Morgunblaðið - 28.12.1957, Page 16
VEÐRIÐ
Logn og léttir til.
294. tbl. — Laug'ardagxir 28. desember 1957.
Samtal
við Hertnann Jónasson.
Sjá bls. 3. ‘
Þýzkt skip veldur stórtjóni ú
kafnarmonnvirkjum ó Skuga-
strönd
Bruninn á aðfangadagskvöld. Þessa hrollvekjandi mynd af ægi-
mætti hins eyðandi elds, tók „Stúdíó“ þegar „Hússtjórn" stóð
í björtu báli.
Ekkert þessa heims
hefur ennþá bugað mig
sagði dr. Jón Dúason, sem missti Iiandrit
sín og bækur í eldsvoðanum
Skagaströnd, 27. des.
HÉR varð stórtjón á hafnarmann
virkjum á aðfangadagskvöld, er
þýzku saltflutningaskipi, Her-
man Langereder hlekktist á í
höfninni. Braut það og skemmdi
tvær bryggjur og eyðilagði lönd-
unarkrana við síldarverksmiðj-
una. Skipið komst f>t úr höfn-
inni hjálparlaust. Þati mun vera
stórskemmt, en um það eru ekki
fyrirliggjandi nánari fregnir.
Skipið kom hingað til Skaga-
strandar aðfaranótt aðfangadags.
Á aðfangadag aðvöruðu hafnar-
verðir hinn þýzka skipstjóra,
að vegna veðurs vaeri öruggara
að færa skipið út úr höfninni.
Síðdegis á aðfangadag var hér
hvassviðri af suðvestri og fór veð
urhæðin vaxandi.
Um klukkan 10 á aðfangadags-
kvöld var komið versta veður,
stormur og snjókoma. Um það
leyti sleit skipið landfestar, en
það lá við hafnargarðinn. Rak
það undan veðrinu yfir höfnina
og rakst á löndunarbryggju síld-
arverksmiðjunnar. Einmitt um
þetta sama leyti varð Skaga-
strönd rafmagnslaus. Á aðfanga-
dagskvöld voru rafmagnstrufl-
anir þar miklar. Svo er að sjá
sem yfirbygging skipsins hafi
rekizt á síldarlöndunarkranann.
Við áreksturinn hefur loftnet rat-
sjárinnar brotnað af og lá það á
bryggjunni er að var komið.
Löndunarkraninn skemmdist svo
að hann er ónýtur talinn. Skipið
hefur svo losnað frá þessari
bryggju, en rakst þá á ’aðra
minni bryggju, „Skúffubryggj-
una“ svokölluðu. Skemmdist hún
einnig nokkuð, þó ekki nærri
þvi eins mikið og sildarbryggja
verksmiðj unnar. Við bryggj-
una tók skipið niðri að aftan.
Skipstjóranum tókst þó að losa
skip sitt aftur og sigla því út úr
höfninni. Þykir það hér næstum
því ótrúlegt að honum skyldi
takast að bjarga skipinu þannig.
En fullvíst má telja að skipið hef
Akureyri.
MIKLA suðvestan stórhríð gerði
hér á Akureyri á aðfangadags-
kvöld. Urðu talsverðar skemmd-
ir af völdum veðurofsans. Þök
fuku af húsum og fólk varð teppt
víða um bæinn. Slys urðu ekki
svo vitað sé.
Á 11. tímanum á aðfangadags-
kvöld skall hér á ofsaveður með
mikilli snjókomu. Fólk var þá
víða í heimboðum hjá skyldfólkj
og vinum. Margt af því illa búið
út í slíkt veður, enda var hér
ágætt veður fram eftir kvöldi.
Áttu margir í erfiðleikum að
komast heim til sín um kvöldið
og hafði lögreglan mikið að gera
við að aðstoða fólk. Sums staðar
varð fólk að gista þar sem það
var gestkomandi.
Bilar komust lítið um göturnar,
flestir stöðvuðust, þegar fönn
skóf inn á vélar þeirra, en ekki
sökum beinnar ófærðar.
Mestu skemmdir sem vitað er
um hér á Akureyri þetta aðfanga
dagskvöld voru þær að helming-
ur þaksins yfir aðalmjölskemmu
síldarverksmiðjunnar í Krossa-
nesi fauk og er járnið að mestu
ur orðið fyrir stórtjóni og vafa
samt að það sé hæft til siglingar
yfir hafið á þessum árstíma.
Við höfum haft fregnir af því
að skipið muni ætla sér að koma
hingað aftur, en hvenær það verð
ur vitum við ekki. Skipið lá inni
á Djúpavík er við höfðum fregn-
ir síðast af því.
Ef það kemur munu hér fara
fram sjópróf. Um tjónið á hafnar-
mannvirkjunum er ekki vitað,
því senda þarf kafara niður til
þess að kanna skemmdir undir
sjólinu. Svo virðist sem stórfé
muni kosta að lagfæra þær
skemmdir og eyðileggingu sem
hið þýzka skip olli hér í höfn-
inni. — Jón..
Drukknir
bílstjórar
Á ÞORLÁKSMESSU varð all-
harður árekstur skammt frá
Miklatorgi. Sá sem árekstrinum
olli, gerði tilraun til þess að kom
ast undan, en tveir starfsmenn
ílugmálastjórnarinnar á Reykja
víkurflugvelli veittu honum eft-
irför. Tókst þeim að stöðva þrjót
inn á móts við Austurbæjarbíó.
Þar héldu þeir honum unz lög-
reglan kom. Var ökumaður þessi
áberandi ölvaður.
Á aðfangadagsmorgun kom
Odaur Guðmundsson, Langholts-
vegi 151 að bíl sínum R-7223 nær
gjörónýtum fyrir utan hús sitt.
Á bilinn hafði verið ekið um nótt
ina, en sá sem það gerði ekki um
það hirt að tilk. það eigandanum
eða lögreglunni. Óvænlega horfði
um að takast myndi að upplýsa
mál þetta í skjótri svipan. —
Þetta fór þó á annan veg. — Um
klukkan 5 hafði rannsóknarlög-
reglunni tekizt að upplýsa mál-
ið. Hafði bílstjóri, sem ekur stór-
um vörubil, þá viðurkennt að
hann myndi vera valdur að
þessu, en bílstjórinn bar fyrir
minnisleysi vegna ölvunar, sem
hann þó fyrst í stað þrætti fyrir.
ónýtt. Snjór fór inn í mjölskemm
una en þar er allmikið af mjöli.
Strax á jóladag var hafizt handa
um að bjarga mjölinu. Var snjór-
inn hreinsaður af því og síðan
breitt yfir það. Eru skemmdir á
því ekki taldar hafa orðið telj-
andi. Þá fauk hluti af þaki á
jarðolíugeymi þar við verk-
smiðjuna og barst á sjó út. Nokk-
urt vatn komst í olíuna. Þá fauk
einnig hluti þaksins á „Pressu-
lofti“ verksmiðjunnar. Við allt
þetta rask eyðilagðist talsvert af
timbri, járni, rafleiðslur og fleira
og mun tjónið allmikið.
Unnið hefur verið linnulaust
að lagfæringum og gert ráð fyrir
að á morgun verði hægt að hefja
vinnslu í verksmiðjunni á ný.
Þar liggur síld í þróm sem nægja
mun til bræðslu í 3—4 daga.
Auk þessára skemmda fauk hér
efst í bænum nokkuð af heyi,
ennfremur gripahús við Kotá, en
ekki urðu slys á gripum. Á nokkr
um stöðum losnuðu járnplötur
og fleiri minni háttar skemmdir
urðu.
Veðrinu slotaði síðari hluta
nætur og hefir verið hér gott
veður síðan. — vig.
HINN einarðlegi baráttumaður
fyrir tilkalli íslendinga til Gi’æn
lands, dr. Jón Dúason, bjó á
neðri hæð „Hússtjórnar" —
Hann var ekki heima er
eldurinn kom upp. — Hann
hafði verið rúmliggjandi, en
klæddi sig á aðfangadagskvöld
til að vera með vinaíólki sínu um
kvöldið — Ingimar Jónssyni,
fyrrum skólastjóra og frú Elín-
bor;|'u, sem er frændkona Jóns.
Jó».i fékk að vita símleiðis, að
eldur væri kominn upp í húsinu.
Haft var á orði við mig i sím-
ann, sagði dr. Jón í samtali við
Mbl. i gær, að eldurinn væri ekki
mikill. En ég hraðaði för minni
heim. Brá mér heldur i brún er
ég kom þangað. Húsið nær al-
elda orðið á efri hæð. Ég fór þeg-
ar inn. Þar var allt fullt af reyk
og var ég að baksa við að opna
með lykli er lögreglumenn komu.
Þeir sprengdu upp hurðina á
svipstundu. Sáum við ekki handa
okkar skil í reyknum og varð því
fljótt nær ólíft fyrir okkur þar
inni. Fleiri menn komu og heyrði
ég þá segja, að þeir skyldu hjálpa
til að bjarga handritum Jóns
Dúasonar. Ég veit ekki hvaða
menn það voru. Okkur tókst að
grípa nokkurn bunka af hand-
ritum, m.a. afrit af ensku þýðing-
unni af Landkönnun og landnámi
íslendinga í Vesturheimi. Einnig
litils háttar af bókum. Urðum við
skjótt að snúa frá. Má því heita,
sagði dr. Jón að allt mitt safn
handrita hafi brunnið með bóka
safni mínu og öðrum eigum. —
Ég vil biðja blaðið að færa lög-
reglumönnunum og mönnunum
fjórum sem á eftir komu, þakkir
minar. Einn þeirra varð að
stökkva út um gluggann út í garð
inn til að komast út úr húsinu
En hvað mér viðvikur sjálfum,
þá hefur ekkert þessa heims enn-
þá bugað mig, og þó tjón mitt sé
mikið og tilfinnanlegt, þá mun ég
taka upp þráðinn aftur, ákveðn-
ari en nokkru sinni, að berjast
fyrir tilkalli íslendinga til Græn-
lands. — Ég skrifaði eina Græn-
landsgrein nú um jólin, sagði
Jón Dúason að lokum.
Kviknar í kerfa-
stjökum
NÚNA um jólin hefir allmikið
borið á því, að smátjón hafi orð-
ið á heimilum manna vegna kerta
stjaka úr plasti og tré. Hafa kert-
in brunnið niður og síðan kvikn-
að í stjökunum. Vitað er og um
meiðsli á mönnum, sem hafa ver-
ið að slökkva eldinn, þegar svo
hefir verið komið. Skal brýnt
fyrir fólki að sýna varfærni eigi
það kertastjaka, sem geta brunn-
ið.
Áramótaiagn-
aður stúdenta
STÚDENTARÁÐ Háskólans og
Stúdentafélag Reykjavíkur halda
sameiginlega áramótafagnað að
Hótel Borg á gamlárskvöld. Að-
göngumiðar verða seldir í dag og
á morgun kl. 2—4 að Hótel Borg.
—Þeir, sem vilja, geta fengið
mat áður en dansleikurinn hefst
og skulu þeir panta hann, um
leið og miðar eru keyptir.
Dimm jól vegna
rafmagnstruflana
í SUÐVESTAN ofsaveðrinu, sem
gekk yfir landið á aðfangadags-
kvöld urðu miklar rafmagns-
truflanir á Akranesi, í Borgar-
nesi og vestur í Grundarfirði.
Á Akranesi fór rafmagnið fyrst
um klukkan 7, en komst brátt í
lag aftur. Klukkan 9,30 um kvöld
ið, er jólahátíðin stóð sem hæst
á heimilunum þar, varð bærinn
rafmagnslaus aftur. Starfsmaður
rafveitunnar þar í bænum reyndi
í rúman klukkutíma að ná tal-
símasambandi við Andakílsár-
virkjun. Kom rafmagnið á aftur
um klukkan 11,30 um kvöldið.
1 Borgarnesi var hálfgert „alda
móta-ástand“, því þar urðu marg
ar húsmæður að ljúka eldun á
jólamatnum á olíuvélum og prím
usum, er rafmagnið fór af kaup-
túninu laust fyrir klukkan 6 og
kom ekki aftur fyrr en um kl.
11,30. Var víða kalt í olíukyntum
húsum af þeim sökum um
kvöldið. Það var ofsa suðvestan-
veðrið sem rafmagnsbiluninni
olli.
Svipað þessu var ástandið einn
ig vestur í Grundarfirði, er fólkið
sat í myrkri mest allt jólakvöldið
vegna rafmagnstruflana.
Mann tekur út
í GÆR kom hingað til Reykja-
víkur lítill þýzkur togari, Bahren
feld. Hafði skipstjórinn þá sögu
að segja að einn skipverjanna
hafði tekið út hér fyrir vestan
land á jólunum í ofsaveðri. —
Hafði enginn skipsmaður séð er
hann fór fyrir borð.
Tvö brunaköil
UM jólm kviknaði i skreyttu
jólatré út frá jólatrésseríu. Gerð-
ist þetta að Jaðri við Sundlauga-
veg og urðu skemmdir ekki veru-
legar í íbúðinni. Þá er talið að
börn hafi kveikt í legubekk ann-
aðhvort með eldspýtum eða
kerti. Þetta gerðist að Efstasundi
72. Slökkviliðið kom til skjal-
anna á báðum þessum stöðum.
Framboðslisti
SjálfstæSisiisanna
í Keflavík
KEFLAVÍK, 27. des. — Á mjög
fjölmennum fundi fulltrúaráðs
Sj álfstæðisfélaganna hér í bæn-
um, var till. uppstillingarnefndar
um framboð til bæjarstjórnar-
kosninganna samþykkt einróma
og verður listinn þannig skipað-
ur:
1. Alfreð Gíslason, bæjarfógeti.
2. Tómas Tómass., lögfræðingur
3. Marteinn Árnason, haínar-
gjaldkeri.
4. Guðmundur Guðmundsson,
Sparisjóðsf /rstjóri.
5. Falur Guðmundsson, útgerð-
armaður.
6. Höskuldur Goði Karlsson,
íþróttakennari.
7. Sesselja Magnúsdóttir, húsfrú
8. HaSldóir Guðmundsson, tré-
smíðameistari.
9. Halldór Ibsen, verkamaður.
10. Gunnlaugur Karlsson, skipstj.
11. Vilborg Ámundad., liúsfrú.
12. Kristján Guðlaugsson, verzl-
unarmaður.
13. Hreggviður Bergmann, forstj.
14. Friðrik Þorsteinss., forstjóri.
Mikill hugur er í Sjálfstæðis-
mönnum hér í bænum að
vinna ötullega að sigri Sjálfstæð
isflokksins við kosningarnar.
Á kjörskrá eru um 2100 manns.
— Ingvar.
Stórhríð á Akureyri
á aðfangadagskvöld
Skemmdir utrðu á Krossanesverksmiðjunni