Morgunblaðið - 17.01.1958, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.01.1958, Blaðsíða 18
MORCVNRT 4Ð1Ð FBstudagur 17. jan. 1958 ie Dimmviðri í Bankastræti. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Mesta óveðrið á vetrinum Áframhaldandi rosatíð Barnaskólunum lokað vegna veðurs Ehki annað eins fonnhyngi í 30 úr Á 5 klst milli Rvíkur og Selfoss 1 gær VETUR KONUNGUR lét flesta landsmenn finna það í gær, að það er hann, sem ríkir um þess- ar mundir. Yfir mikinn hluta landsins gekk mesta óveður, sem komið hefur á þessum vetri 8—10 vindstig með dimmum hríðar- éljum. í gærkvöldi var ekki kunn ugt um neinn stórskaða af völd- um þess. Bátar voru ekki á sjó, því að veðrið var þegar orðið ófært í fyrrakvöld. Óveðrið hafði í för með sér töluverðar símabilanir, sem skýrt er frá á öðrum stað hér í blaðinu. Hér í Reykjavík varð að taka upp rafmagnsskömmtun, samgöngur töfðust mjög vegna ófærðar, því að snjó dró mjög í skafla. Eldur kom upp í húsi í Vesturbænum. Kona varð bráðkvödd í strætis- vagni í gær. I fyrrinótt var mjög slæmt veður hér í bænum. Óveður þetta skall á síðari hluta dags á mið- vikudaginn. Um hádegisbilið gerði mjög dimmt él, en í verstu hryðjunum komst veðurhæðin upp í 12 vindstig. Þetta hafði í för með sér, að aðstandendur skóla- barna voru mjög á báðum áttum, hvort senda skyldi börnin í skóla, enda var það svo, að eftir hádegið var mjög illa mætt í barnaskól- unum. Var þá víða gefið fri, þar eð ekki var kennslufært. Einn barnaskólinn tilk. að kennsla myndi falla niður eftir hádegið. Var það Langholtsskólinn. — í gærkvöldi tilk. barnaskólarnir, að kennsla myndi falla niður í dag vegna þess, hve spáð er slæmu veðri. Er þess vænzt, að norðanveðrið lægi með kvöldinu. Um klukkan 3 í gærdag fór að verða vart rafmagnstruflana hér í bænum. Var ekki hægt að koma fullri orku til bæjarins frá orku- verunum austur við Ljósafoss, MIKLAR símabilanir urðu í of- viðrinu í gær, en þær voru í því fólgnar að ýmist slitnuðu sima- línurnar eða línusamsláttur varð. Ekki er kunnugt um að síma- staurar hafi brotnað. Flestar þessar bilanir hafði tekizt að lag færa í gærkvöldi. í fyrrnótt varð fyrsta síma- bilunin er talsimasambandið milli Reykjavíkur og ísafjarðar og pat reksfjarðar rofnaði. Símalínan milli Hrútafjarðar og Hólmavík- ur slitnaði. Þar var ofsaveður í gærdag og ógerlegt að senda símamenn á vettvang. Árdegis bilaði svo fjölsíma- sambandið við Akureyri. Þó varð ekki sambandslaust þangað, því hægt var að tala um Suðurlands- línuna. Það sem olli biluninni en ástæðan var gífurleg krapa- myndun. Iðulaus stórhríð, .ofan- bylur og skafrenningur var þar eystra og lagði út á vatnsuppi- stöðuna við stíflugarða orkuver- anna, og myndaðist mikið krap þar. Tókst að koma þessu í lag aftur um klukkan 6, og var þá rafmagnsskömmtuninni hætt. Hverfin voru til skiptis rafmagns laus í svo sem hálftíma í senn. Hvar, sem farið var um bæinn í gær, var umferð fólks mjög lítil, enda var veðrið þannig, er bæj- arbúar risu úr rekkju í gærmorg-. un, að það voru aðeins þeir, er brýnt erindi áttu, sem fóru að heiman. í gærkvöldi mátti heita, að ekki sæist nokkur maður í strætisvögnunum. Vögunum gekk yfirleitt vel að halda áætlun. Ef tafir urðu þá var það vegna þess, að élin sem stundum stóðu all- lengi voru svo dimm, að ekki var hægt að aka nema fetið. Færð var þó sums staðar orðin þung síðdegis, en þá komu vegheflar og ýtur bæjarins á vettvang og ruddu allar helztu samgör.guleið- irnar um bæinn þveran og endi- langan. Lögbergsvagninn festist í gærkvöldi uppi við Rauðavatn. Munu engir farþegar hafa verið með vagninum. Úr Kópavognum bárust þær fregnir í gærkvöldi að þar væri víða mikil ófærð. Um klukkan 3,30 kom kona utan úr hríðinni inn í strætisvagn sem fara átti í Vesturbæinn. Hafði hún setið skamma stund, er hún skyndilega féll fram úr sætinu. Var sjúkraliðið þegar kvatt á vettvang. Konan var látin er að var komið. Hafði hún orðið bráðkvöldd. Var þetta kona H. Tofts kaupmanns bér í bæ, til heimilis að Melhaga 13. Var hún á leið heim til sín, er þetta gerð- ist. var, að í fárviðrinu slitnuðu símalínur skammt frá Blöndu- ósi. Nærri samtímis slitnuðu þar einnig símalínur til Sauðárkróks og Skagastrandar. Fyrir harð- fylgi símamanna þar nyrðra tókst milli bylja, að koma símasam- bandinu á aftur, á fjölsímann til Akureyrar og einnig milli Blöndu óss og Skagastrandar. Símtöl til Akureyrar voru þó ekki truflana laus með öllu. í gærkvöldi var símasambands laust við Sandgerði og miklar truflanir á smástöðvum austur í sveitum t.d. Laugarvatni og Torfa stöðum. Um skeið var aðalsíma- sambandið við Stykkishólm rofið, en það tókst að lagfæra. — Á meðan var hægt að ná þangað um Hrútafjarðarstöðina. í óveðrinu í gærmorgun var slökkviliðið kallað vestur í Sel- búðir 9. Þar var mikill eldur í stofu, er brunaverðir komu á vettvang. Brann þar allt og eyði- lagðist, en brunaskemmdir mðu ekki aðrar en í þessari stofu. Voru eldsupptök þau, að þar stóð enn jólatré og mun rafmagns ijós á því hafa kveikt í trénu. í Reykjavíkurhöfn var allt ró- legt að því undanskildu, að þýzki togarinn Anton Dhorn sleit sig oft frá bryggju, en var loks fluttur innar í höfnina. Löregluvarðstofan skýrði blað- inu frá því í gærkvöldi, að lög- reglan hefði haft mörgu að sinna í gær í sambandi við ófærð á göt- um bæjarins, fjölda bílaárekstra og fleira. En stórtíðindalaust var að öðru leyti. Allar flugsamgöngur til og frá landinu lágu niðri í gær, og báðir flugvellirnir voru lokaðir. lengi rætt um það í gær, hvort rétt væri að setja starfsmenn Rafmangsveitu Reykjavíkur í vinnu fyrir Húsnæðismálastjórn. Svo er mál með vexti, að í nóvem berlok barst bréf frá Húsnæðis- málastjórn, þar sem hún biður um að Rafmagnsveitan láti henni í té upplýsingar ef þess verði vart, að rafmagn sé ekki notað í íbúðum. Kemur fram, að Hús- næðismálastjórn sé að rannsaka hvort íbúðir muni standa ónot- aðar og sé þá til leiðbeiningar í því efni, ef ekki hafi verið notað rafmagn í 2 mánuði í íbúð, þannig að hún teljist þá ekki notuð, ef svo sé. I bæjarráði var málið rætt og lagði fulltrúi kommúnista þar til, að Rafmagnsveitan yrði sett til þess að afla Húsnæðis- málastjórn upplýsinga um raf- magnsnotkun bæjarbúa. Geir Hallgrímsson (S.) bar hins vegar fram þá tillögu, að bæjarráð teldi það ekki heyra undir verk Raf- magnsveitunnar eða starfsmanna hennar, að semja slíka skrá, sem Húsnæðismálastjórn færi fram á, en bæjarráð hefði hins vegar ekki á móti því, að fulltrúi Hús- næðismálastjórnar hefði aðgang að spjaldskrá Rafmagnsveitunn- ar og Húsnæðismálastjórnin semji sjálf þá skrá, sem um er beðið. Þessi tillaga G. H. var sam þykkt í bæjarráði með 3 atkvæð- um gegn atkvæði kommúnistans. Nú var þetta mál mikið hita- mál á bæjarstjórnarfundinum í gær og einna fjörugastar umræð- ur um það allra mála. Ingi R. Helgason (K) deildi á bæjarráð og taldi ekki sæmandi að svara þannig erindi frá sjálfri Húsnæð- ismálastjórn, heldur bæri að SAMKVÆMT upplýsingum frá ferðaskrifstofu Kaupfél. Árnes- inga á Selfossi, í gærkvöldi, var færð yfirleitt góð um allar sveitir fyrir austan Fjall. Laugardæling ar höfðu þó aðra sögu að segja, því að þar hefur kyngt niður meiri snjó en menn muna þar um 30 ára skeið. Var bráðófært um hinn fagra dal og heima á Laugarvatni hafði dregið svo í skafla, að þeir voru nær því jafnháir og húsin þar, að því Níu ferðamenn og tvær kýr í Sldðaskálanum NÍU ferðamenn sátu í gærkvöldi í góðu yfirlæti uppi í Skíðaskál- anum í Hveradölum, en þeir eru veðurtepptir þar, og í bílskúr á hlaðinu gistu tvær kýr, sem eru á leið til borgarinnar. Ferðafólk- ið er ýmist á leið til Reykja- víkur eða austur í sveitir. Steingrímur gestgjafi í Skíða- skálanum sagði, að þar hefði ver- ið iðulaus stórhríð í allan gær- dag. Bíllinn, sem flutti kýrnar, kom í Skíðaskálann um klukkan 6 í fyrrakvöld. „Ég hafði nóg af góðu fóðri handa þeim, mjölmat, og svo settum við þykkt lag af sagi á gólfið, svo það fer vel um þær, blessaðar", sagði Steingrímur, er blaðið átti tal við hann í gær- kvöldi. Auk ferðamannanna eru svo 6 vegagerðarmenn, og meðal þeirra er Svisslendingurinn, sem stjórnar snjóplógnum, sem verið er að reyna á Fjallinu um þessar mundir. vinna verkið fyrir hana. Var auð séð að andi „gulu bókarinnar", sveif þar yfir vötnunum. Geir Hallgrímsson tók fram, að ekki væri viðeigandi, að láta starfs- menn Rafmagnsveitunnar fara að vinna að þessu máli fyrir Hús- næðismálastjórn, enda gæti það gefið illt fordæmi. „Skrifstofu- báknið“, eins og það er kallað, væri talið nógu þungt á bænum, þó ekki væri farið að Ijá skrifstof ur bæjarins fyrir alls konar skrár og skýrslugerðir, sem liggja fyr- ir utan verkhring þeirra. Hins vegar væri vel boðið, að Húsnæð- ismálastjórn fengi aðgang að þeim gögnum, sem hún þyrfti til að semja sjálf með sínum eigin starfsmönnum þá skrá, sem hún teldi sig þurfa. G. H. taldi líka alveg ástæðulaust, að vera að koma aflestrarmönnum og öðr- um starfsmönnum Rafmagnsveit unnar „i slæmt ljós“ gagnvart bæjarbúum, því að á milli þeirra og almennings yrði að vera trún- aður. Bæjarbúar mættu á engan hátt telja að starfsmenn Raf- magnsveitunnar væru að reka eins konar njósnastarfsemi í hús unum, þegar þeir kæmu þar til að lesa á mæla eða innheimta reikninga. Það væri eingöngu hlutverk þessara manna, að ganga frá reikningum yfir þá eyðslu, sem um væri að ræða, en það væri ekki þeirra að afla upplýsinga eða grennslast fyrir um rafmagnsnotkun að öðru leyti. Guðmundur H. Guðmundsson (S.) sagði, að það væri vitaskuld enginn mælikvarði, þó fólk færi 2 mónuði burt úr íbúðum, þann- ig, að ekki væri rafmagn not- að, því slíkt gæti oft borið við, þegar hjón færu burt að sumri er fregnir hermdu. Snjóþungt var orðið í öðrum uppsveitum, svo sem Biskupstungum. Krýsuvíkurleiðin var greiðfær í. gær, og farið var milli Reykja- vikur og Selfoss á 5 klst. Það voru hin dimmu él, sem töfðu, en í byljunum sá ekki fram fyrir bílana. Miklar rafmagns- truflanir á Suðurnesjum Keflavík 16. jan. MIKLAR rafmagnstruflanir hafa verið um gjörvöll Suðurnesin í dag af völdum óveðursins. Hafa rafmagnslínur slitnað eða orðið samsláttur á línum. Hér í bæn- um hefur ekki dregið til heinna sérstakra tíðinda í sambandi við veðrið, að öðru leyti en því að færð er víða orðin erfið og í kvöld voru horfur á að þjóðveg- urinn til Reykjavíkur myndi jafnvel lokast, Sandgerðisbátar tll Reykjavlkur í höfninni liggja i góðu vari 70—80 bátar, heimabátar og svo Sandgerðisbátar, er leituðu hér hafnar í óveðrinu f gærkvöldi. Vegurinn til Sandgerðis er greið- fær, en færð var orðin mjög erfið til Grindavíkur og alveg er ófært í Garðinn. Júlíus Steingrímsson rafveitu- stjóri Suðurnesja, sagði að starfs menn hans hefðu ekki komizt til að sinna nærri öllum þeim raf- magnsbilunum sem orðið hefðu I hér á Suðurnesjunum í dag. — L til til vinnu utanbæjar o. s. frv. Nóg væri að afla heimildar til þess að nota spjaldskrárnar, þó að ekki ætti að fara að ganga lengra um vinnu fyrir Húsnæð- ismálastjórn. Magnús Ástmarsson (A) og Alfreð Gíslason (U) töldu sjólf- sagt að verða við ósk Húsnæðis- málastjórnar og töldu, að óþarfi væri að amast við því að setja menn til að vinna þetta verk fyr- ir stofnunina. Björgvin Frederik sen (S) og Geir Hallgrímsson tóku fram, að það væri engin ástæða til að halda að upp úr slíkri skýrslugerð fengjust nokkr ar áreiðanlegar upplýsingar um hvort íbúð stæði auð eða ekki, en hins vegar væri það allra álit að slíks væri naumlega dæmi í bænum. Það væri þess vegna með al annars vegna tilgangsleysis þessarar beiðnar, sem bæjarráð hefði ekki séð ástæðu til að Raf- magnsveitan færi að setja starfs- fólk sitt í þá vinnu, sem hér er um að ræða. Að loknum löngum og allheit- um umræðum var svo tillaga Inga R. Helgasonar um að Raf- magnsveitan ynni verkið fyrir Húsnæðismálastjórn felld með 8 atkvæðum gegn 7, en tillaga Geirs Hallgrímssonar þar á eftir samþykkt með samhljóða atkvæð um. Inga R. Helgasyni var svo mik- ið niðri fyrir, að hann óskaði nafnakalls um tillögu sína og fór það á þá leið, sem áður er lýst. Við atkvæðagreiðsluna gerði Sig urður Sigurðsson (S) þá grein fyrir atkvæði sínu, að hann teldi ekki að neitt væri hægt að byggja á því, þó ekki væri notað raf- magn i 2 mánuði og væri rétt að bærinn héldi sér frá allri upp- lýsingarstarfsemi, sem byggjast ætti á slíkri reglu. Símahilanir í óveðrinu R. csð láfia slarlsiólk Ralveifiumbar vinna iyrir Hússiæðismálast|órn ? Langar umræður á bæjarstjórnaríundi Á BÆ JARST JÓRNARFUNDI var

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.