Morgunblaðið - 17.01.1958, Blaðsíða 17
Föstudagur 17. jan. 1958
MORGVN BLAÐIÐ
17
ágúst Steingiímsson, bygg-
ingnfræðingui — Minningororð
ÞEGAR hið nýbyrjaða ár hófst,
var höggvið skarð í hina ungu
fylkingu þeirra, er gert hafa
byggingarlistina að ævistarfi
sínu, við fráfall Ágústs Stein-
grímssonar byggingafræðings,
en honum hafði hlotnast að vera
þar framarlega í hópi sakir hæfi-
leika og mannkosta.
Saga íslenzkrar byggingarlist-
ar er ekki eldri en svo, að hún
er að mestu skráð á ævidögum
þess ágæta fulltrúa hennar, sem
nú er til moldar borinn á miðj-
um starfsaldri, harmdauði öllum,
er af honum höfðu kynni, störf-
uðu með honum og höfðu ástæðu
til þess að vænta enn mikils af
lífi hans og starfi. 111 sjúkdóms-
örlög urðu honum að aldurtila á
bezta skeiði lífsihs, en þó mun
óbrotgjarnt framlag hans til
byggingarmála þjóðarinnar, og
minningin um óvenju góðan og
traustan dreng, skapa honum
verðugan sess meðal beztu manna
sirtnar stéttar.
Ágúst Steingrímsson lézt hinn
10. janúar s. .1., á 47. aldursári.
Hann er fæddur í Hafnarfirði
hinn 23. ágúst 1911, sonur hjón-
anna Jónu Kristjánsdóttur og
Steingríms Jónssonar sjómanns,
en ólst upp á heimili stjúpföður
síns, Guðmundar Einarssonar
framkvæmdastjóra í Hafnarfirði.
Stundaði Ágúst nám í Flens-
borgarskóla, og að því loknu tók
hann próf í múrsmíði. Árlð 1931
hélt hann svo til náms í bygg-
ingarfræðum til Svíþjóðar, en
þar lauk hann fullnaðarprófi frá
Tækniskóla Stokkhólmsborgar
árið 1936.
Að loknu námi réðist hann til
starfa hjá Teiknistofu landbún-
aðarins, eða frá byrjun árs 1937
fram til 1943, er hann gjörðist
starfsmaður á teiknistofu Skipu-
lagsnefndar ríkisins. Þar starfaði
hann næstu 10 árin, fram til
ársins 1953, en setti þá á fót eig-
in teiknistofu, til þess að geta
betur sinnt miklum verkefnum,
sem honum höfðu verið falin, og
eigi gátu samrýmst öðru föstu
starfi.
Árið 1955 réðist Ágúst aftur í
opinbera þjónustu, og þá sem
fulltrúi hjá Húsameistara ríkis-
ins, þar sem hann starfaði til
æviloka.
Það kom brátt í Ijós á náms-
ferli Ágústs Steingrímssonar, að
hann var búinn þeim kostum, er
gerðu hann vel hæfan í það
ævistarf, sem hann hafði valið
sér. Góðar gáfur voru veganesti
hans, listrænn smekkur, örugg
fagþekking og óvenju traust
skapgerð. Allt þetta kom greini-
lega fram í störfum hans og lífi.
Á fyrstu árum Teiknistofu
landbúnaðarins, sem hafði miklu
og vandasömu hlutverki að gegna
fyrir byggingar í sveitum lands-
ins, fékk Ágúst góða þjálfun
fyrstu sex árin eftir heimkomu
frá námi, og verkefni, sem áttu
mjög vel við hann. Þau árin var
að hefjast mikið endurbygging-
artímabil í húsakosti dreifbýlis-
ins, og hlotnaðist honum að
verða virkur þátttakandi í því
starfi, og marka þar spor. Þegar
hann svo réðist til skipulagsins,
kynntist hann byggingarlegum
þörfum þeirra, sem í þéttbýli
búa, í störfum að skipulagi fjöl-
margra staða. Vann hann þar
bæði að mælingum og gerð skipu
lagsuppdrátta, og markaði einnig
á þeim vettvangi spor, er sýndu
hæfileika hans, samvizkusemi og
dugnað.
Jafnframt aðalstarfi við skipu-
lagið, tók Ágúst að sér í félagi
við tvo starfsbræður sína, m. a.
byggingu tveggja hinna stærri
samkomuhúsa hér í Reykjavík.
Á þessum árum, og síðar, teikn-
aði hann mörg íbúðarhús og sam-
byggingar hér og í Hafnarfirði
auk hins myndarlega félags-
heimilis að Flúðum í Árnes-
sýslu.
En stærstu verkefni Ágústs
Steingrímssonar hin síðustu ár,
og þau, sem öðru fremur verða
tengd nafni hans, eru Dvalar-
heimili aldraðra sjómanna í
Reykjavík og Heilsuhælið í
Hveragerði.
Verkefni þau, er hann starfaði
að með húsameistara ríkisins
þrjú síðustu árin, voru einnig
margvísleg og þýðingarmikil.
Iiin helztu þeirra, þar sem hans
mun við getið, eru byggingar í !
Skálholti, bygging að Rafnseyri |
(skóli og prestssetur), skóli í
Höfðakaupstað, hæli í Breiðdals-
vík og íþróttahús í Keflavík.
Ágúst Steingrímsson hefir
þannig skilað góðu og miklu I
dagsverki, sem halda mun í j
heiðri nafni hans ókomin ár. En:
stórt skarð er fyrir skyldi við
fráfall hans á miðri starfsævi,
svo miklum kostum var hann
búinn, og svo mikils mátti enn
af honum vænta, hefðu honum
auðnast lengri lífdagar.
Ágúst Steingrímsson hefir
kona hans, sem lézt eftir stutta
sambúð, var Guðbjörg Benónýs-
dóttir. Áttu þau einn son barna,
Guðmund, sem nú er 12 ára að
aldri. Seinni kona hans er
Friðrikka Benónýsdóttir, en syn-
ir þeirra eru þrír, Kristján, Jón
og Stefán.
Það var lán Ágústs, í erfiðri
sjúkdómslegu, að hafa sér við
hlið þegar mest á reyndi, jafn
æðrulausan og sterkan nánasta
ástvin, og kona hans er, en mikill
harmur er nú kveðinn að fjöl-
skyldu og vinum, við fráfall hins
góða heimilisföður og mikilhæfa
manns. Minningin um hann má
þó vera nokkur harmabót, því
þar ber ekki skugga á, — og
tíminn er sáranna naildi læknir,
þótt skarð það, sem hér hefir
verið höggvið, verði eigi aftur
fyllt.
Sá, er öllu ræður, líkni þeim,
Varahlufir
2 Buick mólorar með gír-
kössum.
4 liurðir í Plymouth 1942.
1 afturbretti á Plymouth. —
Selst á mjög lágu verði.
Bílvirkinn
Síðumúla 19. Sími 18580.
Stúlka
óskast tii afgreiðslustarfa. Uppl. í dag kl. 3—4.
Kkki í síma. —
Stórholtsbúð
STOKHOLTI16
Mailaffnaefni
Rafmagnsrör
%“, iy2“ og 2“
Ídráttarvír
l,5q, 2,5q, 4q, 6q
Plastkapall
2x1,5q, 2x2,5q, 3x1,5q, 3x4q, 4x4q, 4x6q, 4xl0q
Gúmmíkapall
2x0,75q, 2xlq, 2x1,5q, 3x1,5q, 3x2,5q, 3x4q
Rofao* og tenglar alls konar
Varhús N.D.Z.
Kl, K2, K3, K4, K5
Fittings
%“ hólkar og té
Loft- vegg- og rofadósir
Loftlok og krókar
Bjölluvír og bjölluhnappar
Útidyralampar með húsnúmeri
Perur
6 volt, 12 volt, 32 volt, 110 volt og 220 volt.
Rafmagnsmótctrar
1 fasa 0.40 ha og 0.61 ha
3 fasa 1.5 ha og 2 ha
og ótal margt fleira.
Véla- og raftækjaverzlunin
Tryggvagötu 23
sem hér eiga um sárast að binda,
og veiti þeim styrk harmi gegn.
Við, vinir og starfsfélagar
Ágústs Steingrímssonar, kveðj-
um góðan dreng og minnumst
hans með virðingu og þakklæti.
Við minnumst heiðarleika hans
og samvizkusemi í starfi, hins
trausta handtaks og óbrigðulu
vináttu. Slíkra manna er gott að
minnast, og megi íslenzk þjóð
eignast sem flesta slíka ágætis-
menn, sem hann var.
Hörður Bjarnason.
AUSTIN
A 70 model 1954
A 70 model 1952
til sýnis og sölu. Báðir bílarnir eru í mjög góðu lagi.
Bílamarkaðurinn
Brautarholti 22 — Sími 22255
FERGUSON
FE — 3 5
Þeir eru fleiri og fleiri, sem fá sér Ferguson
Síðastliðið ár komu 197 stk. og samtals eru til hér á
landi 1802 Ferguson-dráttarvélar. — Með Ferguson er
fáanlegur fjöldi hjálpartækja. Þau helztu eru:
Sláttuvélar Ámoksturstæki
Múgavélar Áburðardreyfarar
Diskaherfi Flutningsskúffur
Rótherfi Steypihrærivélar
Tætarar Plógar
Mörg búnaðarsambönd hafa pantað Ferguson- dráttar- vélar með tætara til umferöarvinnu.
BÆIMDUR
Þið, sem ætlið að fá dráttarvél eða verkfæri í vor, send-
ið pantanir strax til næsta kaupfélags eða okkar. —
Ef nauðsynleg leyfi fást, útvegum við allar ofangreindar
vélar og auk þess fjölda annarra búvéla.
FERGUSON léttir bústörfin allt árið
Sendið fyrirspurnir, sendið pantanir
Varahlutaafgreiðsla Hringbraut 56
Skrifstofa Sambandshúsinu, Reykjavík