjóðin öll er fátækari
við frá fall hans.
Knútur Þorsteinsson.
— frá Úlfsstöðum.
Skrifstofuhúsnœði
Lœknastofur
tii leigu við aðalgötu við miðbæinn.
Sérlega hentugt lyrir tannlækni.
Skrifstofuhúsnæðinu getur fylgt gott geymslujpláss
með hentugri aðstoðu fyrir vörumóttöku.
Tilboð merkt „Möguleikar —7906“, sendist afgr. blaðsins
fyrir mánudagskvöld.
Skrifstoluhúsnæði
ú góðum stuð
Nokkur skrifstofuherbergi verða leigð sanian eða
sérstök á bezta stað í bænum. Umsóknir sendist
Morgunblaðinu fyrir hádegi 5. janúar merkt:
Heppni — 3591.
5 íbúðir óskust
til leigu til lengri tíma í Keflavík eða nágrenni.
1 f jögurra herbergja íbúð,
2 þriggja herbergja og
2 tveggja herbergja íbúðir.
Tilboð óskast send fyrir 3. jan. næstkomandi til
PAN AMERICAN WORLD AIRWAYS INC%
Keflavíkurfiugvelli.
KOVO,
Prag, Tékkóslóvakíu.
Z E T \
ferða-ritvélar og skrifstofuritvélar með sjálfvirkri spássíu-stillingu —
Sterkar og öruggar
en þó léttbyggðar.
Einka-umboð:
MARS TKADING COMPANY,
KLAPPARSTlG 20 — SlMI 1-7373 (tvær línur).